Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 2

Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 Lífeyrissjóðir Tilmæli um rýmkaðar reglur um hlutabréfakaup SAMBANDSSTJÓRN Sambands almennra lífeyrissjóða (SAL) hefur samþykkt að beina því til aðildarsjóða SAL að rýmkaðar verði regl- ur um hlutabréfakaup sjóðanna. Auk þess er einstökum aðildarsjóð- um SAL nú heimilt að eiga allt að 10% af hlutafé í hverju einstöku félagi, en eldri regla miðaðist við 5% eignarhlutdeild í hveiju fyrir- tæki. Þetta kom fram í máli Hrafns Magnússonar, framkvæmda- sljóra SAL, í erindi hans á ráðstefnu Landsbréfa í gær. Hinar rýmkuðu reglur eiga að felast í því að í stað þess að miða heildarkaup í hlutabréfum við ekki hærri fjárhæð en sem nemur 10% af iðgjaldatekjum viðkomandi líf- eyrissjóðs sé nú miðað við 10% af árlegu ráðstöfunarfé. Hrafn lagði áherslu á umfang lífeyrissjóðanna og sagði að ljóst væri að vöxtur og viðgangur ís- lenska hlutabréfamarkaðarins á næstu árum myndi að verulegu leyti fara eftir því hversu mikið líf- eyrissjóðimir fjárfestu í hlutabréf- um. „Ég tel nauðsynlegt að styrkja eiginijarstöðu innlendra fyrirtækja, en mjög mikilvægt er að íslensk fyrirtæki búi við viðunandi eigin- fjárhlutfall. Þetta á ekki síður við vegna þess að íslensk fyrirtæki búa við meiri sveiflur í rekstrarum- hverfí en erlend fyrirtæki.“ Sambandsstjórnarfundur SAL hefur einnig samþykkt að "’beina því til aðildarsjóðanna að heimilt væri að festa fé lífeyrissjóðsins í traustum erlendum verðbréfum og hlutabréfum sem skráð væru á verðbréfamörkuðum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD). Hlutfall erlendra eigna ætti þó ekki að fara umfram 5% af hreinni eign til greiðslu lífeyris. Hrafn sagði að nauðsynlegt væri fyrir lífeyrissjóði að fjárfesta erlendis til að dreifa áhættunni auk þess hefði arðsemi hlutabréfa erlendis verið mjög góð þegar til lengri tíma væri litið. Hann sagði hins vegar: „M.a. vegna vaxandi atvinnuleysis, og vegna þess að engar líkur eru á verulegum ijár- festingum eða skuldabréfakaup- um útlendinga hér á landi á næstu misserum, tel ég að þess sé ekki að vænta að nema lítill hluti af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna fari í erlendar fjárfestingar á næsta ári. Þá verður að segjast eins og er að fárfestingar erlendis eru ekki beinlínis fýsilegur kostur nú, miðað við þá háu raunvexti sem í boði eru innanlands.“ Hlutabréf sem % af eignum lífeyrissjóða England Bandarlkin Japan Holland Danmörk Sviss Svíþjóö Finnland Island SAL 12/1992 100 I Lönd LIFEYRISSJOÐIR — Hrafn sagði í erindi sínu að samanbor- ið við að íslenskir lífeyrissjóðir hefðu aðeins fest tæplega 2% af eign- um sínum í hlutabréfum, festu erlendir lífeyrissjóðir verulegan hluta eigna sinna í hlutabréfum. Um 80% af eignum bresku lífeyrissjóðanna væru í hlutabréfum og 20 stærstu bandarísku lífeyrissjóðirnir ættu um 10% af almenningshlutabréfum þar í landi. Einkavæðing Sala ríkisfyrirtækja helmingi minni en fjárlöggerðu ráð fyrir Um 40% af hlutabréfum í Jarðborunum seld eftir að upphaflegur tilboðsfrestur rann út Hlutabréf Árið líður en hluta- bréfasalan í lágmarki SKRÁÐ sala á hlutabréfum á Verðbréfaþingi íslands