Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 FJÁRMÁL Á FIMMTUDEGI Hófleg bjartsýni og aukinn hagvöxtur 1993 í OECD i Á íslandi eru horfur á minni neyslu og auknum spamaði árið 1993. Vonlaust er þó að skulda- söfnun stöðvist fyrr en árið 1994 eða 1995 eftir Sigurð B. Stefánsson Á árinu 1993 bíða íslendinga margvísleg úrlausnarefni í efna- hagsmálum. Þó er ekki svo að skilja að nýja árið færi með sér einhvern sérstakan nýjan vanda. Úrlausnar- efnin eru gamalkunn og þau má draga saman í eina setningu: Gæta þarf þess að útgjöld þjóðarbúsins fari ekki fram úr tekjum og skuldir hætti að aukast. Það sem er nýtt á árinu 1993 eru aðstæðurnar. Þær eru ókunnuglegar og framandi. Atvinnuleysi er um 4% og gæti orðið 5% eða meira á næsta ári. Skuldir í landinu, þ.e. skuldir ríkissjóðs, sveitarfélaga, heimila og fyrirtækja, eru himinháar og þær munu halda áfram að aukast árið 1993 hvernig sem á verður haldið og sennilegast á árinu 1994 líka nema eitthvað mikið komi til. Skuld- ir heimilanna gætu orðið 240-250 milljarðar króna á árinu 1993 eða um fimmtungi hærri en ráðstöfunar- tekjur heimilanna á því ári. Erlendar skuldir gætu vaxið í 220-230 ma.kr. og orðið um 70-80% hærri en út- flutningstekjur ársins sem eru áætl- aðar um 130 ma.kr. Horfur eru á að árið 1993 verði sjötta árið í röð þar sem útflutningstekjur lækka og stefna þær í að verða nærri 15% lægri en árið 1987 þegar þær urðu hæstar. Mikilvægast er að lækka útgjöld þjóðarbúsins 1993 og 1994 Meginviðfangsefni stjórnvalda næstu tvö ár verður að lækka út- gjöld þjóðarbúsins þannig að þau verði ekki umfram tekjur og skuldir hætti að aukast. Að þessu verður að vinna við þær aðstæður að skuld- ir eru hærri en nokkru sinni fyrr og atvinnuleysi meira en í áratugi. Hlið- stæðan vanda hefur verið tekist á við fyrr, en aldrei í því opna sam- félagi upplýsinga og samanburðar, bæði innan þjóðar og milli landa, sem við búum í nú. Sívaxandi samskipti við erlendar þjóðir (nú síðast t.d. beinn verðsam- anburður í jólaversluninni á vöruúr- vali og verði í smásöluverslun hér heima og í erlendum búðum) og síaukinn samanburður íslendinga á kjörum okkar og kjörum í hálauna- löndunum í kring hefur leitt til þess að útgjöld heimila hér eru fremur sniðin að neysluvenjum þar en eigin buddu. En samanburður á fram- leiðslu- eða tekjuhlið okkar þjóðar- bús og nálægra þjóða leiðir sífellt betur í Ijós þann mikla mun sem er á framleiðni - og raunar einnig til- kostnaði - milli fyrirtækja á íslandi og fyrirtækja í nálægum löndum. Hagnaður fyrirtækja á íslandi er að jafnaði miklu minni hlutfallslega en annars staðar. Samt eru launin sem fyrirtæki hér geta greitt líka mun lægri. Þetta þýðir einfaldlega að hver vinnandi hönd á íslandi skapar ekki jafnmikil verðmæti og gert er í nærliggjandi löndum. Þess vegna eru tekjur fyrirtækja lægri og launþegar bera minna úr býtum. Eins og sakir standa er mikið um- hugsunarefni hvort fullur skilningur sé meðal þjóðarinnar á þessum mis- mun milli framleiðslukerfis okkar og nálægra þjóða. Tilkall íslendinga til sambærilegra kjara og í hátekju- löndunum mun leiða til þess að erfið- ara reynist en ella að hægja á skuldasöfnun í útlöndum. Að hafa samið útgjöld okkar að tekjum há- launalandanna án þess að eignast jafnskilvirkt framleiðslukerfi og þeirra mun einnig leiða til þrýstings á gengi krónunnar á næstu misser- um. Ástæða er til bjartsýni í flestum ríkjum OECD árið 1993 Víkjum nú að þjóðarbúskap í ná- grannalöndunum áður en lengra er haldið. í aðeins þremur af helstu viðskiptalöndum íslendinga var framleiðsla á árinu 1992 minni en á fyrra ári, þ.e. í Bretlandi, Finnlandi . og í Svíþjðð. Því fer þess vegna víðs fjarri að hægt sé að tala um efna- hagssamdrátt