Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 6

Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 Iðnaður Marel hf. stefnir að tvö- földun veltu á 3-5 árum Rætt við dr. Geir A. Gunnlaugsson framkvæmdaStjóra Marels hf. MAREL hf. stefnir að því að tvöfalda veltu sína á næstu þremur til fimm árum. Áformað er að markaðssetja tæki og búnað fyrirtæk- isins í kjúklingaiðnaði í Bandaríkjunum þannig að allt að helming- ur veltu fyrirtækisins verði í framleiðslu til kjötiðnaðar á móti helmingi til fiskiðnaðar. í því skyni hefur Marel samið við banda- riska fyrirtækið Johnson Food Equipment um markaðssetningu og sölu á búnaði fyrirtækisins í kjúklingaiðnaði. Geir A. Gunnlaugs- son framkvæmdastjóri Marels segir að þannig sé hægt að tryggja stöðugleika fyrirtækisins, draga úr áhættu í rekstri þess og skapa ný og eftirsóknarverð störf. Einn af veikleikum Marels er að fyrirtækið hefur nær eingöngu selt framleiðsluvörur sínar í fisk- iðnað, sem reynslan sýnir að háður er miklum sveiflum. Undanfarin tvö ár hefur Marel hf. verið að kanna hvort hægt sé að markaðs- setja og aðlaga tækin, sem fyrir- tækið hefur þróað fyrir fiskiðnað, að kjúklingaiðnaði. Þannig hefur verið reynt að breikka rekstrar- grunn fyrirtækisins og leggja grunn að frekari vexti þess. í þeim tilgangi hefur Marel tekið þátt í þremur sýningum á tækjum fyrir kjúklingaiðnaði, í Atlanta í Banda- ríkjunum og í Utrecht í Hollandi. Nú þegar hefur verið selt nokkuð af tækjum í þennan iðnað. Að sögn Geirs A. Gunnlaugsson- ar eiga miklar breytingar sér nú stað í lquklingaiðnaðinum þar sem neysla á heimilum er að færast frá sölu á heilum fugli yfir í hraðrétti, þ.e. frekar unninnar vöru svo sem kjúklingabita, úrbeinaðra bringa og mótaðra hluta, svo og djúp- steiktra hluta. Undanfarin ár hafa ijárfestingar í frumvinnslugeiran- um verið miklar en Geir segir að búist sé við því að á næstu árum verði fjárfestingar í úrvinnslunni mun meiri, eða tveir þriðju hlutar af heildarfjárfestingunum. „í Bandaríkjunum er 125 milljón kjúklingum slátrað á viku og hver Bandaríkjamaður borðar 1 kjúkl- ing aðra hveija viku. Kjúklingaiðn- aðurinn er frábrugðinn fiskiðnað- inum að því leyti að framleiðslan er jöfn en ekki háð sveiflum í veiði og verðum.“ Sérstaða formflokkarans Sérstaða Marels felst m.a. í formflokkara fyrirtækisins þar sem enginn keppinautanna hefur sambærilegt tæki að bjóða. Marel gerir ráð fyrir að fá einkaleyfi á ákveðnum aðferðum sem notaðar eru í formflokkaranum og ná hafa flokkarar bæði verið seldir í kjúkl- inga- og fiskiðnað. Hver form- flokkari kostar um 6-8 milljónir króna. „Marel hefur verið að þróa form- flokkarann á undanförnum árum og við höfum selt einn í fiskiðnað og annan í kjúklingaiðnaðinn. Flokkarinn á að gefa fyrirtækinu þá sérstöðu sem þarf til að ná árangri á þessum markaði. Það eru aðilar sem selja vigtarflokkara líkt og við höfum framleitt til þessa iðnaðar en með formflokkaranum á Marel aukna möguleika til að hasla sér völl á markaðnum. Okkur vitanlega hafa keppninautarnir ekki flokkara í líkingu við þann sem Marel framleiðir." Samningur Marels við Johnson Food Equipment Þar sem það tæki Marel langan tíma að vinna sér nafn á Banda- ríkjamarkaði hefur fyrirtækið sam- ið við bandaríska fyrirtækið John- son Food Equipment, sem er með stærstu markaðshlutdeild tækja- framleiðenda í Bandaríkjunum, um Þessi auglýsing er birt í upplýsingaskyni. Oll hlutabréf í útbóbinu eru þegar seld. kt. 541185-0389 Norðurgarði 1,101 Reykjavík. Hlutabréfaútboð Útboðsfjárhæð kr. 60.000.000.