og Opna tilboðsmarkaðnum var einungis um 3,5 milljónir króna vikuna 25.nóvember til l.desember. Líkt og í siðastliðinni viku seldist mest af hlutabréfum í Eignarhaldsfélagi Iðnaðar- bankans fyrir 1,7 milljónir króna en mesta gengishækkunin var hjá Olíufélaginu, í 5,00 úr 4,70. Til samanburðar má geta þess að í síðastliðinni viku var skráð sala fyrir tæplega 13 milljónir króna. Alls seldust hlutabréf í 4 hlutafélögum fyrir utan Eign- arhaldsfélag Iðnaðarbankans og Olíufélagið. í Hlutabréfa- sjóðnum seldust bréf fyrir 770 þúsund á genginu 1,36 og 1,30, í Hampiðjunni fyrir 99 þúsund á 1,05, í Eimskipi fyrir 604 þúsund á 4,15 og 4,25 og Hlutabréfasjóði Norðurlands fyrir 89 þúsund á genginu 1,08. FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu hefur ákveðið að fram- lengja tilböðsfrest í hlutabréf Jarðborana hf. til áramóta. Upphafleg- ur tilboðsfrestur rann út 20. nóvember sl., sala hafði þá staðið í þijá mánuði og hlutabréf fyrir 104 milljónir króna selst. Það eru 40% af þeim 260 milljónum sem áformað var að selja. Að sögn Hreins Loftssonar hafa einkavæðingaráformin alls skilað rúmlega 300 millj- ónum það sem af er árs en hann gerir ráð fyrir að alls geti sala ríkisfyrirtækja orðið um hálfur milljarður um áramótin ef úr sölu hlutabréfa í Jarðborunum rætist og hlutabréf í Islenskri endurtrygg- ingu verða sett á markað og seljist. I fjárlögum ársins var gert ráð fyrir að selja eignir ríkissjóðs fyrir 1.075 milljónir króna. Að sögn Stefáns Halldórssonar hjá Kaupþingi, sem sér um hluta- fjárútboð Jarðborana, hafa margir fjárfest í Jarðborunum en lífeyris- sjóðir væru ekki jafnstór hluti og gert hafði verið ráð fyrir. Níu lífeyr- issjóðir hefðu fjárfest samtals fyrir 54,5 milljónir króna en 151 ein- staklingur fyrir 22,3 milljónir króna, aðrir fjárfestar væru fjár- festingarsjóðir og lögaðilar. „Skýringar á dræmri sölu eru m.a. þær að staðan á hlutabréfa- markaði hefur breyst mikið frá því í sumar. Meiri svártsýni er við lýði, einkum um afkomu fyrirtækja. Um það leyti sem sala hlutabréfanna hófst ágerðust fréttir um slæmt atvinnuástand, uppsagnir starfs- fólks, lokun fyrirtækja og alls kyns rekstrarerfiðleika. Hlutabréfa- markaðurinn hefur lent í niður- sveiflu og viðskipti hafa verið lítil og farið minnkandi. Þá hafa mark- aðsvextir skuldabréfa hækkað verulega og framboð hefur aukist, einkum á ríkistryggðum bréfum. Húsbréfaútgáfa hefur farið fram úr áætlunum og nýtt útboðsfyrir- komulag hefur aukið sölu á skulda- bréfum ríkisins." Stefán sagði einnig að umræður um atvinnumál hefðu snúist upp í kröfur um þátttöku stórra fjárfesta í að skapa atvinnutækifæri. Því hefðu lífeyrissjóðir og ýmsir stórir ljárfestar sem talist gætu líklegir kaupendur hlutabréfa Jarðborana hf. haldið að sér höndum og fremur ljáð öðrum málum stuðning sinn. „Ljóst er að við þessar aðstæður er árangurinn viðunandi, einkum í sölu til einstaklinga. Lífeyrissjóðirn- ir hafa hins vegar brugðist vonum okkar, en þó kann að rætast úr með nýgerðu samkomulagi ríkis- stjórnarinnar við sjóðina.“ Hlutabréf - fíeykjavík - $ími 689000 Jólahlaðborð á Holiday Inn Öll hádegi - öll kvöld. Verð kr. 1.950.