Morgunblaðið - 14.08.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.08.1994, Blaðsíða 1
GLÆSILEG UR BUICK RIVIERA-PACKARD180ARGERÐ1941 - BESTIBÍLL ÍHEIMI? - REYNSL UAKSTUR Á LADA SPORT-NÝJUM POLO SPÁÐ HARÐRISAMKEPPNI BiLLÍNN SEM BREYTIR HEIMINUM -ýktur smábíll 838.000 Ðílaumboðið hf Krókhálsi 1 110 Reykjavík, sími 876633 JltrogiiiiMbifrijfr SUNNUDAGUR14. AGUST 1994 BLAÐ : Mest kevoti ! bfll á íslandt i síöastliöin ! flögur ár r 1 : ® TOYOTA < » Tákn um gazði VW-bjalla næstu aldar í Brasilíu DEILD Volkswag'en-fyrirtækis- ins í Brasilíu býr sig undir að setja á markað nýjan bíl, sem það vonar að verði eins vinsæll í Rómönsku Ameríku og „bjallan" fræga á sínum tima. Bíllinn nefnist AB9 og er tveggja dyra. Hann á að höfða til 200 millj- óna manna á markaðssvæði frí- verzlunarbandalags Argentínu, Brasilíu, Paraguay og Uruguay, Mercosur. Þetta verður bíll 21. aldar í Róm- önsku Ameríu að sögn Wolfgangs Winklers, forstöðumanns vinnu- hóps, sem hannaði AB9 fyrir Volkswagen í verksmiðju fyrirtæk- isins skammt frá Sao Paulo. AB9 leysir af hólmi svokallaðan Gol, ljótan en traustan bíl, sem Volkswagen framleiddi í rúm 20 ár með aðeins smávægilegum breytingum. Volkswagen hefur varið tæpum 400 milljónum dollara til verkefnis- ins og viðurkennt er innan fyrirtæk- isins að með framleiðslu bílsins sé tekin mikil áhætta. Brasilíudeild Volkswagens hefur haft um þriðj- ung tekna sinna af Gol. Gol verið söluhæsti bílllnn „Þrátt fyrir takmarkanir sínar hefur Gol verið söluhæsti bíllinn í Brasilíu undanfarin átta ár,“ sagði Winkler. AB9, sem verður kynntur í september, verður rúmbetri og mun kosta 7,200 dollara eða álíka mikið og Gol. Talið er að rúmlega tvær milljón- „bjöllur“ af þremur milljónum, sem alls voru framleiddar í Brasilíu eftir 1955, séu enn í notkun. ■ Aukin bíla- framleidsla FRAMLEIDDIR voru 274.048 bílar í Norður-Ameríku (Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó) i síðustu viku sem er tæpum 12% meira en í vik- unni þar á undan. Það sem af er þessu ári hafa verið framleiddir 8,926,898 bílar í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Fyrstu sjö mán- uði ársins framleiddi Chrysler tæp- ar 1,5 milljónir bíla, Ford tæpar 2,5 milljónir, General Motors tæpar 3 milljónir, Honda tæp 307.000 bíla, Hyundai 12.417 bíla, Nissan 354.300 bíla, Toyota 185.000 bíla og VW 132.000 bíla. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Tíu Micra til E .J. Skúlasonar INGVAR Helgason hf., umboðsaðili Nissan, afhenti í vikunni Einari J. Skúlasyni tíu Nissan Micra 1300 LX bifreiðar og er þetta einn stærsti samn- ingurinn sem Ingvar Helgason hf. hefur gert við einkaaðila. Verómæti samningsins er um 10 milljónir króna. Bílarnir eru þriggja dyra vsk-bílar með grind. F.v. eru: Bjarni Ásgeirsson fyrir hönd Einars J. Skúlasonar, Aad Van Dijk frá Nissan í Hollandi sem var Ingvari Helgasyni hf. innan handar um gerð samningsins og lengst til hægri er Ingvar Helgason forstjóri. Sérhönnun fyrir konur og roskna BÍLAFRAMEIÐENDUR huga nú í æ ríkari mæli að þörfum og kröfum stórs hóps kaupenda, þ.e. eldri ökumanna og kvenna. Hlutfall þessa kaupendahóps stækkar óðum og hefur hann sent hönnuðum skýr skilaboð. Hann vill ekki mælaborð með litlum stjórnrofum og illa stað- settum mælum. Hann vill ekki þurfa að stunda loftfimleika til að komast inn og út úr bílnum og sætin eiga ekki að vera form- uð og með grófu áklæði. Þessi hópur vill stærri mæla, stærri rofa sem auðveldara er að eiga við, flöt sæti með fíngerðu áklæði og léttari hurðir sem opn- ast betur. Jerry Hirshberg varafor- stjóri Nissan Design International segir að konur séu ekki síður hrifn- ar af fallegum bílum en karlar. Karlar sætti sig við lítilsháttar óþægindi í innanrými bílsins ef hann er á annað borð rennilegur að utan. Það sætti konur sig ekki við. Þær krefjist vissra grundvalla- þæginda. Af þessum sökum hafa margir bilaframleiðendur boðið upp á aðra útfærslu í hönnun á innanrými bíla sem höfða frekar til kvenna og eldri ökumanna. Verð frá aðeins 1.856.000 kr. Honda Accord árgerð 1995 Komdu til okkar í Vatnagarða og reynsluaktu þessum glæsilega bíl -það sannfærir þig!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.