Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 12

Morgunblaðið - 03.12.1992, Page 12
V^terkurog O hagkvæmur auglýsingamiðill! VIÐSKlPn AIVINNULIF FIMMTUDAGUR 3. DESEMBER 1992 VZterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Markaður Sjávarútvegssýning í fjórða sinn íhaust VIÐAMIKIL sjávarútvegssýning verður haldin i fjórða sinn í Laugar- dalshöllinni og næsta nágrenni dagana 15-19. september nk. Það er fyrirtækið Reed Exhibition í Bretlandi sem annast alla skipulagningu en sérhannaðir tjaldskálar verða leigðir frá hoUensku fyrirtæki. Sam- svarar hvor um sig stærð Laugardalshallarinnar. Á sýningunni gefst aðilum í sjávarútvegi kostur á skoða nýjustu tækni í fiskveiðum og -vinnslu víða að úr heiminum. ;,í tjaldskálunum verður mjög góð aðstaða fyrir sýnendur, t.d. er gólfíð í þeim mun þægilegra en þeir flekar sem við höfum áður notað,“ segir Patricia Foster, framkvæmdastjóri sýningarinnar sem dvelur hér á landi um þessar mundir vegna undirbún- ings hennar. „Sýningin verður nokk- uð minni en fyrri sýningar en svæð- ið er alls um 4.500 fermetrar. Það eru erfiðir tímar og því munu fyrir- tækin ekki taka jafn stórt svæði og áður. Þó hafa mörg íslensk fyrirtæki óskað eftir jafnstóru svæði og á síð- ustu sýningu og dæmi eru um þau hafí aukið við sig. Góð þátttaka ís- lensku fyrirtækjanna hefur þó komið mér á óvart. Eins og áður sýna fyrir- tæki saman frá nokkrum löndum t.d. frá Bretlandi, Noregi, Svíþjóð og Hollandi. Einnig eigum við von á tveimur fyrirtækjum frá Rússlandi," sagði Foster. Hún segir að erfítt sé að átta sig á ijölda þeirra fyrirtækja sem þegar hafi sótt um svæði á sýningunni. Mörg þeirra sæki um saman í nafni síns lands. Hins vegar sé þegar búið að ráðstafa meira en helmingi alls sýningarsvæðisins. „Mér sýnist að fyrirtækin hafí náð góðum árangri á síðustu sýningu þar sem mörg þeirra hafa sótt um að taka aftur þátt.“ Aðspurð um hvort vænta megi margra erlendra gesta segist hún búast við svipuðum fjölda og árið 1990 en þá komu hingað til lands um 700 útlendingar vegna sýningar- innar. „Að mínu áliti er það góður árangur að fá þennan ijölda hingað þar sem það er mun meiji fyrirhöfn að komast hingað en t.d. á sjávarút- vegssýninguna í Danmörk. Ég tel að það sé ekki að vænta mikillar aukningar næsta haust.“ Morgunblaðið/Sverrir SYNING — Á myndinni eru fulltrúar hollenska fyrirtækisins Neptúnus ásamt forráðamönnum sjávarútvegssýningarinnar í Laugar- dal sem haldin verður á næsta ári. FOLK — Ragnheiður Guðmundsdóttir mun hefja störf hjá Globe- fish í byijun næsta árs. „íslenskur sjávarútvegur hefur náð góðum árangri á alþjóðamörkuðum án markaðsvemdar og ríkisstyrkja, þess vegna fínnst mér sjálfsagt að íslendingar taki frumkvæði í samstarfí innan þeirrar atvinnugreinar." Islendingxir ráð- inn til Globefish Ragnheiður Guðmundsdóttir stjórnmálafræðingur hefur verið ráðin til Globefish í Róm, sem er hluti af sjávarútvegsdeild FAO. En FAO er matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna. Verkefni Ragnheiðar verða m.a. þau að sjá um viðhald á gagnagrunni gagna- banka Globefish, skipuleggja samskipti við þá er veita bankanum upplýsingar, svara almennum fyrirspumum sem berast, gagnaleit í bankanum og undirbúa þau rit sem Globefish gefur út. Globefísh er markaðs- og upplýs- ingadeild og stendur fyrir útgáfu á markaðsskýrslum, mánaðarlegu fréttabréfi af fískmörkuðum í Evr- ópu, ársfjórðungsritum um mark- aðsmál, ásamt því að reka gagna- banka sem er einn af fáum sem sérhæfðir