Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 2
2 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINN1ILÍF FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 Gjaldeyrismál Mögiileikar opnast á framvirkum viðskipt- um með krónuna ÍSLENSKUM fyrirtækjum gefst í fyrsta sinn kostur á því á næsta ári að eiga svokölluð framvirk viðskipti með krónuna eftir að ný reglu- gerð um gjaldeyrismál gengur í gildi um áramótin. Þetta er háð því skilyrði að greiðslusamningur í erlendri mynt liggi fyrir. Þó er útflytj- endum vöru og þjónustu heimilt að gera framvirka samninga um sölu á erlendum gjaldeyri vegna væntanlegra greiðslna frá erlendum aðil- um þótt greiðslusamningur liggi ekki fyrir. Kaupskip Skráðum kaupskipum á íslandi hefur fækkað um 62% sl. fimm ár KAUPSKIPUM íslensku útgerðanna hefur fækkað um 33% sl. fimm ár og á sama timabili hefur kaupskipum sem skráð eru hérlendis fækkað um 62% eftir því sem fram kemur í nýrri samantekt Sam- bands íslenskra kaupskipaútgerða. Þá hefur 33% samdráttur orðið í atvinnutækifærum farmanna á flota íslensku útgerðanna síðan í maí 1988. Með framvirkum samningum geta t.d. útflytjendur tryggt sér ákveðið gengi gjaldmiðla fram í tím- ann og þannig varist hugsanlegu gengistapi þegar um er að ræða greiðslufrest. Bæði getur þar verið um að ræða fasta samninga (forw- ard eða futures) eða valrétt (opti- ons) en í síðarnefnda tilvikinu hefur fyrirtækið einnig möguleika á að nýta sér hugsanlega hækkun gjald- miðilsins. í nýju reglugerðinni er einnig heimilað að gera vaxtaskiptasamn- inga og gjaldeyrisskiptasamninga (swaps). Með því móti geta fyrir- tæki breytt skuldbindingum sínum án þess að breyta eignum og skuld- um. Þessi viðskipti eru hins vegar háð nokkrum takmörkunum fram til 1. janúar 1995. Framvirkir samningar um gjaldeyrisviðskipti með íslenskar krónur mega samkvæmt reglugerð- inni t.d. ekki vera til lengri tíma en Baldvin sagði að enn væri svo margt óljóst í sambandi við sölu á hlutabréfum í Búnaðarbankanum að ekki væri hægt að segja til um hvort sparisjóðirnir kaupi hlut í fyrirtæk- inu á næsta ári. „A meðan við vitum ekki hvað verður til sölu, hvaða skil- yrði verða sett af hálfu ríkisins ög hvernig aðstæður verða þá er ekkert hægt að fullyrða um hlutabréfakaup sparisjóðanna í Búnaðarbankanum. Því kom mér á óvart að formaður einkavæðingarnefndar skyidi viðra hugmyndir um leiðandi eignaraðild sparisjóðanna að Búnaðarbanka þar sem ekki hefur verið haft samband við sparisjóðina í þessu sambandi. í þeirra stað. Framkvæmdastjóri Þróunarfé- lagsins, Gunnlaugur Sigmundson, segist búast við að einhveijar áherslubreytingar verði hjá fyrir- tækinu með nýjum eigendum og nýjum aðilúm í stjórn. „Starfsfólk Þróunarfélagsins er mjög ánægt með að lífeyrissjóðirnir skyldu verða svo stórir eignaraðilar tólf mánaða vegna þjónustuvið- skipta og fjármagnshreyfinga. Framvirkir samningar milli er- lendra mynta hafa verið í boði hjá íslensku viðskiptabönkunum um nokkurt skeið. Tiltölulega fá fyrir- tæki hafa hins vegar nýtt sér þenn- an möguleika. Má þar helst nefna bankana sjálfa og stórfyrirtæki á borð við Eimskip og Flugleiðir sem eiga mikil bein viðskipti við erlendar Iánastofnanir. Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslandsbanka, segir að næstu skref hjá bankanum verði möguleikar á vaxta- og gjaldeyris- skiptasamningum og í framhaldi af því verði í boði framvirkir samning- ar gagnvart íslenskri krónu. Hann segir að þekking íslenskra fjármálastjóra á framvirkum samn- ingum sé víða nokkuð góð og þeir séu að læra hvernig þau gangi fyrir sig. Einstaka aðilar hafí þegar öðl- ast reynslu og búast má við miklum áhuga á næsta ári. Það er hins vegar ljóst sparisjóðirnir gætu orðið leiðandi afl ef af einhveij- um kaupum verður þar sem eigin- fjárstaða þeirra er mjög sterk eða um 5 milljarðar króna,“ sagði Balvin Tryggvason. í viðtali við Morgunblaðið í sl. viku sagði Hreinn Loftsson, formað- ur einkvæðingarnefndar, að ef hluta- §árkaup sparisjóðanna væru ekki talinn fýsilegur kostur væri jafnvel ástæða til að leita til eriendra aðila um kaup á 15-20% hlutafjár í Búnað- arbankanum. Þetta væri upphafið á sölu bankans og síðan yrði farið út í almennt hlutafjárútboð. og við búumst við góðu samstarfi við þá. Það er mun æskilegra að lífeyrissjóðinir eigi þetta hlutafé en ríkissjóður,“'sagði Gunnlaugur Sig- mundsson. Nafnverð hlutabréfanna voru 100 milljónir króna en líkt og áður sagði var kaupverðið 130 milljónir króna staðgreitt. Atvinnutækifæri íslenskra far- manna hafa dregist saman um 42% frá því í maí 1988 eftir því sem fram kemur í ofangreindri saman- tekt. Á sama tíma hefur útlending- um sem þjóna flotanum fjölgað um 23%. Einar Hermannsson hjá Sam- bandi íslenskra kaupskipaútgerða, sagði í samtali við Morgunblaðið, að nefnd á vegum samgönguráðu- neytis hefði verið að skoða leiðir til úrlausnar á vanda útgerðarinnar í síharðnandi alþjóðlegri samkeppni. „Þetta hefur í sjálfu sér ekki skilað neinum árangri vegna þess að hluti stéttarfélaga hefur verið alveg and- vígur því að grípa til hliðstæðra aðgerða og í nágrannalöndum okk- ar. Sú leið sem valin var í Dan- mörku felst t.d. í stuttu máli í danskri alþjóðaskráningu þar sem útgerðum er gert fijálst að velja áhafnarmeðlimi af hvaða þjóðerni sem er. Stjórnvöld hafa síðan kom- ið á móti til að tryggja atvinnuör- yggi danskra farmanna með því að fella niður skatta og launatengd gjöld, þ.e. greiða niður laun þeirra sem eru í samkeppni við ódýrt er- lent vinnuafl sem útgerðunum Iðnaður SagaSalt að koma á markað HOLLENSKA fyrirtækið Akzo er nú að hefja markaðssetningu á SagaSalt, þ.e. á heilsusaltinu frá saltverksmiðjunni á Reykja- nesi. Að sögn Ingólfs Krisljáns- sonar verksmiðjustjóra íslenska saltfélagsins er markaðssetning að hefjast I Skandinavíu og reiknað er mað að upp úr ára- mótum verði saltið komið á al- mennan markað. Ingólfur segir ætlunina vera að selja heilsusaltið bæði í stærri pakkningum til matvælaframleið- enda en einnig eigi að selja það í neytendaumbúðum í verslunum. „Nú hafa verið gerðir kynning- arbæklingar og auglýsingaherferð hefur verið sett af stað. Það getur vel verið að í kjölfar markaðssetn- ingar í Skandinavíu komi SagaSalt fljótlega í verslanir á íslandi," sagði Ingólfur Kristjánsson. býðst. Þetta hefur skilað þeim árangri í Danmörku að þar eru yfir 80% af farmönnum á þessum skip- um Danir þó útgerðirnar hafi fijálst val. Með því að óska eftir að svipað fyrirkomulag verði tekið upp hér í desembermánuði voru fluttir inn 266 fólksbílar samanborið við 358 talsins í desember 1991. Þetta er um tæplega 26% samdráttur sem er sambærilegt við árið í heild. Samdrátturinn í innflutningi fólksbíla var aðeins minni en gert var ráð fyrir í upphafi árs en þá var talað um að hann yrði væntan- lega um 30%. Röð þeirra bílategunda sem mesta markaðshlutdeild hafa er svo Langstærstur hluti sölu á ís- lenskum hljómplötum fer fram á síðustu tveimur mánuðum ársins, eða um 50-60%. Salan hefur