Morgunblaðið - 25.08.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 25.08.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994 C 7 SUNINIUDAGUR 28/8 Knattspyrnumaðurinn Ryan Giggs Rólyndur og stórefnilegur RYAN Giggs er einn efnilegasti knattspyrnumaður sem komið hefur fram í Bretlandi síðastliðna tvo ára- tugi. Markmaður Blackburn, Tim Flowers, hefur ekki ósjaldan þurft að tína bolta frá Giggs úr netinu. „Það er skelfilegt til þess að hugsa hvers hann er megnugur,“ sagði Flow- ers í kjölfar viðureigna gegn Manc- hester United á síðasta leiktíma- bili. „Hann nær boltanum til sín meðan hann er í vörn og stingur andstæðingana af. Hann hleypur upp völlinn eins og snákur. Maður veit aldrei hvort hann ætlar að smeygja sér sjálfur inn í teyginn, eða fara út á kant og gefa fyrir markið," segir Flowers. Snarpur og óútreiknanlegur Warren Barton, leikmaður Wimbledon og liðsmaður enska landsliðsins, hefur einnig séð talsvert til Giggs á vellinum. „Hann er afar sérstakur,“ segir Barton. „Hann hefur snerpuna, vald á boltanum og frábært jafnvægi. Allt til alls. Ég hef leikið gegn honum fimm eða sex sinnum og alltaf átt í jafn miklum vand- ræðum. Auk þess er hann mesta hið prúðmenni og það er sönn ánægja að leika á móti honum,“ segir hann. Og því verður ekki neitað. Hraðinn er einn af kostum Giggs. Ein ástæða þess að Manchester United vann deild- ina og bikarinn á síðasta leiktímabili og meistaratitilinn árið þar áður var ekki síst sú ógnun sem af leikmönnunum stóð, sama hvort þeir voru í sókn eða vöm. Ef andstæðingarnir misstu bolt- ann á vallarhelmingi United vom Giggs og Kantsjelskí á hinum vængnum fljót- ir upp á lagið. Frábær knatttækni En ekki er allt fengið með snerp- unni. Hlauparinn Linford Christie myndi vart komast í c-lið Port Vale. Ryan Giggs hefur hinsvegar full- komna stjórn á boltanum þótt hann sé á mikilli ferð. Engu er líkara en að boltinn sé límdur við fæturna á honum. Þótt hann spyrni boltanum langt á undan sér, hættulega nálægt vamarmanni andstæðingsins, missir hann að því er virðist aldrei stjórn á knettinum, sama hversu hratt hann fer. En Giggs reiðir sig ekki einvörðungu á snerpuna. Hann er jafn ógnvekjandi í kyrrstöðu og þegar hann nær boltanum á ferð. Eina stundina er hann umkringdur varnarmönnum en þá næstu er hann sloppinn og ennþá með boltann. Engin leið er að átta Ryan Giggs fæddist í Card- iff og var einungis 17 ára þeg- ar hann lék sinn fyrsta lands- leik fyrir Wales. Fjölskyldan settist að í Lancashire og Giggs tók ástfóstri við United. En það vom fjandvinirnir í Manchester City sem urðu fyrstir til þess að fá Giggs til liðs við sig. Það var svo árið 1987, þegar hann var 13 ára, að besta vinkona móður hans fór fögr- um orðum um snilld Ryans við blaðasala í grenndinni, Harold Woods. Svo vildi til að Woods var sífellt á höttunum eftir nýju blóði fyrir United og fór því um hann há- stemmdum lýsingar- orðum við Alex Fergu- son, sem þá var nýorð- inn framkvæmdastjóri. Ákvað hann að gefa Giggs