eru á sviði sjávarútvegs. Útflutningsráð íslands er tengt beint við gagnabankann. Gagnabanki Globefísh inniheld- ur upplýsingar um þróun markaða, fískeldi, samáhættufyrirtæki, ijár- festingar, kvóta- og veiðitölur, framleiðslu, útflutning og innflutn- ing og verð á afurðum. Að sögn Þorgeirs Pálssonar markaðsathugunarstjóra hjá Út- flutningsráði íslands hefur ráðið verið í samstarfí við Globefísh í um þijú ár og er samvinnan nú að skila sér í beinni þátttöku Útflutn- ingsráðs í ráðstefnum sem Globe- físh skipuleggur víða í Evrópu. „Þessi samvinna er einnig að skila sér í því að Útflutningsráð er nú virkur þátttakandi í markaðsrann- sóknaverkefni Globefísh þar sem við höfum skrifað þrjár skýrslur um tilbúna fískrétti í Evrópu," sagði Þorgeir. I skýrslu sem Þorgeir skrifaði um starfsemi sjávarútvegsdeildar FAO segir að íslendingar hafí sett mikinn svip á starfsemi deildarinn- ar á liðunum árum og verið virkir þátttakendur í þróunarverkefnum víða um heim. „Frá árinu 1989 hefur enginn íslendingur starfað innan sjávarútvegsdeildar FAO þar sem íslensk stjómvöld hafa ekki sinnt þessari stofnun nægilega og greitt of lítið til hennar. Útflutn- ingsráð hefur hins vegar lagt rækt við samskipti við Globefísh og höf- um við nú aðstoðað þá við að ráða til sín starfskraft. Með þessu fáum við betra tækifæri til að nálgast upplýsingar frá FAO sem síðar gæti vonandi leitt til þess að við gætum farið að senda menn inn í sjávarútvegsdeildina sjálfa þar sem þetta er stærsta stofnun í heimin- um varðandi sjávarútveg og sjávar- útvegsverkefni. “ Ragnheiður mun hefja störf hjá Globefísh í janúar nk. og segist hún hlakka mjög til að takast á við þau verkefni sem bíði hennar hjá fyrir- tækinu. „Ég tel það mikilvægt fyr- ir íslendinga að vera virkir innan alþjóðlegra stofnana, sérstaklega samfara aukinni þátttöku okkar í alþjóðamálum, sem óhjákvæmilega mun verða með aðild okkar að EES. Ég tel að íslendingar standi jafnfætis ef ekki framar öðrum sjávarútvegsþjóðum hvað varðar tækniþekkingu og þróunarstarf í sjávarútvegi og sé þess vegna ekk- ert því til fyrirstöðu að við getum miðlað enn frekar af þekkingu okk- ar til annarra þjóða, auk þess sem við hljótum að vera tilbúin að læra af öðrum,“ sagði Ragnheiður. Ragnheiður varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1987, hún var á Spáni árið eftir stúdents- próf og lauk BA-prófi í stjómmála- fræði vorið 1991. Lokaritgerð hennar var á sviði Evrópumála, um hugsanlega aðild íslands og ann- arra EFTA-ríkja að hinum sameig- inlega innri markaði EB og að EES með tilliti til félagslegra réttinda. Síðastliðið ár hefur hún starfað hjá Upplýsingaþjónustu landbúnaðar- ins. Ahugaleysi fyrir erlendum fjárfestum FYRIR Alþingi hefur verið lagt frumvarp til breytinga á lögum um fjárfestingu erlenþra aðila f at- vinnurekstri. Frumvarpið er flutt til að laga reglur um fjárfestingu er- lendra aðila í atvinnurekstri hér á landi að ákvæðum samnings um EES. Frumvarpið er skref í rétta átt og ef það verður samþykkt rýmkast til muna réttur útlendinga til fjárfestingar í atvinnurekstri hér á landi. Samkvæmt ákvæðum EES- samningsins er ríkjum innan EES heimilt án takmarkana að fjárfesta í atvinnurekstri í ööru ríki á svæð- inu. Sú undanþága er þó t.d. að íslandi er veitt heimild til að við- halda ótímabundið gildandi banni við fjárfestingu erlendra aðila í fisk- veiðum og frumvinnslu sjávaraf- urða. Jafnframt er stjórnvöldum heimilt að krefjast þess að fyrir- tæki losi sig við fjárfestingu