- á mann Salir fyrir 30-120 manna hópa, m.a. Háteigur á efstu hœð með útsýni yfir borgina. Rífandi sala í bréfum KEA UM 80% af hlutabréfum í hluta- fjárútboði Kaupfélags Eyfirð- inga höfðu selst í gær, miðviku- dag, eða um 39 milljónir af 50 milljónun á genginu 2,25. Ut- boðið hófst sl. þriðjudag. Að sögn Jóns Halls Péturssonar, framkvæmdastjóra Kaupþings á Norðurlandi sem sér um út- boðið, eru fjárfestar bæði líf- eyrissjóðir, smærri fjárfestar og einstaklingar. Hann gerir ráð fyrir að það hlutafé sem eftir er seljist nú í desember. Til að gera hlutabréfin að eftir- sóknarverðum fjárfestingarkpsti stefnir stjórn KEA að því að greiddur verði 15% arður, í sam- ræmi við gildandi ákvæði skatta- laga um hámark frádráttarbærs arðs, nýttar verði til fullnustu heimildir á hveijum tíma til úgáfu jöfnunarhlutabréfa. Þá á að sækja um skráningu hlutabréfanna á Verðbréfaþingi íslands í kjölfar útboðsins. Samkvæmt upplýsingum um útboðið gilda um samvinnuhluta- bréf að nokkru leyti mismunandi lagaákvæði en um önnur hluta- bréf. Samvinnuhlutabréfunum fylgir ekki atkvæðisréttur, en hlut- hafar hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum, hluthöfunum er veittur aukinn réttur til að knýja fram arðgreiðslur og útgáfu jöfnunar- hlutabréfa og hluthafar eiga for- gang umfram félagsmenn til greiðslu úr sjóðum félagsins, verði því slitið. Þeir þurfa því ekki að sæta lækkun hiutafjár tiljöfnunar taps fyrr en stofnsjóður félags- manna er tæmdur. Viðskipti Orka heldur umboðinu frá Du Pont Scandinaviu ORKA hf. hefur fengið aftur umboðið fyrir bílalakkvörur frá Du Pont Seandinavia AB sem fyrrum starfsmaður fyrirtækisins náði til sín í síðustu viku þegar hann sagði þar upp störfum. í kjölfarið fór Helgi Baldursson, forstjóri Orku, til Svíþjóðar til viðræðna við forráðamenn Du Pont Scandinavia þar sem þeir lýstu því yfir að Orka væri einkaumboðsðili þeirra á íslandi. Uppistandið hefði stafað af röngum upplýsingum, enda hefði Orka hf. staðið við alla samninga við Du Pont Scandinavia. Helgi Baldursson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þegar umræddur starfsmaður sagði upp störfum hjá Orku hefði kom- ið í ljós að hann hafði í nokkrar vikur staðið í viðræðum við aðila hjá Du Pont Scandinaviu um að yfirtaka umboðið frá þeim. „Við fréttum hjá þessum fyrrverandi starfsmanni okkar að hann væri kominn með umboðið þegar hann sagði upp störfum hjá okkur. Mín viðbrögð voru að fara strax út til viðræðna við forráðamenn Du Pont og þar kom í ljós að þetta var allt byggt á allshetjar misskilningi. Þessi starfsmaður var í lykilaðstöðu hjá Orku og hafði gefið aðilunum í Svíþjóð rangar upplýsingar sem mér tókst að leiðrétta." „Eftir því sem maður hefur heyrt virðist sem þetta sé orðin faraldur hér á landi,“ sagði Helgi. „Við erum reynslunni ríkari og getum þakkað fyrir að hafa brugðist nógu fljótt við. Það er eina ráðið sem hægt er að gefa þeim sém lenda í þessu. Aðspurð- ur hvort einhveijir eftirmálar yrðu af þessu máli af hálfu Orku sagði Helgi svo ekki vera, enda hefði hluti af samkomulagi Orku við Du Pont Scandinavia falið í sér að umræddur fyrrverandi stárfmaður Orku yrði ekki lög- sóttur af fyrirtækinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.