Morgunblaðið - 27.08.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994 9
Vatnasport
á Hafravatni
KYNNING á vatnaíþróttum verður
laugardaginn 27. ágúst á Hafra-
vatni, sem liggur milli Reykjavíkur
og Mosfellsbæjar.
Á Vatnasporti ’94 gefst fólki
tækifæri til að kynna sér sjóskíði,
hnébretti, seglbretti, kajak og kanó-
róður. Gestum gefst kostur á að
prófa ýmsar tegundir vatnaíþrótta
en uppákoman stendur frá kl.
12-16.
♦ ♦ ♦----
Kynning á sjón-
um og lífríkinu
REYKJAVÍKURHÖFN stendur
fyrir kynningum á sjónum í höfn-
inni og lífríki hennar. Kynningar
verða á laugardag og sunnudag kl.
11, 13 og 15 við sælífskerin á Mið-
bakka.
í stóru tjaldi verður markaður
með sjávarfang á laugardag kl. 10
til 16 og á sunnudag kl. 11 til 17.
Þar verða einnig bækur kynntar
um sjóinn og sjávarrétti og eyðu-
blöð fyrir léttan spurningaleik um
dýrin í kerunum.
FRÉTTIR
Skátadagar í Árbæjarsafni
SKÁTASAMBAND Reykajvík-
ur stendur fyrir dagskrá í Vær-
ingjaskálanum í Árbæjarsafni
sunnudaginn 28. ágúst frá kl.
13-18. Kl. 13 verða þrauta-
brautir og tjaldbúð sett upp og
kl. 14 hefst ratleikur um safn-
svæðið. Kl. 16 messar sr. Helga
Soffía Konráðsdóttir í gömlu
safnkirkjunni. Dagksránni lýk-
ur með varðeldi og söng kl. 17.
Fengist verður við skógerð, út-
skurð og lummubakstur í Árbæ,
auk þess sem danski eldsmiður-
inn Thomas Norgaard verður
við störf í smiðjunni. Gullsmiður
verður í Suðurgötu 7, prentari
prentar í Miðhúsi og heitt verð-
ur á könnunni við Nýlendu. Eft-
ir hádegi leikur Karl Jónatans-
son á harmoniku og heitt verður
á könnunni í Dillonshúsi.
Allir eru velkomnir og rétt
er að minna á að nú fer sumar-
starfinu á Árbæjarsafni brátt
að ljúka.
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66, HAFNARFIRÐI, SÍMI 654 100
LIÐ S.V.R. Frá vinstri efri röð: Ólafur J. Einarsson, liðsstjóri,
Kristján Kjartansson, dómari, Kristján Jónsson, Norðurlandameist-
ari og Konráð Kristjánsson, dómari. Neðri röð f.v.: Kjartan Pálm-
arsson, Steindór Steinþórsson, Björg Guðmundsdóttir, Hörður
Tómasson, dómari, Guðjón Andrésson og Þórarinn Söbeck.
Foreldrar halda
landsfund
FYRSTI landsfundur foreldra
grunnskólabarna verður haldinn að
Reykholti í Borgarnesi nú um helg-
ina. Fundurinn er haldinn á vegum
samtakanna Heimili og skóli.
Á fundinum verður meðal annars
rædd ný menntastefna og fyrirhug-
aðar breytingar á skólastarfi en
dagskráin verður að öðru leyti snið-
in fyrir alla fjölskylduna. Þátttak-
endur eru 120, bæði fullorðnir og
börn.
Landsfundurinn hefst á laugar-
dagsmorgun kl. 9 og lýkur um miðj-
an dag á sunnudag.
Norðurlanda-
meistari í
strætóakstri
N ORÐURL AND AMÓT vagn-
stjóra var haldið í Ósló laugar-
daginn 20. ágúst sl. í einstakl-
ingskeppni varð Kristján Jónsson
í fyrsta sæti af þijátíu keppend-
um og þar með Norðurlanda-
meistari en þann titil vinna ís-
lendingar nú annað árið í röð.
íslensku vagnstjórarnir lentu í
öðru sæti á eftir Finnum og hlutu
því silfurverðlaun, Svíar voru
næstir þar á eftir. Norðmenn og
Danir urðu í neðsta sæti.
Nýtt frá Frakklandi:
Samkvæmispils og jakkar
TBMy^x
s: 622230
OpiS virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14
MaxMara marínarjn^ldi
Haustsendingin er komin!
Cpið ídag 10-14.
i _______Mari__________
Hverfisgötu 52 - 101 Reykjavík - Sími 91 -62 28 62
mmA
og enn bætist við . . ,