Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 5
4 B
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR
1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
B 5
KORFUKNATTLEIKUR
KR-ingar voru rass-
skelltir í Grindavík
HANDKNATTLEIKUR
GRINDVÍKINGAR unnu KR mjög sannfærandi 112:94 í Grindavík
í úrvalsdeildinni i Grindavík á sunnudagskvöld. Mikill hraði var
í leiknum ífyrri hálfleik og léku bæði liðin hraðan og skemmtileg-
an körfuknattleik.
Frímann
Ólafsson
skrífar
Heimamenn náðu yfirhöndinni í
byrjun og voru yfir 25:17 um
miðjan hálfleikinn. Þá fékk Mirko
Nicolic KR sína 4.
villu og kippti Lazlo
Nemeth þjálfari hon-
um útaf. KR tók þá
góðan kipp og skor-
aði 12 stig í röð og komst yfir 29:25.
Þeir voru yfir 43:32 þegar 3 mínútur
voru til hlés en Grindvíkingar skor-
uðu þá 12 stig án svars og voru yfir
í hálfleik 44:43.
Nýttum
hæðar-
muninn
- sagði Birgir Mika-
elsson eftir sigur
Skallagríms á Val
„VIÐ komum ákveðnir til leiks,
áttum góða byrjun og nýttum
okkur vel hæðarmuninn sem er
á liðunum1', sagði Birgir Mika-
elsson þjálfari og leikmaður
Skaliagrims eftir að lið hans
sigraði Val í úrvalsdeildinni í
Borgarnesi á sunnudaginn,
92:71. „Við vorum ákveðnir í að
rífa okkur upp og það tókst,
þetta var sigur liðsheildarinnar
og við höfðum gaman af
þessu," sagði Birgir.
Liðsmenn Skallagríms byrjuðu
þennan Ieik af miklum krafti
og skoruðu fyrstu 7 stigin. Þeir héldu
síðan yfirhöndinni en
Valsmenn náðu að
jafna undir lok fyrri-
hálfleiks 30:30 en
lengra komust þeir
ekki. Mestu munaði um góða vöm
hjá Skallagrími sem tókst að slá
Franc Booker út af laginu. Einnig
tókst Borgnesingunum að ná flest-
um varnar- og sóknarfráköstunum
og þó að hittnin hafi ekki verið upp
á það allra besta hjá liðinu þá kom
það ekki að sök.
Mikil barátta einkenndi upphaf
seinni hálfleiksins en fljótlega gerðu
liðsmenn Skallagríms út um leikinn
með öguðum leik og mikilli snerpu.
Leikur Valsmanna leystist upp í ör-
væntingu þegar á leið. Borgnesing-
arnir juku forskot sitt og komust í
20 stiga forskot og lokatölur urðu
92:71 sem verður að teljast sann-
gjarn sigur.
Hjá Skallagrími voru þeir Alex-
ander Ermolinskij og Ari Gunnarson
áberandi góðir en þetta var sigur
liðsheildarinnar. Hjá Val voru þeir
Franc Booker og Brynjar Sigurðsson
bestir þó Booker hafi verið langt frá
sínu besta.
„Þeir söltuðu okkur í fráköstun-
um, það var ekkert flóknara," sagði
Svali Björgvinsson þjálfari Vals-
manna eftir leikinn. „Við erum með
frekar smávaxið lið en þetta á ekki
að geta gengið svona fyrir sig. Ef
leikmenn Skallagríms skoruðu ekki
í fyrsta eða öðru skoti þá gátu þeir
reynt í þriðja sinn því þeir náðu allt-
af boltanum. Annars var þetta mun
betra hjá okkur í fyrri hálfleiknum
en við náðum okkur ekki á strik í
þeim seinni,“ sagði Svali.
Theodór Kr.
