Morgunblaðið - 27.06.1993, Side 6

Morgunblaðið - 27.06.1993, Side 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1993 NÝ MATREIÐSLUBÓK Grillaö á góöum degi ÞESSA dagana er að koma í bókabúðir ný íslensk matreiðslubók frá Iðunni sem ber heitið „Grillað á gúðum degi“. Höfundur bókarinnar er Kristín Gestsdóttir hússtjórnarkennari, sem að auki hefur skrifað þrjár matreiðslubækur og lengi samið upp- skriftir m.a. fyrir Morgunblaðið. Kristín segist lengi hafa eldað á grilli, en þá fyrst komist að því að það mátti nota grillið til eldunar á nánast öllu hráefni, er hún stóð í húsbyggingu góð- viðrissumarið 1991 og hafði um tíma ekkert annað eldumartæki en grillið úti í garði. Á það fór kjöt, fisk- ur, grænmeti og ávextir og þar voru bökuð brauð, kökur, soðnir pottréttir og súpur og meira að segja bakaðar kleinur í eitt skiptið. Og oftast var borðað undir berum himni, sem mörgum finnst gera grillmat enn betri. Matreiðslubókin er tæpar 200 blaðsíður og í henni er að fínna sérstaka kafla með inngangi og uppskriftum um lambakjöt, nautakjöt, svínakjöt, fisk, grænmeti, brauð, smárétti, meðlæti, drykki og fleira, auk kafla með ráðleggingum um ýmislegt varð- andi það að-grilla, val á tækjum, hráefni og fleira. Bókin er prýdd flölda mynda eftir Magnús Hjörleifsson ljósmyndara. Hér eru birtar nokkrar uppskriftir sem valdar voru af handahófi úr bókinni. VE Glóöaóir lambahryggvöóvar og lundir Opió eóa lokaó grili. Grilltimi 5-10 minútur. Handa 5-6. Ekki er gott að grilla lamba- hrygginn heilan, til þess er hann allt of feitur. En vöðvana má skera frá beinum eða biðja kjötkaup- manninn að gera það. Kjöt af hrygg er mjög meyrt, mjúkt og milt á bragðið. Best er að krydda það sem minnst, en grænn pipar, sem er mjög mildur, hentar vel með því. Þegar ætlunin er að nota hryggvöðva er betra að hann sé ekki mjög lítill. Veljið þykkan hrygg og notið afturhluta hans. Vöðvor af hrygg, sem er um 2 kg með beini nýmalaður pipar Vi msk. matarolía 1 msk. smjör 74 tsk. salt 1. Skerið kjötið frá beinum. Aðal hryggvöðvarnir tveir eru þykkari en lundirnar, sem undir hryggnum. 2. Flettið fitulaginu af vöðvunum og fleygið. Þykk, gljáandi himna umlykur vöðvana ofan á hryggn- um. Best er að skera hana að mestu í burtu. 3. Malið mikinn pipar yfir og þrýst- ið honum ofan í kjötið. 4. Blandið saman matarolíu og bræddu smjöri. Penslið allt kjötið með blöndunni. 5. Hitið grillið og grindina. Takið hana af og penslið með matarolíu. 6. Leggið allt kjötið á heita grindina og glóðið stóru vöðvana í u.þ.b. 8-10 mín. en iundirnar í u.þ.b. 5-8 mín. Setjið nálægt glóð á kolagrilli en hafið mesta hita á gasi. Snúið meðan á steikingu stendur. 7. Stráið salti yfir kjötið rétt áður en það er tekið af grillinu. Látið Það er margt fleira hægt að grilla en kjöt og fisk. Brauð, flat- brauð, pizzur og fleira er að finna í matreiðslubókinni. það bíða í 5 mínútur áður en það er sneitt niður. Leggja má álpapp- ír yfir kjötið meðan það bíður, þá kólnar það síður. Athugið: Hrygg- vöðva má einnig skera í þunnar sneiðar og grilla þannig. Sinnepskryddaóar nautasneióar Opió oóa lokaó grill. Grilltími 6-10 minúlur. Handa 5. 5 þykkar sneiðar af klumpi 50 g smjör 1 tsk. milt sinnep 2 hvítlauksgeirar eða 74 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. salt nýmalaður pipar 1. Bræðið smjörið, setjið sinnep og pipar saman við það. Merjið hvítlaukinn og setjið saman við. 2. Skerið fitulag af sneiðum, penslið aðra hliðina með smjör- blöndunni. 3. Hitið grillið og grindina. Setjið hana nálægt glóð á kolagrilli en hafið mesta hita á gasgrilli. Takið grindina af og penslið hana með matarolíu, setjið aftur yfir. Leggið kjötsneiðarnar á grindina heita. Látið pensluðu hliðina snúa niður. Grillið í 4-6 mínútur. 4. Þerrið kjötsafa sem upp kemur. Snúið sneiðunum við, stingið ekki í kjötið. Smyrjið þá hlið með sin- neps/smjörblöndunni. Grillið í 2-4 mín. og stráið salti yfir rétt áður en kjötið er tekið af grillinu. Grillaó kartöfluhýói Opió oóa lokaó grill. Grilltimi 5-7 minútur. Best er að grilla þunnt og bletta- laust kartöfluhýði. íslenskar kart- öflur henta mjög vel og þær eru auðvitað bestar nýuppteknar en mega alveg vera eldri. 1. Þvoið kartöflurnar vel. Afhýðið þær með hníf eða grænmetisskera (með rauf) þannig að hýðið myndi langar ræmur. Penslið báðar hliðar þeirra með bræddu smjöri, blönd- uðu örlitlu salti. Einnig má nota hvítlauksolíu. 