Morgunblaðið - 31.12.1992, Síða 8

Morgunblaðið - 31.12.1992, Síða 8
ti a Höfðar til .fólks í öllum starfsgreinum! seex flaaMaaaa .ts audaguTMMia aiGAjaKUOflOM Wterkurog KJ hagkvæmur VIÐSKIFTIAIVINNUIJF auglýsingamiðill! FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 1992 Fólk Fundir Íslendingarí sæstrengs- verkefni MHAGKVÆMNIATHUGUN á sæstrengslögn frá Islandi til Evr- ópu er nú hafin, en líkt og komið hefur fram gerði Reykavíkurborg samning við þijú hollensk fyrirtæki um athugunina. Skipaðir hafa verið 5 starfshópar auk sérstakrar stjórn- arnefnar sem er yfir verkefninu. Jafnframt er starfandi ráðshópur sem sér um að samræma störf starfshópanna. Vinnuhóparnir hafa nú þegar hafið störf og næsti fund- ur þeirra er fyrirhugaður hér á ís- landi í janúar nk. Reykavíkurborg hefur nú tilnefnt nokkra íslenska aðila til að vinna að hagkvæmniat- huguninni. Jón G. Tóm- asson borgarrit- ari situr í stjóm- amefnd verk- efnisins. Loftur Þorsteinsson verkfræðingur er formaður starfs- hóps um vatns- aflsstöðvar en hollensku fyrir- tækin þijú, PGEM, NKF og EPON skipa for- menn hinna starfshópanna. Skipan Lofts sem formanns var gerð að höfðu samráði við forráðamenn Landsvirkjunar. Aðalsteinn Guðjo- hnsen rafmagnsstjóri situr í ráðs- hóp auk þess sem hann situr í tveim- ur starfshópum, annars vegar um markaðssetningu og hins vegar um umriðilsstöðvar og flutningslínur. íjórði íslenski aðilinn er Hannes Valdimarsson hafnarstjóri sem sit- ur í starfshópi um sæstrengjaverk- smiðju og einnig í starfshópi sem fjallar um sæstrenginn sjálfan. Auk þeirra Islendinga sem Reykjavíkurborg hefur skipað og vinna að verkefninu er Edgar Guð- mundsson verkfræðingur sérstakur samskiptastjóri ICENET-verkefn- isins ásamt Hollendingnum Jaap Sukkel. VERKEFNIÐ ICENET Stjórnunarskipulag REYKJAVIK* PGEH* NKE* NKF* EPON* Loftur Þorsteinsson Aðalsteinn Guðjohnsen Hannes Valdimarrson Edgar Guðmundsson Nýr starfsmað- urhjáSam- bandi íslenskra tryggingafé- laga MDANÍEL Hafsteinsson hefur verið ráðinn til Sambands ís- lenskra tryggingafélaga. Hann mun vera í forsvari fyrir tækni- og upplýsingdeild. Daníel er 36 ára og hefur starfað undanfarin 2>/2 ár sem framkvæmdastjóri Iðn- þróunarfélags Kópavogs. Hann lauk námi frá tækniháskólanum í Óðinsvéum og starfaði að námi loknu tvö ár í Danmörku. Eftir komuna til ís- lands starfaði hann í þijú ár hjá Fiskafurðum hf. Daníel er kvænt- ur Lise Lotte Hafsteinsson og eiga þau einn son. Nýrmárkaðs- sijóri Olgerðar- innar MBENEDIKT Hreinsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Öl- Daníel Hafsteinsson gerðinni Agli Skallagrímssyni. Hann er þrítugur og varð stúdent frá Fjölbrauta- skólanum í Breiðholti. Bene- dikt stundaði nápi við University of South Carolina, Columbia 1984- 1989. Þaðan út- skrifaðist hann með BA próf í Fjölmiðlafræði og BS próf í mark- aðsfræði og hag- fræði. Eftir að hafa starfað hjá Skattstofu Reykjanesumdæmis og Ferðamiðstöðinni Veröld hóf hami störf hjá Ölgerðinni .