- Fyrsti söludagur: 9. nóvember 1992. Gengi 2,10 Umsjón: Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf. VÍB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. MAREL — Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru einkum tölvuvog- ir, myndgreiningartæki, flokkunarbúnaður og framleiðslueftirlitskerfí fyrir fiskvinnslu á sjó og landi. Á myndinni er Geir A. Gunnlaugsson framkvæmdastjóri við framleiðslu Marels. . að sjá um sölu og markaðssetningu á búnaði Marels. Fyrirtækið hefur verið í kjúklingaiðnaðinum í nærri hálfa öld og höfuðstöðvarnar eru í Kansas City. Starfsmannafjöldinn er um 160 manns og árleg velta um 25 milljónir dollara. Tæknimenn frá Johnson voru staddir hér á landi í sl. viku að kynna sér framleiðslu Marels og þá tækni sem fyrirtækið hefur yfir að ráða. Að sögn Geirs vantar Johnson þekkingu á flokkunar- tækni inn í fyrirtækið sitt og telur Johnson að á því sviði sé Marel sterkur samstarfsaðili. Nú þegar hefur Johnson selt einn flokkara til kjúklingaiðnaðar- ins sem afhentur verður eftir ára- mót. „Hið formlega samstarf Marels og Johnson hefst á Atlanta tækjasýn- ingunni sem haldin verður í janúar 1993. Sú sýning er nokkurskonar viðmiðunarpunktur í sölustarfi inn á þennan iðnað í Bandaríkjunum og tækin frá Marel munu verða miðpunkturinn í sýningarbás Joh- nson.“ Aukning hlutafjár um 10% Geir segir að miðað við vöxt fyrirtækisins á undanförnum árum eigi að vera hægt að tvöfalda veltu fyrirtækisins á þremur til fimm árum, jafnframt því sem það skili góðum hagnaði. „Tvöföldun veltu á 4 árum yrði um 20% á ári og það er ekki fjarlægt markmið mið- að við hvernig reksturinn hefur þróast undanfarin ár. Veltan myndi þá skiptast til helminga á milli kjúklingaiðnaðar og fiskiðn- aðar. Fyrirtækið hefur náð góðri markaðsstöðu innan fiskiðnaðarins pg við ætlum okkur að halda henni. I lok tímabilsins má gera ráð fyrir því að starfsmannafjöldi Mareþ hafi vaxið um 25 til 30 manns og starfsmenn verði samtals 75 til 80 talsins." Til að ná þessum markmiðum hjá Marel er gert ráð fyrir að jafn- framt því að vinna að markaðs- setningu í Bandaríkjunum í sam- vinnu við Johnson, verði áfram unnið að öflugu markaðsstarfi í fiskvinnslu til þess að efla enn frek- ar markaðshlutdeild fyrirtækisins á því sviði. Einn af þremur mark- aðsstjórum fyrirtækisins mun taka að sér sem sérstakt verkefni að skipuleggja og bera ábyrgð á Hlutabréf Hvað segja verðbréfa- fyrirtækin um hluta- fjárútboð Marels ? EDDA Helgason, framkvæmda- sljóri Handsals hf.: „Hagnaður Marels hf. á eigið fé er mjög viðunandi jafnvel þó hann hafi lækkað mið- að við árið áður. Það vekur at- hygli að hagn- aður af veltu fer lækkandi síðari hluta árs 1992. Hann var 8,3% á fyrstu sex mánuðum ársins fyrir allt árið samkvæmt Edda en verður 5,3% áætlun. Með öðrum orðum gefur söluaukn- ing á síðari hluta ársins 1992, um 208 milljónir króna, aðeins 4,7 millj- ónir í hagnað miðað við 17 milljón króna hagnað á fyrri helming ársins en þá var veltan svipuð. Utgjöld sem hlutfall af veltu fara vaxandi hjá Marel og er það visst áhyggjuefni. Árið 1990 var hlutfallið 85% en samkvæmt áætlun verður það 93% árið 1992. Svo virðist sem hagnaður miðað við tekjur fari lækkandi nema ástæðan sé sú að meira fé sé varið í þróun og rannsóknarstarfsemi hjá fyrirtækinu. Marel virðist lofandi fyrirtæki sem náð hefur verulegum ár- angi. Vonandi er sú þróun sem bent hefur verið á hér að framan í rétta átt, þ.e.a.s. að kostnaður sem hlutfall af veltu fari lækkandi á ný og hagnaður af veltu aukist." DAVÍÐ Björnsson, deildarstjóri fyrirtækjadeildar Landsbréfa: „Marel hefur verið rekið með ágætum hagnaði sl. 2 ár. Hagnað- ur fyrirtækisins árið 1991 nam 34 millj. kr., gert er ráð fyrir 22 millj. kr. hagnaði á þessu ári og svipaðri afkomu árið 1993. Fyrir- 'tækið framleiðir fáar vörulínur, en hefur gengið best með sölu á vogum til notkunar á rúmsjó, þar sem fyrirtækið hefur 60% markaðshlutdeild. Sá markað- ur er hins vegar mettaður í bili og því þarf fyrirtækið að leita á önnur mið til að viðhalda vexti sínum. Áframhaldandi vöxtur fyrirtækisins er mjög háður því hvernig fyrirtæk- inu tekst til í kjúklingaiðnaði. Miðað við sölugengið 2,50 er V/H hlutfall bréfanna 11 miðað við áætlaðan hagnað þessa og næsta árs og Q- hlutfall 210% miðað við eigið fé 30. júní 1992. Út frá ofangreindu má áætla að bréfin geti verið spennandi fjár- festingarkostur fyrir fjárfesta, sem þegar eiga hlutabréf í all- nokkrum félögum, eða þá stofn- anafjárfesta. Vegna þess hve fyrir- tækið er sérhæft, svo og vegna þess að enn er ekki ljóst hvernig fyrirtækinu mun vegna í sölu tækja fyrir kjúklingaiðnað, er síður hægt Davíð 4

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.