Morgunblaðið - 05.08.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.08.1994, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1994 ■ FÖSTUDACUR 5. ÁGÚST BLAÐ KNATTSPYRNA Morgunblaðið/Golli KNATTSPYRNA Landsleikur gegn Eistum á Akureyri ÆT Islenska landsliðið í knattspyrnu leikur landsleik gegn Eistiandi á Akureyri 16. ágúst. Að sögn Snorra Finnlaugssonar framkvæmdastjóra KSÍ voru það Eistar sem óskuðu eftir því að fá að ieika iands- leik gegn íslandi á þessum tíma. Átta leikmenn sem leika með liðum erlendis hafa verið boðaðir til landsins vegna leiksins, en hann er hugsaður fyrst og fremst sem æfingaleikur fyrir landsleikinn gegn Svium á Laugardalsvelli í undan- keppni EM 7. september nk. Leikmennimir átta eru þeir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir, Eyjólfur Sverrisson, Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stefánsson, Þorvaldur Örlygsson, Kristján Jónsson og Þórður Guðjónsson. Líkur er á því að þeir geti fengið sig lausa þar sem 17..ágúst er alþjóðlegur landsleikja- dagur. Ennfremur er Ijóst að leikmenn sem leika með liðum sínum í undanúrslitum bikarkeppni KSÍ daginn eftir gefa ekki kost á sér. HANDKNATTLEIKUR Kristján og Hóðinn mætast fyrst Kistján Arason er byijaður að þjálfa úrvals- deildarliðið Dormagen á fullum krafi og æfa leikmenn liðsins tvisvar á dag undir hans stjórn. „Við höfum æft tvisvar á dag að undanfömu og höfum þurft að haga æfingunum í samræmi við hitabylgjuna sem er hér. Fyrri æfíngin er klukkan níu á morgnana, en seinni æfingin um kvöldmatar- leitið — til að vera laus við mesta hitann,“ sagði Kristján. Dormagen leikur fyrsta leik sinn í úrvalsdeildinni 17. september á heimavelli gegn Dusseldorf, þannig að Kristján og Héðinn Gilsson eigast við i fyrsta leik. FRJALSIÞROTTIR / NM Magnús Aron Hallgrímsson varð þriðji á Norðurlandamóti unglinga í tugþraut í flokki 17-18 ára sem haldið var í Finnlandi 2. til 3. ág- úst. Hann hlaut 6.794 stig sem jafnframt er íslands- met í flokki 17-18 ára. Fyrra metið átti Þráinn Hafsteinsson, núverandi landsliðsþjálfari. Magnús var í fimmta sæti eftir fyrri daginn en skaust upp um tvö sæti þann síðari og endaði I þriðja sæti sem verður að teljast góður árangur. Hann hljóp 100 metrana á 11,94, stökk 6,31 í langstökki, varpaði kúlu 13,15 metra, fór 2,03 metra í hástökki og hljóp 400 metra á 54,57 sekúndum. 110 metra grindahlaupið hljóp Magnús á 16,33 sekúndun, kast- aði kringlunni 42,02 metra, fór 3,90 metra í stangar- stökki, kastaði spjóti 53,60 metra og hljóp loks 1500 metra hlaup á 4 mínútum 33,95 sek. Hart barist ÞAÐ var hart barist í Kefl- vík í gærkvöldi, þar sem Keflvíkingar náðu að tryggja sér jafntefli, 2:2, gegn KR tveimur mín. fyrir leikslok með stórglæsi- legu marki MarkoTansic beint úr aukaspyrnu. Hér á myndinni fyrir ofan berj- ast Kristinn Guðbrands- son, miðvörður Keflavíkur, og Daði Dervic, KR, um knöttinn. íslandsmeistar- arnir frá Akranes hafa tek- ið stefnuna á þrennu, en þeir náðu sex stiga for- skoti í 1. deild með því að skjóta Stjörnuna niður, 4:1, á sama tíma og FH- ingar máttu þola tap fyrir Valsmönnum, 0:1, íKapla- krika. ■ Leikirnir / C2.C3 ROÐUR Asta Kristín valin til keppni á Samveldisleikunum ÁSTA Kristín Reynisdóttir, 22 ára gömul stúlka sem fyrir skömmu tryggði sér breska meistaratitilinn í róðri í tveggja manna bát, hefur verið valinn ásamt stöllu sinni Claire Nisbet tii keppni fyrir Skotlands hönd á Samveldisleikunum sem haldnir verða í Kanada i lok ágúst. Ekki er þó endanlega Ijóst hvort hún muni keppa, þar sem hún þarf að gerast bresk- ur ríkisborgari til að öðlast keppnisrétt. Asta hefur búið í Skotlandi sam- fellt 1 fímm ár í september nk., en forsenda fyrir þv! að fá breskan ríkisborgararétt er sam- felld búseta í fimm ár. Hún sótti um að gerast breskur ríkisborgari fyrr á þessu ári, en fékk fyrir skömmu þau svör að hún uppfyllti ekki umrætt skilyrði fyrr en í næsta mánuði. Keppnin fer fram 29. ág- úst, og því munar aðeins nokkrum dögum að hún uppfylli skilyrðið á keppnisdeginum. Ásta sagði þetta mjög bagalegt, þar sem hún hafði stefnt að því alllengi að komast á Samveldisleikana, og fengið þau svör að hægt væri að hliðra til umræddum reglum. Svarið frá út- lendingaeftirlitinu hefði ekki borist henni fyrr en fyrir skömmu, og nú væri erfitt að vinna í málinu vegna sumarleyfa. Hún sagðist hafa haft samband við íslenska sendiráðið í London vegna þessa, og ætlar það Morgunblaðið/John H. Shore að athuga málið. ÁSTA og Claire Nlsbet á fullri ferð í Henley keppninni á Thames ánni fyrr ------------------------------------------- í sumar. Þar sigruðu þær líkt og á breska meistaramótinu. ■Fimm ára sigurganga / C4 KNATTSPYRNA: STRÁKARNIR LÖGÐU ENGLENDINGA ÁNM/C3

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.