tækifæri og sér vart eftir því. Svo fór að lokum að United lokkaði Giggs í burtu frá City. Skömmu síðar reyndi hann sig í aðalliði félagsins, eða árið 1991. Þúsundir ástarbréfa í dag, þremur ámm síðar, er óhætt að segja að Giggs hafi lagt fótboltaheiminn að fótum sér. Hann er í senn myndarlegur og hæfileika- rikur og hefur þegar unnið sér inn nógu mikla peninga til að endast út ævina. Áhangendur liðsins dýrka hann sem guð og honum berast um 1.000 ástarbréf á viku. Og þótt hann sé aðeins tuttugu ára hefur hann komist til meiri metorða en margir leikmenn gera á heilli ævi. Eins og málum er háttað er Giggs ákaflega rólyndur ungur maður, ef marka má þau viðtöl sem Alex Ferguson hefur leyft honum að gefa. Og þótt gula pressan leiti í örvæntingu að staðfestingu á hinu gagnstæða er Giggs á föstu og býr enn hjá móður sinni. Hann er því allsendis ólíkur manninum sem margir líkja honum við, George Best. Og vonandi líður ekki á löngu þar til sagt verður um efnilega yngri leikmenn, „hann gæti verið næsti Ryan Giggs“. UTVARP Rás 1 klukkan 14.00. Skáldii á Borg. Í tilefni Ijááasýningar Egils Skalla- grímssonar á Kjarvalsstöðum. Umsjón: Jón Karl Helgason. Teikning úr safnriti íslendingasagna. RÁS 1 FM 92,4/93,5 8.07 Morgunandakt. Séra Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatns- firði, flytur ritningarorð og bæn. 8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni. 8.55 Fréttir á ensku. 9.03 Á orgelloftinu. 10.03 Reykvískur atvinnurekstur á fyrri hluta aldarinnar. 9. og lokaþáttur: Kreppuiðnaður. Um- sjón: Guðjón Friðriksson. (Einn- ig útvarpað nk. þriðjudags- kvöld.). 10.45 Veðurfregnir. 11.00 Messa í Grundarfjarðar- kirkju. Prestur: Séra Sigurður Kr. Sigurðsson. (Hljóðritað í maí sl.). 12.10 Dagskrá sunnudagsins. 12.45 Veðurfregnir, auglýsingar og tónlist. 13.00 MA kvartettinn Umsjón: Margrét Erlendsdóttir. (Frá Akureyri). 14.00 Skáldið á Borg. í tilefni ljóðasýningar Egils Skalla- grímssonar á Kjarvalsstöðum. Umsjón: Jón Kari Helgason. 15.00 Af lífi og sál. Þáttur um tónlist áhugamanna. Umsjón: Vernharður Linnet. (Einnig út- varpað nk. þriðjudagskvöld.). 16.05 Umbætur eða byltingar? 2. erindi af fjórum: Hvað er lifandi og hvað dautt í marxismanum? Hannes Hóimsteinn Gissurarson flytur. 16.30 Veðurfregnir. 16.35 Líf, en aðallega dauði — fyrr á öldum Fjórði þáttur. Umsjón: Auður Haralds. (Einnig útvarpað nk. fimmtudag kl. 14.30.). 17.05 Úr tónlistarlifinu. Frá af- mælistónleikum Gunnars Kvar- an í Bústaðakirkju 30. janúar si., fyrri hluti: — Sjö tilbrigði Ludwigs van Beet- hoven um stef úr Töfraflautunni eftir Mozart. — Myndir á þili eftir Jón Nordal. — Sónata í e-moll ópus 58 eftir Johannes Brahms. Gunnar Kvaran leikur á selló og Gisli Magnússon á pianó. 18.00 Klukka íslands. Smásagna- samkeppni Rfkisútvarpsins 1994. „Forsetakoman" eftir Svein Guðmundsson. Vilborg Dagbjartsdóttir les. (Einnig út- varpað nk. föstudag kl. 10.10.). 18.50 Dánarfregnir og auglýsing- ar. 19.30 Veðurfregnir. 