Morgunblaðið - 01.10.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 19
Haider
eykur
fylgið
FRELSISFLOKKURINN í
Austurríki, sem er mjög hægri-
sinnaður, gæti hlotið allt að
20% fylgi í þingkosningum sem
verða 9. október, samkvæmt
nýjum könnunum. Síðast fékk
flokkurinn, sem Jörg Haider
stýrir, 16,6% fylgi. Stjórnar-
flokkur sósíalista virðist ætla
að tapa stórt, honum er spáð
38% fylgi en fékk nær 43%
1990 og hinn stjórnarfiokkur-
inn, íhaldssami þjóðarflokkur-
inn (OeVP), tapar einnig. Talið
er að OeVP muni ef til vill reyna
að mynda stjórn með flokki
Haiders.
Forseti Krím-
ar settur af
ÞINGIÐ á Krímskaga svipti á
fimmtudag forseta héraðsins,
Júrí Meshkov, nær öllum völd-
um og hefur spenna í valdabar-
áttu þings og forseta skyndi-
lega aukist mjög á ný. Meshkov
var ekki viðstaddur fundinn.
Carlsson
kynnir ráð-
herra
INGVAR Carlsson, leiðtogi
jafnaðarmanna og verðandi
forsætisráðherra í Svíþjóð,
kynnti á fimmtudag sex helstu
ráðherra væntanlegrar minni-
hlutastjórnar sinnar. Við emb-
ætti fjármálaráðherra tekur
Göran Persson, 45 ára gamall
fyrrverandi skólastjóri. Hann
er ekki hámenntaður í hag-
fræði en verkefni hans verður
erfitt vegna gríðarlegra ríkis-
skulda Svía og óstöðvandi fjár-
lagahalla. Utanríkisráðherra
verður Lena Hjelm-Wallen, 51
árs sérfræðingur í alþjóðamál-
um en hún hefur áður verið
m.a. menntamálaráðherra.
Anand og
Kamsky
sigruðu
VISWANATHAN Anand frá
Indlandi og Gata Kamsky frá
Bandaríkjunum báru sigur úr
býtum í undanúrslitum heims-
meistaraeinvígisins í skák, sem
fram fór í Linares á Spáni á
vegum Sambands atvinnuskák-
manna. Bar Kamsky sigurorð
af Nigel Short og Anand af
Michael Adams en þeir eru
báðir breskir. Sá, sem stendur
að lokum uppi sem sigurveg-
ari, mun tefla við Garrí Ka-
sparov um heimsmeistaratitil-
inn en hann og Short sögðu
skiiið við Alþjóðaskáksamband-
ið á síðasta ári og stofnuðu
Samband atvinnuskákmanna.
Bókahillur
Beykí/hvítt/svart/fura
HIRZLAN
Lyngási 10, Garöabæ.
Sími654535.
ERLENT
Fabius fyrir dómara
LAURENT Fabius, fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands, ræð-
ir hér við fréttamenn eftir að hafa
komið fyrir dómara en verið er að
kanna hvort draga megi stjórnvöld
til ábyrgðar á alnæmishneykslinu
svokallaða 1985. Það olli því að
2.500 dreyrasjúklingar sýktust.
Þrír viðriðnir
morðið á Ruiz
Mexíkóborg. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Mexíkó lýstu því
í gær yfir að minnsta kosti þrír
menn væru viðriðnir morðið á Ruiz
Massieu, framkvæmdastjóra bylt-
ingarflokksins, sem hefur verið við
völd í landinu í áratugi.
Ruiz var myrtur fyrir utan hótel
á miðvikudag en skömmu síðar var
ungur maður handtekinn og hefur
hann játað að hafa skotið fram-
kvæmdastjórann. Tveir menn hafi
ráðið hann til verksins og greitt
fyrir það um 15.000 dali. Leitar
lögreglan þeirra nú.
Prófkjör
28. og 29. október
Markús Örn
^ í 4. sæti j
Stólar fyrir alla
á verði fyrir alla!
Á. Guðmundsson hf. kynnir mikið úrval
stóla sem henta vel fyrir hvers kyns aðstæður
svo sem skrifstofuna, skólann, sjúkrahúsið, elli-
heimilið, bókasafnið, fúndarsalinn, samkomu-
húsið, heimilið og alla hina staðina.
A. GUÐMUNDSSON HF.
Skemmuvegi 4. Kópavogi Sími: 91-73100
YDDA YI.4/SÍA