Morgunblaðið - 10.10.1993, Side 4

Morgunblaðið - 10.10.1993, Side 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1993 Gott rými Fjödrun Gírskipting Morgunblaðið/jt Ný Opel Corsa er nú komin til Islands. Hann er fáanlegnr með þremur vélarstærðum og er á margan hátt forvitnilegur bíll. Ný Opel Corsa með þremur vélastærðum Mik.il áhersla hefur verið lögð á að gera farþega- rýmið sem sterkast með styrktarbitum í hurðum og á hornum. OPEICORSA GIS í HNOTSKURN VÉL 1,4 lítrar, 82 hestöfl. Framdrifinn. Fimm gíra handskipting. Vökvastýri. Samlæsingar með þjófa- vörn. Hæðarstillanlegt bílstjóra- sæti. Snúningshraðamælir. LENGD: 3,73 m, BREIDD: 1.76 m (með speglum), HÆÐ: 1,42 m. HJÓLHAF: 2.44 m ÞYNGD: 920 kg. MEÐALBENSÍNEYDSLA: 5,9 lltr- ar. Hæðarstillanlegt öryggis- belti að framan og aftan. Öryggisbeltastrekkjarar. Höfuðpúðar að aftan. Geymsluskúffa undir framsæti. Niðurfellanlegt aftursæti. Loftnet. Barnalæsingar. STAÐGREIDSLUVERD: 1.104 þús. kr. með ryðvörn og skráningu. UMBOD: Bílheimar hf., Reykjavík. Stýrið er stórt og gott og mæla- borð með skemmtilegum svip. Ferskuraðinnan Innri svipur er ekki síður skemmtilegur og að nokkru leyti ferskur svipur yfir öllu þar. Mæla- borðið er samansett úr eins konar einingum. Ein þeirra geymir hraða-, hita- og bensínmæla og nauðsynleg aðvörunarljós, önnur klukku, útihitamæli og hvaða út- varpsrás er í notkun (sé útvarpið fyrir hendi) og þriðja einingin er síðan miðstöðvarrofar og sæti fyrir útvarpstækið. Neðarlega vinstra megin eru síðan Ijósarofar og á vel staðsettum örmum við stýrið eru stefnuljósa- og þurrkurofar. Ejórða einingin er hanskahólf og hillur bæði ofan og neðan við það. Fram- sætin eru sæmileg og er lítil skúffa undir farþegaframsæti. Aftursætin eru einnig sæmilega góð og rýmið kemur á óvart. Vel getur farið um menn í aftursætunum og nóg rými til höfuðs og fóta. Gott er líka að umgangast hurðir og í framhurðum eru lítil geymsluhólf. Þá var við hönnun á Corsa kraf- ist sérstakrar athygli við öiyggið. Farþegarýmið er vel styrkt því bíll- inn er búinn hliðarárekstravörn og svonefndu krumpusvæði að framan og aftan, hæð öryggisbelta er stillanleg og hægt er að fá líknar- belg í stýri. Góð vinnsla - eða ódýr útgáfa Þijár vélarstærðir eru í boði en hér verður aðeins fjallað um tvær, þ.e. 1,2 Iítra og 45 hestafla vélina og 1,4 lítra og 82 hestafla vél. Sú Afturhurðin opnast vel farang- ursrýmið tekur 260 sem er ekki alltof mikið en er stækkanlegt í 680 lítra sé aftursætið lagt niður. Þægilegt er að hafa handfang innan á afturhurð- inni til að grípa í þegar hurð- inni er skellt aftur. gildir það bæði í viðbragði og vinnslu eins og áður segir. Gerir þessi vél bílinn mjög snaggaralegan og býður upp á mun skemmtilegri vinnslu í þjóðvegaakstri. Fjórði gír og jafnvel sá fímmti vinna vel á venjulegum ferðahraða og á bíllinn ekki í neinum vandræðum með hröðun vegna framúraksturs. Það sem helst er hvimleitt er skiptingin. í boði er fimm gíra handskipting en sjálfskipting verð- ur fáanleg síðar. Skiptingin er of „loðin“ og rennur ekki nógu liðlega milli gíra og er það eina atriðið sem skyggir á ökugleðina. Gírskipting á helst að vera þannig að ökumað- ur geti skipt allt að því hugsunar- laust upp eða niður en hér verður hann of upptekinn af sjálfri skipt- ingunni og virkar hún fyrir það leiðinleg. Þetta er atriði sem hlýtur að geta lagast. Eins og áður segir er akstur og öll meðhöndlun bílsins að öðru leyti hin ágætasta. Þokkalegt verð Þrennra dyra Opel Corsa Swing (sá með minni vélinni) kostar með ryðvörn og skráningu 928 þúsund krónur og fímm dyra útgáfan kost- ar 978 þús. kr. í þessu verði er innifalin þriggja ára ábyrgð og 6 ára verksmiðjuryðvöm. Sé GLS útgáfan tekin (stærri vél, samlæs- ing, vökvastýri o.fl.) kostar bíllinn 1.104 þús. kr. í leiðinni má geta um GSi, 16 ventla útgáfuna með 109 hestafla vél en hún kostar 