Morgunblaðið - 14.04.1993, Síða 8
JUDO
ít*6mR
GOLF / BANDARISKA MEISTARAMOTIÐ
Átta ára bið Þjóðverjans Bernhard Langer lauk í Austin
Fór heim með 20 milljónir
Bernhard Langer kom, sá og sigraði í Austin.
ÞJOÐVERJINN Bernhard Lang-
er sigraði á Bandaríska meist-
aramótinu ígolfi um helgina
og krækti sér í 20 milljónir
króna fyrir vikið. Þetta er fyrsta
„risamótið" í ár og með sigrin-
um fékk Langer áramótaósk
sína upfyllta því hann óskaði
sér sigurs í einhverju af „risa-
mótunum". Langer sigraði í
þessu móti fyrir átta árum, og
er tólfti kylfingurinn sem nær
að vinna oftar en einu sinni.
Mótið fór að vanda fram á Aug-
usta vellinum í Georgíu og
viðraði þokkalega nema hvað dálítið
rok setti strik í reikninginn þriðja
daginn. Bernhard Langer var að
vonum ánægður þegar hann klædd-
ist græna jakkanum í klúbbhúsinu
eftir sigurinn. Hann leit líka miklu
betur út en fyrir átta árum. „Ég
ákvað að vera í fölgulri peysu í dag,
svona til vonar og vara. Þegar ég
vann síðast var ég eins og jólatré í
rauðum buxum og rauðri peysu,“
sagði Langer og bætti því við að
gamli jakkinn væri orðinn dálítið
þröngur.
„Eg óskaði þess um áramótin að
sigra í einhveiju af „risamótunum“
og það tókst. Þegar ég vann fyrir
átta árum hélt ég að ég þyrfti ekki
að bíða lengi eftir næsta sigri, en
hann lét standa á sér. Ég viðurkenni
að eftir þrjátíu „risamót“ án sigurs
var farið að fara aðeins um mig.
Þetta var löng bið en nú er hún sem
betur fer á enda,“ sagði Langer, sem
er 35 ára og hefur verið atvinnumað-
ur síðan hann var 17 ára gamall.
Langer lék á 277 höggum, fjórum
höggum færra en Chip Beck frá
Bandaríkjunum sem varð í öðru
sæti og ellefu höggum undir pari
vallarins.
Fyrir síðasta hringinn átti Langer
fjögur högg á Beck og þegar þeir
höfðu leikið 12 holur hafði Beck
dregið á hann um tvö högg. Langer
LYFTINGAR
Þrjúís-
lands-
met
rjú ísiandsmet voru sett á
hinu árlega páskamóti KR
í ólympískum lyftingum, sem fór
fram í æfingasal KR við Nýbýla-
veg í Kópavogi á annan í pásk-
um. Keppt var samkvæmt
flokkaskipaninni. sem tók gildi
um liðin áramót.
Ingvar Ingvarsson, KR,
keppti í -99 kg flokki og setti
tvö met. Hann jafnhattaði 180
kg og iyfti 315 kg samanlagt.
Eggert Bogason, KR, snaraði
110 kg, sem er met í +108 kg
flokki.
hafði þá leikið allar 12 á pari. Þrett-
ánda holan er par fimm, um 450
metra löng og áttu þeir báðir frá-
bært upphafshögg. Beck sló inná í
öðru höggi og Langer gerði það
sama og var heldur nær. Pútt Becks
mistókst en Langer, sem hefur átt
í miklum erfiðleikum með púttin hjá
sér undanfarin ár, renndi kúlunni í.
Glæsilegur örn hjá honum og „ljóst
að ég ætti sigurinn vísan nema ég
gerði einhveija meiriháttar vit-
leysu,“ sagði Langer.
Víkingar eru vel að sigrinum
komnir, hafa ekki tapað leik í
deildinni í vetur. Leikmenn liðanna
virðast þekkja
Stefán hveijir til annara og
Stefánsson jafnt var á öllum
sktifár tölum fyrstu tuttugu
mínútumar; þá voru tvær Stjörnu-
Nick Faldo, sem hefur verið mjög
jafn og góður á stórmótum, átti í
miklum erfiðleikum með púttin og
fann sig alls ekki. Hann lék til dæm-
is á 79 höggum þriðja daginn en
bætti sig síðan um 12 högg næsta
dag. Hann varð ekki á meðal 30
efstu og er það í fyrsta sinn sem
slíkt gerist síðan 1986. Síðasta dag-
inn var Faldo í öðrum ráshóp og
slíkt hefur ekki gerst í óratíma.
Dan Forsman frá Bandaríkjunum
var einu höggi á eftir Langer síð-
stúlkur reknar útaf í einu og þegar
þær komu inná aftur var sú þriðja
kæld. Fækkunin virkaði sem víta-
mínsprauta á Víkingsstúlkur og
þær skoruðu sex mörk í röð og
Mara Samardija í markinu varði
vítaskot að auki. Úrslitin voru þar
með ráðin, sama hvað Stjörnu-
asta daginn, þar til hann kom á 12.
holu. Hún er par þrír og þarf að slá
yfir sjóinn þar. Forsman sló tvisvar
í sjóinn og þar með var draumurinn
búinn. Þess má til gamans geta að
vikuna fyrir mót fékk hann sér spólu
með Jack Nicklaus þar sem sýndar
eru nokkrar af skemmtilegustu hol-
um heims að mati „gullbjarnarins"
og er 12. holan þar á meðal. Það
dugði Forsman ekki að þessu sinni.
