Morgunblaðið - 20.08.1994, Side 4

Morgunblaðið - 20.08.1994, Side 4
4 C LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ Kvikmyndaframleiðandinn James Schamus stofnaði fyrirtækið Good Machine með félaga sínum Ted Hope árið 1991 og ekki er hægt að segja annað en að þar hafi verið tekið heillaskref. Fyrirtæk- ið hefur áunnið sér mikla viðurkenn- ingu og traust á sínu sviði og fram- leiðir kvikmyndir sem eiga það þrennt sameiginlegt að kosta lítið, hljóta lof gagnrýnenda og skila hagnaði. Þær hafa þrisvar sinnum unnið til fyrstu verðlauna á Sund- ance-kvikmyndahátíðinni á undan- förnum fjórum árum og nýjasta kvik- mynd þeirra, Brúðkaupsveislan (Wedding Banquet) sem sýnd er um þessar mundir í Háskólabíó, vann Gullþjörninn í Berlín árið 1993 og var tilnefnd til Óskarsverðlauna. Brúðkaupsveislan var auk þess sú mynd sem skilaði hvað mestum hagnaði hlutfallslega í heiminum árið 1993. Hún kostaði aðeins 750 þúsund dollara í framleiðslu en skil- aði hagnaði upp á rúmar 28 milljón- ir dollara. Blaðamaður Morgun- blaðsins tók James Schamus tali þegar hann kom hingað til lands fyrr í sumar. Framleiðir myndir um allan heim Að sögn James Schamusar eru margar ástæður fyrir komu hans hingað til lands. í fyrsta lagi er það starfssvið hans sem kvikmynda- framleiðanda að ferðast vítt og breitt um heiminn og kynna sér kvik- myndagerð í hverju landi fyrir sig. Hann hefur tekið þátt í framleiðslu margra kvikmynda utan Bandaríkj- anna, þannig að þessi viðleitni hefur komið honum að góðum notum. Önnur ástæða fyrir komu hans er sú að vinur hans, Jim Stark, er að vinna að kvikmyndinni Cold Fever með Friðrik Þór Friðrikssyni og hann hefur því heyrt margt áhugavert um íslenska kvikmyndagerð. Síðast en ekki síst er hann kominn hingað til lands til að halda námskeið fyrir ís- lenska kvikmyndagerðarmenn. Markhópur þarf að vera til staðar Schamus var spurður hver væri galdurinn á bakvið velgengni hans í kvikmyndagerð. „Eini galdurinn sem ég beiti er sá að einblína á hæfileikaríka leikstjóra og handrits- höfunda og afhenda þeim verkefni sem höfða til ákveðins markhóps. Það þarf ekki að vera stór markhóp- ur. Hann má bara ekki vera of lítill og hann verður að vera til staðar.“ Er þá vitleysa hjá íslendingum að reyna að sigra heiminn með hverri mynd? „Það fer eftir því hvaða kvik- mynd er um að ræða. Ef um sigur- vænlega mynd er að ræða, er það vitaskuld af hinu góða. En frá sjónar- horni framleiðandans er betra að setja markið aðeins lægra og gera ódýrar kvikmyndir sem ná að skila hagnaði." Kvikmyndir sem kosta rúma milljón Schamus hefur nokkur góð ráð til kvikmyndagerðarmanna á ís- landi. „Fyrsta ráðið er að hlusta ekki á fólk eins og mig," segir hann og brosir. „En á námskeiðinu í kvöld ætla ég að fjalla um hugmynd sem ég fékk, hvernig hægt sé að fram- Professor í kvikmyndagerð James Schamus hefur mikla á íslenskri kvikmynda- gerð. Morgunblaðið/Golli leiða kvikmynd fyrir u.