Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 8
8 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTl/llTVlWinJlÍF FIMMT.UfiACi.UR 3. DESEMBER 1992 Milliríkjaviðskipti Stormur í kaffibolla Brasilíumenn neyðast til að flytja inn kaffi Financial Times „Græna gullið" er að missa þann sess að vera helsti aflgjafinn í hagkerfum margra þróunarríkja. Offramboð og verðfall kaffi- bauna ógna lifsafkomu 25 milljóna verkamanna frá Brasilíu til Indónesíu. Óundirbúin tilraun með fijálsan markað hefur valdið kreppu í greininni. KAFFI - Frá kaffiplantekru í sunnanverðri Ameríku. Jarðarbúar drekka um tvo millj- arða kaffibolla á dag. Þar til í júlí árið 1989 hafði þorri ræktenda og kaupenda kaffibauna með sér al- þjóðlegt samkomulag (ICA) um að takmarka framboð og tryggja stöðugt verð. Eftir að samkomu- lagið brast, vegna deilna fram- leiðsluríkja um skiptingu heildar- kvótans, hefur framboð á heims- markaði verið meira en eftirspum. Verð til ræktenda hrapaði niður í rúmlega þriðjung af því sem verið hafði á síðari hluta níunda áratug- arins. Flestir ræktenda hafa orðið að selja framleiðslu sína undir kostriaðarverði síðastliðin tvð ár. í ágúst fékkst hálfur Banda- ríkjadalur (32 ÍSK) fyrir pundið af kaffi á markaði í New York. Svo lágt verð hafði þá ekki sést í 22 ár. Sykur fór upp fyrir kaffi sem helsta tekjulind þróunarríkja, fyrir utan olíu. Kaffi er frábrugðið olíu að því leyti að ekki hægt að skrúfa fyrir og frá framboðinu eftir þörfum. Kaffiræktendur í 50 helstu fram- leiðsluríkjunum verða annað hvort að selja á þessu lága verði eða hætta framleiðslu. Möguleikar ræktenda á að hækka markaðs- verð með því að halda aftur af framboði eru minni fyrir þær sakir að kaffibirgðir eru miklar í ríkjum kaupenda. Brasiliumenn féllu á eigin bragði Brasilía hefur verið stærsti framleiðandi kaffibauna næstum samfeUt frá. árinu 1760, þegar hettumunkar í Rio de Janeiro hófu að rækta kaffifræ sem smyglað hafði verið frá Frönsku Gíneu. En á síðustu þremur árum hefur kaffi- tijám í landinu fækkað úr 4,2 í 3,2 milljarða. Aðeins um fímmt- ungur tijánna er talinn vera sóma- samlega ræktaður. Gæðin rýma og bragðið versnar vegna þess að kaffíverð er svo lágt að bændur hafa ekki efni á að fjárfesta í áburði og tækni. Búist er við að uppskeran á yfirstandandi kaffiári verði innan við 20 milljónir 60 kílógramma sekkja, samaborið við 43 milljónir sekkja á tímabilinu 1987-88. Reyndar hefur hlutur kaffi- bauna í útflutningstekjum Brasilíu farið sífellt minnkandi með auk- inni iðnvæðingu. Hlutfallið var um 50% í byijun sjöunda áratugarins, 21,5% fyrir 15 árum og innan við 4% á þessu ári. Hins vegar krefst kaffiræktun mikils mannafla og stórfelldar uppsagnir grafa undan stöðugleika í þjóðfélaginu. Um tíu milljónir Brasilíumanna hafa beint eða óbeint atvinnu af kaffirækt. Verkalýðsleiðtoginn Christian Ottoni áætlar að nærri tvær millj- ónir þeirra hafi misst vinnuna og þeir bætast í vaxandi hóp fátækl- inga í stórborgum. Það er kaldhæðnislegt að Bras- ilíumenn skuli sjálfir vera ábyrgir fyrir því að kaffisamkomulagið brast. Þeir reiddust tilraunum Bandaríkjamanna til að auka út- flutningskvóta Kólumbíu og ann- arra ríkja Mið-Ameríku á kostnað Brasilíu. Frá Mið-Ameríku koma mildari kaffitegundir sem banda- rískir neytendur kunna betur að meta. Auk þess vildi Bandarikja- stjóm veita þessum ríkjum efna- hagsaðstoð í skiptum fyrir sam- vinnu í baráttunni við eiturlyf. Val ræktenda stendur gjaman á milli kaffis og kókaíns. Hjá Samtökum brasilískra út- flytjenda (Febec) voru menn sann- færðir um að stærstu framleiðend- ur heims gætu ekki annað en not- ið góðs af fijálsum markaði. Þær vonir hafa algjörlega bragðist. Frá 1989 hafa útflutningstekjur af kaffi hrapað úr 2,5 milljörðum Bandaríkjadala (158 milljörðum ÍSK) niður í litlu meira en einn milljarð Bandaríkjadala (63 millj- arða ÍSK). Brasilíumenn geta vart staðið við samninga um útflutning 13 milljóna seklqa á þessu ári. Fregnir herma að þeir hafi neyðst til að flytja inn kaffi til að full- nægja tíu milljóna sekkja eftir- spum á heimamarkaði. Á