Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.11.1994, Blaðsíða 4
KORFUKNATTLEIKUR Hamskipti Grindvíkinga ÞAÐ var engu líkara en lið Grindvíkinga hefði tekið hamskiptum í hálfleik í leik sínum við KR í úrvalsdeildinni i körf uknattleik í gærkvöldi. Eftir jafnan fyrri hálfleik sem einkenndist af baráttu beggja liða hreinlega rúlluðu heimamenn gestunum upp og sigr- uðu örugglega 96:77. KR mætti til leiks án tveggja lyk- ilmanna, þeirra Fals Harð- arsonar og Brynjars Harðarsonar sem voru heima með „. flensu. Heimamenn óiaksnn naðu yfirhondinm 1 skrifar byrjun en gestimir gáfu hvergi eftir og jöfnuðu leikinn og komust síðan yfir 21:20 á 12. mínútu. Það var líkt því að Grindvíkingar vanmætu þá fyrir að vera án lykilmannanna. Fimm stiga munur var á liðunum í hálfleik sem er lítið í körfuknattleik þar sem hlutimir gerast hratt. Eftir hressilegan lestur Friðriks Rúnarssonar þjálfara Grindvíkinga í hálfleik kom gjörbreytt lið heima- manna inn á völlin og á 7 mínútum gerðu þeir út um leikinn. Þeir skor- uður hverja körfuna á fætur annarri meðan ekkert gekk hjá KR. Þeir skomðu 2 stig en fengu á sig 23 sem var of stór biti fyrir ungu strák- ana hjá KR. Til marks um hraðann í leiknum og vandræði KR gátu þeir ekki skipt um leikmann á þessum kafla og sátu tveir skiptimenn lang- an tíma á bekknum og biðu eftir skiptingu. Eftirleikurinn var síðan auðveldur fyrir Grindavík og örugg- ur sigur í höfn. Unndór Sigurðsson átti stórleik á meðar stórskotahríðinni stóð, hitti vel og átti góðar sendingar. Helgi Jónas Guðfinnsson átti einnig góðan leik en segja má að allt liðið hafi staðið vel fyrir sínu. „Við vorum ekki ánægðir með fyrri hálfleik og hefðum alveg eins getað verið und- ir. Ég sagði strákunum að spila með hjartanu og það má segja að annað lið hafi komið inná í seinni hálfleik. Ungu strákamir náðu upp góðri stemmningu í fiðið og gerðu það sem þurfti. Ég var búinn að segja að það mætti ekki vanmeta KR en það er möguleiki að það hafí verið fyrir hendi í byijun þegar í ljós kom að lykilmenn vantaði í iiðið,“ sagði Frið- rik Rúnarsson þjálfari Grindvíkinga gftir leikinn. Lið KR kom á óvart með mikilli baráttu í fyrri hálfleik og héldu í við Grindvíkinga en þoidu ekki mót- lætið í seinni hálfleik. Ólafur Jón Ormsson var eini þeirra sem stóð uppúr. Axel Nikulásson þjálfari þeirra var stuttorður eftir leikinn. „Við töpuðum," sagði hann við Morgunblaðið. Þór leiddi allan tímann ívar Benediktsson skrifar Þórsarar, frá Akureyri, sigruðu Hauka, 88:95, í fjörugum leik í íþróttahúsinu við Strandgötu í gærkvöldi. Leik- menn Þórs höfðu frumkvæðið allan tímann og þrátt fyrir mikla baráttu heimamanna tókst þeim aldrei að minnka forystu norðan manna niður í meira en fjögur stig. Þórsarar settu á fullt gas strax í byijun leiks og náðu átta til tíu stiga forystu strax. Þegar staðan var 20:31, breyttu Haukar yfir í pressu- vöm og skilaði hún þeim ágætis árangri á tímabili. Náðu þeir að saxa forskot Þórs niður í fjögur stig, 32:36. Þórsarar fundusvar við því og juku aftur forystuna. í leikhléi voru þeir tólf stigum yfir, 38:50. Síðari leikhlutinn var mun flör- ugri en sá fyrri. Haukar sóttu af mun meiri ákveðni og vömin var betri. Forskot Þórs sem á tímabili var, 53:67, fór niður