Morgunblaðið - 27.08.1994, Side 20

Morgunblaðið - 27.08.1994, Side 20
20 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEEMDAR GREINAR Vandræði Norðmanna við sljórn Barentshafsveiða Á það hefur verið bent, að íslendingar eigi meðal annars það erindi í Evrópusam- bandið (ESB) að kenna mönnum þar stjóm fiskveiða. Á þetta jafnt við, þótt Norðmenn gerist aðilar að ESB og komi fram fyrir þess hönd í Barents- hafi og á Svalbarða- svæðinu. Norðmenn hafa ekkert að kenna okkur íslendingum í þessum efnum. Við höfum ekki staðið verr að fiskveiði- stjórn en Norðmenn. Kvótakerfið hér er ekki verra en þeirra og íslenskir vísindamenn standa ekki að baki hinum norsku. Metingur af þessu tagi af hálfu Norðmanna er barnalegur. Að þjóf- kenna íslenska sjómenn, þegar þeir hafa ekki brotið lög, eru hins vegar meiðyrði. Alþjóðlegt hafsvæði Rétt ár er síðan íslenskir togarar fóru til veiða í Smugunni, það er á alþjóðlegu hafsvæði, sem myndast á milli rússneskrar lögsögu og norskrar í Barentshafi. Togararnir sóttu þangað, eftir að fréttir bámst af veiðum skipa, skráðum í Dómín- íkanska lýðveldinu, sem veiddu þar og lönduðu hér á landi. Þarna réð sjálfsbjargarviðleitni sjómanna á öflugum skipum. Norðmenn vildu, að íslensk stjórnvöld bönnuðu veiðar íslensku skipanna. í ljós kom, að engar heim- ildir voru til þess. Norðmenn létu eins og þeir ættu þama einhvem sérstakan rétt, nú hafa þeir viður- kennt, að Smugan sé alþjóðlegt hafsvæði. í bók um stjóm á umdeildum hafsvæðum með sér- stöku tilliti til Barents- hafs, sem kom út 1992, segja höfundamir Rob- in Churchill frá Bret- landi og Geir Ulfstein frá Noregi, að Smugan sé ekki mikilvæg, þeg- ar litið sé til fiskveiða, af því að ekki sé unnt að stunda þar arðbær- ar veiðar án aðgangs að 200 mílna lögsögu í nágrenninu. íslendingar hafa sýnt, að við núverandi aðstæður er unnt að stunda arðbærar veið- ar í Smugunni. Hafi skoðun sérfræðinganna verið við- tekin í Noregi, er ekki að undra, að sókn íslensku skipanna hafi kom- ið norskum stjómvöldum í opna skjöldu og vakið hjá þeim fálm- kennd viðbrögð, sem síðan snemst í óeðlilega hörku i garð íslendinga. Raunar kom það ekki síður okkur á óvart, að þarna væri góðan afla að fá. Með þessar staðreyndir í huga em þau sjónarmið gmnnfær, að fyrirfram hefði átt að semja um aðgang íslenskra togara að þessu alþjóðlega svæði. Það er léttvæg eftiráspeki. Fráleit er sú kenning Norð- manna, að sókn íslenskra skipa í Smuguna sé til marks, um að Is- lendingar hafi hætt að gæta hags- muna sinna sem strandríkis á ráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna um út- hafsveiðar. íslendingar vilja, að gerður sé samningur um úthafs- veiðar og réttur strandríkis til íhlut- unar utan 200 mílnanna viður- kenndur, enda sé honum ekki beitt einhliða. Þar til samningurinn er gerður, er ekki unnt að gefa skipum fyrirmæli um að fara eftir honum, það ættu allir að skilja. Norðmenn eru ekki í neinni aðstöðu til að kenna íslendingum stjórn fiskveiða segir Björn Bjarnason og telur norsk stjómvöld einnig skorta lagaheim- ildir gegn íslendingum í Barentshafi. Svalbarðaveiðar Þegar Alþingi fjaliaði um aðild íslands að Svalbarðasamningnum síðastliðið vor, var rækilega minnt á það, að aðild að honum veitti ekki sjálfkrafa heimild til veiða inn- an 200 mflna lögsögunnar þar. Áður en samningurinn var gerður 1920, var Svalbarði einskis manns lands terra nullius. Saga Svalbarða hefst með setningu í íslenskum annálum við árið 