Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 10

Morgunblaðið - 03.12.1992, Síða 10
10 c___________________ ____________MORGUNBLAÐIÐ VlÐSKIPTI/flTVINNPLÍF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 T1 3 — seei saaMaaaa .8 huoagutmmn TUTOWIVTfiMT^IHáQIV gkiajhhudjiok Tölvur Marinó G. Njálsson „ Vannýttir stofnar“ Tölvuhugvit er gjaldeyrisskapandi Á tímum samdráttar, aflabrests og atvinnuleysis er gott að huga að nýjabruminu í íslensku atvinnulífi. Eitt þeirra er tölvuhugvit, þá jafnt á sviði hugbúnaðar og vélbúnaðar. Á félagsfundi hjá Samtökum hug- búnaðarfyrirtækja, sem haldinn var nýlega, kom fram að heildarvelta fyrirtækja í samtökunum nemur nú um einum milljarði króna á ári. Alls eru 25 fyrirtæki innan samtakanna, en síðan er fjöldi hugbúnaðarfyrir- tækja utan þeirra. Hér á landi er í gangi öflugt þró- unarstarf, sem ekki ber mikið á. Flestir hafa heyrt minnst á Friðrik Skúlason, Softis hf. og Marel. En hveijir vita að hér á landi er unnið að hugbúnaði fyrir nýja gerð af tölvu, sem verður sett á markað í Bandaríkjunum á næsta ári. Eða að íslendingur vinnur hér á landi fyrir erlent tölvufyrirtæki að þróun mót- alda og annar forritar öryggiskerfi fyrir olíupalla, jámbræðslur og fóð- urblöndur. Þetta er bara toppurinn af ísjakanum. Skýrslutæknifélag íslands ætlar að helga ET-daginn, sem haldinn verður 4. desember nk., þessu efni. Yfirskriftin verður „Tölvur til fram- fara“ og munu þar verða flutt erindi um fimm verkefni, sem eru í gangi hér á landi. Sum fyrirtækjanna, sem hér um ræðir, hafa verið í sviðsljós- inu, en önnur forðast það vegna þess að fjölmiðlar hafa alltof oft eyðilagt góða vinnu með óvandaðri framsetningu á fréttum, að sögn forráðamanns eins þeirra. Fjórir fulltrúar hugbúnaðarþró- enda verða þama og einn fulltrúi notenda. Sigurður Hjálmarsson frá Taugagreiningu sf. fjallar um mjög forvitnilegan tölvubúnað fyrir heil- brigðisgeirann, Magnús Þór Ás- mundsson frá Marel hf. fyallar um nýjan tölvubúnað, sem nýtir tölvu- sjón, Heimir Sverrisson frá PlúsPlús hf. Qallar um kerfí, sem á engan sinn líkan, fyrir fískmarkaði, OZ fjallar um framleiðslu tæknibrellna í kvikmyndum og auglýsingaiðnaði með þrívíðum tölvubúnaði og Hjört- ur Emilsson frá Samskipum hf. fjall- ar um Viðhaldsvaka, sem er tölvu- búnaður sem auðveldar skipstjómar- mönnum viðhald og eftirlit með skip- um sínum. Viðhaldsvakinn hefur verið á markaðnum í nokkum tíma. Búnað- urinn er þróaður af Fjarhönnun hf., en seldur af fyrirtækinu Gagnamiðl- un hf. Hann er í notkun í nokkrum fyrirtækjum og kaupskipum. Eins og áður segir auðveldar kerfið við- hald og eftirlit með tækjum og bún- aði. Það er sérhannað til notkunar á fartölvum og hefur vakið athygli erlendis fyrir nýstárlega aðferða- fræði og notendaviðmót. Á síðasta ári gerði Gagnamiðlun samning við norska fyrirtækið Kvæmer Eureka um dreifingu á búnaðinum til við- skiptavina fyrirtækisins. Og í haust var síðan gerður samningur við breskt fyrirtæki, Planning Software Ltd., sem ætlar að leggja 10 milljón- ir króna í markaðssetningu búnaðar- ins í Bretlandi í byijun næsta árs. Tölvusjón Marels hf. hefur vakið athygli síðustu daga eftir að þeir fengu viðurkenningu fyrir þróunar- vinnu sína. Marel hf. hefur undan- farin ár þróað alls konar búnað fyr- ir sjávarútveg og hafa tölvuvogir þeirra fyrir löngu borið nafn þeirra