Morgunblaðið - 15.03.1994, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1994
B 3
KNATTSPYRNA
Reuter
Bakfallsspyrna
CAVIN Peacock tryggði Chelsea sæti í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar,
en hér snýr hann á Mike Stowell, markvörð Wolves, með bakfallsspymu.
Bayem skrefi
nær titlinum
Getum
farið
allaleið
- sagði Peacock
eftir sigur Chelsea
MANCHESTER United vann
Charlton 3:1 og er komið í und-
anúrslit ensku bikarkeppninn-
ar, mætir þar Oldham á úti-
velli. Liðið er sem fyrr efst í
deildinni og leikurtil úrslita í
deildarbikarnum 27. mars, en
Peter Schmeichel, markvörð-
ur, verður þá hugsanlega í
banni, þar sem hann fékk að
sjá rauða spjaldið á laugardag-
inn. Chelsea vann Wolves 1:0
„og við getum farið alla leið,“
sagði Gavin Peacock, sem
gerði eina mark leiksins.
Andrei Kanchelskis frá Úkraínu
gerði tvö mörk á fjórum mín-
útum, en Mark Hughes gaf tóninn
á fyrstu mínútu seinni hálfleiks.
Schmeichel var rekinn af velli í lok
fyrri hálfleiks fyrir að ræna Kim
Grant marktækifæri, hljóp útúr
teignum og tók boltann með hendi.
Les Sealey fór í markið og Paul
Parker settist á bekkinn.
Darren Beckford tryggði Oldham
sæti í undanúrslitum með marki
gegn Bolton sex mínútum fyrir leiks-
lok. Bolton, sem sló út Everton,
meistara Arsenal og Aston Villa,
átti leikinn en tókst ekki að skora.
Mark Patterson gerði síðan afdrifa-
rík mistök, Beckford komst inní
sendingu hans og gerði útum leikinn.
Gavin Peacock hélt viðtekinni
venju — að skora þegar mikið liggur
við. Hann tryggði Chelsea. sigur
gegn Manchester United í deildinni
í september, endurtók leikinn fyrir
rúmri viku og skoraði á 58. mínútu
í bikarnum gegn Wolves í fyrradag,
fjórða mark hans í keppninni.
Samkvæmt veðbönkum eru
möguleikar Chelsea á sigri í bikar-
keppninni einn á móti fjórum, en
United stendur þar betur að vígi,
einn á móti tveimur. Glenn Hoddle
lék með Chelsea í fyrsta sinn síðan
í nóvember, skipti sér inná á 19.
mínútu og stýrði liði félagsins í und-
anúrslit. Það gerðist síðast 1970,
þegar Chelsea vann Watford og síð-
an Leeds í aukaleik í úrslitum.
BAYERN Munchen er með
tveggja stiga forystu í þýsku
deildinni, en iiðið vann Watt-
enscheid 3:1 á útivelli um helg-
ina. „Við vissum að þetta yrði
erfitt, en við erum skrefi nær
meistaratitlinum," sagði Franz
Beckenbauer, yfirþjálfari Bay-
ern.
Fyrri hálfleikur var markalaus, en
Adolfo Valencia frá Kólombíu,
sem hefur skorað í þremur síðustu
leikjum, braut ísinn á 51. mínútu.
Lothar Matthaús bætti öðru við á
65. mínútu og Dieter Frey gerði
þriðja markið fimm mínútum síðar,
en Jörg Bach minnkaði muninn und-
ir lokin.
Barcelona þurfti að hafa mikið
fyrir sigrinum og var 3:2 undir
í hléi, en Romario gerði tvö mörk
um miðjan seinni hálfleik og tryggði
sigurinn. Hann hefur gert 26 mörk
á tímabilinu.
Deportivo, sem var sex stigum á
undan Barcelona fyrir þremur vikum,
hefur aðeins gert eitt mark í síðustu
þremur leikjum. Roberto Santamar-
ia, markvörður Osasuna, varði víta-
spyrnu frá Donato á 53. mínútu.
Real Madrid náði sér á strik á ný
Frankfurt vann Leverkusen 2:0
og er í 2. sæti, en Thomas Doll og
Anthony Yeboah gerðu mörkin. Kais-
erslautern, Karlsruhe, Hamburg og
Duisburg, sem tapaði 2:1 gegn Dort-
mund, eru stigi á eftir Frankfurt.
Meistarar Werder Bremen töpuðu
2:0 heima fyrir Karlsruhe og eru um
miðja deild sex stigum á eftir Bay-
ern. Manfred Bender gerði bæði
mörk gestanna í seinni háifleik eftir
að Norðmaðurinn Rune Bratseth
hafði skorað fyrir heimamenn. Brem-
en hefur ekki náð að sigra í síðustu
fjórum leikjum. „Við gerðum þau
mistök að hanga á boltanum í stað
þess að láta spilið ganga,“ sagði
Otto Rehhagel, þjálfari.
og vann Rayo Vallecano 5:2 í ná-
grannaslagnum. Vicente del Bosque,
sem tók við stjóm liðsins, gerði
nokkrar breytingar. Hann setti Rob-
ert Prosinecki frá Króatíu I fremstu
röð og lét Rafael Martin Vazquez
einnig í byijunarliðið, en þeir höfðu
vermt varamannabekkina í nokkra
mánuði. Emilio Butragueno, sem
hafði verið frá í sex vikur vegna
meiðsla, kom aftur inn og vamar-
maðurinn Jesus Velasco lék í fyrsta
sinn.