1194, þar sem segir: „Svalbarði fundinn“. Ekki er vitað, hverjir stigu þar fyrstir á land. Fóru litlar sögur af Svalbarða fyrr en 1596. Hollendingurinn Will- em Barens sigldi þá þangað, þegar hann leitaði að norðlægri siglinga- leið til Kína. Eftir að Noregur varð sjálfstæður 1905 gerðu Norðmenn kröfur til yfirráða á Svalbarða. Áður en fyrri heimsstyrjöldin hófst 1914 hafði verið efnt til þriggja ráðstefna um málið. Við friðar- samningana í Versölum 1920 var yfirráðaréttur Norðmanna loks við- urkenndur. Er sagt, að þeir hafí þar notið þess, hve mörg norsk kaupskip fórust í styijöldinni. í samningnum segir, að skip allra aðildarríkja hans njóti „sama rétt- ar“ til fiskveiða innan landhelgi Svalbarða. Norðmenn túlka þetta þannig, að þessi réttur nái aðeins til þriggja mílna landhelgi, sem var viðurkennd regla 1920. Árið 1977 settu þeir reglur um svokallað 200 mílna fískverndarsvæði við Sval- barða. Norðmenn segja regluna um „sama rétt“ til fiskveiða ekki gilda á svæðinu. Þessi norska túlkun eða regla stangast á við hinn almenna skilning, að erlend skip hafí því minni veiðirétt sem nær dregur landi. Við Svalbarða vilja Norð- menn, að veiðrétturinn minnki eftir því sem skipin eru fjær landi. Þeir vilja einnig túlka rétt sinn til yfir- ráða á hafinu umhverfis Svalbarða rúmt en rétt annarra til nýtingar auðlinda þar þröngt. Ekkert ríki hefur viðurkennt þessa norsku reglu við Svalbarða. I tilefni af heimsókn sinni til ís- lands 17. júní sl. lét Martti Athisa- ari, forseti Finnlands, þess sérstak- lega getið, að það væri „algjör mis- skilningur og yfirtúlkun", að Finnar hefðu einir allra þjóða tekið afstöðu með Norðmönnum við Svalbarða, eins og segir í Morgunblaðsfrétt 19. júni 1994. Þrátt fyrir þessi ummæli, endurtekur hver eftir öðr- um, að Finnar standi alfarið með Norðmönnum. Finnum er í mun að leiðrétta þetta. Þessi þræta um það, hvað felst í yfirráðarétti Norðmanna utan þriggja mílna við Svalbarða, er undirrót vaxandi hörku í deilum okkar við þá um veiðirétt i Barents- hafi. Að sjálfsögðu hafa Norðmenn meiri hag en við af því, að óvissu um rétt þeirra sé eytt. Nýlegar aðgerðir þeirra gegn Hágangi II einkenndust af vandræðagangi vegna skorts á lagaheimildum. Vandi Norðmanna Smugan er alþjóðlegt hafsvæði. Björn Bjarnason efnahagsmálum Islendinga. Seg]a má að stöðugleikinn sé að festa sig í sessi en jafnframt hefur myndast talsverður slaki í hagkerfinu, sem á rætur sínar að rekja til hagvaxt- arleysis undangenginna ára. Fram- leiðsluþættir eru vannýttir og óvið- unandi skortur er á atvinnutæki- færum, sem á eftir að ágerast þeg- ar fram líður. Því gerist sú spurn- ing æ áleitnari hvað sé til ráða. Hvernig á að taka á vandanum með árangursríkum hætti? Það má færa fyrir því gild rök að nú sé rétti tíminn til að grípa til efna- hagsaðgerða í því skyni að rjúfa kyrrstöðuna. Það blasir við að styrkja þarf stöðu íslensks atvinnu- lífs enn frekar, leggja grunninn að viðvarandi stöðugum hagvexti og ættu fyrst og fremst að stefna að því að mynda og viðhalda sterkri samkeppnisstöðu og tryggja stöð- ugleikann. Þannig er það hlutverk stjómvalda að gefa tóninn og styrkja grundvöll efnahagsstarf- seminnar. Síðustu tvær gengisfeUingar, í nóvember 1992 og júní 1993, voru vel heppnaðar í þeim skilningi að áhrifa þeirra gætti ekki með fullum þunga í verðlagi heldur komu þær aðallega fram í lægra raungengi. Einnig hefur orðið verulegur bati I viðskiptajöfnuði og í ár stefnir í afgang annað árið