Morgunblaðið - 27.08.1994, Side 23
LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994 23
MORGUNBLAÐIÐ
Fékk hjálp
lækningamiðils
ELLÝ H. Gunnarsdóttir fékk hjálp
hjá lækningamiðli vegna dóttur
sinnar, Hallgerðar, sem er floga-
veik eftir að læknar höfðu gert
allt sem þeir gátu. Hallgerður
fæddist mikið þroskaheft og hefur
verið greind með innan við 20%
eðlilegs þroska. Hallgerður fékk
allt að 20 flogaveikiköst á sólar-
hring þegar verst lét. Hún var
tæplega 7 ára gömul og vó 18 kíló.
Ellý segist efast um að Hallgerður
hefði lifað nema nokkra mánuði
til viðbótar með sama áframhaldi.
Ellý sá auglýsingu frá lækninga-
miðli og fór til hans í nokkur skipti.
Hann kenndi henni að leggja hend-
ur yfir Hallgerði á kvöldin þegar
hún væri sofnuð. EHý segir að
henni hafi engu verið lofað um
árangur og hún hafi í raun verið
vantrúuð þegar hún leitaði til mið-
ilsins en eins og ástand Hallgerðar
var orðið var hún tilbúin til að
reyna hvað sem var.
Hún byrjaði að leggja hendur
yfir höfuð dóttur sinnar þegar hún
var ennþá á spítalanum en án þess
að láta lækna vita. Fljótlega fór
að draga úr köstunum og á nokkr-
um vikum hættu þau alveg. Hall-
gerður hefur ekki fengið floga-
veikikast síðan í desember 1992.
Hallgerður fær ennþá floga-
veikilyf en skammturinn hefur ver-
ið minnkaður. Ellý segir að yf-
irleitt sé miðað við að tvö ár líði
án krampa áður en lyfjagjöf sé
alveg hætt.
Eftir því sem Ellý segir hefur
ekki verið hægt að rekja bata Hall-
gerðar til lyfjagjafar eða annarrar
læknismeðferðar og segist hún
þess fullviss að hann sé tilkominn
fyrir milligöngu lækningamiðils-
ins. Þá vill hún benda á að ekki sé
hægt að útskýra batann með sjálfs-
sefjun, eins og hefur verið sagt um
þá sem telja sig hafa fundið fyrir
bata á samkomu Bennys Hinns.
„Þarna er um að ræða barn sem
hefur engan skilning á hvað er að
gerast og getur ekki haft nein
áhrif á Iíðan sína,“ segir Ellý að
lokum.
Dæmum ekki
Miðill kosmískra krafta
Verði þmn vilji
Boston. Morgunblaðið.
BENNY HINN hefur átt fádæma
velgengni að fagna í predikunarstóln-
um. Sjálfur hefur hann sagt að aðeins
Billy Graham fái meiri aðsókn og
hermt er að kirkjan hans velti um
15 milljónum Bandaríkjadollara ár-
lega (rúmum einum milljarði ÍSK).
En Hinn á sér ekki aðeins aðdáend-
ur. Trúarmáttur hans hefur verið
dreginn í efa og þekking hans á heil-
agri ritningu þykir ekki upp á marga
fiska.
Benny Hinn hefur gengið í gegnum
ýmis tímabil. Lækningasamkomur
hans hafa verið ofsafengnar, hann
hefur lagt hendur yfir fólk þannig
að það hrundi í gólfið eða látið gesti
sína hníga í yfirlið með því að veifa
jakka sínum. Þess á milli hefur hann
verið íhaldssamari í framkomu og
látið nægja að tala um lækningamátt
bænarinnar. Hann er 41 árs og hefur
predikað allt frá árinu 1976.
Skrifar metsölubækur
í upphafi predikunarferils síns for-
dæmdi hann klerka, sem kreistu fé
úr fátækum en síðar eggjaði hann
fólk til að gefa af vanefnum í guðs-
þjónustum sínum með fyrirheitum um
ríkulegar rentur. Sjálfur þarf Hinn
ekki að kvarta undan vanefnum.
Hann býr í 685 þúsund dollara (tæp-
lega 48 millj. kr.) húsi skammt frá
Orlando, ekur um á Jagúar og hefur
að talið er 115 þúsund dollara (um 8
millj. kr.) í árstekjur og eru þá ótald-
ar tekjur af bókum hans. Þeirra á
meðal er bókin „Góðan daginn, heil-
agur andi“, sem fyrir ári hafði selst
í einni milljón eintaka. í grein í dag-
blaðinu Orlandó Sentinel um Hinn var
hún sögð ein helsta kristilega met-
sölubók sögunnar.
Bakaði ostakökn
Hinn fæddist í ísrael og er af grísku
og armensku foreldri. Þar segir hann
Guð hafa birst sér fyrst um 11 ára
aldur. Hann fluttist til Toronto í
Kanada og bjó þar þangað til hann
fluttist til Bandaríkjanna árið 1979.
Um svipað leyti kynntist hann konu
sinni, Suzanne. Eitt sinn var hann
að fljúga til Orlando að hitta hana.
