Morgunblaðið - 12.10.1994, Síða 4
ÍÞROmR
HESTAR
Eiðfaxi International
Stefnum í
fjögur þúsund
áskrHéndur
ÚTGÁFUMÁL hestamanna standa með miklum blóma þessa
dagana. Sem kunnugt er eru gefin út tvö fag tímarit, Hesturinn
okkar og Eiðfaxi, og fyrr á þessu ári hleypti útgáfufélagið Eið-
faxi af stokkunum erlendri útgáfu sem einnig ber nafnið Eiðfaxi
en International skeytt aftan við. Þykir mörgum þar sem í mikið
sé í ráðist og var af þessu tilefni tekin tali Gyða Gerðarsdóttir
framkvæmdastjóri Eiðfaxa.
45. Ársþing LH
Lyfjaregl-
ur, sam-
eining og
mótahald
aðalmálin
LyQamál, mótahald og sam-
eining verða helstu málefni
45. ársþings Landsambands
hestamannafélaga sem haldið
verður á Hvolsvelli 28. og 29.
október nk. Eins og búist var
við er talið líklegt að lyfjamálin
verði fyrirferðarmikil í umræð-
unni á þinginu í kjölfar Gýmis-
málsins.
Stjóm samtakanna mun
leggja fram tillögu um fullmót-
aðar reglur er banna notkun
lyfja í keppni og viðurlög ef
menn verða uppvísir að slíku.
Aðal þema þingsins verður
„Mótahald í nútíð og framtíð"
þar sem Guðmundur Jónsson
formaður LH mun hafa fram-
sögu ásamt Pétri Behrens og
Hjalta Jóni Sveinssyni. Verður
þar rætt um mótafyrirkomulag-
ið eins og það er í dag og hvern-
ig framsögumenn sjái það fyrir
sér f náinni framtíð. Þá mun
nefnd sú er gera átti útekt á
sameiningu LH _ og Hesta-
íþróttasambandi íslands hafa
unnið ötullega að verkefninu
síðustu vikumar og skilar inn
vinnuskýrslu á þingið. Er gert
ráð fyrir að skýrslan verði til
umræðu og standa vonir manna
til að unnið verði áfram að þeim
málum eftir þingið. Þá mun
stjóm leggja fram tillögur um
breytingar á úrslitum gæðinga-
keppni
Þá er þess að geta að hesta-
menn munu halda uppskeruhá-
tíð sína að Hótel Sögu 11. nóv-
ember nk. þar sem afhentir
verða verðlaunagripir til handa
hestaíþróttamanni ársins og
ræktunarmanni ársins. Það eru
LH, HÍS, Félag hrossabænda
og Búnaðarfélag íslands sem
standa fyrir samkomunni, en
undirbúningsnefndina skipa
Sigurður Þórhallsson, Júlíus
Brján8son, Hallveig Fróðadóttir
og Kristinn Hugason.
Valdimar
Kristinsson
skrifar
Hugmyndin að þessari útgáfu er
búinn að vera lengi upp á borð-
inu hér hjá Eiðfaxa, segir Gyða í
upphafi samtalsins,
„það var svo í des-
ember á síðasta ári
að ákveðið var að
koma hugmyndinn í
framkvæmd. Lengi hafa komið fram
óskir erlendra áskrifenda Eiðfaxa
um að blaðið kæmi út á ensku og
jafnvel þýsku en um árabil hefur
fylgt með til erlendra áskrifenda
þýddur útdráttur á ensku, sænsku
og þýsku. Eiðfaxi International er
sjálfstætt blað. Uppistaðan í efni
blaðsins er valið efni úr Eiðfaxa en
auk þess verða greinar í hveiju blaði
sem skrifaðar eru sérstaklega fyrir
blaðið og birtast ekki annars staðar.
Ritstjórn verður sú sama á báðum
blöðum, ritstjóri er Erlingur A. Jóns-
son en ssérstakur ráðgjafi Pétur
Behrens.
Nú þegar eru áskrifendur orðnir
um eitt þúsund en Gyða segir að til
að dæmið gangi upp þurfí um tvö
þúsund og fímm hundruð áskrifend-
ur. Sagði hún bjartsýni ríkja um að
sá fjöldi náist auðveldlega en í þeim
áætlunum sem gerðar voru áður en
lagt var upp í útgáfuna sé talið raun-
hæft að gera ráð fyrir fjögur þúsund
áskrifendum. „Það eru um tuttugu
og fimm þúsund manns sem eiga
islenska hesta erlendis og blöð eins
og Islandshasten sem gefíð er út í
Svíþjóð er með þrjú þúsund og fimm
hundruð áskrifendur, Das Island-
pferd sem gefíð er út í Þýskalandi
er með níu þúsund áskrifendur. Þau
lönd sem markið er sett á eru Norð-
urlöndin, Þýskaland og önnur Evr-
ópulönd þar sem íslenski hesturinn
hefur náð fótfestu í og svo að sjálf-
sögðu Bandaríkin sem eru hægt og
bítandi að koma inn í myndina.