sama tíma hafa Kólumbíu- menn meira en tvöfaldað kaffiút- flutning sinn upp í 18 milljónir sekkja á ári. Brasilískir ræktendur skella hluta af skuldinni á stefnu ríkisstjórnar Femandos Collors forseta. Hann dró mjög úr styrkj- um til landbúnaðar, frysti hvað eftir annað verðlag innanlands og gjaldmiðill landsins hefur verið óeðlilega hátt skráður. Á sama tíma hafa kólumbískir ræktendur notið ríflegra styrkja. Brasilískur kaffiiðnaður hefiir einnig fallið í áliti vegna ásakana um innheija- viðskipti í New York, eftir að ríkis- stjómin bannaði skyndilega allan kaffiútflutning í mars á síðasta ári. Fjármálahneykslið, sem varð Collor að falli, tengist einmitt þessu máli. Nýtt kvótakerfi Brasilískir kaffiræktendur halda því fram að markaðurinn hafi aldrei verið fijáls vegna þess að fimm stórir kaupendur verki um helming alls kaffis í heiminum. Ræktunin fer fram í þriðja heimin- um en neyslan í þaulskipulögðum iðnríkjum. Þannig gæti virst sem kaupendur hefðu lítinn ávinning af nýju kvótakerfí. En það gæti fljótlega breyst. Verkendur og neytendur óttast að lágt verð dragi svo úr framboði að kaffi muni skorta á heimsmarkaði. Kaffítré era mjög viðkvæm fyrir veðurfars- breytingum og fiögur ár líða þar til kaffitré fer að gefa af sér baun- ir. Margir ræktendur hafa gefist upp á kaffi o g snúið sér að gúmmi- tijám og hnetum. Jafnframt óttast menn að gæði kaffibaunanna eigi eftir að minnka enn frekar og það kemur niður á neyslu. Núverandi ástand í greininni er svo alvarlegt að ræktendur, út- flytjendur, verkendur og kaupend- ur hafa ýtt ólíkum hagsmunum til hliðar og sest að samningaborði hjá Alþjóðlegu kaffistofnuninni í Lundúnum (ICO). Aðild að stofn- uninni eiga annars vegar 50 ríki með nærri 97% heildarframboðs á heimsmarkaði og hins vegar 21 ríki með um 80% heildareft- irspumar. Samningaviðræður hafa oft verið hatrammar, enda sitja þama fulltrúar svo ólíkra landa sem Bandaríkjanna, Þýska- lands, Kúbu, Víetnams og Eþíópíu. Alexandre Beltrao, yfirmaður Alþjóðlegu kaffistofnunarinnar, áætlar að árlegt tap framleiðenda hafi verið nærri fímm milljörðum Bandaríkjadala (316 milljörðum ÍSK) frá því að kvótakerfið var aflagt. í september tókst samn- ingamönnum að ryðja úr vegi al- varlegri hindran þegar sættir tók- ust um hugtakið alheimskvóta, er næði til allra kaupenda. Þannig yrði tryggt að aðildarríki nytu að minnsta kosti ekki lakari kjara en ríki sem ekki eiga aðild að sam- komulaginu. Fyrri kvótakerfi leyfðu framleiðendum að selja umframbirgðir á lægra verði til ríkja utan stofnunarinnar, sem síð- an gátu selt framleiðsluna til að- ildarríkja. Nú era samningamenn komnir til Lundúna þeirra erinda að ganga frá samkomulagi um nýtt kvóta- kerfi. Eftir er að leysa ágreining um verð, kvótastærðir og eftirlit. Einnig verður að samræma fram- boðið eftirspum svo að neytendur geti fengið þær kaffitegundir sem þeir helst kjósa. Beltrao er bjart- sýnn á að rammasamkomulag liggi fyrir í árslok. Kaffiverð hefur reyndar hækk- að nokkuð hratt á undanfömum vikum eftir að Brasilímenn viður- kenndu að uppskeran væri minni en búist hafði verið við. Verðið er nú komið upp fyrir 70 bandarísk sent (44 ÍSK) á pund, samaborið við 130 sent (82 ÍSK) árið 1989. Verðið hefur þó ekki hækkað nógu mikið til að gera menn afhuga kvótakerfi. Alexandre Beltrao lítur reyndar ekki á nýtt kaffisam- komulag sem endanlega lausn heldur fímm ára aðlögunartímabil. Metsölublad á hvajum degi! Hú er símashrdin fdanleg d tölvutffiku formi SIMASKRA (í lölvui(vk.n fonui r-' Nú fæst símaskráin loks á tölvutæku formi. Þetta er nýjung sem.beðið hefur verið eftir og hún sparar bæði tíma og vinnu. Símaskrá á tölvutæku formi hentar flestum PC-tölvum og er sérlega auðveld í notkun, auk þess sem hún er uppfærð á þriggja mánaða fresti og þú færð því öll ný og breytt símanúmer reglulega. Símaskrá á tölvutæku formi er góö fjárfesting til framtíðar. Verð kr. 50.000,- stgr.m/vsk PÓSTUR OG SÍMI Söludeildir í Ármúla 27, Kirkjustræti, Kringlunni og á póst- og símstöðvum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.