þ.b. 25 þús- und dollara eða rúma eina og hálfa milljón króna." Það eina sem þarf að sögn Schamusar er að leigja upptökutæki og taka myndina á átta eða sextán millimetra spólur, vinna þær á stafrænu klippiborði og senda síðan upptökuna til Sviss þar sem hún er afrituð yfir á kvikmynda- spólu. „Ef íslendingar fara þessa leið er mjög ódýr og gæti innrás íslenskrar kvikmyndagerðar á al- þjóðlegan kvikmyndamarkað fylgt í kjölfarið." Tungumál eyðileggja ekki góða kvikmynd Schamus segist hafa fylgst spenntur með velgengni kvikmynd- ar Friðriks Þórs Friðrikssonar, Barna náttúrunnar. „Þótt hún sé bæði mjög íslensk kvikmynd og persónu- leg, höfðar hún til áhorfenda um allan heirn." Þegar hann er spurður hvort hann telji að kvikmyndir eins og Börn náttúrunnar yrðu vinsælli ef þær hefðu enskan texta, segist hann ekki halda það. „Eina ráðið sem ég get gefið í því sambandi, er að þið fylgið eftir vinsælustu kvikmynd sem ég hef gert og fram- leiðið allar ykkar myndir á kín- versku," segir Schamus og hlær. Hann heldur áfram: „Góð kvikmynd er góð kvikmynd á hvaða tungu- máli sem er.“ Meira þarf til en fallega náttúru Því hefur oft verið fleygt að ís- lensk náttúra sé sem sköpuð fyrir kvikmyndir. Schamus hristir aðeins hausinn yfir því og segir: „Hún er vissulega sköpuð fyrir póstkort, pla- köt og dagatöl. Kvikmyndir hafa á hinn bóginn söguþráð og fjalla aðal- lega um fólk. Ef sagan tengist fal- legri náttúru er það svo sem af hinu góða, en þótt kvikmynd hafi nátt- úrufegurð til að bera, tryggir það ekki gæði hennar. Margar afbragðs- myndir gerast í mjög Ijótu umhverfi og það er rangt að ætla að gos- hver, fjall, snjór eða þoka í kvikmynd sé nóg til að heilla áhorfendur." Stundarbrjálæði og heppni Velgengni kvikmyndarinnar Brúð- kaupsveislan, sem Good Machine framleiddi, má kannski einna helst þakka tilnefningunni sem hún hlaut til Óskarsverðlauna. Schamus gefur þó ekki mikið fyrir slíkar verðlauna- afhendingar. Hann segir að þær séu helst til þess brúkanlegar að koma myndum á framfæri, en það sé al- gjör tilviljun hver verði fyrir valinu. „Öll þessi verðlaun, viðurkenningar og kvikmyndahátíðir einkennast af Atriði úr kvikmyndinni Brúðkaupsveislan sem Schamus framleiðir. stundarbrjálæði og heppni," stað- hæfir hann og sjá má að hann er kominn á skrið, „enda getur enginn nokkru sinni spáð fyrir um sigurveg- arann. Þessi uppþot hafa enga merkingu og snúast í besta falli um fólk í kjólfötum og kvöldkjólum sem situr við borð og segir: Ahh, þetta er góð mynd. Veitum henni verð- laun.“ Duttu í lukkupottinn Uppgangur Schamusar í Holly- wood hefur verið hraður. Hann byrj- aði árið 1987 sem aðstoðarmaður framleiðanda í Hollywood. „Ég sá um að fylla á kaffivélina og annað því um líkt,“ segir hann sposkur á svip. Hann stofnaði síðan fyrirtækið Good Machine með Ted Hope árið 1991. Schamus segir að fyrirtækið hafi ekki unnið neinn stórsigur held- ur marga smásigra og það sé af hinu góða. Duttu þeir síðan í lukku- pottinn með síðustu kvikmynd sinni? „Já, að vissu marki. Vinsæld- ir Brúðkaupsveislunnar hafa verið ótrúlega miklar og enginn vegur er að leggja á ráðin um svona vel- gengni. Það eina sem maður getur gert er að búa til kvikmyndir eftir kvikmyndir eftir kvikmyndir. Ef með- al allra þessara kvikmynda leynist ein Brúðkaupsveisla, er það mikil blessun. Á hinn bóginn er ekki hægt að reiða sig á það. Maður á bara að þakka þeim sem situr við stjórn- völinn, hver sem það nú er, og halda áfram að framleiða kvikmyndir." Prófessor og framleiðandi Schamus er því næst spurður hvort hann hafi alltaf ætlað að leggja kvikmyndagerð fyrir sig. Hann svar- ar að bragði: „Nei, ég hef enn enga hugmynd um hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór.“ Hver veit? Eitt er víst að hann þarf ekki að kvíða verkefnaskorti í framtíðinni því ásamt því að vinna að kvikmynda- gerð er hann í fullu starfi sem pró- fessor við Colombia-háskólann, þar sem hann kennir sögu kvikmynda- gerðar. Hann segist hafa gaman af báðum störfum: „Kvikmyndagerðin snýst fyrst og fremst um viðskipti, en með prófessorsstöðunni gefst mér tækifæri til að lesa, hugsa og tjá mig á ólíkan hátt.“ Þolir ekki kvikmyndastjörnur Þegar Schamus var spurður hvaða leikara hann myndi ráða ef hann hefði ótakmarkaða peninga til umráða, hugsaði hann sig um í fyrsta skipti í viðtalinu. Síðan sagð- ist hann frekar leggja áherslu á að ráða hæfa leikstjóra og handritshöf- unda. „Kvikmyndastjörnur er ágæt- ar út af fyrir sig, en flestar eru alveg ósamstarfhæfar og algjör martröð að sitja uppi með þær. Myndir þú til dæmis vilja búa með Gretu Garbo? Nei, ég hélt ekki. Maður nýtur þess að sjá hana í kvikmynd og kann að meta hana sem leikkonu, en vill helst ekki kynnast henni frekar. Það væri jafnvel of mikið fyrir mig að fara á milli hæða í sömu lyftu og hún.“ Matur og kynlíf Nýjasta kvikmynd Schamusar nefnist „Eat, Drink, Man, Woman“ og hún var frumsýnd í Bandaríkjunum í lok júlí. Henni er leikstýrt af Ang Lee sem gerði Brúðkaup- sveisluna. „Eins og titill- inn gefur til kynna fjallar hún um það tvennt í lífinu sem sumir fá nóg af en sumir aftur á móti aldrei, þ.e. mat og kynlíf,“ segir Schamus. Forsýn- ingum er nýlokið á Cannes-kvik- myndahátíðinni og hún hefur hlotið meiri dreifingu heldur en Brúðkaup- sveislan hlaut á sínum tíma. Scha- mus segist vonast til að hún gefi Brúðkaupsveislunni ekkert eftir. Ang Lee skrifaði handritið að mynd- inni í samvinnu við Schamus og hún er tilölulega ódýr í framleiðslu því hún var tekin í Tapei í Taiwan. Hún var fullgerð í Bandaríkjunum og kostaði aðeins eina og hálfa milljón dollara í framleiðslu. Nú má glöggt greina að Schamus er farinn að ókyrrast í sæti sínu, enda á námskeiðið að vera byrjað. Þrátt fyrir það sleppur hann ekki við að svara einni sígildri spurningu. Hvernig líkar honum dvölin á ís- landi? „Mér líður mjög vel á íslandi. Ég dvelst hér á landi með eiginkonu minni og tíu ára dóttur. l'sland er barnavænt land. Hér eru leikgarðar, grasflatir, endur og dýragarður, í stuttu máli; allt sem barn getur ósk- að sér. Stúlkan okkar skemmtir sér konunglega og ef henni finnst gam- an, finnst okkur gaman." Frá íslandi ferðast fjölskyldan síðan til Dan- merkur, en eiginkona Schamusar vinnur fyrir Juvenile-bókaforlagið. Talar Schamus þá dönsku? „Ja, jeg snakker lidt dansk." Annars segist hann ekki tala mörg tungumál. „Sjónvarp er fyrst í röðinni og síðan kemur enska.