Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 1
seei,flaaM38aa .rs auoAauTMMia aiQA.iai<!UOHOM 9 öí VERSLUN: Odýrari gjafir undir jólatrénu í ár /3 FJÁRMÁL: Hófleg bjartsýni og aukinn hagvöxtur í OECD /4 Jltorjfliiilribifeifr vœsKipn/ArviNNUUF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 BLAÐ c Verðbréfamarkaður Hlutabréfasala í desember nálægt 1 milljarði HLUTABRÉFASALAN í desember verður líklega nálægt einum milljarði, að sögn Stefáns Halldórssonar, framkvæmdastjóra Ráð- gjafar Kaupþings. Þá eru meðtalin hlutabréfaútboð í desember en þau hafa að stórum hluta verið keypt af lífeyrissjóðum og öðrum stærri fjárfestum. Þar til viðbótar koma kaup einstaklinga sem hyggjast nýta sér skattaafslátt. Síðustu daga hefur verið mikil örtröð hjá verðbréfafyrirtækjunum eins og jafnan á þessum tíma árs. Telja forráðamenn verðbréfafyrirtækjanna að sala nú fyrir áramótin sé svipuð og í fyrra. „Það er ekki ósennilegt að sala hlutabréfa í desember verði á bil- inu 800-1000 milljónir," sagði Svanbörn Thoroddsen, forstöðu- maður hjá Verðbréfamarkaði ís- landsbanka. „Hins vegar hefur verið mjög erfitt að átta sig á veltutölum hjá verðbréfafyrirtækj- unum. Okkur hefur sýnst að helm- ingur sölunnar hafi verið hjá hluta- bréfasjóðum og hinn helmingurinn í einstökum hlutafélögum. Af SÖLUGENGI DOLLARS Síðustu fjórar vikur OO.UU IU. 63,92 ttA qn > Jr f=J! fj ul,UU 60,50 60,00 59,50 L i I l l I I I I I 2.de$. 9. 16. 23. 30. hlutafélögum hefur langmest sala verið í Eimskipi en þar á eftir kemur íslandsbanki, einkanlega gegnum Eignarhaldsfélag Iðnað- arbankans. Síðan hefur selst vel af hlutabréfum í Granda. Það virð- ist vera að eftirspurnin sé mest eftir hlutabréfum í stærstu fyrir- tækjunum. Þar er hluthafafjöldinn mestur og menn virðast sjá fyrir að markaður með bréf þessara fyrirtækja verði virkari en í smærri fyrirtækjum og bréfin því seljan- legri.“ Svanbjörn benti á að hluta- bréfavísitalan hefði hækkað um 4% í desember vegna hækkunar á gengi hlutabréfa í stærstu fyrir- tækjunum sem hefðu mest vægi í vísitölunni. Hjá Kaupþingi hefur mikil sala farið fram síðustu daga gegnum síma til einstaklinga sém hyggjast nýta sér skattaafsláttinn en einnig eru boðin til sölu hlutabréf á veg- um fyrirtækisins hjá sparisjóðun- um og Búnaðarbankanum. Stefán Halldórsson sagði að hlutabréf í Auðlind hefðu selst fyrir nálægt 30 milljónir króna í desember og seld hlutabréf í Jarðborunum væru nálægt 20 milljónum. Einnig hefðu selst hlutabréf í útboði Marel fyrir 25 milljónir og fyrir 112,5 milljón- ir í KEA. Hann sagði að önnur hlutabréf hefðu selst fyrir um 39 milljónir í mánuðinum en í því sambandi kynni að gæta nokkurr- ar ónákvæmni. „Hlutabréf í Eim- skipi hafa selst mest en einnig hefur mikið verið spurt um Olíufé- lagið. Þá má nefna Útgerðarfélag Akureyringa, Marel og Sæplast.“ Sigurbjörn Gunnarsson, deildarstjóri hjá Landsbréfum, sagði að sala hefði verið mjög góð milli jóla og nýárs. Um 70% kaup- enda hefðu keypt bréf í hlutabréfa- sjóðum og 30% í einstökum félög- um. Vinsælustu félögin hefðu ver- ið Eimskip, Flugleiðir, Olís og 01- íufélagið. Hann kvaðst telja að salan milli jóla og nýárs væri svip- uð og í fyrra en hins vegar hefði sala fyrri hluta mánaðarins verið heldur minni. Eins og venja er á gamlársdag munu verðbréfafyrirtækin hafa opið fram yfir hádegi í dag til að anna mikilli eftirspurn. 110 félög hafa hlotið staðfestingu ríkisskattstjóra Hjá ríkisskattstjóra fengust þær upplýsingar að 106 hlutafélög hefðu hlotið staðfestingu þannig að einstaklingum væri heimilt að draga kaupverð hlutabréfa í þess- um félögum frá tekjuskattsstofni. Að auki lágu fyrir umsóknir frá 4-5 félögum þannig að búist var við að 110 félög myndu endanlega fá staðfestingu ríkisskattstjóra. Það skilyrði þarf að vera fyrir hendi að félögin hafi að lágmarki 18,5 milljóna hlutafé og fjöldi hlut- hafa þarf að vera a.m.k. 25. Þá má engar hömlur leggja á við- skipti með hlutabréfin og ársreikn- ingar félaganna eiga að vera öllum aðgengilegir. nh--í GENGI NOKKURRA GJALDMIÐLA jan. til des. 1992 13,98% breyting frá áramótum 'j F m'a M J 'j Á s'o N d' STERLINGSPUND -7,43% breyting frá áramótum JFMAMJJÁS0ND Dönsk KRÓNA Kr. j 10,2765 10,50 | ■ 9.4070 y,UU Í 9,24% breyting 0,10 | 8 50 1 frá áramótum 8,50 | 'j F m'a M J 'j A S 'O N d|8'25| Japanskt YEN Kr. 1 13,87% brevtinq j frá áramótum 0,50 { 0,49 | 0,48 | A // | //^i A llXy 0,46 [ XT NwjrV T 0,45 ; 0,45093 ^ II u,<w ; U,HO 0,42 í 0,41 | 'j F M'A M J'j Á S'O N n' V’™ 1 u i Þýskt MARK 39,6895 36.5938 8,46% breyting frá áramótum J F m'a Mj'j Á s'o N D1 ECU - - r 77.4934 74.5303 3,98% breyting frá áramótum rj F m'a M j'j Á s'o N D HAGKVÆMASTI KOSTURINN ÞEGAR ALLS ERGÆTT. SAGA BUSINESS í viðskiptaferðum með Saga C*',I A CC Business Class lækkarðu ferðakostnað til muna með því að eiga kost á heimferð strax og þú hefur lokið viðskiptaerindum þínum. Þe/'r scu/ reikuu cheit/ii) til et/ciei relja eilltcif Sdgct Business C/ass ’ Mundu einnig að eitt og sama fargjald með Saga Business Class getur gilt milli margra áfangastaða í sömu ferð. Þú nýtur svo ávinnings af að geta eins fljótt og auðið er tekist á við verkefni sem bíða þín heima. FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur ferðafélagi SSE)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.