í fjögur stig, þegar átta mínútur voru eftir, 70:74. Þá varð Jón Arnar Ingvarsson að yfirgefa völlinn með fimm villur. Um það leyti voru fleiri leikmenn Hauka komnir í villuvandræði. Pétur bróðir hans og Sigurður Gizurason voru þá með íjórar villur. Kom það niður á leik Hauka á lokamínútunum. Leikmenn Þórs gáfu því ekkert eftir og sigruðu verðskuldað. Þórsliðið var jafnt og stóð engin öðmm fremur upp úr. Hjá Haukum- voru Pétur Ingvarsson og Sigfús Gizurson bestir. Þá lék ungur leik- maður, Pétur Óskarsson, vel. Gunnlaugur Jónsson skrifar krafti, með körfum, en Flugeldasýning ífyrri hálfleik Borgnesingar sigmðu nágranna sína, Skagamenn, í sannköll- uðum sex stiga leik á Akranesi í gærkvöldi, 98:91, eftir að staðan var jöfn í hálfleik, 52:52. Skagamer.n hófu leikinn af miklum þremur þriggja stiga Borgnesingar hleyptu þeim þó ekki frá sér. Liðin skiptust á að hafa forystuna en munurinn varð aldrei meiri en fimm stig. í fyrri hálfleik var algjör flugelda- sýning hjá liðunum; mikið skorað, og þar af alls 16 þriggja stiga körf- ur. Fór Henning Henningsson fyrir gestunum, með 18 stig í hálfleiknum en heimamaðurinn Brynjar K. Sig- urðsson var í fallbyssu-stuði og gerði alls 26 áður en blásið var til hálf- leiks. Hann varð hins vegar fyrir því óláni að meiðast undir lok fyrri hálf- leiks, og var ekkert með í þeim seinni. Var þar skarð fyrir skildi í liði heimamanna. í seinni hálfleik komust gestimir framúr þó Skagamenn, sem náðu ekki að fylla skarð Brynjars, gerðu sitt besta til að halda í við þá. Borg- nesingar gáfu aldrei eftir og þegar flautað var af var staðan 98:91 sem fyrr segir. Það skondna atvik átti sér stað um miðjan seinni hálfleik að Borg- nesingurinn Gunnar Þorsteinsson varð fyrir því óláni að skora sjálf- skörfu, við mikinn fögnuð heima- manna. Henning Henningsson var frábær í liði gestanna, gerði 40 stig. „Þetta er einn þeirra daga sem maður fær mikið af fríum skotum, og þau duttu ofaní. Það hefur verið mikill stígandi í liðinu og þetta er á góðri leið,“. sagði Henning við Morgunblaðið í leikslok. Tómas Holton þjálfari og Grétar Guðlaugsson voni einnig góð- ir í liði Borgnesinga. í heimaliðinu var Brynjar frábær í fyrri hálfleik eins og áður sagði, og nýji Banda- ríkjamaðurinn B.J. Thompson átti ágætan leik, en eftir að Brynjar fór út af mæddi mikið á honum og var hann óheppinn með skot. AuðveK hjá Tindastóli Tindastóll átti ekki í neinum erf- iðleikum með slaka Valsmenn, þegar liðin mættust á heimavelli Valsmanna í gær- kvöldi. Tindastóll Eiríksson sigraði með 18 stiga skrifar mun. 30:98. Leikurinn var í jafnvægi til að bytja með en um miðbik fyrri hálfleiksins gerðu gest- irnir sextán stig í röð og lögðu þá grunninn að sigrinum. Valsmenn náðu ögn að rétta hlut sinn fyrir hálfleik, en gestirnir voru þó með níu stiga forskot í leikhléi, 42:51. Stólarnir héldu sínu og gott betur í síðari hálfleik. Þeir voru komnir með rúmlega tuttugu stiga forskot þegar síðari hálfleikur var hálfnað- ur, og ekkert ógnaði sigri þeirra. „Ég vona bara að þetta sé upphaf- ið á einhveiju enn stærra,“ sagði Hinrik Gunnarsson leikmaður Tinda- stóls eftir leikinn. Hann lék mjög vel í gærkvöldi, en hann hefur átt við veikindi að stríða að undanförnu og lítið getað æft. „Ef