Morgunblaðið - 03.12.1992, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
TOXTOaZCY gid/LigxuoHOM
FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992
C 9
Viðskiptavikan
í Vesturheimi
Uppsagnir enginn töfrasproti
Auglýsingar
AT&T auglýsir mest
AT&T eyddi um 210 milljónum dollara í auglýs-
ingar á fyrri árshelmingi 1992
í YFIRLITI Advertising Ages um 200 stærstu auglýsendur á Banda-
ríkjamarkaði kemur fram að AT&T var mest auglýsta vörumerkið
í Bandaríkjunum á fyrri hluta ársins.
eftir Petrínu S.
Úifarsdóttur
Ein fem merki um aukinn styrk
efnahagslífsins í Bandaríkjunum
komu fram í vikunni. Landsfram-
leiðsla („Gross Domestic Product,
GDP“) á þriðja ársfjórðungi jókst um
3,9%, en slíkur vöxtur hefur ekki
sést síðan Reagan var í Hvíta hús-
inu. Pantanir á varanlegri fram-
leiðsluvöru jókst í október um 3,9%,
eftir að hafa hjarað við núllið í ág-
úst og síðan september. Bróðurpart-
ur aukningar þessarar varð í þunga-
iðnaði. Þá efldist bjartsýni meðal
neytenda á kvarða „Conference
Board“, sem er sjálfstæð nefnd skip-
uð fulltrúum úr viðskiptalífínu, um
11 stig eða upp í 65,5 miðað við 100
stig árið 1985. Pjórða styrkleika-
merkið fólst í framleiðniaukningu
meðal bandarísks starfsfólks, en
framleiðni hefur nú síðasta árið vax-
ið um 2,6%, eftir að hafa verið á
niðurleið samfellt tvö árin áður. Þá
hjaðnaði atvinnuleysi lítillega í októ-
ber úr 7,8% í 7,4%.!-*6
Fríverslunarsamningur Norður-
Ameríku („North American Free
Trade Agreement, NAFTA") hefur
nú verið fullgerður og bíður sam-
þykkis ríkisstjórna Kanada, Banda-
ríkjanna og Mexíkós. Fyrir fjórum
árum tók gildi samningur á milli
Kanada og Bandaríkjanna, sem mun
hvemig sem allt horfír, á næstu sex
árum skapa frjáls verslunarskilyrði
milli ríkjanna tveggja. Hvað gerast
kann við suðurlandamærin, ef
NAFTA nær fram að ganga, vekur
því skiljanlega mun meiri athygli en
þróunin nyrðra. Frumkvæðið að
NAFTA-samningnum kom frá for-
seta Mexíkós, Carlos Salinas. Stóð
hann frammi fyrir gríðarlegri skulda-
söfnun þrátt fyrir yfír 6% árlegan
hagvöxt svo áratugum skipti. Betur
mátti ef duga skyldi. Mexíkó var
mjög erfitt heim að sækja fyrir er-
lenda fjárfesta og innflytjendur.
Margar greinar atvinnurekstrar voru
lokaðar gagnvart erlendu fjármagni.