í röð. Nú er ekkert sem útilokar að lækka raun- gengi enn frekar og því full ástæða til að gaumgæfa þann kost vand- lega. íslendingar standa frammi fyrir einstöku tækifæri í hagsög- unni til að bæta enn frekar sam- keppnisstöðu og viðskiptajöfnuð með gengislækkun. Slakinn í hag- kerfinu og hverfandi lítil verðbólga gefa fyrirheit um að slík ráðstöfun geti heppnast vel. Frekari styrking samkeppnis- stöðu útflutnings- og samkeppnis- greina gefur allt önnur og betri skilyrði til atvinnurekstrar en verið hefur. Hún er forsenda þess að á íslandi verði til öll þau nýju at- vinnutækifæri sem þörf er fyrir á næstu árum. Aukinn hagvöxtur og minna atvinnuleysi munu að auki stuðla að bættri afkomu ríkissjóðs þegar fram í sækir og þar með lægri vöxtum. Þannig fæst tæki- færi til að koma opinberum búskap í viðunandi horf án þess að hækka skatta eða grípa til frekari niður- skurðar. Gengið Það er kunnara en frá þurfi að segja að gengisskráning krónunnar hefur jafnan miðast við afkomu í sjávarútvegi. Þegar á móti blæs, verð á sjávarafurðum lækkar eða afli minnkar, hefur gengið verið fellt og tekjur þannig drýgðar. Þeg- ar vel árar hækkar raungengið til tjóns fyrir aðrar útflutnings- og samkeppnisgreinar, án þess að þær fái nokkuð við því gert. En nú á breyttum tímum með nýjum áhersl- um er tímabært að taka upp aðra Það má færa fyrir því gild rök að nú sé rétti tíminn til að rjúfa kyrr- stöðuna, segir Þor- steinn M. Jónsson, styrkja stöðu atvinnu- lífsins og leggja grunn- inn að viðvarandi hag- vexti. viðmiðun við gengisskráningu án þess að nokkur beri skarðan hlut frá borði. Gengisskráninguna ætti að miða við að halda góðum og stöðugum rekstrargrundvelli í hag- kerfinu fyrir allt atvinnulíf og hag- stæðum jöfnuði í viðskiptum við önnur lönd. Viðskiptahalli undan- genginna ára og áratuga hefur orðið þess valdandi að erlendar skuldir hafa hlaðist upp og þrengt svigrúm til athafna. Af einhverjum ástæðum má það heita viðtekin skoðun meðal íslend- inga að hér geti aldrei verið viðvar- andi afgangur á viðskiptum við önnur lönd. Auk þess finnst okkur eins og við þurfum að eyða því sem afgangs er strax og það er í sjón- máii. Ráðdeild og spamaður í þjóð- arbúskapnum hafa verið framandi hugtök og ekki á dagskrá í stjórn- málaumræðunni svo heitið geti. Viðvarandi afgangur á við- skiptajöfnuði gerir íslendingum mögulegt að sinna því tímabæra verkefni að greiða niður erlendar skuldir og mynda þannig svigrúm til að mæta andbyr næst þegar hann brestur á. Efnahagslægðin Hagvaxtarleysið Rekstrarskilyrði Undanfarin misseri hefur markvisst verið unnið að því að bæta rekstrarskilyrði og samkeppnisstöðu ís- lensks atvinnulífs. Skattar hafa verið lækkaðir, vextir hafa lækkað og raungengi er nú lægra en um langt árabil. Þetta er jákvæð þróun og hefur án efa skilað árangri í að koma í veg fyrir enn meiri samdrátt og atvinnuleysi en ella hefði orðið. Um þessar mundir er einstök Aðgerðir í efnahagsmálum spoma þannig gegn atvinnuleysi. Efnahagsaðgerðir íslendingar kannast við efnahagsaðgerðir þegar leysa á brýnan aðsteðjandi vanda eða þegar greiða á fyrir gerð kjarasamninga. Aðgerðir í efnahags- málum hafa þannig oft á sér blæ misjafnlega gæfulegra skyndila- usna eða ráðstafana sem verða til við samn- ingaborð hjá aðilum vinnumarkaðsins. Það er tímabært að gefa gaum sjálf- stæðu gildi efnahagsaðgerða. Þær Þorsteinn M. Jónsson staða í Um rétt strandríkis til að stjórna veiðum þar er verið að semja