Morgunblaðið - 03.10.1993, Blaðsíða 3
2 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER 1993
C 3
+
Metsölublad á hverjum degi!
Gerir Ford Gal-
axy '59 mó-
del upp ó nýtt
FORD Galaxy Sævars Péturssonar eins og hann lítur út í dag. Sævar ætlar að ljúka endurgerð bílsins í vetur og aka
á honum næsta sumar um gðtur borgarinnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
BOTNINN var rauðmálaður sem og hvert einasta stykki i bíln-
FRÁ sýningunni sem Sævar sótti skammt utan Baltimore í Bandaríkjunum. Þar voru til sýnis og sölu
fornbílar og varahlutir. Þarna má sjá varahluti í Studebaker, Mercury, Oldsmobile og fleiri bandaríska
bíla.
Ódýr Fiat Uno fyrir
norðlæqar slóðir
FIAT Uno hinn ítalski hefur nú fyllt áratug en er enn síungur með
ýmsum stórum og smáum breytingum í útliti og á tæknisviðinu.
Þessi bíll hefur verið hérlendis í nærri 9 ár og seldist það vel að
hann setti sölumet en dalaði síðan enda hefur umboðið verið á nokkru
flakki milli aðila. Núverandi umboð, ítalskir bílar, hefur einsett sér
að taka þjónustu við Fiat eigendur og sölu á nýjum bílum traustum
tökum enda vanir menn á ferð. Umboðið fór hægt af stað og stígur
enn smá en örugg skref á þessari leið. Afráðið var strax að bjóða
fram takmarkað úrval bíla en leggja áherslu á hagstætt verð og að
byggja upp varahlutaþjónustu. I dag er því aðeins boðið uppá Fiat
Uno sem fæst með tveimur vélarstærðum, þrennra eða fimm dyra
en Uno er annars framdrifinn og fimm manna bíll. Gerðirnar heita
Uno Arctic og eru sérstaklega útbúnar fyrir norrænar slóðir sem
þýðir að rafkerfi er öflugra, miðstöð betri og hlífðarpanna undir
vél. Við rifjum upp í dag kynni við Fiat Uno og skoðum Uno Arctic
60S sem kostar tilbúinn til aksturs kr. 869.000 staðgreiddur.
Uno þótti nokkuð sérstæður þegar Fiat Uno Arctic 60S er snotur
hann var kynntur fyrir áratug en í bíll og álitlegur fyrir tæp-
dag er hann ósköp venjulegur smá- ar 870 þúsund krónur.
bíll, svolítið kantaður og þannig séð
allt að því gamall og frábrugðinn
ávölu línunni sem einkennir flesta
bíla í dag. En þetta er snotur vagn
framendinn lágur og niðurbyggður,
stuðari nokkuð voldugur undir
vatnskassahlífinni og aðalluktun-
um. Hliðarlisti er nokkuð breiður
og afturstuðari álíka voldugur
og framstuðarinn og afturhlut-
inn er bæði ská- og þverskor-
inn. Fimm dyra bíllinn hefur
aukahliðarglugga aftan við aft-
urhurð en þrennra dyra útgáfan
ekki en gluggar eru annars
nokkuð stórir og góðir.
Fjöðrun
Verð
Sparneytni
Ekki nó-
kvæmt stýri
Mælaborðslínan er ekki alveg í hefðbundn-
um stíl og nokkuð létt yfir henni þrátt fyr-
ir svartan litinn.
en fótarými er kannski
ekki alltof mikið afturí.
Nokkuð vel fer þó um tvo
fullorðna í aftursæti og
engin hætta á að kreppi
um of að þeim á styttri
leiðum. Umgengni er að
flestu leyti ágæt nema
hvað hurðarhúnn er
hvimleiður á þrennra
dyra bílnum, sem sé
felldur inn í falsið en á
fimm dyra bílnum er
„eðlilegur" hurðarhúnn.
Fiat Uno Arctic 60S
er með ýmsum búnaði
Léttlelkl
Hið innra er svipurinn léttur og
skemmtilegur. Mælaborðið er vel frá-
gengið og mælar og tæki auðskilin
og vel staðsett, ágæt hilla ofan við
hanskahólf, hólf í framhurðunum og
lítið box á miðjustokki undir mið-
stöðvarrofum. Framsætin eru prýði-
lega góð, veita góðan stuðning þrátt
fyrir að aðeins sé um lágmarks still-
ingarmöguleika að ræða. Höfuðrými
er yfrið nóg bæði
í fram- og
aftur-
sætum
umfram ódýrari gerðim-
ar, t.d. rafmagnsrúðum í
framhurðum og samlæsingum en í
öllum bílunum eru hliðarspeglarnir
stillanlegir innan frá og í 45S og 60S
gerðunum er litað gler og skiptanlegt
aftursæti og niðurfellanlegt til að
auka kosti farangursrýmis. Það er
þó furðu rúmgott, tekur tvær allstór-
ar töskur vandræðalaust og ýmislegt
smálegt að auki.
