Morgunblaðið - 31.12.1992, Page 7

Morgunblaðið - 31.12.1992, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 e—7 Tölvur Marinó G. Njálsson Þegar horft er um öxl Um áramót er venja að líta um öxl og skoða þá hringi, sem nýliðið ár skilur eftir sig í stofni samfélags- ins. Hér innanlands var þetta'ár umbrota á tölvumarkaðnum, en það var líka ár mikilla væntinga í hug- búnaðargerð. Erlendis var þetta árið, sem IBM varð ódýrt, Microsoft ein- okaði hugbúnaðinn, fistölvan tók yfir vélbúnaðarmarkaðinn og DEC fór næstum því undir græna torfu. Ég hef nú skrifað um tölvumál fyrir Morgunblaðið í eitt ár og hef ég á þessu ári fengið að fylgjast með meiri breytingum á íslenska tölvumarkaðinum en nokkur dæmi eru um. Fyrirtæki hafa sameinast til að auka hagkvæmni, önnur hafa horfið af yfirborðinu og nokkur ný hafa bæst við. Það er kreppa í þjóð- félaginu, en ekki í tölvubransanum eða hvað? Guðrún Helgadóttir, alþingismað- ur, benti á það í þingræðu nýlega að tölvuvæðingaræði gengi yfir óbeislað og varla væri til sú skrif- stofukytra eða skrifborðsræksni að ekki væri hægt að hola þar niður tölvu. Henni til fróðleiks get ég sagt, að beinn og óbeinn tölvukostnaður ríkisins var ríflega þrír milljarðar á árinu sem er að líða. Á sama tíma var kostnaður annarra aðila á bilinu 12 til 15 milljarðar! Inni í þeirri tölu er kostnaður sveitafélaga, fyrirtækja og einstaklinga. íslensku tölvufyrirtækin Samkvæmt lauslegri samantekt var velta fyrirtækja, sem hafa tekjur af því að selja vörur og þjónustu tengda tölvum og tölvubúnaði, um 9,5 milljarðar króna árið 1992. Hún skiptist þannig, að seljendur tölvu- búnaðar veltu um 5,1 milljarði króna, hugbúnaðarframleiðendur og tölvuiðnaður veltu um 1,7 milljörðum króna, þjónustuaðilar um 2 milljörð- um króna og tölvuskólar (þar með talin tölvukennslá í skólakerfinu) um 500 milljónum króna. Er þetta um 5% aukning frá síðasta ári. Um 8% samdráttur varð í veltu hjá helstu innflytjendum og söluað- ilum miðað við áætlaðar tölur selj- enda. Árið 1991 var velta þessara fyrirtækja um 5,5 milljarðar króna, en um 5,1 milljarður árið 1992. Nær allur samdrátturinn á sér stað hjá þremur af stærstu fyrirtækjunum, þ.e. Nýheija hf., Tæknival hf, og Órtölvutækni, sem öll eiga það sam- eiginlegt að hafa gengið í gegnum miklar breytingar á árinu. (Þá er gengið út frá því að velta Nýherja 1992 sé borin saman við veltu IBM á íslandi og Skrifstofuvéla - Sund 1991, velta Örtölvutækni 1992 sé borin við Örtölvutækni, Tölvutækni og Digital- umboðið 1991 og velta Tæknivals 1992 sé borin við veltu Tæknivals og Sameindar 1991.) Einna líkast er að Sameind og Tölvu- tækni hafi bara gufað upp og ekki skilað nýjum eigendum sínum neinu merkjanlegu (nema góðum starfs- mönnum). Fjórði risinn, Einar J. Skúlason hf., virðist ætla að halda sínum hlut nær óbreyttum. Hjá flest- um öðrum varð veltuaukning á bilinu 10 - 30%. T.d. rauf Apple-umboðið 500 milljóna króna múrinn og H.P. á íslandi velti um 300 milljónum krónum, en aðrir minna. Nýja árið verður rólegt framan af, en ljóst er að H.P. á íslandi er að hugsa sér til hreyfings. Staða fyrirtækisins er mjög sterk, en það vantar illilega „andlit". Helst hafa forráðamenn H.P. á íslandi litið til Tæknivals við litlar vinsældir ann- arra tölvusala. Nýheiji, Tæknival og Örtölvutækni þurfa enn þá nokkurn tíma til að jafna sig á breytingum ársins, þá sérstaklega Örtölvutækni. Einhvern tíma spáði ég aukinni sam- vinnu Microtölvunnar, Aco og Heim- ilistækja. Nú það gekk eftir að hluta, en kannski væri gott að sameinast? Það eru alltof mörg fyrirtæki að selja tölyur frá alltof mörgum fram- leiðendum. Álagning hefur lækkað og þjónusta er ekki sú tekjulind, sem búast mætti við. Velta upp á 100 milljónir er einfaldlega ekki nóg fyr- ir 5 til 10 manna fyrirtæki. Það hlýt- ur eitthvað að gefa sig. íslensk hugbúnaðarfyrirtæki stóðu sig með mikilli prýði á árinu. Nokkur hafa náð góðum árangri á erlendri grund og vakið á sér verð- skuldaða