Þóröarson
skrifar
Byijunin í seinni hálfleik benti til
þess að sama spenna héldist út leik-
inn. Liðin skiptust á um að hafa for-
ystuna fram á 7. mínútu. Þá var KR
yfír 58:57 en þá urðu kaflaskipti í
leiknum. Grindvíkingar skoruðu 23
stig í röð á 6 mínútna kafla og gerðu
nánast út um leikinn. KR tók þá upp
sína sérstæðu leikaðferða að pressa
undir körfu andstæðinganna og
bijóta á leikmönnum Grindvíkinga.
Þetta varð til þess að þeir týndust
út af einn af öðrum og botninn datt
úr leiknum. Grindvíkingar fengu
skotrétt og þurfti því að stöðva leik-
inn og ganga yfir völlinn til að taka
skot. Vítahittnin var góð þannig að
leikaðferð KR gekk ekki upp.
Hjá Grindavík áttu þeir Guðmund-
ur og Casey mjög góðan leik ásamt
Pétri og Nökkva. Annars fengu allir
að spreyta sig og ungur nýliði Helgi
Bragason skoraði sín fyrstu úrvals-
deildarstig. Hjá KR átti David Gris-
son mjög góðan leik í fyrri hálfleik
en hvarf í þeim síðari. Nicolic var
óheppinn að lenda í villuvandræðum
og gat lítið beitt sér en gerði margt
gott. Ólafur Jon Ormsson stóð vel
fyrir sínu.
IMjarðvíking-
ar mjög sterkir
NJARÐVÍKINGAR áttu ekki íteljandi erfiðleikum með að innbyrða
stigin í viðureigninni við Tindastól frá Sauðárkróki í Njarðvík á
sunnudagskvöldið. Lokatölur urðu 90:74, en í hálfleik var staðan
50:35.
Norðanmenn veittu heimamönn-
um þó mótspyrnu framan af
fyrri hálfleik en þá breyttu Njarðvík-
ingar um vörn og
fóru að pressa meira.
Við þetfa riðlaðist
leikur norðanmanna
sem þá voru yfir
33:31, þeir fengu á
sig 14 stig í röð og komust aldrei
inn í leikinn eftir það. Njarðvíkingar
náðu síðan 28 stiga forskoti um
miðjan í síðari hálfleik 78:50, og
Björn
Blöndal
skrífar frá
Keflavík
þeir gátu leyft sér að láta varamenn
sína ljúka leiknum.
„Við lékum ekki vel þrátt fyrir
sigurinn í leiknum og ég held að
menn hafi verið komnir með hugann
í úrslitaleikinn í bikarkeppninni á
laugardaginn,“ sagði Valur Ing-
imudarson, þjálfari og Ieikmaður
Njarðvíkinga, eftir leikinn.
Rondey Robinson, Rúnar Árnason
og Teitur Örlygsson voru bestu menn
Njarðvíkinga en Páll Kolbeinsson og
Robert Buntic hjá norðanmönnum.
Glæsileg til-
þrif í Hólminum
SNÆFELL sýndi f rábær tilþrif
f fyrri hálfleik á heimavelli sín-
um þar sem allir leikmenn liðs-
ins fóru á kostum. Hver glæsi-
karfan af annarri leit dagsins
Ijós og sáu Skagamenn aldrei
til sólar og sigraði Snæfeli
95:81 eftir að staðan f hálfleik
hafði verið 50:25.
Fyrri hálfleikurinn var sannarlega
glæsilegur hjá heimamönnum.
Þeir byijuðu með látum og komu
Skagamönnum í
opna skjöldu með
góðum varnarleik og
frábærum sóknar-
leik þar sem bak-
verðir Snæfells, Bárður og Sverrir,
fóru á kostum. Eddie Collins var
sterkur í vörn og hélt nýja Banda-
María
Guönadóttir
skrifar
ríkjamanninum í liði ÍA í skefjum.
Þegar 15 mín. voru liðnar af fyrri
hálfleik var staðan 41:16 fyrir
heimamenn og hélst sá munur út
hálfleikinn.