víða. Taugagreining hf. hefur nokkur undanfarin ár unnið að tölvubúnaði fyrir taugalífeðlisfræði. Ekki hefur farið mikið fyrir starfi þeirra, enda þróar fyrirtækið og selur nær ein- göngu fyrir erléndan markað. Um er að ræða vél- og hugbúnað, sem breytir venjulegri einkatölvu í full- komið lækningatæki, sem getur greint truflanir á starfsemi heilans og taugakerfisins almennt. Heimir Sverrisson ber ábyrgð á nokkmm góðum hugmyndum, sem fluttar hafa verið út. Fyrir nokkmm ámm þróaði hann í samvinnu við Hug hf. búnað fyrir X.25 tengingar og fyrr á þessu ári lauk hann í Chile við verk, þar sem tölvutækni er not- uð við staðarákvarðanir skipa og báta. Nýjasta verk Heimis verður svo kynnt á ET-deginum. Útflutningnr tölvubúnaðar Mjög erfitt er að gera sér grein fyrir hve miklar tekjur við íslending- ar höfum af útflutningi tölvutækni. Aðalástæðan er meingölluð aðferð hins opinbera við að halda utan um upplýsingarnar um útflutning á hug- viti. I staðinn fyrir að flokka hugbún- aðarframleiðslu sem iðnað, er hún sett undir þjónústu. Auk þess er öll- um útflutningi á þjónustu steypt saman í einn flokk án tillits til eðlis útflutningsins. Með markvissari flokkun væri auðveldara að átta sig á því hvað er flutt út og í hvaða mæli. Samtök hugbúnaðarfyrirtækja segja að 25 milljónir af veltu fyrir- tækja innan samtakanna komi frá útflutningi. Samkvæmt mínum heimildum er það um þriðjungur af heildartekjum vegna útflutnings hugbúnaðar. Þar að auki eru nokkr- ir aðilar, sem flytja út tölvuvélbún- að, og fer Marel hf. þar fremst í flokki. Því miður get ég ekki nefnt alla þessa aðila á nafn, vegna þess að þeir óttast að opinber umfjöllun komi til með að eyðileggja starf þeirra. Auk þeirra, sem áður hafa verið nefndir, hefur Friðrik Skúlason stað- ið sig vel með vírusavamarforritið sitt, Tölvusamskipti eru að gera góða hluti með Skjáfax og Bjarni Kristjánsson í Maximal hugbúnaði seldi fyrirtæki sitt til Bandaríkjanna og sjálfan sig með! Sverrir Ólafsson rafmagnsverkfræðingur vinnur að hönnun nýrrar tækni fyrir mótöld fyrir erlent tölvufyrirtæki og á með- al annars heiðurinn af þeirri tækni, sem gerir 9600 og 19200 bps (bitar á sekúndu) mótaldasendingar mögu- legar. Sverrir Eðvaldsson í SAMAX hefur unnið að hönnun öryggiskerfa fyrir olíuborpalla og margt fleira. Undanfarin ár hefur hann starfað hér á landi, en sent lausnir sínar í kísilflögum til viðskiptavina erlendis. Hér mætti lengi bæta við, en það verður að bíða betri tíma. Við dymar bíður m.a. Softis hf., sem hefur náð athygli erlendra aðila og í nýlegri frétt frá fyrirtækinu segir að samningar ættu að takast næsta sumar. Menn hafa sagt í gríni, að hugmyndir þeirra Softis-manna séu nútíma „Grimms-ævintýri". Vissulega eru hugmyndir þeirra byltingarkenndar, en hjá því verður ekki litið, að þær hafa náð athygli mikilvægra aðila erlendis. Hug- myndin byggir á því að skilja að vinnsluforritið og notendaviðmótið, þannig að færa megi vinnsluforritið á milli ólíkra tölvuumhverfa. Frá því að ég fjallaði síðast um gang mála hjá þeim, hafa þeir lokið svokölluð- um Designer og beta-útgáfur af Macintosh, MS Windows og DOS eru væntanlegar fljótlega eftir ára- mót. Draumur þeirra er að selja öflugu erlendu fyrirtæki kerfið og hafa síðan viðbótartekjur af því að koma með útgáfu fyrir ný umhverfi og uppfærslur á eldri útgáfum. Starfsskilyrði