Morgunblaðið - 27.06.1993, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1993
C 3
1. Blandið saman sítrónusafa,
matarolíu, sojasósu, eplasafa og
tómatþykkni. Merjið hvítlauksgeir-
ann og setjið saman við.
2. Fituhreinsið kótiletturnar, en
skiljið eftir smáfiturönd, skerið síð-
an upp í hana á nokkrum stöðum.
Penslið kótiletturnar báðum megin
með leginum. Látið standa í 1—2
klst. við stofuhita en lengur í kæli-
skáp, jafnvel í 1—2 daga.
3. Hitið grillið og grindina, hafið
mesta hita á gasgrilli, en setjið
grindina nálægt glóð á kolagrilli.
Strjúkið löginn lauslega af kótilett-
unum með hendinni. Leggið kóti-
letturnar á smurða grindina og
grillið við þennan hita í 3 mín. á
hvorri lið, minnkið þá hitann í með-
alhita á gasgrilli, en staðsetjið
grindina í millirim á kolagrilli. Glóð-
ið þar áfram í 6—7 mín. á hvorri
hlið. Athugið að kjötið þarf að vera
gegnumsteikt. Stráið salti yfir kóti-
letturnar eftir seinni snúning.
Berið fram með heitu brauði, grill-
uðum kartöflum og hrásalati.
Hrásalat
'A meðalstór kínakólshaus
1 hálfdós kurlaður ananas
1 dós sýrður rjómi
1. Þvoið kínakálið, skerið þvert í
sunnar ræmur og setjið í skál.
2. Síið ananasinn og bætið við.
3. Bætið sýrða rjómanum við og
blandið vel saman.
Grilluó grisarif
Grísarif er mjög gott að grilla og
má nota sama lög og fyrir kótilett-
' urnar til að mairnera. Svínarif þurfa
styttri tíma á grillinu en kótiletturn-
ar. Með grísarifjunum er best að
bera heitt brauð og salat.
Grisakjöt á spjóti
Best er að nota lundir í þennan
rétt. Bita af meyru grísakjöti má
leggja (marínera) í sama legi og
kótiletturnar, þræða síðan upp á
tréspjót ásamt eplabátum, lauk-
blöðum, papriku, tómötum eða
ananasbitum. Líka má setja smá-
pylsur eða pylsubita með á spjótið
eða næstum hvað sem er. Grísa-
spjót þurfa 10—12 mín. á grillinu
og spjótunum þarf að snúa. Gott
er að bera soðin hrísgrjón eða
heitt brauð með.
Trégrillspjót fást víða og eru ódýr.
Þau þarf að leggja í bleyti í 20
mín. fyrir notkun.
Kjúkling er mjög erfitt að grilla
heilan, hann er það lengi að soðna
alveg í gegn. Ef hann er grillaður
heill, þarf helst að vera búið að
forsjóða hann í bakaraofninum eða
örbylgjuofninum.
nýtir kolin einnig vel. Tínir steinvölur
í ^öru, þvær, þerrar og leggur í botn-
inn á grillinu. Steinvölurnar hitna
með kolunum og hitinn helst lengi.
Við grillið hefur hún svo fötu með
hreinum sandi og notar hann til að
stjóma logunum og til að slökkva í
kolunum þegar búið er að grilla. „Þá
ijúka kolin ekki út í loftið, þau nýt-
ast aftur og heldur er ekki verið með
vatn til að slökkva í þeim. Við það
myndast eiturgufur í reyknum sem á
að forðast."
Rannveig hefur í gegnum tíðina
samið ótal uppskriftir, en hér fylgir
ein feikilega góð af grilluðu kjöti á
teini, sem boðið var upp á lokakvöldi
grillnámskeiðs hjá henni nýverið. Kjöt
er þrætt upp á litla tréteina sem
hafa legið í vatni, en grænmetið sér
á aðra teina, enda þarf það mun
minni tíma en kjötið.