■ Úrslit / D7
stúlkur reyndu enda vantaði á vilj-
ann. Þegar fimm mínútur voru til
leiksloka og ellefu marka munur,
setti Theódór Guðfinnsson þjálfari
Víkinga varalið sitt inná. „Eg er í
sjöunda himni. Það var dásamlegt
að fá svona úrslitaleik því við áttum
eins von á fimmta leik. Við undir-
bjuggum okkur mjög vel fyrir alla
leikina og allt small saman í tveim-
ur síðustu," sagði Theódór.
„Þetta var búið þegar við vorum
reknar útaf í fyrri hálfleik því við
náðum okkur ekki á strik með sex
mörk á bakinu. Við reyndum en þær
voru bara betri og áttu skilið að
vinna,“ sagði Guðný Gunnsteins-
dóttir, fyrirliði Stjömunnar.
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNI KVENNA
Gerðum útum leik-
inn í fyrri hálfleik
SEX mörk í röð á jafn mörgum mínútum í lok fyrri hálfleiks, lagði
grunninn að stórsigri Víkingsstúlkna, 12:21, á Stjörnunni og
tryggði þeim íslandsmeistaratitilinn ífjórða úrslitaleik liðanna í
Garðabænum í gærkvöldi. „Ég átti ekki von á að þetta yrði svona
auðvelt en brottvísanir þeirra í fyrri hálfleik gerðu útslagið og
við gerðum þá útum leikinn. Það var algert áfall að tapa fyrsta
leiknum í Víkinni en vendipunkturinn í úrslitakeppninni var annar
leikurinn, þegar við unnum hér í Garðabænum," sagði fyrirliði
íslandsmeistaranna, Inga Lára Þórisdóttir við Morgunblaðið.
Vernharð Þorlelfsson
Vemharð
krækli
sér í gull
VERNHARÐ Þorleifsson frá KA
á Akureyri sigraði í -86 kg flokki
á fjölmennu og sterku unglinga-
móti í júdó í Skotlandi um helg-
ina. Atli Gylfason hlaut brons-
verðlaun í -71 kg fiokki en ails
tóku 11 íslenskir unglingar þátt
f mótinu.
Mótið, sem haldið er árlega um
páska, er eitt fjölmennasta
unglingamót í júdó sem haldið er.
Keppt er í karlaflokkum undir 21 árs
og unglingaflokkum undir 16 ára.
Að þessu sinni voru þátttakendur
rúmlega 600 frá Bretlandi, Frakk-
landi, Hollandi, Svíþjóð, Noregi og
íslandi. Þetta er í fýrsta sinn sem
íslendingar taka þátt í mótinu og
árangurinn því mjög góður.
Vemharð keppti í karlaflokki í -86
kg flokki en hann er 95 kg. I úrslitum
mætti hann breskum júdókappa sem
vóg 125 kg en gerði sér lítið fýrir
og sigraði.
í flokki unglinga undir 16 ára stóð
Atli Gylfason úr Ármanni sig best
og náði þriðja sæti í -71 kg flokki.
Bjami Skúlason frá Selfossi var mjög
nærri því að hreppa bronsið í -50 kg
flokki en tapaði og lenti í fímmta sæti.
Jón Óðinn Óðinsson þjálfari KA-
manna mun í framhaldi af mótinu
sækja alþjóðlegt þjálfaranámskeið þar
sem allir fæmstu þjálfarar Breta
munu leiðbeina.
KNATTSPYRNA
KRvann Víking
KR vann Víking, 2:1, í Reykjavík-
urmótinu í knattspymu í Laug-
ardal í gærkvöldi. Steinar Ingimund-
arson og Izudin Dervic komu KR í
2:0, en Hörður Theódórsson minnkaði
muninn í 2:1 á lokamínútu leiksins.
Stjarnan - Víkingur 12:21
íþróttahúsið í Garðabæ, fslandsmótið
í handknattleik kvenna — fjórði leikur
í úrslitum, þriðjudaginn 13. apríl
1993.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 5:5, 5:11,
6:11, 6:12, 7:12, 7:16, 9:16, 9:20,
9:21,12:21.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
Stephensen 5, Sigrún Másdóttir 2,
Una Steinsdóttir 2, Guðný Gunn-
steinsdóttir 1, Herdís Sigurbergsdótt-
ir 1.
Varin skot: Nina Getsko 15/1 (þaraf
3 til mótheija).
Utan vallar: 8 mín.
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdóttir
8/4, Halla María Helgadóttir 4, Vald-
ís Birgsdóttir 3, Hanna M. Einarsdótt-
ir 2, Svava Sigurðardóttir 2, Elfsabet
Sveinsdóttir 1, Heiðrún Guðmunds-
dóttir 1.
Varin skot: Mara Samordeja 11/1
(þaraf 2 til mótheija). Helga Torfa-
dóttir 1.
Utan valiar: lOm mfn.
Áhorfendun 1.050.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og
Hákon Siguijónsson. Komust vel frá
leiknum.