athygli. Tölvusamskipti, íslensk forritaþróun, Taugagreining, Friðrik Skúlason og Softis eru öll komin á kortið. Hugbúnaðarfyr- irtækin veltu um 1,5 til 2 milljörðum á árinu og þar af voru um 75 millj- ónir í útflutningi. Þjónustufyrirtækin stóru, þ.e. Reiknistofa bankanna og Skýrr, eru örugg á meðal þeirra stærstu og veltu um 1.100 milljónum annars vegar og 746 milljónum hins vegar, sem gefur þeim annað og fjórða sæti. Velta annarra þjónustufyrir- tækja er áætluð um 200 milljónir. (Bæta mætti við nokkur hundruð milljónum, ef tölvuráðgjöf er líka talin með.) Tölvunám var nefnt áður. Tækniþróun og samkeppni Ætla má að um 9.000 tölvur hafi selst hér á landi á árinu. Vinsælasta tölvan var með 386sx-örgjörvanum, en síðan koma Apple-tölvur næstar. Ljóst er að árið 1992 er síðasta árið, sem eitthvað kveður að 386sx- ör- gjörvanum. 486sx örgjörvinn verður ráðandi strax á fyrstu mánuðum nýs árs og síðan má búast við að öflugri örgjörvar taki við. Hvort það er RISC, SPARC, Alpha eða P5 ætla ég að láta ósagt um. 486sx tölvan mun kosta á bilinu 75-120 þúsund, en ólíklegt er að hún lækki niður fyrir það. Erlendis hefur þegar kom- ið upp nýtt baráttuefni, en það er þjónusta. Takið eftir tölvusalar! IBM, Dell og Compáq hafa öll átta sig á því, að þár sem verðið og innvolsið er allt það sama, mun þjónusta skipta máli framtíðinni. Meðfæranleiki var lykilorð ársins og fékk það nýja merkingu þegar Apple kynnti Newton einkaþjóninn, sem er rúmlega lófastór tölva. New- ton er væntanlegur á almennan markað á nýju ári, en þess skal get- ið að þegar er einn Newton hér á. landi. Vasatölvan verður loksins að veruleika og vonandi fær vasareikn- irinn sitt gamla heiti að nýju. Á nýju ári er það meðfæranleiki, tengj- anleiki og einfaldleiki sem gilda. Enginn vill lengur þurfa ótal spjöld eða jaðartæki til að geta sent fax, haft samband við gagnabanka, skannað inn bréf, prentað út eða haft samband við móðurtölvu fyrir- tækisins. Þráðlaus net eiga að leysa vandann í eitt skipti fyrir öll. Á hugbúnaðarhliðinni var barátt- an um Windows. Sá sem kom fyrst- ur með Windows 3.1 útgáfu af sínum hugbúnaði reyndist ná góðri mark- aðsstöðu. Þetta sá Microsoft fyrir og spilaði ekki alveg hreint. En til- gangurinn helgar meðalið og ljóst er að ekkert hugbúnaðarfyrirtæki getur keppt við Microsoft, svo sterk er staða fyrirtækisins. Ekki var allt nýtt sem kom frá fyrirtækinu og ljóst er að það langar óskaplega að gera PC-tölvuna eins góða og Macintosh- tölvuna. í þeim tilgangi kom Windows for Workgroups, þar sem PC-fólk fær loksins það netumhverfi sem Macintosh-notendur hafa haft í fjölda mörg ár. Til að sporna við yfirburðum Microsoft hafa önnur hugbúnaðar- fyrirtæki reynt að sameinast í bar- áttunni. Þannigtók Novell upp budd- una í síðustu viku og keypti Unix System Labs af AT&T og Word- Perfect hefur aukið til muna sam- starf sitt við Borland og Lotus. Slúðrið segir að Borland ætli að kaupa Lotus og síðan sameinast WordPerfect. Þannig gæti myndast eitthvert mótvægi við risanum í Washington-fylki. Á meðan þessu fer fram gengur flest í haginn fyrir Apple, enda eru hinir að gera sitt besta til að vera eins. Höfundur er tölvunarfræðingur. Markaðsmál Auglýsingaherferð fyrirAbsolut vodka VEGNA fyrirsjáanlegrar inn- göngu Svíþjóðar í Evrópubanda- lagið ætlar framleiðandi Absolut vodka að leggja í auglýsingaher- ferð í Evrópu. Absolut hefur náð traustri fót- festu á Bandaríkjamarkaði og selj- ast nú um 36 milljónir flaskna á ári þar. Staðan í Evrópu er hins vegar veikari. Því ætlar Vin & Sprit AB, framleiðandi Absolut vodka, að leggja í 500 milljóna ÍSK auglýs- ingaherferð í Evrópu. Frá því að Absolut kom fyrst á markað í Bandaríkjunum árið 1980 hefur um 1.500 milljónum ÍSK ver- ið varið í auglýsingar og markaðs- setningu þar. SECURITAS — Um miðjan desember afhenti Brimborg Secu- ritas eitt hundraðasta bílinn til notkunar í öryggisgæslu og ræstingar- þjónustu fyrirtækisins. Securitas hefur á sl. 12 árum notað Daihatsu