19.35 Funi. Helgarþáttur barna Fjölfræði, sögur, fróðleikur og tónlist. Umsjón: Elísabet Brekk- an. (Endurtekinn á sunnudags- morgnum kl. 8.15 á Rás 2.). 20.20 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessonar. 21.00 Sandkorn í eiltfðinni. Flutt tónlist og textar tengdir sandi á einn eða annan hátt. Umsjón: Trausti Ólafsson. (Áður á dag- skrá 16. júní sh). 22.07 Tónlist á siðkvöldi. „Les Adieux“, píanósónata i Es-dúr, ópus 81a, eftir Ludwig van Beet- hoven. Vladimir Ashkenazy leik- ur á píanó. 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfregnir. 22.35 Fólk og sögur. Anna Mar- grét Sigurðardóttir heimsækir Kristin Nikulásson og Guðlaugu Höllu Birgisdóttur í Svefneyjar. (Áður útvarpað sl. föstudag.). 23.10 Tónlistarmenn á lýðveldis- ári. Umsjón: Dr. Guðmundur Emilsson. 0.10 Stundarkorn í dúr og moll. Umsjón: Knútur R. Magnússon. (Endurtekinn þáttur frá mánu- degi.). 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Fréttir ó RÁS 1 og RÁS 2 kl. 8, 9. 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24. RÁS 2 _FM 90,1/99,9 8.10 Funi. Helgarþáttur barna. Elfsabet Brekkan. 9.03 Sunnu- dagsmorgunn með Svavari Gests. 11.00 Úrval dægurmálaútvarps lið- innar viku. Lísa Pálsdóttir. 12.45 Helgarútgáfan. Gyða Dröfn Tryggvadóttir. 16.05 Te fyrir tvo. Hjálmar Hjálmarsson og Þorsteinn J. Vilhjálmsson. 17.00 Tengja. Kristján Siguijónsson. 19.32 Upp mín sál. Andrea Jónsdóttir. 20.30 Úr ýmsum áttum. Andrea Jóns- dóttir. 22.10 Geislabrot. Skúli Helgason. 23.00 Heimsendir. Mar- grét Kristín Blöndal og Siguijón Kjartansson. 0.10 Kvöldtónar. 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum tii morguns. Ræman, kvikmynda- þáttur. Björn Ingi Hrafnsson. NJETURÚTVARPID 1.30Veðurfregnir. Næturtónar hljóma áfram. 2.00 Fréttir. 2.05 Tengja. Kristján Sigurjónsson. 4.00 Næturtónar. 4.30 Veður- fregnir. 4.40 Næturlög. 5.00 Frétt- ir. 5.05 Te fyrir tvo. 6.00 Fréttir, veður, færð og flugsamgöngur. 6.05 Morguntónar. Ljúf lög í mofg- unsárið. 6.45 Veðurfréttir. ADALSTÖDIN FM 90,9 / 103,2 10.00 Sunnudagsmorgun á Aðal- stöðinni. Umsjón: Jóhannes Krist- jánsson. 13.00 Bjarni Arason. Bjarni er þekktur fyrir dálæti sitt á gömlu ljúfu tónlistinni. 16.00 Sigvaldi Búi Þórarinsson. 19.00 Tónlistardeildin. 21.00 Albert Ág- ústsson með þægilega tónlist. 24.00 Ókynnt tónlist. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morguntónar. 8.00 Ólafur Már Björnsson. 13.00 Pálmi Guð- mundsson. 17.15 Við heygarðs- hornið. Bjarni Dagur Jónsson. 20.00 Sunnudagskvöld. Ljúf tón- list. 24.00 Næturvaktin. Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30. BROSID FM 96,7 Ókynnt tónlist allan sólarhringinn. FM 957 FM 95,7 10.00 Haraldur Gfslason. 13.00 Tímavélin. Ragnar Bjarnason. 16.00 Pétur Árnason. 19.00 Ásgeir Kolbeinsson. 22.00 Stefán Sigurðs- son. X-IÐ FM 97,7 7.00 Baldur Braga. 8.00 Með sítt að aftan 11.00 G.G.Gunn. 14.00 Indriði Hauksson. 17.00 Hvíta tjaldið 19.00 Þrumutaktar 21.00 Sýrður rjómi. 24.00 Óháði vinsæld-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.