Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 1
HLJÓMPLÖTUR: Allt í járnum á jólavertíð /4-5
MAREL: Stefnt að tvöföldun veltu á 3-5 árum /6-7
VIÐSKIFTIAIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 BLAÐ
Hlutabréfamarkaður
Utboð Olíufélagsins liður
ífjármögnun SlS-bréfanna
Hagnaður um 190 milljónir fyrstu níu mánuði ársins og heildareignir
í lok september rúmir 6,9 milljarðar
OLÍUFÉLAGIÐ hf. hefur hafið útboð á nýju hlutafé að nafn-
virði 50 milQónir króna. Útboðið er liður í þvi að fjármagna
kaup félagsins á hlutabréfum Sambandsins, en þau voru sam-
tals að nafnvirði 210 miiyónir. Hluthafafundur Olíufélagsins 19.
nóvember síðastliðinn samþykkti sem kunnugt er að kaupa öll
hlutabréf Sambandsins og lækka hlutafé félagsins um samsvar-
andi fjárhæð. Jafnframt var'Mjórn félagsins heimilað að auka
hlutafé um allt að 260 milljónir með sölu nýrra hluta.
Forkaupsréttarhafar hafa frest
til 14. desember til að skrifa sig
fyrir nýju hlutafé og verða bréf
sem ekki hafa selst að þeim tíma
liðnum seld á almennum markaði.
Gengi til forkaupsréttarhafa er
4,75 en 5,0 til annarra.
Samkvæmt óendurskoðuðu
SÖLUGENGI DOLLARS Síðustu fjórar vikur
1 Oj:,yo
59,00
l i i l l
4.n<5v. 11. 18. 25. 2.de's-
uppgjöri 30. september sl. var um
190 milljóna króna hagnaður hjá
Olíufélaginu fyrstu níu mánuði
ársins. Hagnaður fyrir reiknaðan
tekju- og eignarskatt var 307,5
milljónir. Allt árið í fyrra var hagn-
aður hins vegar 170 milljónir.
Heildareignir í lok september voru
rúmir 6,9 milljarðar en þar af var
eigið fé 3,8 milljarðar. Eiginfjár-
hlutfall var því 56%. Eftir kaupin
á bréfum Sambandsins hefur eigið
fé hins vegar lækkað í tæpa 2,8
milljarða eða 40%.
í útboðslýsingu kemur fram að
fyrirsjáanleg fjárfestingarþörf 01-
íufélagsins er óveruleg á næstu
árum. Stefna fyrirtækisins sé að
auka hagræðingu, kostnaðareftir-
lit og íjármagnsnýtingu innan þess
ramma sem fyrirtækið hefur þegar
mótað. Þannig sé fyrirtækið best
til þess fallið að mæta aukinni
samkeppni og ytri áföllum með
það að markmiði að hámarka arð-
semi fyrirtækisins og hluthafanna.
Olíufélagið hf. er stærsta olíufé-
lag landsins og eitt íslensku olíufé-
laganna þriggja sem alfarið er í
eigu íslenskra fyrirtækja og ein-
staklinga. Hluthafar eru um 1.200
talsins. Stærstu hluthafar í Olíufé-
laginu fyrir hlutaíjárútboðið eru
Olíusamlag Keflavíkur með
13,10% og KEA með 10,80%.
Aðrir hluthafar eiga minna en 10%
hlutafjár.
í útboðslýsingunni kemur fram
að markaðsstaða Olíufélagsins
hefur verið sterk og stöðug und-
anfarinn áratug. Þannig var fyrir-
tækið með 39,81% markaðshlut-
deild í bílabensíni árið 1980 sam-
anborið við 39,80% á síðasta ári.
Á sama tíma jókst markaðshlut-
deild Olíufélagsins í sölu svartolíu
úr 42,35% í 47,64% og markaðs-
hlutdeildin í sölu gasolíu var svo
til óbreytt í tæpum 45%. Ofan-
nefndar tegundir ásamt þotuelds-
neyti gefa um 85% af brúttófram-
legð vörusölu Olíufélagsins hf. og
markaðshlutdeild Olíufélagsins í
þessum fjórum helstu eldsneytis-
tegundum á íslenska olíumarkaðn-
um var um 44% eða 250.000 tonn
á síðasta ári. Langstærsti kaup-
endahópur Olíufélagsins hf. eru
skipaútgerðir, sem kaupa um 45%
af heildarmagni áðumefndra eld-
neytistegunda. Næststærsti hóp-
urinn eru bifreiðaeigendur með um
25% af heildarmagninu. Þá hefur
Olíufélagið um árabil verið með
samning við bandaríska herinn á
Keflavíkurflugvelli um dreifingu,
þjónustu og geymslu á eldsneyti.
LÁNSTRAUST
25 ríkja
skv. mati Euromoney
Rððin
1992
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
19.
20.
21.
22.
23.
24.
25.
Land
Japan
Holland
Sviss
Þýskaland
Frakkland
Bandaríkin
Austumki
Kanada
Bretland
Belgia
Noregur
Danmörk
Svíþjóð
Singapore
Ástralía
Finnland
Spánn
Lúxemborg
Nýja Sjáland
Taiwan
íriand
ftalla
Portúgal
ÍSLAND
Hong Kong
Röðin
1988
FJÁRMALATÍMARITIÐ Euromoney birti nýlega niðurstöður sinar um
lánstraust þjóða. Hópur sérfræðinga var fenginn til að meta lánstraustið á
grundvelli uplýsinga um fjölmörg atriði sem vegin eru saman í ákveðnum
hlutföllum. Samkvæmt upplýsingum úr Fréttabréfinu Veröbréfaviðskipti
Samvinnubankans varða þessi atriði allt frá stððugleika í stjómmálum til
þeirra lánskjara sem hver þjóð nýtur á alþjóðlegum fjármagnsmörkuðum
hverju sinni. í könnuninni fyrir árið 1992 lendir Island i 24. sæti, en var i 26.
sæti 1988. í Fréttabréfinu segir að aðeins tvær þjóðir í V-Evrópu fái slakari
einkunn en ísland, þ.e. Grikkland og Tyrkland. Það sé því Ijóst að láns-
traust íslands er slakt í samanburði við þær þjóðir sem við berum okkur
saman við. í matinu hefur staða Svía og Finrra versnað verulega en staða
Dana hefur á hinn bóginn batnað, hagvöxtur hafi verið vaxandi, viðskipta-
jðfnuður jákvæður og verðbólga lítil undanfarin ár.
, ■
HAGKVÆMASTI
KOSTURINN
ÞEGAR
ALLS ERGÆTT.
SAGA
BUSINESS í viðskiptaferðum með Saga
CLASS Business Class lækkarðu
ferðakostnað til muna með
því að eiga kost á heimferð strax og þú
hefur lokið viðskiptaerindum þínum.
Þeir scn/ reikini dicmii) ti'I encLi veljii
cilltdJ Síigíi B/isiuess C/íiss
Mundu einnig að eitt og sama fargjald með
Saga Business Class getur gilt milli margra
áfangastaða í sömu ferð. Þú nýtur svo
ávinnings af að geta eins fljótt og auðið er
tekist á við verkefni sem bíða þín heima.
FLUGLEIÐIR
Traustur ísltnskur ferðafélagi