þó dreifst undanfarin ár, en fyrir nokkrum árum fóru 75-85% af sölunni fram í nóvember og desem- ber. Jafnhliða aukningu á sölu ís- lenskrar tónlistar hefur dregið úr sölu á erlendri tónlist., en þó í minna mæli. í fréttinni frá hljómplötu- framleiðendum segir að þrennt valdi hefur íslensk kaupskipaútgerð verið vænd um að sækjast eftir opinberri fyrirgreiðslu. Það er ekki rétt, held- ur lítur útgerðin þannig á að skatta- ívilnanir og niðurfelling skatta og launatengdra gjalda séu fyrst og fremst aðgerðir til að tryggja at- vinnuöiyggi farmanna á íslenskum kaupskipum," sagði Einar. I umræddri samantekt kemur einnig fram að samdráttur í stærð íslenska kaupskipaflotans sl. fimm ár er 16-20% mælt í brúttólestum og 10-15% mælt í burðartonnum. til óbreytt þó hlutfallið breytist nokkuð á milli ára. Eins og áður sagði er Toyota með mesta mark- aðshlutdeild fólksbíla, þar næst kemur Mitsubishi með 13,1% hlut- deild, Nissan með 11% og Daihatsu með 8,6% hlutdeild sem er aukning frá fyrra ári. Ný bílategund, Hyundai, náði 3,7% markaðshlutdeild en innflutn- ingurinn nam alls 267 bílum á ár- inu. mestu um þá aukningu sem átt hafi sér stað í sölu íslenskrar tónlist- ar. Þar megi nefna aukin gæði og metnað flytjenda og útgefenda varðandi nýjar útgáfur, aukna fjöl- breytni í tónlistarstefnum og öflug- an áróður fyrir því að kaupa ís- lenskra vöru frekar en erlenda. Þess má geta að árið 1991 nam sala á íslenskum hljómplötum um 150.000 eintökum og hafði þá aldrei náð því að vera meiri. Sparisjóðir Engin ákvörðun um hlutafjárkaup í Búnaðarbanka ENGAR ákvarðanir hafa verið teknar af hálfu sparisjóðanna um hluta- fjárkaup í Búnaðarbanka. Að sögn Baldvins Tryggvasonar formanns Sambands íslenskra sparisjóða hafa slík hlutafjárkaup verið rædd innan sambandsins og þar hefur komið fram að um hugsanlegan áhuga sé að ræða. Líkt og komið hefur fram í Morgunblaðinu telur einkavæð- ingarnefnd ríkisstjórnarinHar að það eigi að skoða gaumgæfilega þann kost að sparisjóðirnir kaupi 15-20% hlutafjár í Búnaðarbankanum á næsta ári, en gróflega áætlað eru það um 500-600 milljónir króna. Einkavæðing Gengið frá sölu ríkisins á hlut í Þróunarfélaginu LÍFEYRISSJÓÐIRNIR tólf sem keypt hafa 29,02% hlut ríkisins i Þróunarfélaginu hafa nú greitt kaupverðið aJls 130 milljónir króna. Haldinn verður almennur fundur fyrir hluthafa í fyrirtækinu þann 11. janúar næstkomandi þar sem 2 nýir sljórnarmenn verða kosnir, en í kjölfar þessara kaupa óskuðu 2 stjórnarmenn af 5, þeir Ólafur Davíðsson og Ólafur B. Thors, eftir því að nýir menn yrðu kosnir Bílar Toyota með mesta markaðshlutdeild Innflutningur fólksbíla dróst saman um 26% á árinu 1992 INNFLUTNINGUR fólksbíla dróst vérulega saman á árinu 1992 samanborið við árið 1991 eða um 26%. Alls voru fluttir inn 7252 fólksbílar samanborið við 9793 á síðastliðnu ári. Samdrátturinn er mjög mismunandi á milli bílategunda og ekki síst hjá tveimur stærstu tegundunum Mitsubishi og Toyota. Samdrátturinn á milli ára var 46% hjá Mitsubishi en 9% hjá Toyota, sem er nú með yfirgnæfandi markaðshlutdeild, alls 21,3%, samkvæmt upplýsingum frá Bifreiða- skoðun. Verslun Metsala á hljómplötum SALA á íslenskum hljómplötum, þ.e. geislaplötum og kassettum, á árinu 1992 er meiri en nokkru sinni áður, eftir því sem fram kemur í frétt frá Sambandi hljómplötuframleiðenda. Áætluð heildarsala nemur um 180 til 200 þúsund eintökum og er um að ræða 20-30% aukningu frá fyrra ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.