Morgunblaðið - 01.10.1994, Síða 1
B L A Ð A L L R A LANDSMANT ú A
» . . J
KNATTSPYRNA
Miljkovic
áfram hjá ÍA
Búið að semja við hann
til næstu tveggja ára
Serbinn Zoran Miljkovic, sem stóð sig mjög vel
í vörn meistaraliðs Akurnesinga í sumar,
verður áfram í herbúðum félagsins. Búið er að
semja við leikmanninn til tveggja ára.
Miljkovic setti fram kröfur um talsverða launa-
hækkun, þannig að á tímabili leit út fyrir að hann
væri á förum frá Akranesi. Hann var með tilboð
frá félögum í Portúgal, og hugðist fara þangað á
næstunni, en síðan sló hann af launakröfum sínum
og samdi við Akurnesinga. „Við eigum að vísu
eftir að semja við félagið í Serbíu sem hann var
í áður en hann kom til okkar, en það verður ekk-
ert vandamál," sagði Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, við Morgunblaðið í gær.
ÍA kærir
vinnubrögð
Örgryte
STJÓRN Knattspyrnufélags ÍA sam-
þykkti á fundi í gærmorgun að óska
formlega eftir því við KSÍ að það skrifi
sænska knattspymusambandinu bréf,
þar sem kærð verði framkoma sænska
félagsins Örgryte gagnvart tveimur leik-
manna ÍA.
Þjálfari sænska félagsins hafði sam-
band við Sigurstein Gíslason þegar eftir
landsleikinn gegn Svíum á dögunum, en
skv. reglum er óheimilt að ræða við leik-
menn meðan á keppnistímabilinu stend-
ur. Þá hefur Örgiyte þrisvar haft sam-
band við Ólaf Þórðarson, Skagamann, í
sumar og boðið honum að koma utan.
Á fundinum í gærmorgun samþykkti
stjóm Knattspymufélags ÍA að leyfa
Sigursteini Gíslasyni að fara til sænska
félagsins, til viðræðna. Þess má geta að
sænska félagið hafði ekki samband við
IA fyrr en í fyrradag vegna Sigursteins.
Rúnar með
Sigursteini
til Órgryte
Rúnar Kristinsson, landsliðsmaður úr
KR, fer með Skagamanninum Sig-
ursteini Gíslasyni til Svíþjóðar á morgun
til að skoða aðstæður hjá Örgryte. Þeir
félagar dveljast í Svíþjóð fram á miðviku-
dag, ræða við forráðamenn liðsins og
skoða aðstæður hjá félaginu.
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrsta brúðargjöfin!
SIGURSTEINN Gíslason með blkar sem hann fékk frá MorgunblaAlnu í gœr í tllefni þess að hann var besti lelkmaður 1.
deildarkeppnlnnar í sumar að mati blaðslns. Anna Elín Daníelsdóttir, unnusta Slgursteins, fagnar með honum. Þau œtla að
ganga í hjónaband 27. nóvember, þannig að segja má að niðurstaðan í einkunnagjöf blaðsins sé fyrsta brúðargjöfin þeirral
Sigursteinn leikmaður ársins
Sigursteinn Gíslason, landsliðs-
maður frá Akranesi, var besti
knattspyrnumaður 1. deildar karla
í sumar að mati íþróttafrétta-
manna Morgunblaðsins. Eins og
flestum er kunnugt gáfu frétta-
menn blaðsins leikmönnum ein-
kunn fyrir frammistöðu sína í
hverjum leik sumarsins. Eitt M
fengu þeir sem léku vel, tvö M
fengu þeir sem léku mjög vel, og
3 M fengu þeir sem áttu frábæran
leik.
Sigursteinn hafði nokkra yfir-
burði í einkunnagjöf blaðsins.
Hann hlaut samtals 22 M í 17 leikj-
um, eða 1,3 M að meðaltali í leik
sem hlýtur að teljast góður árang-
ur. Hann fékk tvisvar sinnum 3 M
(frábær leikur) og er sá eini sem
afrekaði það í sumar. Fimm sinn-
um fékk hann 2 M og sex sinnum
1 M.
Sigursteinn Gíslason er þriðji
Skagamaðurinn í röð, sem verður
efstur í einkunnagjöf Morgun-
blaðsins. Skagamenn hafa orðið
íslandsmeistarar þijú ár í röð,
1992 var Luka Lúkas Kostic best-
ur að mati Morgunblaðsins og Sig-
urður Jónsson í fyrra. Svo
skemmtilega vill til að markakóng-
ur deildarinnar öll þessi ár hefur
einnig komið frá ÍA; Arnar Gunn-
laugsson 1992, Þórður Guðjónsson
í fyrra og Mihajlo Bibercic í sumar.
Mrazek fékk 1 M að meðaltali
Tékkinn Petr Mrazek, varnar-
maðurinn sterki hjá FH, varð í
öðru sæti í einkunnagjöf blaðsins
í sumar með 18 M. Hann lék alla
18 leiki FH-inga og var því með 1
M að meðaltali í leik. Tvisvar fékk
hann 2 M og 14 sinnum 1 M.
Hann lék því aðeins tvo leiki án
þess að fá M.
Framarar prúðastir
Framarar voru með prúðasta lið-
ið í 1. deild og fá þeir því Drago-
styttuna þetta árið. Leikmenn liðs-
ins fengu samtals 24 áminningar
(gult spjald) og enga brottvísun
(rautt spjald). Eyjamenn voru hins
vegar með grófasta liðið ef marka
má spjöldin, 49 gul spjöld og 4
rauð spjöld.
Færri áhorfendur
Færri áhorfendur sóttu leikina í
1. deild í ár, en síðustu þijú árin á
undan og er greinileg áhorfenda
fækkun á HM-ári. Því árið 1990,
þegar HM var á Ítalíu, fækkaði
áhorfendum frá árunum á undan.
54.310 áhorfendur sáu leikina sl.
sumar, eða 603 að meðaltali á leik.
■ Sjá nánar / D2
KÖRFUKNATTLEIKUR: KEFLAVÍKURSTÚLKURNAR EFSTARÁ BLAÐI / D4