á Vesturlöndum í heild jafnvel þótt hagvöxtur árið 1992 hafi verið ívið minni en oft áður. í Bandaríkjunum, Þýskalandi og Japan, sem vega þyngsi í heims- viðskiptum, er alls staðar vænst aukinnar framleiðslu á árinu 1993 eins og árið 1992. Verðlækkun á eignamarkaði og meiri skuldir en endranær, einkum í Japan, Banda- ríkjunum, Bretlandi og á Norður- löndum, hafa þó áhrif á efnahags- þróun á þann veg að léngri tíma tekur að vinna sig út úr „efnahags- lægðinni" en venja er til. Þrátt fyrir mikinn barlóm í erlend- um (og innlendum) fjölmiðlum er veruleg ástæða til bjartsýni í efna- hagsmálum í flestum ríkjum OECD á árinu 1993. Líklegt er að hagvöxt- ur verði um 2% á árinu 1993 að jafnaði í ríkjum OECD en var um 1,5% árið 1992. í austurhluta Evr- ópu er framleiðsla nú tekin að glæðast og bjartsýni að aukast. Árið 1993 verða í fyrsta sinn í meira en hálfa öld fleiri í vinnu hjá einkafyrir- tækjum í Austur-Evrópu en hjá því opinbera. Sem dæmi má taka að í austurhluta Þýskalands er búist við að framleiðsluaukning verði um 5% á árinu 1993 en aðeins 0,7% í vestur- hluta landsins. Enginn vafi leikur á því að efna- hagsbati á Vesturlöndum kemur ís- lendingum til góða á árinu 1993. Það er hart fyrir íslendinga að reka lestina með minnsta hagvöxt (-^2,7%) allra ríkja í OECD árið 1992 (meðaltal 1,5%) og næstminnsta hagvöxt árið 1993 (-i-0,5%, meðaltal áætlað 2,1%). En aukin umsvif í þjóðarbúskap nágrannaþjóðanna mun glæða eftirspurn eftir útflutn- ingsvörum okkar og fyrr en síðar leiða til þess að unnt verði að semja um aukna sölu á raforku. í átt til betra jafnvægis á nýju ári Á undanförnum áratugum hefur aldrei tekist að auka framleiðslu á íslandi að neinu marki nema með aukinni nýtingu náttúruauðlinda - annaðhvort með auknum fiskafla eða verðmætari - eða með aukinni orkusölu til útlendinga. Það virðist afar ólíklegt nú að takast megi að auka framleiðslu á allra næstu miss- erum með einhverjum nýjum og áður óþekktum aðferðum. Afkoma Islend- inga er sem fyrr háð því hvað fiskim- iðin gefa af sér og hvernig til tekst í nýjum samningum um orkusölu. Að ímynda sér eitthvað annað er naumast raunhæft nú fremur en fyrri daginn og er þó ekki ætlunin að kasta rýrð á framlag annarra atvinnugreina en útflutningsgreina. Á meðan fiskistofnar eru í lægð og ekki nást nýir samningar um orkusölu verður að draga saman seglin, stemma útgjöld að lægri tekj- um, eyða fjárlagahalla að fullu og sópa í burtu því sem enn lifir eftir af höftum í fijálsum viðskiptum inn- lands og út á við. Allar horfur eru á að síðustu höft í erlendum viðskipt- um verði á burt í ársbyijun 1995 og aðeins sitji eftir takmarkanir í viðskiptum með landbúnaðarvörur. Hvernig sem árar er afar brýnt að halli á rekstri ríkissjóðs hafi verið að fullu jafnaður árið 1995 þannig að unnt sé að stöðva söfnun er- lendra skulda í síðasta lagi á því ári. Þá miklu eftirspurnaröldu sem byijaði að rísa í ársbyijun 1990 hef- ur heldur lægt á árinu 1992. Ef svo fer sem horfir á árinu 1993 verður neysla orðin töluvert minni en 1991 og 1992 og innlendur sparnaður verður meiri. Mikill hluti sparnaðar heimilanna mun þó eftir sem áður renna til greiðslu afborgana og vaxta af þeim lánum sem tekin hafa verið árin 1989 til 1992 þegar skuld- ir heimilanna jukust úr 101 ma.kr. í 240 ma.kr. Engu að síður virðast horfur á því á árinu 1993 að nýr peningalegur sparnaður fari vaxandi eftir afar rýr ár 1991 og 1992. Ef ekki verður þeim mun meira fram- boð verðbréfa á innlendum markaði gæti sú aukning leitt til lækkunar vaxta. Framundan kunna að vera erfið misseri Hvernig sem staðreyndir efna- hagsmálanna eru skoðaðar verður ekki fram hjá því horft að framund- an kunna að vera erfið misseri áður en