Vissulega tekur einhvern tíma að
ná þessu markmiði," segir Gyða en
hún bendir á að nú séu aðeins liðnir
þrír mánuðir og eitt blað komið út
og sé nú þegar kominn einn fjórði
af settu marki.
Gert er ráð fyrir að út komi fjög-
ur blöð á ári. Fjárhagur blaðsins
verður að stærstum hluta borinn
Bikarmeistar-
arnir drógust
gegn Fjölni
FH-INGAR, bikarmeistaramir
í handknattleik, drógust gegn
Fjölni á útivelli í 32-liða úrslit-
um bikarkeppni handknatt-
leikssambandsins í gær. Annars
var drátturinn þannig:
Grótta B-HK, Ármann-ÍBV, Vajur
B-Ögri, Víkingur B-Fram, IH B-IH,
Völsungur-Breiðablik, Fylkir-Valur,
ÍR B-Stjaman, BÍ-Afturelding, FH
B-Selfoss, KA-ÍR, Keflavík-pi,
Fjölnir-FH, Selfoss B-Haukar, ÍBV
B-Grótta, Þór Akureyri-Víkingur.
Leikirnir fara fram helgina
22. og 23. október.
Dagsferðá
leik Unifed og
Barcelona
FARIN verður dagsferð til
Manchester í næstu viku á leik
Manchester United og Barcel-
ona í Evrópukeppni meistara-
liða í knattspyrnu á vegum
ferðaskrifstofunnar Samvinnu-
ferðar-Landsýnar. Farið verður
kl. 8 á miðvikudagsmorgni með
Fokker vél Flugleiða frá Kefla-
vík, lent ytra um kl. 11.15, leik-
urinn hefst kl. 20.30 og farið
verður aftur í loftið áleiðis heim
kl. 24. Ferðin kostar um 29.000
og er innifalið í því verði flug,
miði á völlinn og akstur ytra.
Gyða Gerðarsdóttir framkvæmdastjóri útgáfufélagsins Eiðfaxa
með fyrsta tölublaðið af Eiðfaxa International sem komin eru út
en annað tölublað er væntanlegt á næstu dögum.
uppi af auglýsingum og kvað Gyða
að viðtökur auglýsenda það sem
komið væri lofuðu góðu um fram-
haldið. Sagði hún greinilegt að þörf
fyrir blaðið væri mikil bæði hvað
varðar auglýsendur hérlendis og les-
endur erlendis. Gyða gerði ráð fyrir
að auglýsingar yrðu um 30% af efni
blaðsins en lestrarefni og myndir
70%. Landbúnaðarráðuneytið veitti
250 þúsund króna styrk til útgáfunn-
ar og framleiðnisjóður sömu upp-
hæð. „Þá hefur verið sótt um styrk
til utanríkisráðuneytisins sem veittur
er í tilefni lýðveldisársins til mark-
aðsöflunar á EES-svæðinu. Hins
vegar er rétt að taka það fram að
það er ekki ætlunin að reka blaðið
á styrkjum í framtíðinni. Það á svo
sannarlega að standa undir sér og
gott betur en fyrstu tvö árin geta
verið erfið,“ sagði Gyða Geiðarsdótt-
ir að lokum.
FELAGSLIF
Námskeið hjá SSI
A- og B-stigs námskeið Sundsambands fs-
lands fyrir þjálfara verða haldin að Laugar-
vatni 28. - 30. október. Nánari upplýsingar
á skrifstofu SSÍ.
íþróttaþing ÍSÍ
62. íþróttaþing ÍSÍ verður haldið 15. - 16.
október. Þingið fer fram i Ásgarði í
Garðabæ og verður sett kl. 10 á laugardag.
í kvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Digranes: HK - Afturelding 20.30
Garðabær: Stjarnan - ÍH 20
KA-heimilið: KA - ÍR 20
Strandgata: Haukar - Selfoss.. 20
1. deild kvenna:
Austurberg: Fylkir - Fram 20
Kaplakriki: FH - KR 21
Víkin: Víkingur - Haukar 20
2. deild karla:
Keflavík: Keflavík - Breiðablik 20
Körfuknattleikur
1. deild karla
Selfoss - Breiðablik 20
Hrossaræktin 1993
Valdimar
Kristinsson
skrifar
Aldrei fór það svo að Hrossarækt-
in 1993 kæmi ekki út áður en
núlíðandi ár rynni sitt skeið á enda.