1.628 þús. kr. tilbúin á götuna. Verðið á Corsa Swing er þokka- legt og sú útgáfa dugar feikivel sem snattbíll í þéttbýli og í stuttar ferð- ir þurfi menn ekki að hlaða hann fólki og farangri. Fyrir 126 þúsund krónur í viðbót fæst hins vegar talsvert margt: Mun öflugri vél, vökvastýri, samlæsing, tviskipt aft- ursæti og höfuðpúðar við aftursæt- in og er það vissulega peninganna virði. Má því hiklaust ráðleggja mönnum að bæta þeirri fjárfestingu við og fá fyrir það skemmtilegri og álitlegri bíl. ■ Jóhannes Tómasson NÝ Opel Corsa var kynnt hjá umboðinu, Bílheimum í Reykja- vik, um síðustu helgi en þessi nýja gerð var frumsýnd á alþjóð- legri bílasýningu í Genf í mars á þessu ári. Corsa er fimm manna framdrífinn smábíll sem er orðinn nærri 8 cm lengri en eldri gerðin, örlítið breiðari og rúmum 5 cm hærri. Við hönnu var lögð áhersla á að ná se mestu rými og eiginleiku stærrí bíla út úr smábílnum og sögðu forráðamenn Opel við kynningu að hér væri kominn „fullvaxni smábíllinn“ og má segja að hann standi að nokkru leyti undir þvi. Hann gerir það hvað aksturseiginleika áhrærír, t.d. fjöðrun, en síður hvað varðar afl og rými. Ódýrustu Corsa gerðimar kosta staðgreiddar frá kr. 828 þúsund krónum tilbúnar á götuna en sú dýrasta rúmar 1.600 þúsund krónur en þar er um að ræða sportlegan bíl með 1.600 rúmsentimetra og 109 hestafla vél sem hlaðinn er bún- aði. Opel verksmiðjuraar láta framleiða þennan bíl á Spáni, Portúgal auk Þýskalands og er gert ráð fyrir að framleiddir verði um 400 þúsund bílar á árí frá og með 1994. Meðgöngutími Corsunnar nýju, þ.e. tíminn frá því áætlanagerð hófst þar til framleiðslan var komin í gang, var óvenju stuttur þegar bílar eru annars vegar eða 36 mánuð- ir. Hér á eftir verður fjallað um Opel Corsa og gripið í bíla með tveimur vélarstærðum, 45 (Swing) og 82 hestöfl (GLS). ££ Opel Corsa er skemmtilega ■% lagaður bíll og að sjálfsögðu K. í ávölu og mjúku línunum. Hjólin eru mjög framarlega og aftariega, þ.e. hjólhafíð ^ eins langt og mögulegt er, til að ná sem mestri nýtingu og aj stærð fyrir farþega- og far- angursrými. Framluktir eru 2 nokkuð sporöskulagaðar og minna dálítið á Colt en fram- kli endinn hallar nokkuð niðuráv- ð£a ið sem veldur ökumanni nokk- urri óvissu um stærð og um- fang þegar hann þarf á nákvæmni að halda, t.d. vegna bílastæða. Það ætti þó að lærast með lengri notk- un. Hliðarnar eru bogadregnar og með fínlegum hliðarlista og aftur- endinn sömuleiðis bogadreginn. Lítill hliðargluggi aftast á fimm dyra útgáfunni gefur bflnum skemmtilegan svip. minni er ný og sérlega spameytin. Fer með 4,4 lítra á jöfnun 90 km hraða og hún gefur bílnum sæmi- lega vinnslu en viðbragðið er kannski ekki beint mikið og varla hægt að krefjast þess. Ekki heldur þörf á þvi til að ferðast milli húsa á höfuðborgarsvæðinu. Kostir litlu vélarinnar eru sparneytni og lögð hefur verið mikil áhersla á að draga sem mest úr mengandi útblæstri. Vilji menn hins vegar bæta 126 þúsundum króna við kaupverðið fá þeir mun snarpari og 82 hestafla vél en hún leikur sér að því að gefa bæði ágætt viðbragð og vinnslu sem ekki þarf að kvarta yfír. Stærri vélin er þýðgeng og lágvær en heldur meira heyrist í minni vélinni. Corsa hefur MacPherson fjöðrun að framan en snúningsfjöðrun að aftan og er fjöðrunin ekki síst það sem gefur þessum bíl skemmtilega aksturseiginleika. Bfllinn virkar í fyrstu dálítið svagur en þar er fremur um að ræða slaglanga og góða fjöðrun sem tekur vel á móti á grófum og holóttum malarvegi. A malbiki utan þéttbýlis jafnvel á mikilli ferð fínnst ekki að hér sé um smábíl að ræða. Kemur það raunar of oft fyrir að ökumaður reki sig á hraðatakmörk hvort sem ekið er innanbæjar eða utan því það fínnst mjög lítið fyrir hraða í bílnum. Mun meiri snerpa er í GLS bfln- um, þeim með aflmeiri vélinni og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.