Morgunblaðið - 01.11.1992, Page 13

Morgunblaðið - 01.11.1992, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1992 B 13 hann varð að óslökkvandi ástarbáli. Ég tók fyrst eftir honum þegar vinkona mín og hann bönkuðu upp á suður í Hafnarfírði og_ drukku með okkur síðdegiskaffí. Ég hafði séð þennan unga mann áður, hann var að nema söng og hafði komið fram á skemmtunum, sungið með Karlakór Reykjavíkur og flutt lög í sönglagakeppninni á Hótel íslandi í einhveijum kvartett. En ég hafði ekki veitt honum sérstaka eftirtekt fyrr en þennan eftirmiðdag. Hann sat í stofunni okkar, fríður, brosandi, lífsglaður, kurteis og heimsmannslegur með óþvingað og öruggt fas, dökkt og hrokkið hárið greitt aftur og það geislaði af honum traust og hlýja. Framkoma hans var ákaflega falleg og hann gat talað um allt milli him- ins og jarðar, meira að segja út- gerð, þótt hann væri úr sveit. Þó fór ekki á milli mála að tónlistin stóð hjarta hans næst. Mér leið strax vel og undarlega í návist Kjartans. Ugglaust hefur honum ekki líkað nærvera mín illa, því ekki leið á löngu áður en hann fór að bjóða mér út, ekki síst á böllin hjá Karlakór Reykjavíkur. Það voru mjög eftirminnilegir dans- leikir þar sem hátíðleiki og glað- værð blandaðist saman; karlmenn- imir í kjól og hvítt og við dömumar í síðum kjólum og þeir svo kátir og hressir og tóku lagið þegar minnst varði. Þetta vom ærslafullar skemmtanir en samt menningarleg- ar og með glæsilegu yfírbragði. Ást mín til Kjartans óx við við- kynninguna og samband okkar varð nánara með hverjum degi sem leið. Hann var hinn fullkomni kavaler; færði mér ávallt blóm eða lítið iim- vatnsglas þegar hann sótti mig á böll eða bíó, hélt alltaf hurðum opn- um fyrir mig og stóð undantekning- arlaust fyrir aftan stólinn minn og ýtti honum gætilega að þegar ég settist að borði, gekk á eftir mér upp stiga og á undan niður; hann kunni mannasiði og var herramaður fram í fíngurgóma. Ég féll þó ekki fyrir mannasið- unum, heldur manninum: Karl- mannlegur og blíður í senn, skemmtilegur og léttur en undir niðri fullur ábyrgðar og djúprar hugsunar. Ég fann til mikillar ör- yggiskenndar í nálægð hans, hann var mikill vemdari í eðli sínu og mér fannst ég gæti lagt líf mitt í hans hendur; ég var hamingjusöm og áhyggjulaus í návist hans. Kjartan hét hann og var Sigur- jónsson. Hann var sonur Siguijóns Kjartanssonar kaupfélagsstjóra i Vík í Mýrdal og Höllu Guðjónsdótt- ur konu hans. Kjartan var einkason- ur þeirra og ólst upp á menningar- heimili þar sem veraldleg og andleg gæði fóru saman. Siguijón kaupfé- lagsstjóri var söngelskur maður, var lengi forsöngvari við Víkurkirkju og stjómaði kómum. Kjartan ólst því upp á tónlistarheimili og snemma hneigðist hugur hans að söngnum. Hann var farinn að stjóma karlakór í heimasveit sinni innan við tvítugt. Kjartan fór í Sam- vinnuskólann en stundaði jafnframt nám í hljóðfæraleik hjá Páli ísólfs- syni. Að loknu skólanámi vann hann um skeið skrifstofustörf hjá Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga jafnframt söngnámi hjá Sigurði Birkis söngmálastjóra. Um það leyti sem hjörtu okkar tóku að slá í takt var hann gerður að aðstoðarsöng- málastjóra og fólst starf hans aðal- lega í að stofna kirkjukóra um land allt. En hugur Kjartans stefndi að- eins í eina átt: Hann ætlaði áfram í söngnám og gerst söngvari að atvinnu. Hann hafði allt til að bera; silfurskæra, melódiska og þrótt- mikla tenórrödd, persónuleikann, glæsimennskuna, ódrepandi seigl- una og markmiðið sem hann missti aldrei sjónar á. Sigurður Birkis sagði mér eitt sinn að Kjartan hefði verið efnilegasti söngnemandi sinn pg er það mikið sagt, því Stefán íslandi lærði hjá Sigurði. Ungverskur dans í brúðarkjól Ég stappa niður fótunum. Tylli Bára um tvítugt, í ballett. mér á tær og lyfti höndunum hægt út frá líkamanum um leið og ég stíg skref fram á við, stansa og slæ snöggt á tamborínuna sem ég held fyrir ofan höfuðið. Sveigi mig aftur og gef mig í dansinn, fjörugan og heitan. Ég dansa taktfast og ögrandi í brúðarkjólnum eftir kirlqugólfínu. Gestimir hoffa sviplausir og fölir á mig meðan ég svíf fram hjá þeim og hreyfí mig eggjandi eftir dauðagiym kirkjuklukknanna. Hvít- ur brúðarkjóllinn sveiflast og slörið stendur beint út frá höfðinu þar sem ég hringsnýst í villtum ungverskum dansi í svarthvítri Dómkirkjunni við undirleik klukknanna sem glymja stöðugan og eintóna hljóm. Ég snýst og kirkjan og gestimir hringsnúast uns allt verður ein móða, kirkjuklukkurnar og hjart- sláttur minn slá í takt og ég vil öskra en get það ekki og dansinn dunar stjómlaust áfram. Ég hrekk upp í rúminu löður- sveitt. Hjartað berst í bijósti mínu og síðustu myndir martraðarinnar halda mér enn í heiljargreipum. Ég rís upp við dogg, fel andlitið í hönd- SJÁ NÆSTU SÍÐU Lítið í gluggan uni helgina SÓFASETT — HORNSÓFAR — STAKIR SÓFAR Ótal gerðir og litir i leðri. Hvíldarstólar við allra hæfi. Borðstofuhúsgögn i mörgum viðartegundum. Ný sending af enskum Chesterfield sófasettum úr leðri. Valhúsgögn Ármúla 8, símar 812275 og 685375. DÝRMÆT ORKULIND Heita vatnið er einhver ódýrasta orka til húshitunar sem við eigum völ á. En það er sjálfsagt að fara eins vel með hana og við getum. Allt frá upphafi hafa sjálfstilltir Danfoss ofnhitastillar staðið vörð um nýtingu heita vatnsins. Rétt stilltir Danfoss ofnhitastillar auka endingu þessarar dýrmætu orkulindar og spara notendum ómældar fjárhæðir í húshitun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.