Biður hann þá Guð að láta hana segj-
ast hafa bakað sér ostaköku ef hann
í raun eigi að ganga að eiga hana.
„Ég hef bakað handa þér ostaköku,"
var það fyrsta sem Suzanne sagði á
flugvellinum og þurfti Hinn þá ekki
frekari vitnanna við.
Kirkja Hinns er í Orlando. Þar tek-
ur hann upp daglega sjónvarpsþætti
Benny Hinn kveðst
lækna þúsundir
í krossferðum
og segir Adam
hafa flogið
Evander Holyfield
og einu sinni í mánuði fer hann í
svokallaðar lækningakrossferðir, sem
laða að allt að 28 þúsund manns í
hvert skipti. Kveðst Hinn geta veitt
allt að þúsund manns lækningu í einni
slíkri ferð og hefur hann reynt að
færa sönnur á einstök kraftaverk í
bókum sínum. Ýmsir hafa þó orðið
til að bera brigður á og segja heimild-
um ýmist ábótavant eða vafa undir-
orpið að lækning hafi orðið fyrir hans
tilstilli. Dagblaðið Fort Lauderdale
Sun-Sentinel í Flórída bað hann að
senda gögn til stuðnings meintum
kraftaverkum án árangurs.
En kraftaverk Hinns eru ekki
ókeypis. Fyrrverandi heimsmeistari í
þungavigt í hnefaleikum, Evander
Holyfield, segist hafa fengið lækn-
ingu við hjartakrankleika á samkomu
hjá Benny Hinn. Hjartagallinn kom í
ljós eftir að Hoiyfield tapaði heims-
meistaratitlinum til Michaels Moorers
22. apríl sl. Fjórum dögum síðar til-
kynnti Holyfield að hann væri hættur
keppni.
I júlí fór hann á samkomu hjá Hinn
í Fíladelfíu. Meðan á samkomunni
stóð féll hann þrisvar á sviðið og sagði
að hann hefði fundið hita í bijóstinu
þegar Hinn snerti hann. Síðar féllst
Holyfield á að greiða Hinn 265 þús-
und Bandaríkjadali (rúmar 18 milljón-
ir ísl. króna) til að standa straum af
kostnaði við samkomuherferð Hinns.
.. að útbýta andlegri blásýru“
„Benny hefur verið að útbýta and-
legri blásýru í risaskömmtum,“ sagði
Hank Hanegraaff, forseti Kristilegu
rannsóknarstofnunarinnar í Kalifor-
níu, í viðtali við Sun-Sentinel.
Hanegraaff gagnrýndi Hinn ásamt
fleiri predikurum í bókinni „Kristin-
dómur í vanda“, sem út kom á síð-
asta ári. Hann skoðaði gögn um þtjú
kraftaverk og sagði þau lítt sannfær-
andi.
Einkum gagnrýndi hann þó guð-
fræðikenningar Hinns, sem hann sagði
grafa undan kristindóminum. Vitnaði
Hanegraaff til þess að Hinn hefði eitt
sinn sagt að Guð hefði gert Adam
æðri öllum dýrum því hann hefði get-
að flogið. Þá hélt hann því fram að
allir sem trúa, hafi verið skapaðir í
ímynd Jesú og séu því í raun „litlir
guðir“. Hinn spáði því einnig að allir
hommar myndu verða eldi að bráð á
árunum 1994 og 1995 og sagði að
það myndi rústa bandarísku þjóðinni
ef kona yrði forseti hennar.
Mesta áfall Hinns kom hins vegar
á síðasta ári þegar fjallað var um
söfnuð hans í sjónvarpsþættinum
Inside Edition. Maður á vegum þátt-
arins laumaði sér inn á trúarsamkomu
og þóttist vera lamaður af völdum
heilaskaða. Á samkomunni lét hann
sem hann læknaðist og var atvikið
sýnt í þætti Hinns um öll Bandaríkin.
Eftir að greint var frá því að mað-
urinn hefði verið alheill frá upphafi
hafa starfsmenn Hinns vandsð val
sitt á þeim, sem fá að fara ipp á
svið, og nú er hringt í lækna viðkom-
andi áður en kraftaverkunum er sjón-
varpað.
Hinn hefur sagt að gagnrýni hafi
mannbætandi áhrif á sig, en hann
hefur misst þolinmæðina þegar gagn-
rýnendur hafa gerst of háværir og
eitt sinn sagði hann: „Stundum vildi
ég óska þess að Guð gæfi mér heil-
ags-anda-vélbyssu. Þá gæti ég dritað
í hausinn á ykkur."
Heimildir:
• The Reformation of Benny Hinn eftir
James D. Davis í Fort Lauderdale Sun-
Sentinel 22. ágiist 1993.
• The Rev. Benny Hinn - Miracle Crusade
Leader í Orlando Sentinel 7. febrúar
1993.
• Book Has Few Kind Words for Benny
Hinn í Orlando Sentinel 1. maí 1993.
• The Power and the Glory eftir Mike Thom-
as í Orlando Sentinel 24. nóvember 1991.