Snæfellingar byijuðu seinni hálf-
leikinn af sama krafti, juku forskot-
ið í 33 stig og voru þá nánast búnir
að gera út um leikinn. Um miðjan
seinni hálfleik gátu þeir leyft sér að
nota alla varamenn sína, en Skaga-
maðurinn Einar Einarsson var ekki
á því að gefast upp og skoraði þrjár
þriggja stiga körfur í lok leiksins
og þá síðustu frá miðju á lokasek-
úndunum.
Bestu menn Snæfells voru Bárður
og Sverrir og aðrir leikmenn í liðinu
áttu mjög góðan dag. Besti leikmað-
ur Skagamanna og sá eini sem eitt-
hvað reyndi var Einar Einarsson.
BADMINTON / EM UNGLINGA
ísland varði í 3. sæti
Islenska unglingalandsliðið í bad-
minton, skipað leikmönnum 18
ára og yngri, hafnaði í þriðja sæti í
Evrópukeppni B-þjóða um helgina
og tryggði sér þar með þátttökurétt
í keppni þeirra bestu, A-þjóða.
Keppnin fór fram í Kladno í Tékk-
landi og lauk á sunnudaginn. ísland
lék þá við Finna um 2. sætið en tap-
aði 1:4, en áður hafði Búlgaría tryggt
sér fyrsta sætið.
ísland vann Kýpur 4:1, Eistland
5:0 og Ungveijaland 4:1 í riðlakeppn-
inni og varð efst. Síðan var leikið í
úrslitariðli gegn Finnlandi, Búlgaríu
og Sviss. Fyrst var leikið gegn Bú lg-
aríu og tapaðist sá leikur 1:4. ísland
vann síðan Sviss 3:2 en leikurinn
gegn Finnum tapaðist 1:4.
Arangur íslenska liðsins verður að
teljast góður þar sem Iiðið er ungt
og munu ijórir leikmenn af sex eiga
rétt til að keppa í U-18 ára aftur á
nsæta árr, allar stúlkurnar og Tryggvi
Nielsen. I liðinu voru: Tryggvi, Hjalti
Harðarson, Njörður Ludvigsson, Vig-
dís Ásgeirsdóttir, Brynja Pétursdóttir
og Margrét Þórisdóttir.
Petr Baumruk átti enn einn stórleikinn með Haukum; var öflugur í vörn og ákveðinn í sókn, en hér gerir hann eitt fimm marka sinna gegn FH.
Morgunblaðið/Bjami
Haukar aftur í topp-
sætið meðsigri á FH
HAUKAR hafa sýnt töluverðan
stöðugleika á íslandsmótinu í
vetur og endurheimtu efsta
sætið í fyrrakvöld með fjögurra
marka sigri, 24:20, gegn ná-
grönnunum í FH. Stuðnings-
menn Haukanna hafa heldur
ekki látið sitt eftir liggja og
voru vel með á nótunum í
Kaplakrika, en heimamenn
náðu ekki sama takti hvorki
innan sem utan vallar.
Haukar höfðu yfirburði á öllum
sviðum. í fyrsta lagi varði
Magnús Árnason mjög vel, en Berg-
sveinn landsliðs-
markvörður Berg-
sveinsson var langt
frá sínu besta í FH-
markinu og Rós-
mundur Magnússon tók við í von-
Steinþór
Guðbjartsson
skrifar
lausri stöðu, 22:16, og 12 mínútur
til leiksloka.
í öðru lagi lokaði vörn gestanna
miðjunni og Pétur Vilberg_ Guðna-
son sá til þess að Guðjón Árnason,
leikstjórnandi FH, fékk engan frið
til athafna. Spil FH-inga gekk því
illa upp og Guðjón gerði aðeins tvö
mörk — bæði meðan fyrirliði Hauk-
anna tók út tveggja mínútna refs-
ingu vegna rangrar innáskiptingar.
Hins vegar var vörn FH-inga illa á
verði og aðeins Kristján Arason
sýndi réttu tökin, þó meiddur væri.
Hann var ekki með fyrstu 10 mínút-
urnar, en þá náðu Haukar sjö marka
forystu, sem var of mikið fyrir
heimamenn.