Romario með þrennu
BARCELONA gefur ekkert eftir í baráttunni um spænska meist-
aratitilinn og er aðeins tveimur stigum á eftir Deportivo, sem
gerði markalaust jafntefli við botnlið Osasuna. A laugardaginn
sigraði Barcelona ífimmta leiknum í röð, vann Atletico Madrid
5:3, og var Romario frá Brasilíu með þrennu, en Hristo Stoic-
hkov frá Búlgaríu, sem fékk að sjá rauða spjaldið eins og þrír
aðrir leikmenn, gerði tvö mörk.
ÍÞRÚmR
FOLK
■ MEISTARINN Ian Rush og
arftaki hans, Robbie Fowler, skor-
uðu fyrir Liverpool í 150. ná-
grannaslagnum gegn Everton í
deildinni um helg-
ina. Rush hefur
Hennessy leikið 32 Þessara
i Englandi leikja og gert 25
mörk í þeim.
■ NIGEL Clough var settur út
úr liði Liverpool fyrir Fowler og
tók því illa — lét sig hverfa áður
en leikurinn hófst.
■ NEWCASTLE gerði vonir
Swindon um áframhaldandi veru í
úrvalsdeildinni nánast að engu með
7:1 sigri. Newcastle hefur ekki
gert svo mörg mörk í sama leik í
efstu deild í 34 ár.
■ PETER Beardsley gerði tvö
mörk og er þar með kominn með
200 mörk í ensku knattspyrnunni.
■ NORWICH hefur leikið níu leiki
síðan stjórinn Mike Walker fór til
Everton í janúar s.l. án þess að
fagna sigri.
■ TORE Pedersen meiddist á
hné í leik Oldham og Bolton og
verður norski landsliðsmaðurinn
frá næstu mánuði. „Liðböndin æru
farin og hann missir af heimsmeist-
arakeppninni," sagði Joe Royle,
stjóri Oldham. „Gunnar Halle
þurfti einnig að fara í uppskurð svo
við erum ekki vinsælir í Noregi,"
bætti hann við.
■ GLASGOW Rangers á mikla
möguleika á að vinna þrefalt í Skot-
landi í ár eins og í fyrra. Liðið
hefur þegar sigrað í deildarbikarn-
um, er í undanúrslitum í bikarnum
og með fjögurra stiga forystu í
deildinni.
Vildi að jörðin gleypti mig
- sagði Mark Patterson eftir afdrifarík mistök gegn Oldham
ALLA knattspyrnumenn í Englandi dreymir um að leika til
úrsiita í bikarkeppninni á Wembley, en einstakt atvik getur
látið drauminn rætast eða verða að engu. Mark Patterson,
varnarmaður Bolton, gerði mistök, sem urðu tíl þess að Old-
ham komst í undanúrslit. „Ég vildi að jörðin opnaðist og gleypti
mig, sagði hann eftir 1:0 tapið. „Ég var með boltann, en hitt-
’ann illa. Ég óskaði þess að ég fengi tækifæri til að bæta
fyrir mistökin, en vissi að það kæmi ekki. Þetta var það versta
sem hefur komið fyrir mig á ferlinum."
Atvikið gerðist sex mínútum Beckford hefur gert þijú mörk
fyrir leikslok og Bruce Rioch fyrir Oldham í bikamum og vonar
tók varnarmanninn þegar af velli,
en sagðist ekki hafa gert það
vegna mistakanna.
Darren Beckford komst inní
sendingu Pattersons og gerði eina
mark leiksins í kjölfarið. Hefði
hann farið eftir því sem Joe Royle,
þjálfari, hafði sagt honum að gera,
er ekki víst að svona hefði farið.
„Ég reyndi að segja honum að
færa sig á vellinum," sagði Royle.
„Hann sagði mér á eftir að ef
hann hefði farið að mínum ráðum
hefði hann ekki átt möguleika á
að komast inn( sendinguna."
að heppnin, sem hafi ekki fylgt sér
hjá Norwich, verði áfram til stað-
ar. „Ég var í liði Norwich, sem
komst í undanúrslit fyrir tveimur
ámm, en var í banni í tapleiknum
gegn Sunderland. Ég fékk að sjá
rauða spjaldið í leik með varaliðinu
eftir að hafa gert þijú mörk.“
Alex Ferguson, stjóri Manchest-
er United, sagði að félagið sætti
sig ekki við brottrekstur Peters
Schmeichels og myndi veija mál
sitt. „Við höfum skoðað atvikið á
myndbandi og okkur finnst að
Peter komi út og ætli að sparka
boitanum. Boltinn fór í hönd hans
og við nýtum rétt okkar til að
áfrýja brottrekstrinum. Ég minnist
þess að Ian Wright hjá Arsenal
var bókaður í þriðju umferð, en
áfrýjunin var tekin til greina og
við vonum að réttlætið nái fram
að ganga.“
Mark Hughes gaf United tóninn
eftir brottreksturinn, en litlu mun-
aði að hann yrði tekinn af velli.