Læknaðist af mígreni
og bakverkjum
SÓLVEIG Haraldsdóttir, 15 ára
stúlka frá Raufarhöfn, fékk bata
á samkomunni hjá Benny Hinn.
Hún hefur verið með mígreni og
bakverki frá því hún var 12 ára
gömul. Hún segist vera búin að
fara til ótal lækna og þeir hafi
ekki gert neitt annað en að gefa
henni mismunandi lyf sem ekkert
hafi hjálpað og hafi hún því hætt
að taka þau fyrir u.þ.b. ári. Sól-
veig segist hafa fengið mígren-
köst misoft, stundum einu sinni á
dag, stundum einu sinni í viku.
Bakverknum hafi hún fundið fyr-
ir í einhvern tíma á hverjum degi
en mislengi þó.
Sólveig segir að hún hafi fund-
ið fyrir minnkandi verk í bakinu
fljótlega eftir að samkoman
hófst. „Eg fann hita og titring
og allt í einu fór ég að gráta,“
segir hún. Sólveig fór síðan upp
á svið til Hinns. Sólveig segir að
Hinn hafi komið við sig eins og
hann væri að biðja í hljóði og þá
fannst henni eins og væri að líða
yfir sig og hún datt í gólfið en
hélt þó fullri meðvitund allan tím-
ann. Henni fannst eins og hún
lyftist upp frá gólfinu, svo stóð
hún upp.
„Verkurinn hvarf eiginlega
niðri í sal fyrst, svo þegar ég
vaknaði morguninn eftir var
hann alveg horfinn og ég hef
ekki fundið fyrir honum síðan,“
segir Sólveig.
Boston. Morgunblaðið.
SJÓNVARPSKLERKAR og krafta-
verkaprédikarar njóta ekki mikillar
virðingar meðal hefðbundinna kirkju-
stofnana í Bandaríkjunum. Þótt
kirkjuleiðtogar virðist ekki vilja ganga
svo langt að fordæma þá sem lofa
blindum sjón og láta halta ganga, kin-
oka þeir sér einnig við að lýsa yfir
velþóknun sinni.
„Við metum hvorki, dæmum né
gagnrýnum,“ sagði dr. Fran Burnford,
talsmaður hinnar Evangelísk lútersku
kirkju Bandaríkjanna, sem hefur rúm-
an helming lúterstrúarmanna hér
vestan hafs innan sinna vébanda, eða
um 5,5 milljónir manna. Hún bætti
því við að bæn fyrir lækningu væri
„ekki til að lækna ákveðinn kvilla,
heldur biðja þess að verði guðs vilji“.
Jerald Jaorsz, sem tilheyrir öðrum
lúterskum söfnuði, kvað kirkju sína
ekki taka opinbera afstöðu til málefna
af .þessu tagi.
„Slíkt látum við einstökum prestum
eftir,“ sagði Jaorsz, sem er aðstoðar-
stjórnandi nefndar um guðfræði og
Bandarískar kirkj-
ur láta sjónvarps-
klerka óáreitta
kirkjuleg samskipti í næststærstu lút-
ersku kirkjunni í Bandaríkjunum. „í
opinberum guðfræðiskjölum okkar er
tilvist trúarlækningar eftirlátin dóm-
greind hvers og eins. Kraftaverk áttu
sér stað á tímum Bibiíunnar, en við
fullyrðum ekki að geta til að fram-
kvæma þau hafi verið látin fram ganga
til okkar tíma. Á hinn bóginn viljum
við ekki hengja okkur í kreddur."
Katólska kirkjan neitar ekki heldur
lækningamætti trúarinnar, en fer þó
mjög varlega í sakirnar þegar slík mál
ber á góma.
Séra Joseph T. Nolan, sem kennir
guðfræði við Boston College, vísaði til
Lourdes í Frakklandi og sagði að þar
gerðust atburðir, sem jafna mætti við
kraftaverk.
„Hins vegar var Jesús fyrst og
fremst kennari, en ekki kraftaverka-
maður,“ sagði Nolan. „Það er ekkert
loforð um að öllum bænum verði svar-
að. Guð starfar innan ramma síns
sköpunarverks og það er hvorki að
finna mikla samkennd né stuðning við
sjónvarpsklerka innan katólsku kirkj-
unnar."
Nolan sagði að oft reyndist „lækn-
ingin“ hverfa er frá liði. Vitnaði hann
þar til rannsóknar, sem gerð var á
viðfangsefnum Kathryn nokkurrar
Kuhlman. Hún kom reglulega fram í
bandarísku sjónvarpi fyrir um tuttugu
árum og hóf mál sitt alltaf með orðun-
um: „Ég trúi á kraftaverk." Læknar
fylgdust með fólki, sem hafði „lækn-
ast“ hjá Kuhlman og yfirleitt tóku
gömlu kvillarnir sig upp á ný.
Þess má geta að Kuhlman þessi var
lærimeistari Hinns og ákvað hann að
stofna sjálfur söfnuð þegar hún dó
fyrir um 20 árum.
Það er helst að baptistar hafi til-
hneigingu til að viðurkenna störf sjón-
varpsklerka en fáir eru reiðubúnir til
að veita þeim formlegan gæðastimpil.