í októ- ber 1991 sem skipulagsstjóri og hefur séð um ýmis sérverkefni í skipulags-, sölu- og markaðsmál- um. Benedikt er kvæntur Vigdísi Guðbrandsdóttur og eiga þau þijú börn. Nýr bankasljóri hjá NIB MERKKI Karmila hefur verið ráðinn bankastjóri við Norræna fjárfestingarbankann (NIB) og mun hefja störf nú um áramótin, segir í fréttatil- kynningu frá bankanum. Hann hefur gegnt stöðu forstjóra fyrir markaðsskrif- stofu sem rekin er af finnska við- skipta- og iðnað- arráðuneytinu auk utanríkisverslunarsambands- ins. Skrifstofan hefur að markmiði að stuðla að aukinni erlendri fjár- festingu í Finnlandi. Áður starf- aði hann hjá Kasallis Osaki- Pankki og gegndi þar m.a. stöðu bankastjóra. Norræni fjárfesting- arbankinn fjármagnar íjárfesting- ar sem fela í sér norræna hags- muni, jafnt innan sem utan Norð- urlanda. Bankinn er í eigu Norð- urlanda og hefur aðsetur í Hels- inki. Erkki Karinila „Farið var- lega íhvala- málinu“ MHINN heimsþekkti bandaríski sjónvarpsfréttamaður, Peter Jenn- ings, var aðalræðumaður á jólafundi Íslensk-bandaríska verslunarráðsins og Utflutningsráðs íslands í New York fyrir skömmu. Hann kom víða við í erindi sínu og ræddi m.a. stjórn- málaástandið í Bandaríkjunum I kjölfar forseta- kosninganna, að- Peter Jennings gerðir Bandaríkja- manna í Sómalíu og stöðu fjölmiðla í breyttum heimi. Góður rómur var gerður að máli hans meðal þeirrai rúmlega sjötíu gesta er fundinn sóttu og svaraði Jennings spurningum þeirra eftir að ræðu hans lauk. Með- al þeirra spuminga sem sjónvarps- fréttamaðurinn svaraði var um af- stöðu Bandaríkjamanna til hval- veiða. Ráðlegging Jennings til Ís- lendinga var að þeir ættu að fara mjög varlega í öllu sem viðkemur hvalamálum. „Ef þið ætlið að hefja hvalveiðar að nýju þá verðið þið fyrst og fremst að fá ykkur gott almenn- ingstengslafyrirtæki." Hvalveiðar væru mjög viðkvæmt mál í N-Amer- íku og ef ekki væri staðið rétt að málum myndu íslendingar verða að greiða það dýru verði gagnvart bandarískum almenningi og banda- rískum fjölmiðlum, sagði Peter Jenn- ings sjónvarpsfréttamaður hjá ABC- sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum á fundi hjá Útflutningsráði og íslensk- bandaríska verslunarráðinu í New York. Magnús Friðgeirsson, fram- kvæmdastjóri Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum og formaður íslensk-bandaríska versl- unarráðsins, var ánægður með fund- inp. „Við erum auðvitað í sjöunda himni að svo þekktur maður fáist til að tala á fundi hjá okkur. Þetta er góð auglýsing fyrir félagið og ýtir undir starfssemina hjá okkur.“ T o r g i ð Marklausar spár á óvissutímum? VERG landsframleiðsla dróst mest saman á íslandi af Norðurlöndun- um á árinu 1992 eða um 2,75%. Árið 1993 er búist við að hún muni dragast enn frekar saman eða um 0,5%. Þetta kemur fram í nýútkomnu kynningarriti „0kono- miske utsikter i Norden 1992- 1993“, um efnahagsástand og -horfur á Norðurlgndum árin 1992 og 1993, sem gefið er út af Norð- urlandaráði. Síðan um miðjan níunda áratug- inn hefur hagvöxtur á Norðurlönd- um verið minni en meðaltalshag- vöxtur í Vestur-Evrópu og er spáð að svo verði einnig a.m.k. á næsta ári. Á árinu 1992 er spáð stöðnun í efnahagslifi á Norðurlöndum mið- að við 1,2% samdrátt árið 1991. Sama spá gerir ráð fyrir 0,5% hag- vexti á árinu 1993. Þá hefur at- vinnuleysi á Norðurlöndum farið mjög vaxandi. í heild er atvinnu- leysi í löndunum fimm talið vera 8% árið 1992 og stefnir í 8,75% á árinu 1993. Þetta meðaltal er mun hærra en atvinnuleysið á (s- landi þó það hafi vaxið mjög á ár- inu og talað sé um 4% atvinnu- leysi á næsta ári. Góðu fréttirnar eru hins vegar að verðbólga í hverju