í fisk- veiðum eða fiskvinnslu ef þau kom- ast að öllu leyti eða að hluta til í eigu erlendra aðila. íslandi er veitt- ur frestur til 1. janúar 1996 til að laga gildandi reglur um fjárfestingu erlendra aðila í öðrum atvinnu- greinum að ákvæðum samnings- ins. Breytingar með frumvarpinu eru helstar þær að frá 1. janúar 1996 njóta ríkisborgarar og lögaðilar frá hinum EES-ríkjunum sama réttar til fjárfestingar á sviði orkuvinnslu og orkudreifingar og íslenskir ríkis- borgarar og lögaðilar. Jafnframt fellur úr gildi sú takmörkun að er- lendir aðilar megi einungis eiga 25% í hlutafélagabönkum. Þá fell- ur einnig út ákvæði um að leyfi- sveiting sé nauðsynleg frá ráð- herra ef erlend fjárfesting fer fram úr 200 milljónum króna eða sé umfram 25% af heildarfjárfestingu í tilgreindum atvinnugreinum. Þetta eru einungis nokkur dæmi um hið aukna frelsi og Ijóst er að fjárfesting erlendra aðila í atvinnu- rekstri ætti að verða auðveldari. Þá vaknar hins vegar upp sú spurning hvort íslendingar hafi einhvern áhuga á að fá erlenda fjárfesta inn í landið? Eftir því sem næst verður kom- ist er ekki unnið markvisst að því að fá erlenda fjárfesta til íslands með skipulagðri markaðssetningu. Hér á landi er ekki veitt sú lág- marksstarfsemi að ákveðinn aðili sinni því skipulega að veita áhuga- sömum erlendum fjárfestum upp- lýsingar um ísland. Á þessu sviði ríkir slíkur frumskógur skipulags- leysis og upplýsingaskorts að er- lendir aðilar hljóta að hika við fjár- festingu hafi þeir sýnt áhuga á annað borð. Sú stofnun sem kemst næst því að markaðssetja [sland er mark- aðsskrifstofa iðnaðarráðuneytis- ins og Landsvirkjunar (MIL) en starfssvið hennar er, eins og nafn- ið bendir til á mjög takmörkuðu sviði, þ.e. orkumála. Skrifstofan er vissulega spor í rétta átt en óljós verkaskipting á milli hennar og Landsvirkjunar hefur varpað skugga á starfsemi markaðsskrif- stofunnar. í raun er verkaskipting- in víðar óljós og nýlegt dæmi í því sambandi er sæstrengsmálið. Enginn virðist vita hver hefur yfir- umsjón í þeim efnum. Sumar þjóðir eru forsjálli en við og margar þeirra vinna markvisst að því að fá til sín erlenda fjár- festa. Jón Sigurðsson viðskiptafull- trúi Útflutningsráðs íslands í New York var með erindi á vegum Amerísk-íslenska verslunarráðsins í sl. viku þar sem hann sagði að Danir ætluðu sér að verja 20 millj- ónum danskra króna á næstu 5 árum til að markaðssetja Dan- mörku fyrir bandariskum fjárfest- um. Markaðssetning Dana hófst fyrir 5 árum og hún hefur þegar leitt til þess að yfir 30 bandarísk fyrirtæki hafa flutt starfsemi sína til Danmerkur og 540 Danir hafa fengiö vinnu vegna þessara starfa. írar, Hollendingar og Nýsjálend- ingar hafa einnig sérstakar skrif- stofur í New York sem einungis sinna slíkri markaðssetningu. Dæmi um hversu umfangsmikil starfsemin getur verið vinna 520 manns við að markaðssetja írland fyrir erlendum fjárfestum. Ekki er Ijóst hvort vandamálið hérlendis felst í því að stjórnvöld hafi ekki áhuga á að fá erlendar fjárfestingar til landsins eða hvort þau telji að ísland sé svo heppileg- ur fjárfestingarvalkostur og vel þekkt erlendis að ekki sé þörf á markaðssetningu þar. íslenskt fjármagn mun í auknum mæli streyma úr landi á næ'stu árum. Ekki er nóg að samþykkja aukið frelsi í fjárfestingum erlendra aðila á íslandi og einungis vona að úr rætist. Það er líkt og að kaupa hveiti og sykur og bíða eftir að jólakökurnar baki sig sjálfar. ÁHB

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.