I þriðja lagi voru Haukar mjög
vel vakandi fyrir sóknarmistökum
mótheijanna og nýttu sér þau auk
þess sem þeir komust oft inní send-
ingar og þá var ekki að sökum að
spyija. Sjö sinnum skoruðu þeir
eftir hraðaupphlaup, en FH-ingar
aðeins þrisvar.
í fjórða lagi var sóknarleikur gest-
anna markviss og fjölbreyttur, en
sama var ekki uppá teningnum hjá
heimamönnum. Haukar voru með
100% nýtingu úr vítaköstum, en
FH-ingar létu veija þijú slík frá sér.
í fimmta lagi léku Haukar eins
og sá sem valdið hefur og léku af
skynsemi undir lokin, héldu boltan-
um og létu tímann líða, en FH-ing-
ar gátu ekki leyft sér þann munað
og því voru sóknir þeirra oft stuttar
og ómarkvissar.
Með öðrum orðum, þá vann liðs-
heild Hauka saman að settu marki,
en einstaklingar FH náðu ekki nógu
vel saman til að geta ógnað efsta
liði deildarinnar að ráði.
Revine hetja KR-inga
Lokaði markinu og varði m.a. af línu þegar ein sekúnda var eftir
ALEXANDER Revine mark-
vörður var hetja KR-inga er
þeir unnu Aftureldingu 24:23 í
æsispennandi leik fLaugar-
dalshöll á sunnudagskvöld.
Hann lokaði markinu síðustu
minútur leiksins og varði m.a.
skot af línu þegar ein sekúnda
var eftir.
Afturelding hafði frumkvæðið
allt þar til KR-ingar náðu að
jafna í fyrsta sinn 20:20 þegar 10
mínútur voru eftir.
Lokamínúturnar
voru æsispennandi.
Hilmar Þórlindsson
komKRÍ 22:21 þeg-
ar sex mínútur voru eftir og bætti
síðan öðru við úr vítakasti, 23:21,
Valur B.
Jónatansson
skrifar
þegar tvær mín. voru eftir. Þá komu
tvö mörk í röð frá Aftureldingu,
fyrst Þorkell og síðan Páll úr hrað-
aupphlaupi, eftir mistök í sókn KR.
Einar B. Ámason kom KR í 24:23
þegar 16 sekúndur voru eftir. Aft-
urelding hóf sókn, sem endaði með
aukakasti þegar 4 sekúndur voru
eftir og upp úr því fékk Róbert
Sighvatsson boltann inn á línuna,
en Revine náði að veija frítt skot
hans og KR fagnaði langþráðum
sigri.
Olafur Lárusson þjálfari er á
réttri leið með KR, sem er skipað
ungum og efnilegum strákum sem
hafa mettnað og vilja til leggja sig
fram. Vörnin var góð og markvarsl-
an einnig í lokin eftir að Revine kom
inná. Hilmar og Einar voru bestu
menn liðsins ásamt Magnúsi á lín-
unni eins var Bjarni Ólafsson sterk-
ur í vöminni. Hjá Aftureldingu voru
Gunnar Andrésson og Ingimundur
allt í öllu, aðrir náðu sér ekki á
strik og spurnin hvort um vanmat
hafi verið að ræða.
„Þetta var langþráður sigur. Við
unnum ÍR-inga síðast í byijun des-
ember,“ sagði Ólafur Lárusson,
þjálfari KR-inga. „Þessi leikur var
framför frá því í síðustu þremur
leikjum á undan. Nú vorum við að
spila eins og við gerðum best fyrir
jólin. Þessi sigur sýnir að þessir
vegir eru okkur færir. Við þurfum
að trúa því sjálfir og leggja okkur
fram. Vörnin var góð, en sóknin
var ekki markviss í lokin, en Revine
bjargaði því fyrir okkur.“
Skúli Unnar
Sveinsson
skrífar
Jafntefli í
stórleik í
Garðabæ
Það var sannkallaður stórleikur í Ásgarði á
sunnudaginn þegar Stjarnan tók á móti
Víkingum. Liðin skildu jöfn, 24:24, og verða
það að teljast sanngjörn úrslit.
