Morgunblaðið - 27.06.1993, Blaðsíða 1
íkveikjuvökva á
þau eftir að
búið er að
kveikja upp í. Og annað, það á ekki að kveikja
í kolum með neinu öðru en þar til ge’rðum
kveikjuvökva eða kveikjukubbum. Til dæmis
bensínið sem er notað á sláttuvélina er fínt
á hana, en það á ekkert erindi á kolin.
■ Mörgum þykir gaman að útbúa grill-
veislu með ólíku hráefni, t.d. mismunandi
kjöttegundum. En þá þarf að athuga að
kjöt þarf ekki bara mislangan tíma á grilli,
heldur mismikinn hita. Dökkt kjöt eins og
nautakjöt þolir vel að vera grillað við háan
hita, þ.e. að grindin sé nálægt kolunum ef
um kolagrill er að ræða, eða þá að gasið sé
stillt á háan hita. Ljóst kjöt eins og t.d.
grísakjöt eða kjúklingar þarf hins vegar
lengri tíma og meiri fjarlægð frá kolunum,
eða lægri hitastillingu á gasgrillinu.
■ Kol er hægt að geyma vel og lengi svo
framarlega sem raki kemst ekki að þeim,
►
Á góðum degi er ggman
að griila. Það finnst alla
vega þessari þjóð í norðr-
inu sem hamast við grillin
sín á góðviðrisdögum. En
grilleldun þarf ekki að vera
bundin við nokkra sólríka
sumardaga. Um það eru
uppskriftahöfundar blaðs-
ins sammála og sumir hafa
það fyrir reglu að grilla á
gamlárskvöld! Veður og
vindar hafa meiri áhrif á
grillmatreiðsluna en árs-
tíminn og engin ástæða til
þess að njóta ekki bragð-
gæða góðs grillmatar allan
ársins hring. Víst er að
hráefnið fslenska er af-
bragð sé það rétt með-
höndlað. Eftirleikurinn
verður auðveldur með
uppskriftum og góðum
grillráðum frá fagfólkinu í
blaðinu, hússtjórnarkenn-
urunum Rannveigu Pálma-
dóttur og Kristínu Gests-
dóttur, Rúnari Marvinssyni
matreiðslumanni og mat-
reiðslumeisturunum Ing-
vari Sigurðssyni og Óskari
Finnssyni. Uppskriftir mið-
ast almennt við fjóra.
rillið
FYUTUR REGNBOGASILUNGUR
GRILLAD KARTÖFLUHÝÐI
GLÓDADAR LUNPIR
ÍSLENSKT FLATBRAUP
REYKSTEIK
GLÓPARSTEIKT MURTA
BERJABLÁTT LAMBALÆRI
LAX MED RIFSBERJAHLAUPI
Góö grillróó
■ Algengt er
að leggja kjöt
eða fisk í krydd-
lög áður en hráefnið er grillað, en kryddlög-
urinn þjónar bæði þeim tilgangi að gefa
bragð og í honum eru sýrur (mismiklar auð-
vitað eftir innihaldinu) sem flýta fyrir því
að kjöt meyrni. En það er ekki sama í hveiju
hráefnið er Iagt í kryddlög. flát úr áli henta
illa, nema þá einnota gljáandi álbakkar. En
með önnur álílát er hætta á að sýran í krydd-
leginum gangi í samband við álið og eftir
sitji málmbragð í matnum.
■ Ráðlegast er að vera við grillið allan
þann tíma sem verið er að grilla til að útkom-
an verði sem best, þótt það þýði ekki að
viðkomandi þurfi að vera að snúa hráefninu
í tíma og ótíma til þess eins að gera eitt-
hvað. En til að hægt sé að vera á svæðinu
þarf einnig að hafa hjá sér þá hluti sem
nota þarf meðan á elduninni stendur, svo
ekki þurfi að stökkva frá til að sækja þá.
Það sem er æskilegt að hafa við höndina
áður en byrjað er að grilla eru tang-
ir, spaðar og hanski, vatnskanna
eða enn betra skál með hreinum
sandi til að slökkva í logum og nóg af kolum
eða gasi.
Það þarf auðvitað ekki að nefna að áður en
farið er að elda á gasgrilli er rétt að athuga
hvort ekki sé örugglega
nóg gas á kútnum. Eins
er ráðlagt að athuga með
loftræstingu og það
hvert reykurinn muni
leita áður en kveikt er
upp.
■ Ein algengustu
mistökin sem gerast við
matreiðslu á útigrilli eru
þegar fólki þrýtur þolin-
mæðin og maturinn er settur á grillið áður
en það er orðið nægilega heitt og situr
uppi með mat sem er fjarri því að vera eins
og grillmatur gerist bestur. En reglan er að
kol verða að vera orðin grá og þakin ösku-
lagi, fyrr er hitinn ekki orðinn
nægur. Má gera ráð fyrir 25-45
mínútum, en það ræðst af ýmsu,
s.s. kolum, gerð grillsins, veðri og vindum.
Á gasgrilli má gera ráð fyrir að um 15 mínút-
ur þurfi til að ná fullum hita.
I Sumum finnst langt að bíða þess að
kol verði tilbúin, en benda
má á að til eru sérstök
ílát til að flýta fyrir því
að þau hitni. Þetta er mik-
ið notað t.d. í Bandaríkj-
unum, en það eru einskon-
ar málmhólkar með göt-
um eða raufum á botnin-
um. Kolin eru sett í þann-
ig hólk, ofan á grillið og
kveikt í með götin á botn-
inum. Þannig dreifist eldurinn fljótt um
kolin og þau eru tilbúin mun fyrr.
■ Rétt er að benda óþolinmóðum kolagrill-
urum á að það má aldrei „flýta fyrir“ því
að kol verði tilbúin með því að sprauta