Morgunblaðið - 16.07.1993, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 1993
J apanskar
stúlkur sem kjósa að
þjóna körlum á fágaðan hátt
„GEISJA: japönsk lagsmær, stúlka sem hefir það að atvinnu að sjá
karlmönnum fyrir félagsskap og skemmtun og er til þess þjálfuð í
fegrunarlist og fögrum klæðaburði, söng, dansi, samræðulist, fágaðri
framkomu og öðrum sæmilegum, kvenlegum íþróttum." Þannig hljóðar
útskýring ensk-íslensku orðabókar Arnar og Öriygs á þessum konum
sem flestum okkar þykja fremur skringilega tilhafðar, en eru eigi að
síður hluti af merkilegri menningarhefð stórveldisins Japan.
Geisju-hefð í Japan var eitt sinn
bundin við fjölskyldur og gekk hlut-
verkið frá móður til dóttur. Nú eiga
allar japanskar stúlkur þess hins
vegar kost að sækja um inngöngu í
skóla í Kyoto þar sem eingöngu fer
fram þjálfun í geisju-siðum. I tímarit-
inu Scanorama er greint frá skólan-
um sem ber heitið Nyokoba Gakuen
og starfað hefur í rúm 100 ár.
í skólanum eru 20 námsgreinar
og í náminu er miðað að því að þjálfa
nemendur í að heilla viðskiptavini
sína. Auk þess sem að framan er
talið, læra stúlkumar japanska rit-
list, blómaskreytingagerð og að sjálf-
sögðu japanska te-viðhöfn, sem þyk-
ir sérlega fáguð og athyglisverð at-
höfn. í Scanorama segir að alla jap-
anska karlmenn, eða svo gott sem,
dreymi um að njóta þjónustu geisju,
svo ekki ættu nemendur að þurfa
að kvíða atvinnuleýsi að loknu námi.
Stúlkumar eru í sérstakri undir-
búningsdeild til 18 ára aldurs og nú
eru 23 stúlkur í þeirri deild. í hinu
eiginlega geisjunámi em hins vegar
um 100 stúlkur. Þær eru útskrifaðar
geisjur þegar kennarar þeirra telja
þær fullnuma í geisju-siðum, en þær
eru mislengi að ná fullkomnu valdi
á þeim. Strangur agi ríkir í skólanum
og á hverju ári er nokkmm stúlkum
vikið úr námi. Hinar halda áfram
námi og þjálfun þar til þær em tald-
ar færar um að vinna á testofu skól-
ans, en það er lokaáfangi námsins.
Testofan skiptist í tvo hluta, 1.
flokks veitingastað og ódýrari te-
stofu. Stúlkurnar bera fram te, ræða
við viðskiptavini, auk þess sem þær
syngja og dansa fyrir þá. Laun eða
þjórfé stúlknanna fer beina leið til
reksturs á heimavist þeirra. Sumar
vinna sem geisjur alla ævi, en þó
nokkur dæmi eru um geisjur sem
opnað hafa veitingastað eða testofu
eftir að hafa lagt niður geisjustörf.
Enn aðrar öðlast frægð og frama
eins og Mitsuko Nakanishi, en jap-
anski forsætisráðherrann Sosuke
Uno sagði af sér embætti eftir að
geisjan sagði frá sambandi þeirra i
fjölmiðlum.
Brynja Tomer®
Hægt er að festa nokkra dreka saman og láta þá fljúga þannig. Það
er fögur sjón en erfiðara er að stjórna þeim en einföldum dreka.
Voldug hugmynd miölar
nokkru af orku sinni tiT
þess sem gengur ó hólm
vió hana
Búið að opna safn
MARCEL PROUST
með fótstignum farartækjum
ÞEGAR hann var lítill fékk hann fótstiginn
bíl frá foreldrum sínum og þar með var
hann forfallinn. Manfrek Klauda er orðinn
52 ára í dag og á 450 Iitla fótstigna bíla.
Þarmeð er hann kominn í heimsmetbók Guin-
ness.