Það er reyndar ekk-
ert nýtt að ritið sé
seint á ferðinni og
virðist sem það sé
orðin regla enda hafa
upphafsorð ritstjórans Kristins Huga-
sonar í flestum ef ekki öllum ræðum
undanfarna mánuði snúist um að af-
saka dráttinn. Eru sjálfsagt margir
sem efast um orð ritstjórans í for-
mála bókarinnar þar sem segir að
hann geri sér manna best grein fyrir
óhagræðinu sem hlýst af þessu.
Með öllu ér óskiljanlegt að ekki
skuli hægt að koma bókinni út á rétt-
um tíma sem er sagður febrúar eða
mars en ætti að vera með réttu 1.
desember. Búnaðarfélagsmenn virð-
ast ekki gera sér grein fyrir þeim
möguleikum sem Hrossaræktin hefur
í markaðssetningu. Á tækniöld eru
gerðar kröfur um snarpt upplýsinga-
streymi og ef sá sem ber hitann og
þungann af útgáfunni hefur lítinn
tíma ligur beinast við að fá annan
til verksins sem ynni þá undir yfir-
stjórn núverandi ritstjóra sem ér eðli
málsins samkvæmt lykilmaður í út-
gáfunni. Vísast ætti sala á ritinu að
geta fjármagnað þennan aukamann
þ.e. ef ritið kemur út á þeim tima
sem hentar markaðnum. En nóg um
það að sinni.
Hrossaræktin er afar vel þegið rit
meðal hrossaræktarmanna, búið er
að koma ritinu f prýðilega aðgengi-
legt form, alltént fyrir þá sem nenna
að kynna sér hvemig á að leita upp-
lýsinganna í bókinni. Það hefur að
geyma hafsjó af fróðleik sem reyndar
er farið að slá svolítið í af ofangreind-
um ástæðum. Auk ættbókarinnar eru
fróðlegar skýrslur ráðunautanna
Kristins og Þorkels Bjarnasonar sem
er nauðsynlegt meðlæti með tröl-
lauknum tölulegum upplýsingum ætt-
bókar og kynbótamats. Þar getur að
líta ýmsar undirstrikanir á bæði kost-
um og göllum hrossa og ýmsir fá
smásendingu frá ráðunautunum. Til
dæmis bendir Þorkell á að honum
þyki nóg um þann tíma sem sumir
sýnendur taka sér við sýningu hross-
anna í dómi. Nefnir hann í því sam-
bandi 14 ferðir á brautinni og segir
að öll met hafí verið slegin í þessum
efnum á Gaddstaðaflötum síðsumars
’93. Þá vekur athygli umsögn hans
um eina hryssu á sömu sýningu. Þar
segir að hún hafi hlotið 9 fyrir skeið
en fari alltaf lækkandi og gæti sigið
enn! Verður ekki betur séð en þarna
sé ráðunauturinn að gefa í skyn að
ekki væri ráðlegt að koma með hana
aftur til dóms. Að sjálfsögðu segja
ráðunautarnir bæði kosti og lesti
hrossanna sem er þeirra hlutverk,
sjálfsagt svíður einhverjum undan
eins og gengur og gerist en vissulega
yrði þetta litlaus skrif ef aðeins væri
getið um það góða og lítil leiðbeining
fyrir bragðið. Sem sagt skemmtileg
lesning og fróðleg nema ef vera kynni
fyrir þá sem verða fyrir skotum ráðu-
nautanna.
Allt gott er um Hrossaræktina að
segja nema útgáfutímann og mættu
aðstandendur ritsins gaumgæfa mjög
og endurskoða hvernig staðið verður
að útgáfunni í framtíðinni. Fullyrða
má að ef vandað yrði meira til rits-
ins, betri pappír og kápa og jafnvel
látið fljóta með eitthvað léttara efni
með til skemmtunar, yrði bókin eftir-
sótt jólagjöf og hægt að stórauka
söluna. Einnig mætti skoða hvort
æskilegt væri að bjóða útgáfuna út
og gera hana aðgengilegri fyrir er-
lenda ræktunarmenn. Núverandi útlit
og uppsetning stendur vel fyrir sínu
ef miðað er við útgáfutíma í febrúar
eða mars. Varðandi annir ritstjórans,
Kristins Hugasonar, og annarra bún-
aðarfélagsmanna má ekki skilja
gangrýni þá sem hér kemur fram á
þá leið að verið sé að gera lítið úr
þeirra störfum því hverjum þeim sem
fylgst hefur með endurskipulagningu
skýrsluhalds hrossaræktarinnar hjá
B.I. síðustu árin dylst ekki að þar
hefur verið lyft grettistaki. Að síð-
ustu er rétt að þakka þá góðu þjón-
ustu sem greinarhöfundur hefur þeg-
ið vegna starfsins hjá starfsmönnum
stofnunarinnar.