Bæði lið gátu þó sigrað og fengu
tækifæri til þess en urðu um
síðir að sættast á jafntefli.
„Það var sárt að ná ekki að
sigra en ég held að jafntefli sé sanngjarnt,"
sagði Gunnar Gunnarsson þjálfari og leikmaður
Víkings eftir leikinn. „Við náðum þriggja
marka forystu og fengum nokkur tækifæri til
að auka það en frekar en það tókst ekki. Stjarn-
an var líka komin með góða stöðu í síðari
hálfleik þannig að þetta gat farið alla vega.“
Bæði lið léku gríðarlega sterka vörn, sérstak-
lega í fyrri hálfleik og má sem dæmi nefna
að markverðir Stjörnunnar vörðu þá aðeins
þijú skot en liðið fékk á sig 9 mörk. Víkingar
léku flata vörn en Stjarnan 3-2-1 mjög aftar-
lega. Stjörnumaðurinn Einar Einarsson átti
stjörnuleik í vörninni.
Jafnræði var í fyrri hálfleik en í þeim síðari
fór að draga til tíðjnda. Bjarki Sigurðsson fór
þá á kostum og gerði fimm fyrstu mörk Vík-
ings á meðan Stjarnan læddi inn einu marki;
staðan orðin 11:14. Munurinn hélst þar til 12
mínútur voru eftir en þá komu fjögur mörk í
röð hjá Stjörnunni og heimamenn allt í einu
komnir einu marki yfir.
Lokakaflinn var æsispennandi, eins og raun
ar allur leikurinn. Bjarki jafnaði 23:23 og
Magnús varði skot Stjörnunnar úr hraðaupp-
hlaupi. Bjarki kom Víkingum 23:24 yfir er
hálf mínúta var eftir. Magnús Sigurðsson
renndi sér síðan í gegnum vörn Víkings er 8
sekúndur voru eftir og jafnaði.
Hjá Stjörnunni var Einar gríðarlega sterkur,
sérstaklega í vörninni. Hann varð reyndar að
yfirgefa völlinn í sex mínútur í síðari hálfleik
þegar sprakk fyrir á augabrún hans. Konráð,
Magnús og Hafsteinn voru einnig áberandi og
Gunnar kom sterkur í markið í síðari hálfleikn-
um, Hjá Víkingum varði Magnús mjög vel,
þáttur Bjarka var mikilvægur og í vörninni
voru Birgir, Gunnar og Ingi mjög hreyfanlegir
og virkir. Slavisa Cvijovic átti ágæta kafla.
„Strákamir em
reiðir og sárir^'
- segir Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfyssinga, sem töpuðu
með tólf marka mun, 18:30, fyrir Pick Szeged í Ungverjalandi
„ROÐURINN verður erfiður hjá okkur. Það verður allt að ganga
upp í seinni leiknum, ef við eigum að geta unnið upp tólf marka
sigur Pick Szeged," sagði Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfyss-
inga, sem fengu skell í Ungverjalandi í Evrópukeppni bikarhafa
á laugardaginn, 18:30. „Það er stutt í kvikuna hjá mínum mönn-
um, sem eru reiðir og sárir vegna látanna í Szeged. Við verðum
að gæta þess að láta skapið ekki hlaupa með okkur í gönur."
Þegar leikurinn var að renna út,
réðust fjórir leikmenn á Sigur-
jón Bjarnason, lömdu og spörkuðu
hann, að sögn Einars. Þá var
Grími Elíassyni kastað í gólfið. Sig-
urjón fór í læknisskoðun í dag, en
hann var illa marinn á hné og hálsi.
Oliver Pálmason var aumur í kjálka,
eftir kjaftshögg,“ sagði Einar í gær.
„Öll umgjörðin í kringum leikinn
hafði áhrif á okkur, en það var allt
vitlaust í höllinni í Szeged, þar sem
tvöþúsund og fimmhundruð áhorf-
endur létu vel í sér heyra. Ofan á
þetta bættust dómarar frá Rúmen-
íu, sem voru á bandi heimamanna.
