Morgunblaðið - 03.09.1994, Síða 1
JMmgtmliIafcft
MENMNG
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1994 BLAÐ'
LEIKFÉLAG Reykjavíkur frum-
sýnir leikritið Óskina eftir Jóhann
Siguijónsson í leikgerð Páls Bald-
vins Baldvinssonar, næstkomandi
laugardag, 10. september. Páll
Baldvin er jafnframt leikstjóri.
Óskin er betur þekkt undir heitinu
Galdra-Loftur og er eitt af snilldar-
verkum íslenskra leikbókmennta.
Tveir nýútskrifaðir leikarar, Benedikt Erlingsson og
Margrét Vilhjálmsdóttir, stíga sín fyrstu spor í at-
vinnuleikhúsi við flutning þessa verks, en þetta er
í annað sinn sem Páll Baldvin setur upp sýningu í
Borgarleikhúsinu. Hann hefur valið leikgerð sinni nýtt heiti
og lék undirrituðum forvitni á að vita hvers vegna.
„Leikritið var frumsýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur 26.
desember árið 1914,“ segir Páll Baldvin. „Áður en til þess
kom að Leikfélagið fengi verkið var Jóhann búinn að gera
samning við dönsk leikhús um sýningu þess. Á dönsku heit-
ir verkið „0nsket“ og þann titil hefur það borið hvar sem
það hefur verið sýnt í Evrópu. Aðeins á íslandi hefur það
titilinn Galdra-Loftur. Enginn veit raunverulega ástæðu
þess hvers vegna Jóhann tók þá stefnu að breyta nafni
verksins fyrir íslensku sýninguna. Hann breytti gjarnan titl-
um verka sinna þegar að íslenskum útgáfum kom, til
dæmis gerðist það með Bóndann á Hrauni og Mörð
Valgarðsson."
- Hveijar eru megináherslurnar í sýningunni?
„Við höfum reynt að losa verkið úr þeim natural-
isma sem það er skrifað í. Jóhann skrifaði mjög
nákvæmar lýsingar á sviðsmyndum og skýrar
leiðbeiningar fyrir leikara. Með því að nema burtu
allar slíkar leiðbeiningar stóð textinn eftir nakinn
þá var svigrúm fyrir leikarann að leita eftir forsend-
um í textanum sjálfum. Við gerðum líka ákveðnar breyt-
ingar í efnahagslegu skyni því að verkið er skrifað fyrir
talsvert stóran leikhóp. í verkinu er gert ráð fyrir tíu betlur-
um, tíu vinnumönnum og tíu svipum. Við fækkuðum persón-
um og drógum með því saman kjama verksins sem er fyrst
og fremst samband Lofts við þessar tvær stúlkur og þau
öfl sem þær standa fyrir í samfélaginu en einnig leit
hans að þekkingu.
Við vinnu þessarar leikgerðar lagði ég meiri
áherslu á óskina en var upprunalega. Það gerðist
ósjálfrátt þegar búið var að skera af verkinu
staðarlýsingar og naturalískan umbúning.
Margt af því sem var numið úr verkinu þótti
mjög spennandi á sínum tíma, til dæmis
Sjá næstu síðu.
Margrét
„Dísa er ung kona, ábyggi-
lega nokkuð menntuð mið-
að við aðrar stúlkur á Is-
landi. Hún er dóttir biskups-
ins og veit að hún er mesti
kvenkostur landsins. Hún er
engin frekja, en hún veit þó
hvað hún vill. Hún er sak-
laus en hún þroskast frá því
að hún hittir Loft fyrst og
þar til hún uppgötvar að
það er eitthvað að honum.“
„Þó að Sfeinunn sé skrifuð
og hugsuð sem átjándu ald-
ar kona þá höfðar hún sterkt
til mín sem kona á tuttugustu
öld og ég efast ekki um
að flestar manneskjur finni
til djúprar samkenndar með
þessari persónu."
Benedikt
„Loftur er á milli
tveggja kvenna, Tom
Cruise týpa sem mar-
keraður er af metn-
aði, er framagjarn og
ætlar sér að ná langt
í lífinu."
Pall Baldvin
„Vió vinnu þessarar
leikgerðar lagði ég
meiri áherslu á óskina
en var upprunalega.
Það gerðist ósjálfrátt þegar
búið var að skera af verkinu
staðarlýsingar og naturalisk
an umbúning."