við höldum áfram að spila svona þá getum við unnið hvaða lið sem er, og þetta gefur okkur styrk fyrir næsta leik, sem verður erfiður," sagði Hinrik, en næsti leikur liðsins er gegn Grindavík á Sauðárkróki. Hið unga lið Tindastóls stóð sig mjög vel í leiknum. Hinrik Gunnars- son var öflugur í sókninni, en táning- amir Óli Barðdal og Ómar Sigmars- son sýndu mjög góðan varnarleik, og náðu vel að trufla sóknaraðgerð- ir Valsmanna, auk þess sem ðmar gerði 18 stig í sókninni. John Torrey var atkvæðamestur í liði Tindastóls og lék auk þess vel í vörn. Hjá Vals- mönnum stóð Jonathan Bow upp úr, átti ágætan leik og gerði 39 stig, en aðrir leikmenn voru vart með á nótunum. Njarðvikingar sterkari Snæfell byijaði betur gegn Njarð- vík í Stykkishólmi í gærkvöldi og það tók gestina nokkurn tíma að átta sig á að það er .. . ekki formsatriði að Guðnadóttir sPila við Snæfell. skrifar Þeir þurftu virkilega að hafa fyrir hlutun- um og stóðu að lokum upp sem sig- urvegarar. Lið Snæfells hefur tekið miklum framförum þó fýrstu stigin séu ekki komin í höfn og greinilegt að hinn gríski þjálfari liðsins er að gera góða hluti. Hann mætti þó hafa betri stjórn á skapi sínu þrátt fyrir að stundum hafi dómararnir verið gersamlega úti á þekju. Njarð- víkingar nýttu sér vel reynslu sína og seigluðust í gegnum þennan leik. „Gömlu“ mennirnir í Njarðvík, Rond- ey, ísak og Jóhannes Kristbjörnsson voru yfirburðarmenn en Ray Hardin bar af í liði Snæfells og var besti maður vallarins, hefur gífurlegan stökkkraft og átti Ronday í miklum erfiðleikum með hann í vörn og sókn. Karl átti ágætan leik og Eysteinn og Jón Þór áttu góða spretti. Lýður Vignisson, 14 ára, gerði tvö stig í fyrsta meistaraflokksleik sínum. TENNIS / HM ATVINNUMANNA Reuter Agassi í undanúrslit ANDRE Agassi vann landa sinn Michael Chang 6-4, 6-4 í gær og þar með tryggði Bandaríkjamaðurinn sér sæti í undanúrslitum hefmsmeistaramóts atvinnumanna í Frankfurt. Sergi Bruguera vann Alberto Berasategui 6-3, 6-2 og er líka kominn í undanúr- slit, en í hinum riðlinum er allt opið eftir að Pete Sampras vann Stefan Edberg 4-6,6-3,7-6. Á myndinni er Agassi í leiknum í gær. ÍR - Keflavík 93:89 fþróttahús Seljaskóla, úrvalsdeildin í körfu- knattleik, fímmtudaginn 17. nóv. 1994. Gangur leiksins: 2:0, 11:11, 13:19, 19:23, 35:25, 40:32, 43:48, 48:48, 48:50, 58:52, 64:58, 64:65, 72:69, 87:82, 91:89, 93:89. Stig ÍR: Herbert Arnarson 25, Halldór Kristmannsson 23, Eiríkur Önundarson 21, John Rhodes 17, Eggert Garðarsson 7. Fráköst: 10 í sókn - 22 í vörn. Stig Keflavík: Lenear Bums 24, Jón Kr. Gíslason 16, Sigúrður Ingimundarson 14, Davíð Grissom 12, Kristján Guðlaugsson 8, Sverrir Sverrisson 6, Einar Einarsson 5, Birgir Guðfinnsson 4. Fráköst: 4 í sókn - 20 í vörn. Villur: fR 18 - Keflavík 26. Dómarar: Georg Þorsteinsson og Bergur Steingrímsson. Mjög erfiður leikur og þeir gerðu sitt besta, geri aðrir betur. Ahorfendur: Um 660. Valur - Tindastóll 80:98 Valsheimilið að Hlíðarenda: Gangur leiksins: 0:4, 14:13, 15:31, 24:43, 32:47, 36:50, 42:51, 44:55, 49:60, 55:65, 55:72, 68:84, 73:89, 75:94, 80:98. Stig Vals: Jonathan Bow 39, Bárður Ey- þórsson 11, Bragi Magnússon 7, Bergur Emilsson 5, Ragnar Þór Jónsson 5, Hans Bjamason 2, Hjalti Jón Pálsson 