Vélin í Uno Arctic 60S er 1100
rúmsentimetrar, fjögurra strokka,
þverstæð og er 50 hestöfl. Hún er
með ofanáliggjandi knastás og raf-
eindastýrðri innsprautun og að sjálf-
sögðu er bíllinn búinn hvarfakút.
Þótt þessi vél sé ekkert ofurorkubú
gefur hún þessum 760 kg bíl ágæta
vinnslu og jafnvel minni vélin, 1000
rúmsentimetrar og 45 hestöfl fer
langt með að duga í öllu venjulegu
borgarsnatti. Uno er með fímm gíra
handskiptingu og er hún eitt af því
sem hefur verið endurbætt. Áður var
skiptingin of lin eða mjúk eða of víð-
tæk ef svo má að orði komast en
nú ratar hún mun ákveðnar sínar
réttu brautir og er liðleg og hljóð-
laus. Af öðrum atriðum sem hafa
verið endurbætt má nefna rafkerfið
sem er orðið öflugra, betri frágangur
á liðum, hlífðarpanna er undir vél
og miðstöð sem hæfir norðlægu lofts-
lagi.
það sé verulega skemmtilegt. En
önnur umgengni er ágæt nema hvað
það sem áður er sagt um hurðahúna
og því skyldu menn fremur velja
fimm dyra bílinn.
Góð fjöðrun
Þegar farið er út á þjóðveg fer
kannski að verða spurning um stærð
bílsins en þó fer eftir nötkunárætlan
manna hvernig hann nýtist. Á þjóð-
vegi liggur hann feikna vel og enginn
vandi er að halda góðum og eðiileg-
um ferðahraða. Þar þarf þó ökumað-
ur að vera duglegur á skiptingunni,
i það minnsta ef hann stundar fra-
múrakstur að nokkru ráði. En það
kom á óvart hversu vel hann fjaðrar
og liggur á grófum og holóttum
malarvegi en að framan er sjálfstæð
MacPherson gormafjöðrun og sneril-
flöðrun að aftan. Að því leyti er ekk-
ert að því að ferðast á Fiat Uno
hvert á land sem er. Þar þurfa menn
þó að huga að fjölda farþega og
hleðslu því þegar hann er þunghlað-
inn missir hann fljótt niður vinnsl-
una. Ef menn eru einir á ferð eða
ökumaður með farþega og tilheyr-
andi dót í stutta ferð þarf ekki stærri
eða öflugri bíl til að komast leiðar
sinnar á ánægjulegan hátt.
Verðið á Fiat Uno Arctic er frá
730 þús. kr. uppí 869 þúsund. Sá
ódýrasti er þrennra dyra 45 bíllinn
með minni vélinni en fimm dyra gerð-
in kostar 736 þúsund krónur. Best
búni bíllinn er 60S gerðin sem hér
hefur mest verið fjallað um og er
með stærri vélinni. Hann kostar þó
ekki nema 869 þúsund krónur en í
öllum tilvikum mælir umboðið með
ryðvörn með 8 ára ábyrgð sem kost-
ar 18 þúsund krónur. En Fiat Uno
Arctic 60S skipar sér í flokk ódýr-
ustu smábílanna en hefur þó ýmsa
kosti stærri bila til að bera, eins og
t.d. Qöðrun og aksturseiginleika utan
þéttbýlis. Þetta er því álitlegur bíll á
góðu verði. ■
Jóhannes Tómasson
TILBOÐ
ÓSKAST
i Isuzu Trooper LS 4 W/D, árgerð '89 (ekinn 51
þús. mílur), GEO Metro LSI, árgerð '89 (ekinn 39
þús. mílur), Ford RangerXLT 4x4, árgerð ’86 og
aðrar bifreiðir er verða sýndar á Grensásvegi 9
þriðjudaginn 5. októberkl. 12-15.
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.
SALA VARNARLIÐSEIGNA
um úr galloni og taui. „Það er von-
laust mál að verðmeta bílinn enda
gerir þetta enginn til að selja. Þetta
er gert fyrir ánægjuna og maður
vill gera þetta almennilega og eins
og maður vill hafa bílinn. Þetta er
bara sjúkleiki," segir Sævar.