tekjur taka að glæðast á ný. Afkoma útflutningsgreina lagaðist nokkuð við efnahagsaðgerðir frá 23. nóvember sl. og skattalagabreyting- ar í kjölfar þeirra en í vetur munu aftur heyrast háværar raddir sem krefjast þess að gengi krónunnar verði fellt eina ferðina enn. Eftir áratuga ringulreið í mikilli verðbólgu hlýtur að vera mikið um- hugsunarefni að hvaða marki Islend- ingum er unnt að bæta upp minni sjávarafla með lækkun gengis og að hvaða marki er skynsamlegt að reyna það. Öllum er ljóst að við fjölg- um ekki fiskum í sjónum með því að fjölga krónum í þýsku marki eða dollara. Öllum launþegum er líka ljóst að gengisfelling og verðbólga var hin hefðbundna leið á síðustu áratugum til að skerða kaupmátt þegar gjaldeyrisöflun hafði brugðist. Gengislækkun kann að hafa verk- að tímabundið til að bæta stöðu út- flutningsgreina á árum neikvæðra raunvaxta eða fram til þess tíma er verðtrygging varð útbreidd í fjár- málaviðskiptum snemma á níunda áratugnum. Enginn möguleiki er þó að rökstyðja að íslenskt atvinnulíf hafi haft nokkurn hag af lækkandi gengi krónunnar þegar litið er á síð- asta aldarfjórðung eða hálfa öldina sem heild. Engin leið er heldur að rökstyðja að samkeppnisstaða bre- skra fyrirtækja sé betri nú heldur en þýskra fyrirtækja jafnvel þótt gengi sterlingspundsins hafi lækkað úr tólf þýskum mörkum í tvö mörk og fjörtíu síðasta aldarljórðunginn (niður í einn fimmta af verðgildi sínu fyrir einum aldarfjórðungi). Gengislækkun eykur ekki framleiðni Gengislækkun lækkar launa- kostnað fyrirtækja þegar hann er mældur í erlendri mynt. Fjármagns- kostnaður fyrirtækja í opnu hag- kerfi mældur í erlendri mynt breyt- ist þó ekki og kostnaður við önnur aðföng breytist ekki alltaf. Niður- staðan er því jafnan sú sama. Þegar fyrirtæki eru ósamkeppnishæf á al- þjóðlegum markaði er ekki hægt að bæta úr svo að neinu nemi með því að lækka gengi gjaldmiðilsins. Eina leiðin til að bæta samkeppnisstöðu er að auka framleiðni í fyrirtækjun- um sjálfum, þ.e. lækka framleiðslu- kostnað í erlendri mynt án þess að framleiðslutekjur minnki að sama skapi - eða auka framleiðslutekjur í erlendri mynt án þess að fram- leiðslukostnaður hækki að sama skapi. Líkurnar á því að ná slíkum árangri í örsmáu og opnu hagkerfi eins og íslandi eru margfalt betri þegar gengi krónunnar er fast og verðbólga engin heldur en þegar gengi er fallandi og sífelldar verð- lagsbreytingar verða til að skekkja áætlanir fyrirtækja. Sífelld hækkun á almennu verðlagi gerir mönnum erfitt um vik að greina mikilvægar breytingar á hlutfallslegu verði að- fanga en slíkar breytingar geta leitt til kostnaðarlækkunar og aukins hagnaðar. Því er mikilvægast af öllu fyrir framleiðslu og tekjur íslenskra fyrirtækja að varðveita stöðugleik- ann og tryggja að samkeppnisstaða fyrirtækjanna sé ekki lakari en fyrir- tækja í nágrannalöndunum. Reynslan af gjaldeyrismarkaði Evrópuþjóða á síðasta hausti færir okkur heim sanninn um að það er ekki á færi hverrar þjóðar að taka upp stöðugleika og festu Mið-Evr- ópuþjóðanna í hagstjórn. Það voru ekki Islendingar einir sem ekki gátu keppt við Þjóðveija, Benelux-þjóðir og Frakka um stöðugleika, fram- leiðni og fast gengi gjaldmiðils. Þjóð- ir í Evrópu eru ýmist í hraðferð eða hægferð í efnahagsmálum, bæði af sögulegum og hugarfarslegum ástæðum. Á meðan svo er munu annað veifið heyrast brak og brestir af gjaldeyrismarkaði - héðan frá íslandi sem og frá öðrum hægferðar- þjóðum. Höfundur er framkvæmdasljóri VÍB - Verðbrcfamarkaðs íslands- banka hf. LATUM GÆÐIN GERA GAGN Hagstæð fyrirgreiðsla til iðnfyrirtækja sem vilja koma á vottuðum gæðakerfum IÐN LANASJOÐUR VÖRUPRÓUNAR- OG MARKAÐSDEILD

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.