á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í New York. íslensk skip hafa rétt til veiða í Smugunni, þar til alþjóð- legir samningar hafa verið gerðir um annað. Islendingar hafa með staðfestingu sinni á hafréttarsátt- mála Sameinuðu þjóðanna sýnt, að þeir eru fúsari að lúta alþjóðalögum í þessu efni en Norðmenn. Sam- kvæmt íslenskum lögum hafa stjórnvöld heimild til að hlutast til um úthafsveiðar íslenskra skipa, ef við alþjóðasamning er að styðjast. Enginn slíkur samningur er um Smuguna að því er ísland varðar. Norsk stjórnvöld hafa ekki ótví- ræðan rétt til yfírráða á 197 mílna svæði frá Svalbarða. Norðmenn vilja ekki, að þriðji aðili skeri úr um það, hver þessi réttur þeirra sé. Þeir beita meira að segja íslensk skip valdi, án þess að norsk löggjöf dugi þeim til málssóknar. Norðmenn hafa sjálfir kúvent á úthafsveiðiráðstefnunni með því að slást eindregið í hóp strandríkja. Vandræðagangur norskra stjórn- málamanna í sjávarútvegsmálum hefur verið mikill undanfarna mán- uði, enda erfitt fyrir þá að réttlæta yfírborðslegan samning sinn um sjávarútvegsmál við Evrópusam- bandið. Þar hefur áferðin greinilega skipt meiru en efnið. Stóryrði í garð okkar íslendinga, ásakanir um þjófnað og rangfærsl- ur um fiskveiðistjóm duga Norð- mönnum ekki_ til að ná árangri í þessu máli. Ólögmæt valdbeiting þeirra í Smugunni eða á Svalbarða- svæðinu leysir ekki heldur þennan norska vanda. Úr honum er unnt að fá skorið með alþjóðasamningum og málskoti til Alþjóðadómstólsins í Haag. Norðmenn hafa ekki meiri rétt utan lögsögu sinnar í Barents- hafi eða á Svalbarðasvæðinu en alþjóðasamningar veita þeim. Sé deilt um efni slíkra samninga sker Alþjóðadómstóllinn úr þeirri þrætu. Réttur íslendinga til samnings- bundins kvóta í Barentshafi styrkist við að samningar dragast á lang- inn, telji Norðmenn nýlegan, sögu- legan rétt forsendu slíks kvóta. Höfundur er þingmnður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. nú hefði verið auðveldari viðfangs og valdið minni skaða ef erlend skuldastaða hefði gert okkur kleift að brúa bilið með lántöku. Það er ekki skynsamleg hagsýsla að vera stöðugt á fremstu nöf og þurfa iðulega að grípa til róttækra niður- skurðaaðgerða þegar á móti blæs með tilheyrandi erfiðleikum fyrir heimili og fyrirtæki. Að varðveita stöðugleikann Það skiptir höfuðmáli að aðgerð sem þessi sé studd með hliðar- aðgerðum, sem komi í veg fyrir að þenslugangverkið hrökkvi af stað. Annars er betur heima setið en af stað farið. Tekjuaukann sem verður til í sjávarútvegi vegna gengis- breytingarinnar má til að byija með nýta til að greiða niður skuldir og styrkja eiginfjárstöðu fyrirtækja í greininni. Þannig skapast mögu- leikar og forsendur fyrir þau til að mæta áföllum í rekstri sínum. Síðar er ráðlegt að taka upp veiðileyfa- gjald samhliða því sem stjóm fisk- veiða er bætt og komið á varanleg- an grunn. Að öðrum kosti leiðir tekjuaukinn til ofþenslu sem raskar jafnvæginu í hagkerfínu og gerir að engu þann árangur sem náðst hefur í að efla stöðugleikann. Þótt íslendingar tækju það ráð að styrkja með þessum hætti sam- keppnisstöðu sína er ólíklegt að það ylli óróa meðal viðskipaþjóða. Það- an af síður er sennilegt að það kæmi af stað gengisfellingarsam- keppni. Smæð þjóðarinnar og staða utan myntbandalaga gerir okkur kleift að sigla lygnan sjó í þessum efnum. Það er tækifæri sem ber að nýta. Höfundur er hngfrœðingur Samtaka iðnnðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.