Dagsdaglega ekur Sævar um á
fjórhjóladrifnum, yfirbyggðum Ford
pallbíl og hann á líka Mercury
Marquis í toppstandi sem er ekki
ekinn nema 68 þúsund km. Sævar
hefur átt hann í fjögur ár og hreyfir
ekki nema á sumrin. ■
Ford árgerð 1930
Hann sagði að bíllinn yrði notaður
til sunnudagsbíltúrsins þegar hann
kæmist í stand. Sævar á einnig Ford
árgerð 1930 sem hann hefur ekið
um á tyllidögum í sumar. Ég ætla
að láta hann snúast meðan ég geri
hinn upp. Það er nú stefnan að klára
Galaxy-bílinn í vetur og vonandi sést
hann á götunum næsta sumar,“ seg-
ir Sævar. Bíllinn verður rauður og
hvítur á lit og Sævar keypti uppruna-
lega klæðningu í hann í Bandaríkjun-
Morgunblaðið/jt
Farangursrými er furðu mikið og opnast hlerinn vel niður á stuðar-
ann. Rýmið má auka um allan helming með því að leggja niður allt
aftursætið eða hluta þess.
Sparlbaukur
FIAT UNO ARCTIC
60S Í HNOTSKURN
Vél: 1100 rúmsentimetrar, 4
strokkar, 50 hestöfl.
Framdrif.
Hlífðarpanna undir vél.
Fimm gíra handskipting.
Litað gler.
Rafhituð afturrúða og
þurrka með sprautu.
Lengd: 3,69 m, breidd: 1,56
m, hæð: 1,42 m.
Beygjuþvermál: 9,4 m.
Þyngd: 760 kg.
Hjólbarðar: 155/70R 13.
Hámarkshraði 150 km/klst.
Viðbragð úr kyrrstöðu í 100
km: 15,5 sek.
Bensíneyðsla 4,5 1 á 90 km
hraða, um 7 1 í borgarakstri.
40 1 bensíntankur.
Staðgreiðsluverð: 869.000
kr.
Umboð: ítalskir bflar hf.,
Reykjavík.
Aðalkostur þessara litlu véla er
vitanlega helst sparneytnin því í
borgarakstri er minni vélin sögð eyða
rúmum 6 lítrum en sú stærri tæpum
7 lítrum. Nálin var í það minnsta
ekki mikið farin að hreyfast eftir 100
km akstur á bílnum með minni vél-
inni og á 90 km jöfnum hraða er
eyðslan kringum 4,5 lítrar. Og þótt
bensíneyðslan sé ekki endilega aðal-
atriðið i ársrekstrarkostnaði getur
skipt máli í miklum árlegum akstri,
(tveimur til fjórum tugum þúsunda
króna) hvort 7, 9 eða 13 lítrar fara
á hverja 100 ekna kílómetra.
I þéttbýlisakstri er Uno Arctic 60S
lipur vel og alveg nógu snöggur !
viðbragði. Til þess að ná því þarf þó
að gefa nokkuð hraustlega inn (og
þá er spurning hversu mikið eyðslan
eykst) og halda vélinni á hærri snún-
ingunum. Gírskiptingin er liðug og
gerir ökumanni auðvelt með að spila
vel á hana ef hann vill ná sem mestu
út úr bílnum. Helst mætti finna að
stýrinu að það er ekki nógu ná-
kvæmt, ekki beint þungt en það þarf
að snúa því heldur of mikið til að
JÓN Bergþórsson viðskiptavinur Toyota við eitt þúsundasta bílinn
sem Toyota selur á árinu. Við hlið hans eru Hannes Sampsted og
Kristín Pétursdóttir sölumenn.
Eitt þúsundasti
bíllinn frú Toyota
SÆVAR PÉTURSSON sem rekur réttinga- og sprautunarverkstæði
í Skeifunni, hefur undanfarið ár unnið að því að gera upp Ford
Galaxy árgerð 1959. Hann var nokkuð heillegur þegar Sævar keypti
hann en grindin þó orðin léleg. Sævar keypti síðan þrjá aðra Galaxy
úti á landi og hefur hann notað varahluti úr þeim. Þá fór hann utan
til Bandaríkjanna í fyrra á sérstaka sölusýningu á fornbílum og
varahlutum og keypti nokkuð magn varahluta í Fordinn.
„Sýningin var rétt utan Baltimore
og er hún haldin árlega. Þarna eru
sýndir varahlutir og bílar, bæði notað
og nýtt, varahlutir sem menn hafa
átt en ekki notað,“ segir Sævar.
Hann segir að varahlutirnir séu frek-
ar dýrir. Mikið framboð var af vara-
hlutum í Ford Mustang og Chevrolet
TOYOTA afhenti nýlega eitt
þúsundasta nýja bílinn á
þessu ári og er heiidarhlut-
deild Toyota í bílasölunni á
árinu orðin rúm 21%.