Rekstur banka og olíufélaga var ein-
skorðaður við ríkið. Allt að 100%
vemdartollar vom í gildi gegn banda-
rískri vöru og þurfti að umskipa
varningi yfir í mexíkósk farartæki
áður en að landamæmnum var kom-
ið. Til að örva efnahag Mexíkós setti
Salinas árið 1989 nýjar reglur er
opna áttu flestar gáttir fyrir erlent
fjármagn og verslun við nágrannana
í norðri. Lítið gerðist. Erlendir fjár-
festar treystu því nefnilega ekki að
þessi paradís yrði langlíf. Þá tók
Carlos Salinas sig til og bjó sig und-
ir að greypa verslunarfrelsið í stein
með alþjóðlegum samningi. Það sem
vakti fyrir Bandaríkjamönnum með
NAFTA var að greiða fyrir verslun
við erlendar þjóðir, sem skyldi auð-
velda Bandaríkjunum að njóta þess
forskots sem þeir höfðu í ýmsum
framleiðslugreinum. Það hafði valdið
vonbrigðum að GATT-samningavið-
ræðurnar virtust ekki megna að
bijóta niður viðskiptamúra í heimin-
um. Einnig kom til að Evrópulönd
voru að mynda með sér eitt sameigin-
legt markaðssvæði, þar sem banda-
rískir verslunarhagsmunir voru eng-
an veginn tryggir. Norður-Ameríka
sem slík á einmitt að geta staðið
uppi í hárinu á Evrópu, vegna stærð-
ar sinnar bæði hvað snertir mann-
fjölda og fjármagn. Það er trú
margra hagfræðinga, t.d. Rudiger
Dornbusch hjá MIT („Massachusetts
Institute of Technology"), að í kjölfar
þessa muni stækkandi markaður fyr-
ir bandaríska vöru og kostnaðarlítil
framleiðsla bandarísks varnings í
Mexíkó lækka vöruverð bæði í
Bandaríkjunum og erlendis. Þar af
mun væntanlega hljótast bætt sam-
keppnisstaða.4
Kauphallir hafa verið undir smá-
sjánni hjá prófessorunum Vemon L.
Smith og Arlington W. Williams síð-
an á sjötta áratugnum. Þeir félagar
hafa útbúið rannsóknarstofu þar sem
fólk býður vöru til sölu og býður í
vöru með mismunandi fyrirkomulagi.
Einna athyglisverðustu niðurstöður
Smiths og Williams eru eftirfarandi:
Þeir markaðir sem veita allt í senn,
skjóta og nákvæma nálgun við jafn-
vægis-markaðsverð, lágmarks-milli-
liðakostnað og mestan stöðugleika,
eru svokallaðir gagnkvæmt innsigl-
aðir uppboðsmarkaðir („double
sealed auction"). Þar taka bjóðendur
síg saman í hópum, og bjóða dag
hvern með nokkurra klukkustunda
millibili það verð, sem þeim þykir
eiga við sérhver magnkaup. Tölva
ber saman verðtilboð seljenda og
kaupenda, reiknar út hvar línurnar
skerast, og birtir þeim verslun í
magni og verði í lok markaðsdags.
í rannsóknum Smiths og Williams
hefur athyglin og beinst að þvi hvern-
ig verðhrun, líkt og „föstudaginn
svarta" árið 1987, verður. Þá hækk-
ar verðið langt upp fyrir það sem
eðlilegt er, en hrapar síðan svo um
munar. Afleiðingamar eru mörgum
kunnar. Þetta fyrirbæri er einnig
furðu lífseigt í rannsóknarstofunni
þegar stuðst er við hið algenga kaup-
hallarfyrirkomulag sem kalla má
gagnkvæman, sívirkan uppboðs-
markað („double continuous aucti-
on“). Þó ber að athuga, að þegar
þátttakendur í þessum tilraunum
hafa brennt sig nokkrum sinnum á
verðhruni, fara þeir að forðast að-
gerðir sem leiða til þess. í ljósi þess-
ara niðurstaðna og annarra hafa
þeir félagar tekið að sér að þjálfa
væntanlega þátttakendur í kauphall-
arviðskiptum, sem fyrirhugað er að
stofna til í ýmsum Austur-Evrópu-
löndum. Hinar tölvuvæddu rann-
sóknarstofur eru taldar henta vel til
að sviðsetja og rannsaka hegðun
fólks á uppboðsmörkuðum. Þetta
fyrirkomulag veitir nemendum tæki-
færi til að endurskoða atburði dags-
ins, og ekki síður eigin gerðir, á
grundvelli tölvuskráðra og -greindra
upplýsinga.6
Gullkom vikunnar
„Jafnvel þótt uppsagnir geti haldið
fyrirtækjum í horfínu eða komið í
veg fyrir frekari blóðmissi, þá skapa
þær ekki auknar tekjur — slíks er
einungis að vænta af uppbygginga-
raðgerðum, svo sem þróun nýrrar
vöru, innrás á nýja markaði, eða
aukinni markaðshlutdeild." Þessu til
áréttingar nefna höfundar meðal
annars tvö dæmi: Annars vegar
Eastman Kodak, sem hefur sagt upp
meira en 12.000 starfsfólki, en situr
nú uppi með stöðnun í fjármálastöð-
unni miðað við tíu árum áður, og
hins vegar 3M fyrirtækið, sem hefur
fært 3.500 starfsmenn til á milli
deilda í stað uppsagna, með þeim
glæsilega árangri að tekjur jukust
um 14% á þriðja ársfjórðungi.2
Heimildir: 'Atlantic Monthly, desember-
hefti. 2Business Week 7. desember. 3Inve-
stor’s Business Daily 27. nóvember. ‘Nati-
on’s Business 30. nóvember. ‘New York
Times 25. nóvember og 27. nóvember. 6Sc-
intifíc American, desemberhefti.