Það kom fram í samtölum mínum við aðila í hugbúnaðargerð, að starfsskilyrði eru vægast sagt erfið hér á landi. Fyrir það fyrsta er hug- búnaðargerð flokkuð undir þjónustu hjá hinu opinbera. Sú greining vinn- ur gegn hagsmunum greinarinnar. Þetta er iðnaður og ber að flokka hann sem slíkan. Þó oft sé erfitt að festa hendur á iðnaðarvörunni og vamingurinn fari ekki í gámum á milli landa er samt um iðnað að ræða. Afskriftareglur eru greininni óhagstæðar. Þar sem líftími há- tæknibúnaðar er oft stuttur er nauð- synlegt að geta afskrifað hann á stuttum tíma, eins og leyft er víða erlendis. Aðeins einu sinni, svo ég viti, hefur verið hægt að fá lán gegn veði í tölvuhugviti, en það var þegar Ólaf- ur Ragnar Grímsson tók veð í gagna- gmnni vegna skattskulda. Þó þessi aðgerð hafí sætt gagnrýni margra, er hún engu verri en veðsetning á skipi í alltof stórum fiskiskipaflota. Veðið er einskis virði ef ekki er hægt að nýta skipið til veiða. Aðilar í hugbúnaðariðnaðinum kalla á breytingar. Þeir vilja ekki himinháa ríkisstyrki eða sérsjóði til að fjármagna greinina. En vilja gjaman fá skilning og sanngjamar reglur. Skapa verður umhverfi, sem er greininni vingjamlegt. Mín skoðun er, að óvíða sé vaxt- arbroddurinn eins góður í íslensku atvinnulífi. Ég er líka viss um að tölvuiðnaðurinn á íslandi er margra þorskárganga virði, ef rétt er haldið á málunum. Einu sinni heyrði ég að stjómvöld erlends ríkis hafi boðið einu íslensku hugbúnaðarfyrirtæki skattfríðindi í 10 ár, ef það vildi flytja starfsemina þangað. Hættum að treysta á erlenda aðstoð og hlúum að verðmætustu eign okkar - hug- vitinu. Höfundur er tölvunarfræðingur. 1AUSTFUNDUR ÚmUTNIIUGSRÁBS á Hótel Sögu, sal A þriðjudaginn 8. desember 1992 kl. 14:00 -17:00 Dagskrá fundarins: 13:45 Skráning 14:00 Samkeppnisaðstaða gjaldeyrisaflandi atvinnugreina, Sigurður B. Stefánsson hagfrœðingur.framkvcEmdastjóri Verðhréfamarkaðs Islandsbanka. 14:30 Á að stofna fríverslunarsvæði á íslandi? Þröstur Olafsson hagfrœðingur, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. 15:00 Kaffi. 15:30 Aðgerðir Dana til áð fá Bandaríkjamenn og Japani til að fjárfesta í Danmörku. Jórgen Tranberg, forstöðumaður fjárfestingarskrifstofu danska utanríkisráðuneytisins. 16:00 Niðurstöður skoðanakönnunar um viðhorf íslendinga til gjaldeyrisaflandi atvinnugreina. Stefán Olafsson prófessor, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Islands. 16:30 Umræður. Aðgangur að fundinum er ókeypis, en óskað er eftir að þátttakendur tilkynni þátttöku til Útflutningsráðs í síma 688777. /// ÚTFLUTNINGSRÁÐ ÍSLANDS ÍSLENSKT VE/TÁ GOTT . Lágmúla 5p'ósth61f 8796 128 Reykjavík, slml 91-688777 Lækkaðu eignarskattínn þinn! Sért þú í hópi þeirra fjölmörgu sem greiða eignarskatt Úrval eignarskattsfrjálsra verðbréfa hjá Landsbréfum: ættir þú að kanna kosti eignarskattsfrjálsra verðbréfa. ✓ SPARISKÍRTEINI Ráðgjafar okkar aðstoða þig við val á verðbréfum og |/ HÚSBRÉF veita ráðleggingar varðandi skattamál. ✓ ÖNDVEGISBRÉF Leitaðu upplýsinga hjá ráðgjöfum Iandsbréfa eða umboðsmönnum í Landsbanka íslands ✓ LAUNABRÉF fS um land allt. ✓ RÍKISVERÐBRÉF LANDSBRÉF H.F. % Landsbankinn stendur með okkur | Suðurlandsbraut 24, 108 fíeykjavík, sími 91-679200, fax 91-673598 * Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. <

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.