Salan á Toyota Corolla lifnaði
mikið við þegar kynntar voru nýj-
ar gerðir af þessum bíl með 1300
rúmsentimetra vélum. Að því er
fram kemur í fréttabréfi frá Toy-
ota var fyrirtækið með um 30%
allra seldra bíla í september.
Kveðjur og blóm
Eitt þúsundasti viðskiptavinur
Toyota á þessu ári var Jón Berg-
þórsson og fékk hann blóm og
góðar kveðjur af þessu tilefni hjá
Hannesi Sampsted og Kristínu
Pétursdóttur sölumönnum Toyota.
BYLTINGARKENNT VELH-
Hiö byltingarkennda vélhjól, Cardinal Britten V1000 meö tveggja strokka
og fjögurra stimpla vél, var smíöaö f skúr í Christchurch á Nýja Sjálandi.
Hönnuöurinn er John Britten og kostaöi smiöin aöeins um 1,9 milljón fsl. kr.
Þetta óvenjulega vélhjól nýtir sjálfa véiina sem grind tók þátt í TT-keppninni á eyjunni Man
í flokki stórra hjóla og keppti þar viö hjól stóru framleiðendanna.
Þaó getur náö allt aö 478 km hraða á klst.
Vatnskassi og L°ft'
kælikerfi undir sæti „Boddí" úr
kælikerfi
Loftinntak-
til vélar
Tvöfaldir
högg-
deifar
aö framan
Loftinntak
til
Hjólbarðar úr koltrefjaefni
REUTER
ur
koltrefjaefni
’57 á sýningunni en minna var til
af varahlutum í Galaxy-bíl Sævars
sem er femra dyra. Meira framboð
sé af varahlutum í tveggja dyra bíia.
Yfir 1 .OOO vinnustundir
„Ég fékk megnið af því sem ég
leitaði að þarna ytra en ég samt
ennþá að leita. Það er ómögulegt að
segja til um hvað það kostar að gera
upp svona bíl. En þegar allt er til
tekið hleypur þetta á yfir 1.000
vinnustundum. Þetta er aðeins fyrir
dellukarla í frítíma," segir Sævar.
Sævar hefur rifið allan bílinn í
sundur og hefur ekki látið eina ein-
ustu skrúfu óhreyfða. Hann hefur
sandblásið og málað botninn í bíln-
um, grindina, fjaðrirnar og í raun
hvert einasta stykki í bílnum. „Ég
setti allt nýtt í vélina. Bíllinn var
með sex strokka vél þegar ég
hann. Ég náði í réttu átta
vélina í hann úti en bílarnir
voru framleiddir bæði með
sex og átta strokka vél-
um. Það var ekki ein ein-
asta skrúfa skiiin eftir,“
segir Sævar.
SÆVAR í Ford 1930
árgerð sem hann á
einnig. Hann hefur ekið
á honum um borgina á
tyllidögum.
Gengi jens-
ins kallar
á verð-
hækkanir
JAPANSKUR bílaiðnaður er í
nokkurri kreppu um þessar
mundir vegna hás gengis jens-
ins. Framleiðendur eru til-
neyddir til að hækka verð á
1994 árgerð bíla sinna í Banda-
ríkjunum en vita að það gæti
komið þeim í koll með minni
sölu. Stærstu framleiðendurnir,
Toyota, Nissan, Honda og
Mazda hafa gripið til þess ráðs
að hækka verðið og bæta um
leið við staðalbúnað bifreið-
anna. I Bandaríkjunum verður
líknarbelgur fyrir ökumann og
farþega í framsæti og ABS-
hemlalæsivörn staðalbúnaður.
Japanska jenið hefur hækkað
um 20% gagnvart dollara frá því
um áramót og framleiðendur eru
tilneyddir til að hækka verð á bíl-
um til að fá jafnmarga dollara
fyrir hvern bíl og fyrir hækkun
jensins. Framleiðendurnir forðast
þó sem heitan eldinn að láta geng-
isþróunina fara að fullu út í verð-
lagningu á 1994 árgerðinni. Þeir
hækka verð á mestseldu bílunum
minnst en hækka mest verðið á
dýrustu tegundunum.
Honda hækkar minnst
Honda hækkaði verðið minnst
af japönsku framleiðendunum, eða
að meðaltali um 2,7%, Mazda að
meðaltali um 4%, og Nissan, sem
hækkaði verð á sinni framleiðslu
þrisvar sinnum í fyrra, hækkaði
verð á 1994 árgerð um 5,2%. Toy-
ota hækkaði verðið mest, eða um
6,2%, en talsmenn fyrirtækisins
segja að teknu tilliti til meiri
staðalbúnaðar nemi hækkunin
3,9%. ■
I