Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSXIPTI/ATVINNVLÍF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
----------------------------IIJtfHiÆIVTAMT^nHWHV t R>/..l'M'JUHUk
£4
SAMNINGUR — Á myndinni sjást forsvarsmenn fyrirtækj-
anna undirrita samninginn, Jón Ragnar Höskuldsson forstöðumaður
Tölvumiðstöðvar sparisjóðanna, Matthías Á. Mathiesen stjórnarformað-
ur Sparisjóðs Hafnarfjarðar og Hálfdan Karlsson framkvæmdastjóri
íslenskrar forritaþróunar.
IÐAaUTMMI'í
Hugbúnaður
Sjparisjóðimir velja
OpusAllt hugbúnað
TÖLVUMIÐSTÖÐ sparisjóðanna og íslensk forritaþróun hf. sömdu i
gær, miðvikudag, um kaup sparisjóðanna á ÓpusAllt viðskipahugbún-
aði. Sparisjóðirnir og íslensk forritaþróun hf. vinna saman að því að
byggja upp staðlað uppgjörskerfi fyrir fjárhagsbókhald er innifeiur
í sér m.a. lestur upplýsinga frá Reiknistofnu bankanna (RB) yfir í
ÓpusAUt viðskiptahugbúnað, auk sendinga á upplýsingum til RB.
Auk fjárhagsbókhaldsvinnslu
innifelur þessi samningur kaup á
öðrum ÓpusAllt kerfum, s.s. við-
skiptabókhaldi, eigna- og fyrning-
kerfi, birgðabókhaldi og sölukerfi.
Með stöðluðum ÓpusAllt við-
skipahugbúnaði geta sparisjóðimir
jafnóðum framkvæmt allar uppgjör-
svinnslur á eigin tölvunetum og
unnið efnahags- og rekstaruppgjör
á skjótari máta en hingað til hefur
verið mögulegt.
Jón Ragnar Höskuldsson for-
stöðumaður Tölvumiðstöðvar spari-
sjóðanna segir að þetta verkefni sé
hluti af markvissri tölvuvæðinu
sparisjóðanna til að styrkja sam-
keppnisstöðu sína.
Hlutabréf
Hlutabréf í Granda og
Þormóði ramma eftirsótt
HLUTHAFAR í Granda hf. nýttu forkaupsrétt sinn til fullnustu í
nýafstöðnu 60 milljóna króna hlutafjárútboði félagsins og fóru því
engin bréf á almennan markað að þessu sinni. Þá hefur hlutafjárút-
boð í Þórmóði ramma gengið vel og eru aðeins nokkuð hundruð
þúsunda króna eftir af 50 milljónum sem sett voru á almennan
markað eftir að hluthafar höfðu fallið frá forkaupsrétti sínum.
Hjá Granda hf. rann forkaups-
rétturinn út í lok nóvember sl. Að
sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, hjá
Verðbréfamarkaði ’ íslandsbanka
sem sér um hlutafjárútboðið fyrir
hönd Granda, var góð eftirspurn
eftir bréfunum sem seld voru á
genginu 2,1. Heildarupphæð út-
boðsins er 126 milljónir.
Verðbréfamarkaður íslands-
banka sér einnig um 50 milljóna
króna hlutafjárútboð hjá Þormóði
ramma sem hófst 5. nóvember.
Að sögn Vilhjálms eru þar aðeins
eftir hlutabréf fyrir nokkur hundr-
uð þúsunda. Strax á fyrsta degi
útboðsins var 20 milljónum króna
ráðstafað vegna kaupa fyrirtækis-
ins á 52% hlut í sjávarútvegsfyrir-
tækinu Skildi hf. á Sauðárkróki.
Það sem eftir var fór á almennan
markað þar sem hluthafar féllu frá
forkaupsrétti sínum. Hlutabréfm
voru seld á genginu 2,30.
Að sögn Vilhjálms virðist sem
menn telji hlutabréf í Granda og
Þormóði ramma vera góðan fjár-
festingarvalkost til lengri tíma.
Þama væri um að ræða öflug fyrir-
tæki þar sem unnið væri að áhuga-
Iönrekendur og aörir atvinnurekendur
-sýniö gott fordœmi!
Veljið
íslenskan
viðskipta-
hugbúnað
Þrír af hverjum fjórum Islendingum telja að fremur eigi að velja
íslenskar vörur en erlendar - sér í lagi ef þær eru jafngódar eda betri!
Hvað finnst þér?
60-70% af útgjöldum íslenskra hugbúnaðarframleiðenda
fara í beinan launakostnað.
Veljum íslenskan vióskiptahugbúiuiö og
styöfuni íslenskt bngvit i hcesta gceöajlokki!
ALVIS
viðskiptahugbúnaöur
Kerf i hf.
HÖFÐABAKKA 9 • S. 67 19 20
opMsal.lt
viðskiptahugbúnaður
íslensk forritaþróun hf.
ENGJATEIGI 3 • S. 67 15 11
verðum málum og þeir aðilar sem
þekktu hlutabréfamarkaðinn hvað
best væru greinilega á sama máli.
Aðspurður hvort hlutabréfasala
væri farin að aukast eins og van-
inn er síðustu vikur á ári hverju
þegar menn fara að huga að
skattafrádrætti vegna hlutafjár-
kaupa, sagði Vilhjálmur að eitt-
hvað hefði borið á fyrirspurnum
varðandi þau mál. Hins vegar
héldu flestir að sér höndum á með-
an óvissa ríkti um þá ákvörðun
stjómvalda hve hátt hlutfall yrði
frádráttarbært frá skatti. Einstaka
aðilar væm þó farnir að kaupa
hlutabréf út frá þeirri forsendu að
sömu reglur myndu gilda nú og í
fyrra, þ.e. að hlutabréfakaup ein-
staklinga fyrir allt að 94 þúsund
krónur yrðu frádráttarbær frá
skatti og upphæðin tvöfaldaðist
þegar um hjón væri að ræða.
Sumir
viðskiptavina
okkar
hanga uppi
allt árið.*.
♦ ♦ ♦
þar sem þeir vilja helst vera:
Fyrir augum mikilvægra erlendra
viðskiptavina sinna.
Dagatalið Af Ijósakri íslartds
hefur unnið sér sess á veggjum
stórra og smárra fyrirtækja víða
um heim. Þar er hörð samkeppni
um veggpláss; aðeins það besta
kemst upp!
Ef þú vilt komast
upp næsta ár...
♦ ♦ ♦ skaltu tala við okkur.
Það er ekki sama hvað þú sendir
frá þér um þessi jól.
Við höfum sérhæft okkur í jóla- og
áramótakveðjum og bjóðum nýja
viðskiptavini velkomna.
WU)
VÍDDIRJJ AUKhf
Skipholti 50c, Sími 91-688 600, Fax 91-688 798
.............1—I--1