Morgunblaðið - 27.06.1993, Síða 8
8 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. JÚNÍ 1993
Uppskriftir af árbakkanum
RÚNAR Marvinsson, matreiðslumann þekkja margir og þá
fyrst og fremst fyrir kúnstir sínar í matargerð með fisk og
afurðir úr íslenskri
náttúru sem hann hef-
ur verið ötull að kynna
á veitingastaðnum Við
Tjörnina. Rúnar er höf-
undur eftirfarandi upp-
skrifta sem eru ekki
síst hugsaðar handa
þeim sem sjálfir hafa
veitt það fyrsta flokks
hráefni sem íslenskur
ferskvatnsfiskur er.
Enda samdar á ár-
bakkanum í Grimsá, en eldhús veiðihússins þar er starfssvið
höfundarins í sumar. Uppskriftirnar miðast við fjóra.
Glóóarsteikt murta
1 2 murtur
Kryddlögur
6 msk. ólífuolía
1 msk. hunang
1 msk. tómatþykkni
safi úr I sítrónu
Sósan
1 'A dl hvítvín (mó sleppa)
4 hvítlauksrif, söxuð
VE
1 msk. nýr graslaukur, saxaður
1 msk. fersk sólselja (dill), söxuð
1 tsk. ferskt blóðberg (timian)
Salat
1 salathöfuð
2 tómatar
2 msk. blaðlaukur, saxaóur
'/2 agúrka
2 msk. olía
2 msk. vínedik
1. Hitið grillið. Blandið kryddlög-
inn og látið fiskinn liggja í legin-
um í 20 mínútur.
2. Útbúið sósuna á meðan, setj-
ið allt hráefnið í pott og látið
sjóða í 5 mínútur.
3. Saxið grænmetið í salatið og
bætið olíu og vínediki saman við.
4. Glóðið murturnar í 2-3 mínút-
ur á hvorri hlið.
Fylltur glóóaóur
regnbogasilungur
900 g regnbogasilungur
(hreinsaðurog beinogarðslaus)
Fylling
200 g sveppir, fínsaxaðir
2 msk. mjúkt smjör
1 msk. steinselja, söxuð
1 msk. sítrónumelissa, söxuð
1 msk. koriander
2 hvítlauksrif, pressuð
’/j tsk. sjóvarsalt
Sósa
1 dós sýrður rjómi
'/2 tsk. saxaður graslaukur
2 hvítlauksrif
sjóvarsalt og pipar
1. Hreinsið fiskinn, þerrið og
fjarlægið beinagarðinn.
2. Setjið allt hráefni í fyllingunni
í blandara og maukið.
3. Setjið fyllinguna inn í kvið
fisksins, lokið honum svo og
festið fyrir opið með tann-
störigli.
4. Glóðið á grilli í 5 mínútur á
hvorri hlið, þannig að fyllingin
nái að hitna í gegn.
Glóóaóur lax meó
spinati og ólafssúru
1 kg laxaflök
Kryddlögur
1 tsk. sojasósa
sjóvarsalt og pipar
Spínat- og ólafssúrusósa
2 msk. smjör
350 g nýtt spínat
100 g ólafssúrur
1 hvílauksrif, saxað
1 msk. nýmulinn rósapipar
1 dl þurrt vermút
2 dl rjómi
sjóvarsalt og pipar eftir smekk
1. Blandið saman ólífuolíu og
sojasósu, sjávarsalti og pipar
og smyrjið á flökin í sárhliðina.
Látið liggja á flökunum í 20 mín-
útur áður en þau eru grilluð.
2. Fínsaxið allt hráefni í sósuna,
hitið smjör á pönnu og steikið
spínatið, súrurnar og hvítlaukinn
létt. Hellið vermút og rjóma yfir,
blandið öllu vel saman og látið
sjóða í 5 mínútur.
3. Glóðið laxinn í heilum flökum
eða hæfilega stóruni bitum í 3-4
mínútur á hvorri hlið.
r\\\0S^
tw
k gp’t
M
GRISAKOTILETTUR
Ostakryddaðar
Marineraðar
Léttreyktackryddaðar
GRILLPYLSUR
Scelkerapylsa með osti
Smelipylsa ,(Knackwurst)
HÖFH
SELFOSSI
Grænmeti og
ávextir á grillid
■ Lauk og hvítlauk má steikja
í hýðinu milli kolanna.
■ Papríku má steikja milli kol-
anna á grillinu, fjarlægja síðan
húðina og steinana.
■ Maís má smyrja með olíu og
smjöri og steikja á grinHinni í
6-8 mínútur, snúa þarf maísn-
um. Gott er að stinga málmtein
í gegnum hann áður.
■Tómata má steikja á grillinu,
taka stilk úr og skera kross ofan
á þar sem stilkurinn var. Gott
er að stinga smáostbita ofan í
tómatinn.
■ Mergju (zucchini) má steikja
á grillinu, gott er að kljúfa hana
að endilöngu og smyrja með
olíu á skurðflötinn.
■ Eggaldin má steikja á grillinu,
kljúfa að endilöngu, skera skurði
upp í það og strá á salti, láta
það síðan bíða með saltinu í 30
mínútur, skola þá saltið af og
þerra aldinið vel með eldhús-
pappír. Smyrja með olíu og setja
á grillið. Láta skurðflötinn fyrst
snúa niður í 2-3 mínútur en láta
síðan hýðið snúa niður. Einnig
má steikja sneiðar af eggaldin-
um, strá salti á sama hátt yfir
og fara eins að.
■ Epli, perur og banana má
steikja á grillinu, kljúfa að endi-
löngu og taka úr kjarnann, láta
hýðið snúa niður. Ýmislegt má
setja í ávextina svo sem marsip-
an, sultu, súkkulaði eða það
sem ykkur hentar.
K. Gests.
Kartöflur á grillió
Kartöflur i
álpappir
Kartöflur má vefja í álpappír
og setja á grilliðj best er að
setja þær milli kolanna á kolagr-
illi. Misjafnt er hversu langan
tíma þær þurfa á grillinu, en þær
þurfa minnst 30 mínútur.
Kartöflur i bátum
Skerið kartöflurnar í báta
langsum, smyrjið með matarolíu
og stráið örlitlu salti á þær.
Leggið ofan á grindina á grillinu,
hafið meðalhita á gasgrilli en
staðsetjið grindina í millirim á
kolagrilli. Grillið í 8—12 mínútur.
Kartöf lur i
sneióum
Skerið kartöflurnar í 1 sm
þykkar sneiðar, smyrjið þær
með olíu, stráið ögn af salti á
þær. Stráið síðan kúmeni yfir
þær. Hafið meðalhita á gasgrilli
en staðsetjið grindina í millirim
á kolagrilli. Grilli í7—10 mínútur.
K. Gests.