VE
Kjúklingabringur
og lœri meó
rjómaosti
2 kjúklingar
1 lítil dós hreinn rjómaostur, 125 g
fersk steinselja
2 tsk. salt, nýmalaður pipar
'h dl matarolía + 2 msk. sojasósa
1. Hlutið kjúklinginn, hver bringu-
helmingur fyrir sig og lærin sér.
Losið haminn örlítið frá með því
að stinga fingrunum undir hann.
2. Klippið laufið af steinseljunni,
setjið saman við rjómaostinn,
stingið undir haminn.
3. Stráið salti og pipar yfir kjúkl-
ingabitana.
4. Hitið griilið, hafið meðalhita á
gasgrilli eða staðsetjið grindina í
millirim á kolagrilli.
5. Blandið saman matarolíu og
sojasósu, pensiið alla bitana vel.
Hitið grindina á grillinu, penslið
síðan með matarolíu, leggið kjúkl-
ingabitana á heita grindina og grill-
ið á fyrri hliðinni í 10 mín., snúið
þá við og grillið síðari hliðina í
aðrar 10 mín. Snúið þá aftur við
og grillið á hvorri hlið í 10 mín. í
viðbót. Athugið að kjúklingar þurfa
að vera alveg gegnsoðnir.
Sósan_____________________________
3 msk. matarolía
2 meðalstórir loukar
3 paprikur, rauð, græn, gul.
2 seljustönglar
1 stór gulrót
1 lítili chilipipar
1 hálfdós niðursoðnirtómatar
'á tsk. sykur
Vi kjúklinga eða fiskteningur
1. Afhýðið lauk og fínsaxið. Setjið
matarolíu í pott og látið laukinn
krauma við hægan hita í um 7 mín.
2. Takið steina og stilk úr paprik-
um, skerið smátt. Skerið selju í
þunnar sneiðar þversum. Hreinsið
gulrót og skerið í þunnar sneiðar.
Setjið í pottinn.
3. Setjið allt úr tómatdósinni út í.
4. Kljúfið chilipipar, fjarlægið
steina (og æðar ef fólk vill ekki
sterkt bragð). Sneiðið og setjið út
í. Setjið sykur saman við og látið
sjóða áfram í 5 mín.
5. Berið sósuna fram kalda.
Hamborgarar 6 stk.
500 g nautahakk
'A dl kartöflumjöl
2 tsk. hamborgarakrydd með salti
1 msk. mjólk
1. Setjið allt í skál og hrærið sam-
an. Skiptið síðan í 6 hluta og mót-
ið hamborgara, um 1 sm á þykkt.
Setjið þá ofan á smjörpappír eða
bökunarpappír, leggið annan
pappír ofan á. Þrýstið saman og
mótið jafna og þétta hamborgara.
2. Hitið grillið, hafið meðalhita á
gasgrilli en staðsetjið grindina í
millirim á koiagrilli. Grillið í 4—5
mín. á hvorri hlið.
Hitið hamborgarabrauð á grillinu,
setjið hamborgarasósu og ham-
borgarana ásamt salatblöðum og
niðurskornum tómötum og gúrk-
um inn í brauðin.
Hamborgarasósa
1 dós sýrður rjómi
1 msk. tómatsósa
1 msk. mæjónessósa
1 msk. púrrulaukssúpuduft
1 tsk. hamborgarakrydd
Blandið öllu saman. Gott er að
láta sósuna standa í kæliskáp í
1—2 klst. fyrir notkun.
LAGIÐ
SKIPTIR EKKI
ÖLLU MÁLI
en þ a ð v erður a ð v er a l amb akj ö t
— nú með a.m.k. 15% gr ill afsl œ tti
Lagið eða stærðin á grillinu þínu hefíir
engin úrslitaihrif fyrir árangurinn af
matreiðslu við glóð. En það skiptir öllu
máli að vera með rétta kjötið.
I næstu verslun færðu nú lambakjöt á
afbragðstilboði, - tilbúið beint á grillið, j
- með a.m.k. 15% grillafslætti
Notaðu lambakjöt á grillið,
. meyrt og gott - það er lagið.
1
AFSL*rrVR
?