Morgunblaðið - 22.09.1993, Page 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSÍNS MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 BLAÐ
Otvírætt að lialda ber 10%
eftir af allri fisksölunni
KÁTIR „KOLAKARLAR"
Morgunbíaðið/Alfons
Fréttir Markaðir
Pólsvogir
í Blæng NK
■ FULLTRÚAR Póls hf. og
Síldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað staðfestu á sjávar-
útvegssýningunni samning
um kaup Síldarvinnslunnar á
5 vogum frá Póls í rækju-
vinnslulinu í hinn nýja togara
sinn Blæng, sem er á heim-
leið frá Spáni. í vinnslulín-
unni verða þrjár flokkunar-
vélar og sólarhringsafköst
verða um 25 tonn á sólar-
hring, sem er líklega af-
kastamesta rækjuvinnslu-
línan um boð í íslenzkum
skipi./2
—---*-*-*--
Betri heimtur
í hafbeitinni
I Heimtur i hafbeitarstöðv-
ar hér á landi hafa verið upp
og ofan í sumar, en yfirleitt
þó betri heldur en í fyrra. í
Laxeldisstöð ríkisins í Kolla-
firði eru menn að taka saman
niðurstöðuna, en Vigfús Jó-
hannsson stöðvarstjóri álítur
að um 6 prósent heimtur sé
að ræða á móti 4 prósentum
í fyrra. Hjá Silfurlaxi í
Hraunsfirði hefur einnig
gengið betur í sumar en í
fyrra, þar hafa heimtur verið
4,5 prósent á móti 2 prósent-
um í fyrra./8
Tíu stærstu
útgerðarstaðirnir,
eftir verðmæti aflans
5 B^miHjarðar-kr.)-------------------
Reykjavík
á toppnum
■ REYKJAVIKersáút-
gerðarstaður, sem státar af
mestum aflaverðmætum á
síðasta almanaksári. Verð-
mæti landaðs afla í höfuð-
borginnivar rúmir 5 millj-
arðar króna, en Vestmanna-
eyjar koma næstar með
rúma 4,7 milljarða en 30.000
tonnum meiri afla. Akureyri
er svo í þriðja sæti með 3,5
milljarða en miklu minni
afla en hinir. Meðalverð á
tonn er hins vegar hæst í
Hafnarfirði, sem er í 7. sæti
á listanum./6
+
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning fiski
skipanna
Markaðsmál
6 Árangurinn á sýn-
ingunni varð
framar öllum
vonum
Viðtal
7 Eiríkur Þ.
Einarsson
NÝLEGA féll dómur i
máli Fax hf. gegn Faxa-
markaðinum í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Sam-
kvæmt dóminum er það
ótvíræð skylda fiskmarkaða að halda eftir 10% af allri fisksölu báta undir
10 tonnum og greiða inn á greiðslumiðlunarreikning smábáta hjá stofnfjár-
sjóði fiskiskipa. Skiptir þá ekki máli þátt afli sé ekki eyrnamerktur einum
bát sérstaklega en fullyrt var fyrir dóminum að algengt væri á fiskmörkuð-
um um allt land að fyrrgreindum 10% væri ekki haldið eftir nema um
beina sölu úr bát væri að ræða.
Dómur gegn fiskmarkaði
í Héraðsdómi Reykjavíkur
Málsatvik þessa máls eru þau að
Fax hf. seldi bátinn Faxafell GK-110
til útgerðarfélagsins Stekkur hf. á
Suðureyri árið 1990. Á tímabilinu 16.
febrúar til 29. maí það ár landaði
Stekkur hf. afla bátsins á Faxamarkað-
inum. Verðmæti aflans þetta tímabil
nam tæplega 7 milljónum króna. Við
sölu á aflanum var ekki haldið eftir
fyrrgreindum 10%. Stekkur hf. varð
síðan gjaldþrota og kaupin á bátnum
gengu til baka. í framhaldi af því þurfti
Fax hf. að greiða til Samábyrgðar ís-
lands á fiskiskipum 4,7% af verðmæti
aflans.
í málflutningi fyrir dómi kom fram
að afli sá sem Stekkur sendi á Faxa-
markað á framangreindu tímabili hafi
komið frá ýmsum bátum en aflinn var
sendur suður í gámum. Ekki hafi kom-
ið fram af hvaða bátum hann væri og
var aflinn því seldur í nafni Stekks hf.
Faxamarkaður lagði fram sýknu-
kröfu í málinu og byggði hana m.a. á
því að markaðinum hefði ekki borið
að halda eftir 10% þar sem ekki var
um beina sölu skips að ræða og að
Fax hf. hefði ekki sýnt fram á með
óyggjandi hætti að aflinn sem Stekkur
seldi hefði allur komið úr Faxafeilinu.
Ótvíræð skylda
í niðurstöðu dómsins er Faxamark-
aði gert að greiða 328.000 krónur auk
vaxta eða þá fjárhæð sem stefnt var
fyrir. í niðurstöðu dómsins segir m.a.
að það sé ótvíræð skylda markaðarins
að halda eftir 10% af verðmæti aflans
frá Stekk. Þar sem um hlutafélag hafi
verið að ræða beri að líta svo á að það
hafi einnig verið skylda markaðarins
að kanna hjá félaginu af hvaða bátum
aflinn kom og halda síðan eftir í sam-
ræmi við það. Þar sem slíkt hafi ekki
verið gert beri að líta svo á að allur
afli er Stekkur seldi hafi komið af
Faxafellinu.
Styikur, ending og notagildi einksnna fiskikerin frá Borgarplasli h.f.
VÖRU- LÍNU-
BRETTI BALAR
PP
és>
o»o
O D
- D
8*8’
Ss
.©
D+-
Rmm gerðir af vöwbrettum. Þauetuekki
fyllt með fblyureltiane. Timbubretti eru
bönnuð í matvœldðnaði í EFTA og E&
BofffBaiplast
Sefgörðum 3,170, Selljamamesi. Sími 91-612211. Fax9
Sýningarbás C-66 á sjávarútvegssýningunni
í Laugardalshöll 15.-19. september