Þeir dæmdu ekki eftir neinni línu,
heldur dæmdu eins og þeim datt í
hug hveiju sinni. Ég hef aldrei
kynnst öðru eins á mínum ferli sem
handknattleiksmaður og hef áður
leikið í Ungveijalandi, en þá var
framganga dómara ekki í líkingu
við þetta. Það er verið að skemma
Sigurjón Bjarnason
Evrópukeppnina og eiga austur-
Evrópuþjóðirnar stóran þátt í því.
Þar viðgengst ýmislegt sukk, sem
þekkist ekki í vestur-Evrópu.
Dómararnir vísuðu okkur átta
sinnum af leikvelli, en Ungveijum
aðeins einu sinni. Það gekk því erf-
iðlega að manna vörnina í seinni
hálfleik. Ungverjar léku fast og
voru þeir afar klókir að bijóta á
okkur — lemja á hendur minna
manna, eða þá rífa aftan í þá.“
„Strákamir æstust upp“
Ungveijarnir tóku Sigurð Sveins-
son úr umferð, þannig að við náðum
aldrei upp góðu tempói í leiknum.
Við misstum Ungveijana framúr
okkur og þeir náðu átta marka for-
skoti, 17:9, fyrir leikhlé. Seinni
hálfleikurinn var nokkuð góður hjá
okkur og við náðum að minnka
muninn í fimm mörk, 22:17, þegar
fimmtán mín. voru til leiksloka. Þá
æstust strákarnir upp í öllum þess-
um látum og fóru illa með mörg
gullin marktækifæri. Það hefði ver-
ið gott að geta haldið leiknum niður
í sex til sjö marka mun. Tólf marka
tap var of mikið,“ sagði Einar.
Þeir sem skoruðu mörk Selfyss-
inga, voru: Sigurður Sveinsson 6,
Jón Þórir Jónsson 4, Gústaf Bjarna-
son 4, Grímur Hergeirsson 2, Sigur-
jón Bjarnason 1 og Einar Gunnar
Sigurðsson 1.
Selfyssingar leika seinni leik sinn
gegn Pick Szeged í Kaplakrika á
laugardaginn kemur.
Dýrmæt stigKA
í keppninni við ÍR
KA-menn náðu í dýrmæt stig af ÍR-ingum er þeir
lögðu þá að velli 23:22 á Akureyri á laugardag-
inn. Eftir þessa umferð er KA í 8. sæti (sem gefur
þátttökurétt í úrslitakeppninni) og hafa
Reynir þriggja stiga forskot á IR sem er í.því
Eiríksson níunda og því ekki inní í úrslitakeppn-
skrífar inni eins staðan er.
'KA-menn höfðu frumkvæðið allan
fyrri hálfleikinn og fram í miðjan síðari hálfleik er
ÍR-ingar jöfnuðu 17:17. Eftir það var jafnt á öllum
tölum þar til staðan var 21:21 og fimm mínútur til
leiksloka og óhætt að segja að spennan hafi verið
mikil. KA gerði tvö næstu mörk og tryggði sér þar
með sigurinn því ÍR náði ekki að jafna.
Leikurinn var í heildina ekki vel spilaður og mikið
um mistök á báða bóga. Það sem helst gladdi augað
var markvarslan hjá þeim Sigmari Þresti, sem var
bestur KA-manna og Magnúsi sem var bestur ÍR-
inga. Af útileikmönnum má nefna Valdimar Grímsson
sem átti ágætan leik fyrir KA og Dimitrivitsch hjá ÍR.
BLAK / ISLANDSMOTIÐ
ÍBV hafði betur í
botnslag við Þór
Lið Þórsara frá Akureyri sótti ekki gull í greipar
Eyjamanna á laugardaginn. ÍBV sigraði með
þriggja marka mun, 26:23. Sigurinn var mjög öruggur
allan tímann. Þórsarar náðu einu sinni
að jafna og var það í stöðunni 1:1.