Ferguson tók sér góðan tíma til
að ákveða hver yrði að fara af
velli fyrir varamarkvörðinn. Hann
ætlaði að kalla á Hughes, en skipti
um skoðun og tók varnarmanninn
Paul Parker útaf. „Þegar þarf að
gera breytingar við þessar kring-
umstæður er eðlilegast að skipta
framheija útaf. Ég hélt að það
yrði ég en er ánægður með að
hafa fengið að vera áfram með.
Rauða spjaldið kom á óvart, en ef
til vill hjálpaði það okkur meira
en Charlton."
ÍÞR&mR
FOLK
■ RÚSSNESKA knattspyrnusam-
bandið gerir sér vonir um að ná
samkomulagi við bestu leikmenn
þjóðarinnar, en þeir hafa ekki gefið
kost á sér í landsliðið vegna þess
að þeir vilja Anatoly Byshovets
aftur sem landsliðsþjálfara, hærri
laun og bættar æfingaaðstæður.
■ VYACHESLAV Koloskov, for-
maður, sagði að Byshovets væri
sérlegur ráðgjafi Knattspyrnusam-
bands Suður-Kóreu og því ekki á
lausu, „en fyrir næsta leik [gegn
írlandi 29. marsj bjóðum við öllum
leikmönnunum að koma og ræða hin
atriðin."
■ VIKTOR Onopko, fyrirliði
Spartak Moscow og knattspyrnu-
maður síðasta árs, sagðist ekki hafa
neitt á móti núverandi þjálfara, „en
ég spila ef allir þeir bestu gera það.
Ég sagði strax að málið snerist ekki
um þjálfarann heldur peninga. Pen-
inga, peninga, peninga."
AC Milan með átta stiga forskot
AC Milan er á góðri leið með
að verða ítalskur meistari í
knattspyrnu þriðja árið í röð. í
fyrradag vann liði Sampdoria
1:0 og er nú með átta stiga
forystu á toppnum, en sjö um-
ferðir eru eftir í deildinni.
Daniele Massaro gerði eina mark
leiksins með skalla um miðjan
fyrri hálfleik, áttunda mark hans á
tímabilinu. Sampdoria, sem er eina
liðið sem hefur sigrað Milan á tíma-
bilinu, var nálægt því að skora á
fyrstu mínútu, þegar Ruud Gullit,
fyrrum leikmaður Milan, opnaði fyr-
ir Roberto Mancino, en fyrirliðinn
hikaði og Paolo Maldini náði að kom-
ast fyrir skotið. „Munurinn á Milan
og öðrum er sá að liðið eyðileggur
svona færi,“ sagði Gullit.
Milan átti leikinn og var Dejan
Savicevic í aðalhlutverki, en tvisvar
á fyrsta hálftímanum kom Pagliuca
í veg fyrir að hann skoraði með
góðri markvörslu. Fabio Capello,
þjálfari, stjórnaði Milan í 100. sinn
í deildinni, en hann sagði að keppn-
inni væri ekki lokið. „Við tölum ekki
um þriðja titilinn í röð fyrr en ekk-
ert lið getur náð okkur að stigum,"
sagði þjálfarinn. „Við höldum okkur
við jörðina."
Juventus gerði aðeins 1:1 jafn-
tefli við Genúa. Alessandro Del Pi-
ero, sem lék níunda leik sinn fyrir
Juve, skoraði 10 mínútum fyrir hlé
eftir gott spil Robertos Baggios og
Giancarlos Marocchis. Hann var síð-
an rekinn af velli í seinni hálfleik
og Fabio Galante náði að jafna gegn
10 mönnum Juve.
Parma hitaði upp fyrir Evrópu-
leikinn gegn Ajax annaðkvöld og
vann Inter 4:1. Gianfranco Zola
gerði tvö fyretu mörkin og er marka-
hæstur í deildinni með 16 mörk eins
og Baggio, en síðan skoraði Faustino
Asprilla frá Kólombíu og Svíinn
Tomas Brolin bætti fjórða markinu
við áður en Ruben Sosa minnkaði
muninn úr vítaspyrnu.
Andrea Silenzi, sem hafði ekki
skorað í rúma tvo mánuði, gerði
bæði mörk Tórínó í 2:1 sigri gegn
Cagliari, en Tórínó mætir Arsenal í
Evrópukeppni bikarhafa á Highbury
í kvöld.
Roma gerði markalaust jafntefli
við Reggiana og er í fallhættu. Liðið
hefur ekki sigrað í síðustu 14 leikj-
um.