2. Þræðið hýðið upp á mjóa grill- teina. Það á að bylgjast á teinunum eins og bárujárn. 3. Hitið grillið. Setjið grindina á miðrim á kolagrilli en hafið mesta hita á gasgrilli. 4. Leggið teinana með hýðinu á grindina og griilið í 5-7 mínútur. Snúið tvisvar eða þrisvar á meðan. Fylgist vel með svo að hýðið brenni ekki. Berið fram heitt. Kræklingur á grilli Opió grill. Þegar kræklingur er tíndur verð- ur að gæta þess að staðurinn sé ekki nálægt byggð og að þar gæti vel flóðs og fjöru. Kræklinginn skal tína strax eftir flóð þegar fjarað hefur út. Nauðsynlegt er að mat- reiða krækling eins fljótt og hægt er. Gott er að hafa með sér ferðagrill og raða skeljunum á grind þess um leið og búið er að skola þær og bursta og skafa af þeim mesta þangið og hrúðurkarl- Kristín Gestsdóttir hússtjórnar- kennari og höfundur bókarinnar. ana. Gott er að láta krækling liggja í fersku vatni í klukkustund, þá losnar sandúr úr honum. Ekki má hella vatninu heldur þarf að veiða hann upp úr vatninu með spaða. Hitið grillið. Setjið grindina ná- lægt glóð. Raðið kræklingnum á grindina þannig að skeljaopið snúi til hliðar. Takið hann af þegar skelj- arnar hafa opnast. Þeim skeljum sem ekki opna sig er fleygt. Best er að borða krækling strax með rúgbrauði og smjöri. Sítrónu- og hunangskjúklingur Opió eóa lokaó grill. Grilltiml 35 mínútur. Handa 6. 3 kjúklingar, 1200-1500 ghver 1 sítróna 14 dl matarolía 1 tsk. paprikuduft 2 tsk. salt 1 msk. hunang 1. Kreistið safann úr sítrónunni og setjið í skál ásamt matarolíu, paprikudufti og hunangri, sem gott getur verið að hita örlítið áður en því er blandað saman við. 2. Hlutið kjúklingana, takið læri frá og kljúfið bringurnar. Fituhreinsið ef þarf. Penslið alla bitana með leginum og látið bíða í 1-2 klst. 3. Hitið grillið og setjið mjóa ál- bakka milli kolanna. Hitið grindina og penslið með matarolíu. Setjið hana á miðrim á kolagrilli en hafið meðalhita á gasgrilli. Takið kjötbit- ana úr leginum, en geymið hann. Þerrið bitana örlítið og leggið þá á heita grindina. Látið haminn snúa upp. Penslið öðru hverju með leg- inum. Snúið við eftir um 20 mín. og grillið í 15 mín. á hinni hliðinni. Stráið salti yfir áður en bitarnir eru tekinn af grillinu. Lax meó rifsber ja- laufi Opió oóa lokaó grill. Grllllími 15-30 minútur. Handa 5. 1 laxaflak, 114-2 kg safi úr 1 sítrónu matarolía 1 tsk. salt 74 tsk. sítrónupipar mörg rifsberjalauf ' nokkur rifsber 1. Skafið roðið á flakinu og bein- hreinsið. Klippið af ugga og ysta hluta þunnilda. Strjúkið fingri eftir flakinu þar sem beingarðurinn ligg- ur og þreifið eftir beinum. Dragið þau úr með flísatöng. Smyrjið roð- ið með matarolíu. Hellið sítrónus- afa yfir holdhlið flaksins, stráið á sítrónupipar og látið bíða. 2. Þvoið rifsberjalaufið og leggið það þétt ofan á holdhliðina. 3. Hitið grillið og grindina. Setjið hana á miðrim á kolagrilli en hafið meðalstraum á gasgrilli. Takið grindina af og berið olíu á hana. Leggið flakið á heita, smurða grindina með roðið niður. Setjið aftur á grillið og glóðið í 15-20 mín. 4. Takið rifsberjalaufið af og fleyg- ið því. Stráið salti yfir fiskinn. Legg- ið ný rifsberjalauf og nokkur rifsber á flakið og berið fram. Athugið að rifsberjahlaup er bragðmilt, eink- um fyrri hluta sumars. islenskt f latbrauó Opió grill. Bökunartími 6-8 minútur. Um 8 flatkökur. 4 dl heilhveiti 2 dl haframjöl 4 dl hveiti 1 tsk. salt . 4 dl vatn 1. Hitið vatnið þar til það sýður. 2. Setjið heilhveiti, haframjöl, hveiti og salt í skál. 3. Helli sjóðandi vatninu út í og hrærið saman. Hnoðið vel. Ef tök eru á er gott að nota hrærivél, þar sem deigið er mjög heitt. 4. Skiptið deiginu í 8 hluta, fletið það út og skerið út kringlóttar flat- kökur. Notið disk, 20-22 sm f þver- mál, til að skera eftir. 5. Hitið grillið. Hafið mesta hita á gasgrilli en setjið grindina nálægt glóð á kolagrilli. 6. Setjið flatbrauðið beint á grind- ina. Bakið í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Fylgist vel með; tími getur verið skemmri eða lengri. Hafið gas- og ketilgrill opið. 7. Vætið diskaþurrku, þurrvindið hana og leggið flatbrauðin í hana jafnóðum og þau bakast. Setjið diskaþurrkuna ofan í pott með hlemmi eða í plastpoka. „ Hittumst í grillinu! “ Libby’s tómatsósur, tvenns konar flöskur- tvenns konar bragð!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.