I fyrri hálfleik léku Eyjamenn nokkuð
vel; ágætan varnarleik og markvarslan
var góð. Þeir fóru hægt og örugglega
framúr og var staðan í hálfieik 13:7. Smá kraftur var
í liði Þórs í síðari hálfleik og þeir náðu að minnka
muninn en þó aldrei nægilega til að ógna sigri IBV.
Eftir þennan leik eru Eyjamenn með sjö stig, en lið
Þórs á Ákureyri situr nú eitt á botninum með 2 stig
og við liðinu blasir nú beinn og breiður vegur niður í
2. deild. Björgvin Þór Rúnarsson lék vel í liði ÍBV og er
í góðri æfingu þessa dagana þrátt fyrir að vera nýstig-
inn upp úr meiðslum. í iiði Þórs var Jóhann Samúels-
son bestur. Haldi Eyjamenn áfram að leika eins og
þeir hafa gert í síðustu umferðum ættu þeir fljótlega
að geta rifið sig uppúr fallsæti og haldið sér í deildinni.
Sigfús Gunnar
Guömundsson
skrifar
Þróttarstúlkur á toppinn
KVENNALIÐ Þróttar í Nes-
kaupstað vann báða útileiki
sína á íslandsmótinu íblaki um
helgina, gegn Stúdfnum og HK.
Sigrarnir tryggðu liðinu efsta
sætið í kvennadeildinni.
Eftir leiki helgarinnar kom
greinilega í ljós að Norðfjarð-
arliðið er á góðri leið með að skrifa
nýjan kapítula í
sögu kvennablaks-
ins hérlendis.
Þróttarastúlkur
skelltu liði HK á
föstudagskvöldið í þremur hrinum
gegn einni en á laugardaginn gerðu
þær enn betur þegar Stúdínur voru
ofurliðnir bornar af frísku gestaliði.
Stúdínur voru fyrir leikinn í efsta
sæti deildarinnar en strax í upphafi
leiksins gáfu Þróttarstúlkur tóninn
Guömundur
Helgi
Þorsteinsson
skrifar
af því sem koma skyldi. Þær höfðu
tögl á hagldir á leiknum í fyrstu
tveim hrinunum, unnu 15:9 og
15:10.
Stúdínur hrukku svo í gang í
þriðju hrinunni með þær Þóreyju
Haraldssdóttur og Úrsúlu June-
mann sterkar í smassinu, en hrinan
endaði 15:3. í fjórðu hrinunni leiddu
Stúdínur 13:9, þegar sóknarskellir
þeirra brugðust og það voru Þrótta-
rastúlkur ekki lengi að nýta sér.
Þær fóru hreinlega á kostum á loka-
kaflanum og tryggðu sér sigurinn
á eftirminnilegan hátt.
Leikur Norðfjarðarliðsins var
mun betri og lágvörnin hirti marg-
sinnis upp sóknir Stúdína sem náðu
ekki að klára sóknir sínar þegar
mest reið á. í liði Þróttar voru Berg-
rós Guðmundsdóttir uppspilari,
Jóna Harpa Viggósdóttir og Þor-
björg Jónsdóttir bestar.
KA vann Þrótt R.
Þróttarar mættu grimmu KA liði
á Akureyri á laugardaginn, en
KA-menn féllu út úr bikarkeppninni
á dögunum og því liðinu nauðsyn
að tryggja sig í úrslitakepnninni.
KA vann tvær fyrstu hrinurnar létt,
15:10 og 15:6 og leikur liðsins gekk
hnökralaust fram í þriðju hrinuna
þegar Þróttarar náðu sinni bestu
rispu í leiknum og kræktu sér í
dýrmætt stig. Fjórða hrinan var í
járnum en lið KA var ákveðnara
og tryggði sér sigur í leiknum með
góðum endaspretti í lokin. Hrinan
endaði 15:13 en litlu munaði að
Þrótturum tækist að krækja í úr-
slitahrinu. Hjá KA stóðu þeir Áki
Thoroddsen og Hafsteinn Jakobson
upp úr.