Charade bíla við öryggisgæslu en fjöldi þeirra hefur farið ört vaxandi. í frétt frá Securitas kemur fram að þessi tegund bíla hafi reynst vel þrátt fyrir gríðarlegt álag allan sólarhringinn, þar sem hvetjum bíl er ekið að meðaltali um 6 þúsund kílómetra á mánuði. Á myndinni afhendir Egill Jóhannsson, markaðsstjóri Brimborgar Árna Guðmunds-. syni, deildarstjóra gæsludeildar Securitals þijá bíla af DaihatsuCharade gerð. Flug Mikill sparnaður náðist hjá SAS Börsen GOÐUR árangur hefur náðst í fyrsta hluta sparnaðaraðgerða SAS, en hann hófst fyrir tveim árum og lauk um áramótin. Þegar í stað verður hafist handa við annan hluta aðgerðanna, og ná þær aðgerð- ir til næstu þriggja ára. Það var stoltur framkvæmda- stjóri flugrekstrarsviðs SAS, Kjell Fredheim, sem kynnti niðurstöður aðgerðanna. Markmiðið var að draga saman kostnað um 20% án þess að draga úr umsvifum. Það þýddi sparnað upp á 30 milljarða ísl.kr. Og það tókst. Niðurstaðan er sparnaður upp á um 32 milljarða króna. Aðgerðirnar hafa þó kostað sitt. Starfsfólki SAS hefur á þessum tveim árum fækkað úr 22.560 niður í 18.849, eða um 16,5%. Það þýðir að framleiðni á hvem starfsmann hefur aukist um 17%. Árangurinn lætur þó ekki á sér standa. SAS er í dag eitt fárra flug- félaga Evrópu sem rekið er með hagnaði. Ekki er þó enn fyrirséð hver áhrif gengislækkunar sænsku krónunnar verða á afkomu félags- ins. Hér nýtur SAS þess að hafa gripið til sparnaðaraðgerða 2 til 3 árum fyrr en flest evrópsk flugfé- lög. Á næstu þrem árum hefur SAS Svíþjóð sett sér 3 markmið. í fyrsta lagi að enn verði dregið úr breytilegum kostnaði, sem nemur 8% á ári. í öðru lagi að auka tekjur með auk- inni og fjölbreyttari þjónustu. Og í þriðja lagi að auka framleiðni starfsfólks enn, einkum með endur- menntun og starfsþjálfun. Að þrem árum liðnum er ætlunin að taka til við þriðja og síðasta hluta sparnaðaraðgerðanna. Þá verður enn dregið úr kostnaði. Það verður hins vegar ekki unnt án náins sam- starfs, eða sameiningar, við annað flugfélag. Síðasta skrefið felst í því að ná fram hagkvæmni stórrekstr- ar. Kjell Fredheim fullyrðir að á næstu árum muni mörg flugfélög í Evrópu sameinast í þessu skyni. Hann telur eðlilegast að SAS kanni samstarf við Swissair, Lufthansa, KLM og British Airways. Fredheim tekur þó fram að SAS eigi ekki i sérstökum viðræðum við neitt þess- ara félaga, hins vegar tali allir við alla þessa dagana. Nordbanken fær aðstoð ríkisvaldsins Financial Times. SÆNSKA ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fram fé og ganga í ábyrgðir þannig að Nordbanken geti hafið nýja árið með hreinan skjöld, með einkavæðingu bankans í huga. Aðstoð ríkisins verður með þeim hætti að yfirtaka Securum AB, fé- lag sem er eign Nordbanken og telst formlegur eigandi skuldbind- inga, verðbréfa og eigna sem Nord- banken sat uppi með vegna gjald- þrota og erfiðleika skuldunauta sinna. Ríkisstjómin leggur fram 24 milljarða sænskra króna í hlutafé og gengur í ábyrgðir fyrir 10 millj- arða til viðbótar, en á móti lánar Nordbanken Securum 30 milljarða á hagstæðum kjörum. Ríkisvaldið hefur áður Iagt fram 10 milljarða króna til Securum. Sænskir bankar hafa flestir átt í erfiðleikum að undanförnu og var almennt talið að Nordbanken stæði þeirra verst. Hins vegar átti enginn von á því að ástandið væri jafnslæmt og nú hefur komið í ljós. Síðastliðið vor var talið að töpuð útlán Nordbanken og Securum næmu sex til átta milljörðum sænskra króna, en nú er talið að sú upphæð sé um 10 milljörðum króna hærri. Að auki er nú búist við að lengri tíma taki að selja eign- ir Securum og að lægra verð fáist en áður var ætlað. Því þykir ljóst að 20 milljarða króna fjárstuðning- ur sem áður var ákveðinn sé langt í frá nægjanlegur. Erfið staða bankans er til komin vegna slæms efnahagsástands í Svíþjóð. Vanmatið á stöðunni þykir ennfremur benda til þess að staða annarra sænskra banka sé erfiðari en áður var ætlað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.