Morgunblaðið - 03.12.1992, Side 5
MORpUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVS . FIMMTjjUAQyp 3, DESEMBER, 1992
C 5
ingum Morgunblaðsins virðist
hljómplata Bubba Morthens, Von,
ætla að verða fyrst til að ná mark-
inu, en nokkrar aðrar eru sagðar
vera á góðu róli þó fullsnemmt sé
að fullyrða nokkuð með vissu enda
er jólavertíðin rétt nýhafin.
Breytingar á virðisaukaskatti
bæta samkeppnistöðu
hljómplötunnar
íslensk tónlist hefur lengst af
vegið um og yfír íjórðung á móti
erlendri tónlist hér á landi, en er
nú orðin rúmlega 35% á ársgrund-
velli. Á vikunum fyrir jól hefur ís-
lensk tónlist hins vegar náð um 60%
af heildarsölunni undanfarin ár.
Undanfarin ár hefur íslensk tón-
listarútgáfa ekki verið undanþegin
virðisaukaskatti. Að sögn Steinars
Berg virkar það þversagnarkennt
að íslensk tónlist hafi verið að
styrkja sig í sessi síðustu ár þar sem
samkeppnisstaðan hafí skerst veru-
lega þegar íslensk bókaútgáfa fékk
felldan niður virðisaukaskattinn.
Steinar sagði að þrátt fyrir að sú
aðgerð hafí ekki verið til bóta hafí
hún þegar upp er staðið leitt til
þess að ýmsum góðum hugmyndum
hafí verið hrint í framkvæmd til
styrktar útgáfu á íslenskri tónlist.
„Með samstilltum aðgerðum náðist
að vinna íslenskri tónlist sess meðal
íslendinga. Aðgerðimar náðu há-
marki á síðasta ári með íslensku
tónlistarsumri sem var endurtekið
í síðastliðið sumar."
í efnahagsaðgerðum ríkisstjóm-
arinnar er gert ráð fyrir að virðis-
aukaskattur verði lagður á bókaút-
gáfu eins og aðra menningar- og
liststarfsemi sem hefur verið und-
anþegin skattinum undanfarin ár.
Jón Trausti hjá Skífunni sagði að
hljómplötuútgefendur hefðu lengi
barist fyrir jöfnuði á þessum gmnd-
velli, en þó frekar gert sér vonir
um að virðisaukaskattur yrði felldur
af tónlistarútgáfunni. Þó væri því
ekki að neita að ákvarðanir stjórn-
valda bættu samkeppnisaðstöðuna
til muna.
Verð á hljómplötum hefur
hækkað
íslenskar hljómplötur hafa alment
hækkað í verði um 100 - 200 krón-
ur frá því í fyrra. Nýir geisladiskar
kosta flestir rétt tæplega 2.000
krónur þó þeir sem dýrastir em í
framleiðslu fari aðeins yfír það
mark. Safnplötur og endurútgáfur
kosta síðan á bilinu 1.500-1.600
krónur.
Meðal útgefenda em skiptar
skoðanir um hvort reynt verði að
draga saman seglin í auglýsingum
þessi jól. Sumir telja full mikið kapp
hafa verið lagt á þann lið undanfar-
in ár og að of hátt hlutfall sölu-
kostnaðar hafí farið í auglýsingar.
Aðrir telja ekkert benda til þess að
jólavertíðin í ár verði frábrugðin
öðmm í þessum efnum. Það sé lífs-
spursmál fyrir marga að salan
gangi upp og menn því væntanlega
ófúsir til að draga úr auglýsingum.
Endurútgáfan setur strik í reikn-
inginn varðandi mat á því í hvað
mörgum eintökum hver plata þarf
að seljast til að standa undir sér
eins og rakið er hér framar í grein-
inni. Það er því allt í járnum í upp1
hafí jólavertíðar hjá hljómplötuút-
gefendum og fátt eitt ljóst annað
en það að einhverjir munu koma
vel út úr jólasölunni þetta árið á
meðan annarra mun bíða fjárhags-
legt tjón þegar upp er staðið.
R A B B
í DAG..,KL.17:15...
IJlugtaksstödu eftir 500
milljóna króna spamad
SIGURÐUR HELGASON
forstjóri Flugleiða hf.
Fundurinn er öllum opinn.
S T O F A N
Ármúla 13a, 1. hæð.
Með því að notfæra þér Fraktflug Flugleiða sparar þú ómældan tíma. Það
tekur til dæmis aðeins þrjá daga að senda vöm frá Japan til Islands með
fraktflugi á meðan það tekur að minnsta kosti rúman mánuð með skipi. Ef
þú vilt vinna þér inn dýrmætan tíma skalt þú notfcra þér ftaktflug Flugleiða.
Aukin hagkvæmni helst í hendur við aukinn hraða. Með því að
senda vörur með fraktflugi Flugleiða minnkar þú vaxtakostnað
verulega. Fraktflugið gerir þér einnig kleift að panta oftar og þá minna
magn hverju sinni. Það þýðir minni lagerkostnað auk þess sem þú getur alltaf
boðið nýja vöm. Fraktflug Flugleiða sannar eftirminnilega að tíminn er peningar.
Sérliihoð f desember
Flugfrakt Flugleiða, sími 690101.
FLUGLEIDIR
F R A K T.
-þvíað tíminn er peningar
*Verð miðast við lágmark 1000 kg.
Nýtt tilbob í ríkisbréf
mibvikudaginn 9. desember
Um er að ræba 7. fl. 1992 í eftirfarandi verögildum:
Kr. 2.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 50.000.000
Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, meb gjalddaga
28. maí 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seblabanki íslands
viðskiptavaki ríkisbréfanna.
Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti
að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst
kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt
tilteknu tilbobsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 2.000.000 að nafnvirði.
Athygli er vakin á því aö þann 11. desember nk. er
gjalddagi á 1. fl. ríkisbréfa sem gefinn var út 12. júní 1992.
Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins miðvikudaginn 9. desember fyrir
kl. 14. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
, , , , ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
LANASYSLA RIKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæö, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða (meðalávöxtun vegin með fjárhæð).