Símafélagið AT&T eyddi um
210 milljónum dollara í auglýsing-
ar á fyrri árshelmingi 1992 og
skaust þannig framúr hamborgar-
akeðjunni McDonald’s sem skipaði
fyrsta sætið á sama tímabili í
fyrra. Auglýsingakostnaður
McDonald’s dróst saman um 3,4%
og féll niður í 188 milljónir dollara.
Bílaframleiðandinn Ford hefur
sömuleiðist skotist upp fyrir ham-
borgarakeðjuna sem nú situr í 3.
sæti. Fast á hæla McDonald’s
koma önnur þekkt fyrirtæki svo
sem Sears, Kellogg’s og LifeSa-
vers.
í heild vörðu 200 stærstu aug-
lýsendurnir 7,9 milljörðum dollara
í ayglýsingar á tímabilinu en það
eru tæp 40% alls auglýsingakostn-
aðar í Bandaríkjunum á fyrri hluta
ársins. Það er um 9% aukning frá
síðasta ári.
Stærsti auglýsendahópurinn er
bílaframleiðendur sem til samans
vörðu 1,8 milljörðum dollara til
auglýsinga. Næstir koma smásölu-
fyrirtæki með 1,1 milljarð og í
þriðja sæti eru matvöruframleið-
endur. Af einstökum samsteypum
trónir tóbaks- og matvörurisinn
Philip Morris á toppnum með aug-
lýsingakostnað upp á 567 milljónir
dollara. Meðal framleiðsluvara
Philip Morris eru til dæmis Miller-
bjór og Marlboro-sígarettur.
Næst stærstu samsteypumar
eru matvöruframleiðandinn Proct-
er & Gamble og þar á eftir Gener-
al Motors en AT&T sem er efst á
vörumerkjalistanum lendir í
níunda sæti á samsteypulistanum.
DP
veitir lán til raunhæfra framfaraverkef na í öllum atvinnugreinum
• Sjóðurinn veitir gengistryggð lán með hag-
stæðum greiðslukjörum.
• Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign
eða bankaábyrgð.
• Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna
í samvinnu við umsækjendur.
• Lán frá sjóðnum geta að hluta verið skilyrt í
upphafi.
Lánasjóðurinn er í eigu Norðurlandanna allra. Athafnasvæði hans eru Vestur-Norðurlönd, þ.e.
Færeyjar, Grænland og ísland. Samvinnuverkefni milli landa eru æskileg en ekki skilyrði.
HAFÐU SAMBAND VIÐ SKRIFSTOFU OKKAR OG FÁÐU NÁNARI UPPLÝSINGAR.
Lánasjóður Vestur-Nordurlanda
hefur aðsetur á Rauðarárstíg 25, annarri hæð,
pósthólf 5410,125 Reykjavík, sími (91) 605400, Telefax: (91) 29044.
____________á____________:______________
LATUM GÆÐIN GERA GAGN
Hagstæð fyrirgreiðsia tii iðnfyrirtækja
sem vijja koma á vottuðum gæðákerfum
IÐNLANASJOÐUR
VÖRUPRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD
Framlag þitt skilar árangri
HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR
- með þinni hjálp
anki
Sparisjóöur Reykjavíkurog nágrennis
Gíróseðlar liggja frammi
í bönkum og sparisjóðum