“ P. H. B HÓLMFRÍÐUR Þóroddsdóttir óbóleikari, Darren Stonham fagottleikari og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari munu leika í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þriðjudag- inn 23. ágúst næstkomandi. Aefnisskrá tónleikana eru verk eftir G. Ph. Telemann, Niels Viggo Bentzon, Ferd- inand David og Francis Poulenc. Tónlistarmennirnir hafa starfað saman í rúmt ár og haldið fjölda tónleika. Greinarhöf- undur hafði samband við Hólmfríði og spurð- ist fyrir um tónleikahaldið og samstarf þeirra félaga. „Eg og Sólveig höfum spilað saman síðan árið 1991“ segir Hólmfríður „en síðastliðið haust flutti Darren til landsins og gekk hann þá til liðs við okkur. Við höfum spilað mikið saman meðal annars á Norðurlandi og á ár- legri tónlistarhátíð í Færeyjum sem nefnist Sumartónar. Við höfðum samband við for- svarsmann hátíðarinnar og fengum boð um að taka þátt í henni. Þetta er sama hátíðin og Sinfóníuhljómsveitinni var boðið á í sumar. Þá daga sem hátíðin stendur yfir eru tón- leikar haldnir vítt og breitt um eyjarnar. Við spiluðum í Þórshöfn en jafnframt í litlum bæ Morgunblaðið/Sverrir Sóiveig Anna Jónsdóttir, Darren Stonhan og Hólmfríður Þóroddsdóttir LISTASAFN SIGUR- JÓNS ÓLAFSSONAR ðbó og fagott sem heitir Leirvík. Það var sérlega gaman að spila í Þórshöfn enda var aðstaða þar til fyrirmyndar. ( Leirvík var aðstöðunni fremur ábótavant en þar spiluðum við í köldum og litlum íþróttasal með lélegum hljómburði. Áhugi og góð aðsókn íbúa Leirvíkur á tónleik- unum gladdi okkur. Það var skemmtilegt að sjá hve öflug tónlistaruppbygging á sér stað í Færeyjum og að heyra verk ungra færey- skra tónskálda sem eru mörg hver mjög góð Aðspurð um efnisskrá tónleikanna í Sigur- jónssafni, sagði Hólmfríður: „Við val á efnis- skrá höfum við fjölbreytni í huga, Fyrstu tvö verkin að þessu sinni eru eftir eitt af höfuðtón- skáldum Þýskalands Georg Philipp Telemann en hann er talinn einn helsti fulltrúi rókókótón- listar. Verkin eru tvær sónötur, annars vegar fyrir óbó og hins vegar fyrir fagott. Til mótvægis við tónsmíðar Telemanns verður flutt verk eftir danska nútímatónskáld- ið Niels Viggo Bentzon. Verk hans er í tveim- ur þáttum, sá fyrri er rómantískur og rólegur en síðari hlutinn er hraður dans ef svo má segja. Á efnisskránni er einnig verk eftir sviss- neska tónskáldið Ferdinand David sem uppi var á nítjándu öld. Verkið var upprunalega skrifað fyrir fagott og hljómsveit en verður flutt í útsetningu fyrir fagott og píanó. Að endingu flytjum við verk eftir tónskáld- ið Francis Poulenc en hann er í hópi þeirra sem ruddu nýklassíkinni braut í franskri tón- list. Nefnist verkið „Tríó“ en það er eitt ör- fárra verka sem skrifuð hafa verið fyrir þessa tegund tríóa. Verkið er létt og skemmtilegt en að mörgu leyti gífurlega krefjandi, sérstak- lega þó píanóhlutinn. Efnisskrá þessara tón- leika er svipuð og þeirra tónleika sem við héldum í Færeyjum. Við gerðum þó smá breytingar því við vildum spreyta okkur á einhverju nýju til gamans. Við höfum spilað sérstaklega mikið saman síðustu mánuði og má segja að við séum nú að Ijúka sumarstarfinu. Við höldum von- andi áfram samstarfinu en við höfum ekki neitt sérstakt verkefni í augsýn. Hvað gerist í vetur er óráðið en ég spila í öllu falli með Sinfóníuhljómsveitinni þar sem ég er í fullu starfi. Sólveig Anna og Darren munu fást við kennslu næstu mánuði. Við vonumst þó til að geta spilað saman í vetur því það er sjaldan að óbó og fagott fái að njóta sín í flutningi á einleiksverkum hérlend- is.“ E. Ö. G

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.