hinna fimm Norðurlanda hefur minnkað mjög og var árið 1992 lægri en meðaltal- ið fyrir OECD-lönd í heild. Ef sam- dráttur í einkaneyslu ertekinn með hefur verðbólga dregist saman úr 5,7% árið 1991 í 2,3% 1992. Áætluð skattahækkun í Svíþjóð er þó talin munu hafa áhrif til hækk- unar á verðbólgu á Norðurlöndum upp í um 3% árið 1993. Heimsyfirráð Bundesbankans [ framangreindu riti er minnst á hátt vaxtastig í Þýskalandi og áhrif þess á banka á Norðurlöndunum. Ekki er talað um að þessi vaxta- stefna hafi beinlínis skapað vanda- mál meðal banka hér á landi, en á öðrum Norðurlöndum og víða i Evrópu hafa háir vextir þýska seðlabankans leitt til mikilla erfið- leika í bankakerfinu og jafnvel gjaldþrota einstaka banka. í nýjasta tímariti Business Week er gengið svo langt að fullyrða að ef Bundesbankinn láti ekki undan þeim þrýstingi að lækka vexti muni öll Evrópa þjást. Norðurlönd, og þar með talið ísland, eru vissulega ekki undanskilin þar. Nú þegar hafi ríkisstjórnir í Skandinavíu þurft að aðstoða stærstu bankana í líf- róðri þeirra og í mörgum tilfellum tekið yfir rekstur þeirra. Fullyrt er að vaxtastefna þýska seðlabank- ans komi í veg fyrir að bankarnir geti bætt afkomu sína. Lánsfjárþörf þýska ríkisins jókst mjög vegna gífurlegs kostnaðar við uppbyggingu austurhlutans í kjölfar sameiningar Austur- og Vestur-Þýskalands. Þessi mikla lánsfjárþörf er ein helsta ástæðan fyrir þeirri stefnu þýska seðlabank- ans að viðhalda háum vöxtum. Vegna sterkra áhrifa Þjóðverja í Evrópu hefur þessi vaxtastefna haldið uppi vaxtastigi í álfunni. Þetta hefur reynst mörgum erfiður biti að kyngja á tímum efnahags- legs samdráttar og valdið spennu í stjórnmálalegum samskiptum Þjóðverja og annarra Evrópuríkja. Borið hefur á því að þegar ráða- menn ríkja Evrópu hafa verið gagn- rýndir fyrir of háa yexti hafi þeir kennt Þjóðverjum um og þess er skemmst að minnast að af mörg- um voru Þjóðverjar álitnir söku- dólgar þegar gjaldmiðlar margra Evrópuríkja áttu undir högg að sækja í haust. Þá sagði m.a. John Major, forsætisráðherra Bret- lands, að þýski seðlabankinn hefði kerfisbundið grafið undan gengi breska pundsins. Það er álit margra helstu fjár- málasérfræðinga að nú sé lag fyrir Þjóðverja að lækka vexti. Hægur hagvöxtur í Þýskalandi hefur leitt til þess að peningamagn hefur ekki aukist eins mikið og menn óttuðust með tilheyrandi þenslu- áhrifum. Vaxandi atvinnuleysi í Evrópu hefur einnig aukið þrýst- inginn á lækkun vaxta í Þýskalandi og nýlega sagði Michael Cam- dessus, einn af helstu forráða- mönnum Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins, að 2% vaxtalækkun í Þýska- landi væri ein af helstu forsendum minnkandi atvinnuleysis í Evrópu. Vaxtalækkun þýska seðlabank- ans er greinilega talin munu hafa keðjuverkandi áhrif í för með sér til bóta fyrir almennt efnahags- ástand í Evrópu. Ef og þegar af þessari langþráðu vaxtalækkun verður kemur í Ijós hvort völd þýska seðlabankans eru jafn mikil og ríkisstjórnir Evrópulanda hafa kvartáð yfir. Eins verður fróðlegt að sjá á nýju ári hversu mikil áhrif umrædd vaxtalækkun muni hafa á efnahagslíf á Norðurlöndum og hvort hún, ásamt óróanum innan Evrópska gengissamstarfsins, geri jafnvel spá 0konomiske utsikter i Norden 1992-1993 marklausa. HKF/ÁHB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.