Morgunblaðið - 04.11.1994, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
ÍSLAND sigraði Danmörku 23:22 í æsispennandi
leik á alþjóðlega Reykjavíkurmótinu í gærkvöldi.
Patrekur Jóhannesson, sem á myndinni ógnar
dönsku vörninni, gerði sigurmarkið er ein og hálf
mínúta var eftir, og Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður, tryggði íslendingum sigur er hann
vat'ði skot af línu er aðeins ein sekúnda var eftir.
Morgunblaðið/Golli
SUND / HM FATLAÐRA
EHft gull, þijú siHur og Sig-
rún Huld setti heimsmet
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir setti
heimsmet í undanrásum í 100 metra
bringusundi og vann svo til gullverð-
launa í greininni, á fyrsta degi
heimsmeistaramóts fatlaðra í sundi
á Möltu í gær og íslendingar unnu
að auki til þrennra silfurverðlauna.
Birkir Rúnar Gunnarsson vann fyrstu
verðiaun íslendinga á heimsmeist-
aramótinu í gær er hann hafnaði í 2. sæti
í 100 m bringusundi í flokki Bl. Hann
synti á 1.22,57 mín. sem er nýtt íslands-
met í flokknum. Fyrr um daginn hafði
hann einnig sett íslandsmet í 100 metra
baksundi, 1.21.70 mín. en varð í 11.
sæti og komst ekki í úrslit.
■ Sigrún Huld Hrafnsdóttir vann síðan
fyrstu gullverðlaunin er hún sigraði í 100
metra bringusundi í flokki þroskaheftra
á tímanum 1.29,16 mín. En í undanrásun-
um í greininni' synti hún enn betur og
setti heimsmet; synti þá á 1.28,84 mín.
í 400 m skriðsundi karla í flokki S9
hafnaði Ólafur Eiríksson í 2. sæti á tíman-
um 4.41,27 mín. og fékk silfur.
Hilmar Jónsson setti íslandsmet í 100
m bringusundi í flokki þroskaheftra er
hann synti á 1.30,25 mín. Hann varð í
9. sætii undanrásum og komst ekki í úrslit.
Guðrún Ólafsdóttir og Bára B. Erlings-
dóttir komust báðir í úrslit í 100 m bringu-
sundi í flokki þroskaheftra; Bára synti á
1.39,77 og Guðrún á 1.44,59.
Pálmar Guðmundsson lauk svo degin-
um með því að vinna til silfurverðlauna
í 200 metra skriðsundi í flokki S3 er
hann synti á tímanum 4.37,11 mín. sem
er nýtt íslandsmet.
T rabzonspor fái
um 553 milljónir
í ríkisstyrk
TYRKIR eru í skýjunum eftir að Trabzonspor
tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum Evrópukeppni
félagsliða í knattspyrnu. Hópur þingmanna í fjár-
hagsnefnd lagði til í gær að ríkið verðlaunaði félag-
ið fyrir árangurinn með því að greiða því um 553,6
miilj. kr. enda hefði Trapzonspor lagt sitt af mörk-
um til að kynna Tyrkland með því að hafa betur
gegn frægum evrópskum liðum. Trapzonspor sat
yfir í undankeppninni en sló Dynamo Búkarest út
í 1. umferð og Aston Villa í 2. umferð með því
að vinna 1:0 heima og tapa 2:1 úti.
Tottenham reynir
að fá Pleat
TOTTENHAM vill fá David Pleat sem fram-
kvæmdastjóra liðsins á ný og hefur fengið sam-
þykki Luton til að ræða við hann. David Kohler,
formaður Luton, sagðist ekki ætla að standa í
vegi fyrir að Pleat færi aftur til Spurs sjö árum
eftir að hafa verið rekinn þaðan. „Hann er samn-
ingsbundinn okkur en ef hann telur að framtíðin
sé hjá Tottenham er lítið sem við getum gert tii
að stöðva hann og reyndar ættum við að vera
hreyknir af því að Spurs sýni áhuga á fram-
kvæmdastjóra litla Luton.“ Pleat sagðist hafa
áhuga á að sjá hvað Tottenham hefði að bjóða,
en sagðist aðeins taka starfið að sér ef algjör sam-
staða væri um það innan félagsins.
Skoskir leik-
menn í lægð
ALEX Ferguson, framkvæmdastjóri Manchester
United, .segir í rétt óútkominni bók að skoskir
knattspymumenn séu ekki eins góðir og áður.
„Skotland á ekki lengur leikmenn í sama gæða-
flokki og Graeme Souness, Kenny Dalglish eða
Davie Cooper,“ segir sá skoski. Hann segist ekki
líta til Skotlands eftir nýjum leikmönnum en viður-
kennir að hafa gert það á fyrstu árum sínum með
United „því það var markaðurinn sem ég þekkti
best. En nú leita ég alls staðar annars staðar, því
ekki nógu margir góðir leikmenn em á lausu i
Skotlandi." Hann segir að áður fyrr hafi margir
skoskir landsliðsmenn verið í herbúðum Manchest-
er United, mikilvægir leikmenn fyi'ir félagið, en
það sé liðin tíð.
Schuster tilbúinn
í þýska landsliðið
BERND Schuster, sem er 34 ára, segist vera tilbú-
inn að leika á ný í þýska landsliðinu eftir 10 ára
fjarveru. Eftir að hafa leikið aðeins 21 landsleik
hætti hann skyndilega að gefa kost á sér vegna
ósættis við nokkra aðra landsliðsmenn, en í þýska
íþróttablaðinu Kicker í gær segist hann vera tilbú-
inn í slaginn. „Fyrir heimsmeistarakeppnina í sum-
ar sagðist ég vera tilbúinn og ég endurtek fyrri
ummæli,“ sagði Schuster, sem gekk til liðs við
Bayer Leverkusen í fyrra eftir að hafa leikið á
Spáni um árabil. Hann hefur leikið rnjög vel með
Leverkusen, en sagði að mikilvægt væri að horfa
til framtíðar og benti á Evrópukeppni landsliða í
því sambandi.
Heimaleikir Azer-
baijan íTyrklandi
FYRSTI heimaleikur Azerbaijan í Evrópukeppni
landsliða verður gegn ísrael 16. nóvember og fer
hann fram í Trapzon í Tyrklandi. Knattspyrnusam-
band Evrópu hafði tilkynnt Azerbaijan að landslið-
ið gæti ekki leikið heima vegna ástandsins í land-
inu og óörygginu sem því fylgdi, en málið var leyst
með fyiTgreindum hætti og verða allir heimaleikir
liðsins í Trapzon.
KÖRFUBOLTI: NJARÐVÍKINGAR SIGRUÐU NÁGRANNANA FRÁ KEFLAVÍK / C2