Morgunblaðið - 15.03.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1994
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ
BLAD
B
adidas
:
Norðurlandameistarar í
handknattleik heyrnarlausra
leika í Adidas.
KNATTSPYRNA
Helgi Sigurðsson undir smá-
sjánni hjá Stuttgart og Dresden
Helgi Sigurðsson, hinn ungi
sókrarleikmaður Framara,
er undir smásjánni hjá þýsku 1.
deildarliðunum Stuttgart og
Dynamo Dresden. Helgi vakti
mikla athygli þegar hann var 'hjá
Stuttgart á dögunum og skoraði
þrjú mörk í einum leik. Þá var
rætt við Helga og hafa forráða-
menn félagsins áhuga á að fá
hann til sín næsta keppnistímabil
— á áhugamannasamning eins
og Eyjólfur Sverrisson byijaði á
hjá félaginu.
Dynamo Dresden, liðið sem
Siegfried Held, fyrrum landsliðs-
þjálfari íslands þjálfar, hefur
einnig áhuga á að fá Helga til
sín. „Við höfum ekki fengið form-
legt tilboð frá Dresden, en félag-
ið hefur haft samband við okkur
— og sýnt mikinn áhuga á að fá
Helga og það strax í sumar. Helgi
er frábær knattspyrnumaður,
sem á framtíðina fyrir sér. Það
er því eðlilegt að félög hafi auga-
stað á honum. En hvorki við hjá
Fram og Helgi komum til með
að ana að neinu. Helgi er ungur
og það_ er nægur tími til stefnu,“
sagði Ólafur Helgi Árnason, for-
maður knattspyrnudeildar Fram,
í viðtali við Morgunblaðið í gær-
kvöldi.
BLAK
Bikarinn í sídasta sinn!
Morgunblaðið/Bjarni
LEIFUR Harðarson, fyrirliði Þróttar, virðir hér fyrir sér Ljómabikarinn sem Þróttur vann í tíunda sinn um helgina.
Bikarinn verður nú tekinn úr umferð og líklegt er að Leifur hætti eftir þetta tímabil þannig að þetta voru síðustu forvöð
fyrir fyrirliðann að fá að halda á honum. Jón Árnason hefur átta sinnum lyft bikarnum en Valur Guðjón Valsson, sem
er lengst til hægri á myndinni, er einn af ungu mönnunum hjá Þrótti, var að verða bikarmeistari í fyrsta sinn.
■ „Hefð Þróttar rík“ / B5
OLYMPIUMOT FATLAÐRA
Svanur í sjötta sæti
Svanur Ingvarsson frá Selfossi
hafnaði í 6. sæti í 100 og 500
metra sleðastjaki á Vetrarólympíu-
móti fatlaðra í Lillehammer í gær.
Svanur er eini íslenski keppandinn á
mótinu sem var sett 10. mars og
stendur til 20. mars.
Svanur keppti fyrst í 100 metra sleð-
astjaki í gær og varð í sjötta sæti
af 14 keppendum. Tími hans var
15,42 sekúndur, en sigurvegarinn
KNATTSPYRNA
sem var Norðmaður rann vegalengd-
ina á 14,32 sekúndum. Í 500 metrun-
um varð hann einnig í sjötta sæti af
14 á 1.14,05 mín., en sigurvegarinn
sem var Norðmaður fékk tímann
1.06,20 mín. Keppnin í sleðastjaki fór
fram í Víkingahöllinni í Hamri.
Svanur, sem er fyrstur íslendinga
til að keppa á Vetrarólympíumóti
fatlaðra, keppir í 1.000 metra sleðast-
jaki á morgun og 1.500 m á föstudag.
Guðni hefur valið
Ítalíufaranna
Íslenska unglingalandsliðið, sem
skipað er leikmönnum 18 ára
og yngri, tekur þátt í alþjóðlegu
knattspyrnumóti á Ítalíu dagana
26. mars til 4 apríl. Guðni Kjartans-
son, þjálfari, valdi í gær 16 leik-
menn til fararinnar. Þeir eru:
Markverðir: Ólafur Kristjánsson,
Fram og Gunnar Sigurðsson, ÍBV.
Aðrir leikmenn: Kjartan Antons-
son, UBK, Bjarki Stefánsson, Val,
Vilhjálmur Vilhjálmsson, KR,
Ragnar Árnason, Stjörnunni, Sigur-
björn Hreiðarsson, Val, Sigurvin
Ólafsson, Stuttgart, Bjamólfur Lár-
usson, ÍBV, Guðni Rúnar Helgason,
Sunderland, Brynjar Gunnarsson,
KR, Jóhannes Harðarson, íA, Guð-
mundur Brynjólfsson, Val, Ólafur
Stígsson, Fylki, Andri Sigþórsson,
Bayern Munchen og Björgvin
Magnússon, Werder Bremen.
Island er í A-riðli ásamt Sviss,
Ítalíu og Kína. í B-riðli leika Belg-
ía, Tékkland, Alsír og San Marínó.
í C-riðli leika Spánn, Rúmenía, Sló-
vakía og ísrael. í D-riðli leika Nor-
egur, Grikkland, Ungveijaland og
Túnis.
Jafnt hjá West Ham
West Ham og Luton gerðu markalaust jafntefli í 8-liða úrslitum ensku
bikarkeppninni í gærkvöldi. Liðin þurfa því að mætast aftur á
Kenilworth Road 23. mars. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign mætir Chelsea
í undanúrslitum á Wembley 9 apríl. í hinum undanúrslitaleiknum mætast
Manchester United og Oldham á Wembley daginn eftir, 10 apríl.
iii'iHlnVnrgie
SKIÐI: ASTA OG KRISTINIM A VERÐLAUNAPALLISVIÞJÓÐ / B8