Fimmtíu bílar eru
þegar komnir á sér-
stakt safn sem hann
er búinn að opna
í MUnchen og er
það fyrsta sinnar
tegundar. Þar eru
inn á milli mjög fá-
gætir.bílar. Má nefna
lítinn Rolls Royce
sem var framleidd-
ur árið 1907.
Elízabeth II er
sögð hafa stýrt bílnum
af miklum áhuga sem
lítið bam.
Tveir menn eru í fullu
starfi við að sinna bílun-
um og sjá til að þeir séu
toppstandi. Safnið er við
Westenriederstrasse
Munchen.
Kennslustund í te-viðhöfn.
Flugdrekar eru
ódýrir og létta lundina
þegar veðrið er ekki uppá það besta
I STAÐ þess að sitja inni í fýlu yfir sólarleysi og roki, er upplagt að
setja upp bros, húfu og hanska og fara út með flugdreka. „Rokskerið"
ísland er einmitt sérlega hentugt til flugdrekaflugs.
Ódýrustu drekarnir kosta um 150 krónur, en þeir geta farið uppí nokk-
ur þúsund krónur. Þeir flugdrekar sem Daglegt líf skoðaði í verslunum
í síðustu viku voru fjölbreyttir, hvað varðar lag, mynstur, stærð og
efnivið. Á umbúðir er skráð hvaða aldri drekinn hæfir og oft hvaða
hraða hann nær í háloftum. Grétar Eiríksson hjá Eiríksson sf. flytur
m.a. inn talsvert úrval af flugdrekum.
Meirl áhugi á körfubolta
„Flugdrekasala hefur verið frekar
dræm sl. 3-4 ár og nú held ég að
körfuboltinn eigi allan hug krakka,"
segir Grétar. „Þegar æði, eins og
körfuboltaæðið, grípur um sig er það
alltaf á kostnað sígildu leikjanna."
Grétar segir að best sé að fljúga
flugdreka á bersvæði, á túnum, við
sjó eða vatn. „Þar er vindurinn þétt-
ari og jafnari en til dæmis milli fjöl-
býlishúsa. Það er heldur ekki ráðlegt
að vera með flugdreka þar sem mik-
ið er um tré eða símalínur."
—Hvers konar flugdrekar fínnast
þér sjálfum skemmtilegastir?
„Þeir sem maður stjómar með
báðum höndum og eru frekar stórir.“
Uppruninn í Asíu
Flugdrekar hafa verið notaðir frá
ómunatíð í Asíu. í Kína, Indlandi,
Kóreu, ,Japan og Malaysíu era til
dæmis flugdrekadagar á hveiju ári
og mikil hátíðarhöld í kringum þá.
Orðið flugdreki vísar einmitt til kín-
versku flugdrekanna, sem í flestum
tilfellum era málaðir eins og drekar,
enda era drekar fornt kínverskt tákn.
Fiugdrekaflug er algengt tómstund-
argaman bama, en margir fullorðnir
hafa líka býsna gaman af því og
sumir æfa flugdrekaflug af fullri al-
vöra. í Kína ertil dæmis keppt í flug-
dreka-ati og er litið á flugdrekagerð
þar sem listgrein. Menn útbúa dreka
sína með klóm og öðram bardagatól-
um, senda þá síðan á loft og reyna
að fella dreka andstæðinga sinna
með því að krækja klónum í þá svo
þeir falli tii jarðar.
Talið er að í Asíu hafi menn upp-
haflega látið flugdreka á loft til að
Þessi glæsilegi risastóri flugdreki
setur sannarlega svip á umhverfið
Kassadrekar eru tiltölulega nýtt
afbrigði flugdreka.
halda illum öndum í burtu. Voru
þeir þá látnir svífa fyrir ofan híbýli
á kvöldin og að næturlagi til að fæla
burt illar vættir. Áður fyrr voru þeir
jafnframt notaðir til að senda veður-
mælingartæki á loft og einnig hafa
myndavélar verið festar við flug-
dreka til að taka Ioftmyndir. Allt var
þetta áður en tæknin varð jafn mik-
il og fullkomin og nú, en flugdrekar
halda samt áfram að skemmta ung-
um sem öldnum. |
Biynja Tomer