2. Fráköst: 10 í sókn - 21 í vörn. Stig Tindastóls: John Torrey 36, Hinrik Gunnarsson 20, Ómar Sigmarsson 18, Am- ar Lárusson 13, Sigurður Pálsson 9, Óli Barðdal 2, Fráköst: 12 í sókn - 24 í vöm. Villur: Valur 23 - Tindastóll 17. Dómarar: Kristján Möller og Aðalsteinn Hjartarson, góðir. Áhorfendur: 100. UMFG-KR 99:77 íþróttahúsið í Grindavík: Gangur leiksins: 0:2, 17:6, 19:19, 22:23, 27:27, 36:29, 41:36, 43:38, 64:38, 74:46, 74:53, 84:64, 96:72, 96:77. Stig UMFG: Unndór Sigurðsson 24, Helgi Jónas Guðfinnsson 23, Frank Booker 14, Marel Guðlaugsson 12, Guðmundur Braga- son 10, Pétur Guðmundsson 7, Steinþór Helgason 2, Guðjón Skúlason 2, Begur Hin- riksson 2. Fráköst: 8 í sókn, 23 í vörn. Stig KR: Ólafur Jón Ormsson 23, Ingvar Ormsson 13, Ósvaldur Knudsen 13, Dona- van Casanave 10, Birgir Mikaelsson 8, Hermann Hauksson 5, Atli Freyr Einarsson 2, Þórhallur Flosason 2, Jónas Jónasson 1. Fráköst: 4 í sókn, 26 í vörn. Áhorfendur: Um 450. Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur Garðarsson. Dæmdu vel. Villur: UMFG 13 - KR 15. Haukar-Þór Ak. 88:95 íþróttahúsið við Strandgötu: Gangur leiksins: 0:2, 10:15, 17:25, 20:31, 32:36, 33:45, 38:50, 49:59, 53:67, 64:69, 70:74, 73:81, 79:88, 84:90, 88:95. Stig Hauka: Pétur Ingvarsson 26, Sigfús Gizurason 20, Óskar Pétursson 16, Jón Amar Ingvarsson 12, Baldvinn Hohnsen 10, Steinar Hafberg 2, Þór Haraldsson 2. Fráköst: 7 í sókn - 20 í vöm. Stig Þórs: Kristinn Friðriksson 24, Sandy Andersson 20, Konráð Óskarsson 16, Björn Sveinsson 13, Birgir Öm Birgisson 8, Einar Valbergsson 8, Örvar Erlendsson 5, Einar H. Davíðsson 1. Fráköst: 7 í sókn - 30 í vörn. Villur: Haukar 27 - Þór 24. Dómarar: Helgi Bragson og Þorgeir Jón Júlíusson. Áhorfendur: 80. ÍA - Skallag rímur 91:98 íþróttahúsið á Akranesi: Gangur leiksins: 6:0, 11:12, 20:20, 33:36, 46:41, 52:52, 58:59, 65:66, 69:76, 77:81, 79:87,_ 86:91, 91:98. Stig ÍA: Brynjar K. Sigurðsson 26, B.J. Thompson 23, S. Elvar Þórólfsson 17, Dag- ur Þórisson 8, ívar Ásgrímsson 8, Jón Þór Þórðarson 7, Gunnar Þorsteinss. (UMSB) 2. Fráköst: 11 í sókn - 22 í vöm. Stig Skallagrims: Henning Henningsson 40, Grétar Guðiaugsson 15, Tómas Holton 14, Gunnar Þorsteinsson 12, Alexander Ermolinskíj 10, Sveinbjörn Sigurðsson 5, Þórður Ilelgason 2. Fráköst: 7 i sókn - 19 í vörn. Villur: ÍA 21, Skallagrímur 17. Dómarar: Kristinn Óskarsson og Einar O. Einarsson. Dæmdu erfiðan leik ágætlega. Áhorfendur: 830. Snæfell - UMFN 84:108 fþróttahúsið Stykkishólmi: Gangur leiksins: 2:0, 12:12, 23:32, 30:37, 32:54, 42:60, 58:79, 64:85, 78:101, 84:108. Stig Snæfells: Ray Hardin 32, Karl Jóns- son 21, Jón Þór Eyþórsson 10, Eysteinn Skarphéðinsson 10, Atli Sigurþórsson 6, Hjörleifur Sigurþórsson 2, Lýður Vignisson 2, Ágúst Jensson 1. Fráköst: 26 í vörn, 10 í sókn (Hardin átti 26 fráköst alls). Stig Njarðvíkur: Ronday Robinson 24, ísak Tómasson 21, Jóhannes Kristbjörnsson 17, Kristinn Einarsson 14, Jón Júlíus Áma- son 14, Teitur Örlygsson 13, Sævar Garð- arsson 3, Páll Kristinsson 2. Fráköst: 12 í vörn, 14 í sókn. Villur: Snæfell 27, Njarðvík 23. Dómarar: Einar Þór Skarphéðinsson og Björgvin Rúnarsson voru mjög slakir, en Einar Þór ögn skárri. Áhorfendur: 108.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.