Morgunblaðið - 15.12.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
ptnnrjgitttÞIðltil)
D
1994
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER
BLAÐ
IÞROTTIR FATLAÐRA
Morgunblaðið/Sverrir
Blair og Koss
íþróttamenn árs-
ins að mati
Sports lllustrated
SKAUTAHLAUPARARNIR Bonnie Blair frá
Bandaríkjunum og Norðmaðurinn Johann Olav
Koss hafa verið útnefnd íþróttamenn ársins
1994 af bandaríska íþróttatimaritinu Sports III-
ustrated. Blaðið velur veiýulega einn íþrótta-
mann, en Blair og Koss bera titilinn bæði að
þessu sinni.
Blair, sem er þritug, vann til fjórðu og fimmtu
ólympíugullverðlauna sinna á leikunum í Lille-
hammer, og varð þar með sigursælasta banda-
ríska íþróttakonan í sögu ólympíuleikanna. Hún
sigraði í 500 metra skautahiaupi á þriðju ieikun-
um í röð og varð síðan yfirburðasigurvegari í
1.000 m hlaupinu. Með sigri í 500 metrunum
varð hún fjórði íþróttamaðurinn til að fagna
sigri í grein á þremur ólympiuleikum í röð.
Koss setti heimsmet í öllum þremur greinun-
um sem hann keppti í á leikunum í Lillehammer
—1.500, 5.000 og 10.000 metra hlaupunum —
en fyrir átti hann tvo gullpeninga frá leikunum
í Albertville 1992. „Þetta er mesti heiður sem
íþróttamanni getur hlotnast," sagði Koss í yfir-
iýsingu sem birtist í Sports IUustrated og hefur
þá væntanlega átt við að vera útnefndur af blað-
inu. „Það er mikill heiður að deila viðurkenning-
unni með Bonnie,“ sagði hann. „Hún er besti
skautahlaupari sem ég veit um,“ sagði Koss, sem
er 26 ára og hætd keppni eftir leikana í Lille-
hammer til að einbeita sér að læknanámi og
störfum að mannúðarmálum. .
Heimir ráðinn til
Ríkisútvarpsins
HEIMIR Karlsson, fyrrverandi deildarstjóri
íþróttadeildar Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hefur
verið ráðinn tímabundið í starf íþróttafrétta-
manns þjá íþróttadeild Ríkisútvarpsins.
í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu segir að Ing-
ólfur Hannesson, íþróttasljóri, snúi sér um ára-
mótin að undirbúningi vegna HM ’95 í hand-
knattleik og að Samúel öm Erlingsson taki við
stöðu hans, og Heimir muni taka stöðu Samúels
Arnar.
Ingólfur segist mjög ánægður með að fá Heimi
til starfa, enda sé hann markaskorari eins og
þeir gerist bestir og því góður liðsstyrkur í
framlínu iþróttadeildarinnar.
LYFJAMAL
Kínverjar vilja að sömu
lög gildi um lyfja-
misnotkun og sakamál
Sigrún Huld
íþróttamað-
ur ársins í
þriðja sinn
SIGRÚN Huld Hrafnsdóttir,
sundkona úr íþróttafélaginu
Osp, var í gær útnefnd íþrótta-
maður ársins 1994 úr röðum
fatlaðra. Þetta er í þriðja sinn
sem hún hlýtur þennan heiður.
Sigrún Huld er 24 ára gömul
og hóf að stunda sundíþróttina
12 ára gömul. Hún hefur verið
nær ósigrandi í sundi hér innan-
lands og náð frábærum árangri
á erlendum mótum og sett fjöl-
mörg heimsmet á ferlinum.
Hún vann fern gullverðlaun,
tvenn silfurverðlaun og ein
bronsverðlaun á HM þroska-
heftra í sundi sem fram fór á
Möltu í nóvember. Hún setti
þijú heimsmet í 50 metra laug
á árinu og 12 heimsmet í 25
metra laug. Á myndinni er Sig-
rún Huld með farandgripinn
sem nafnbótinni fylgir og blóm-
vönd, sem hún fékk einnig í til-
efni dagsins.
Kínveijinn He Zhenliang, sem er
í framkvæmdanefnd Alþjóða
ólympíunefndarinnar, IOC, sagði
fyrir fund nefndarinnar í Atlanta í
Bandaríkjunum í gær, að Kínveijar
hefðu hug á að breyta landslögum
svo hægt væri að höfða opinbera
málsókn gegn öllum sem hlut eiga
að máli í tengslum við lyfjamisnotk-
un. Hann vísaði á bug ásökunum
um skipulagða lyfjamisnotkun í Kína
en sagði þvert á móti að eftirlitið
væri strangt og þó nokkrir af millj-
ónum íþróttamanna hefðu fallið á
lyfjaprófí væri það ekki hátt hlulfall.
Eins og fram hefur komið féllu
11 kínverskir íþróttamenn, þar af
sjö sundmenn, á lyfjaprófi á Asíu-
leikunum í október. Olympíunefnd
Kina hefur hafið rannsókn á málinu
og boðað harðar refsingar gegn öll-
um sem tengjast því. Aðspurður
hvort viðkomandi yrðu sóttir til saka
sagði Ha .að ákveðnar reglur giltu í
lyfjamálum, en breyta þyrfti lands-
lögum til að hægt væri að höfða
opinber mál gegn hinum brotlegu
og vel kæmi til greina að fara þá
leið. „Við verðum að hugsa um það,“
sagði hann. „Rannsókn stendur yfír
og við ætlum að gera það sem við
getum til að snúa vörn í sókn. Við
ættum að taka mun harðar á lyfjami-
snotkun sem yrði víti til varnaðar
og aðrar þjóðir ættu að slást í hóp-
inn með okkur í viðleitninni til að
hreinsa íþróttirnar."
Þjóðveijinn Manfred Donike, sem
er í læknanefnd IOC, sagði fyrir
skömmu að um skipulagða lyfjamis-
notkun væri að ræða hjá kínversku
sundfólki, en He sagði það ekki rétt.
„Hvernig geta sjö jákvæð sýni hjá
sundfólki leitt til þeirrar niðurstöðu
að um skipulagðan verknað sé að
ræða? Veit Donike hvað margir
sundmenn eru í Kína? Milljónir og
aftur milljónir og ef gengið er út frá
skipulögðum verknaði er verið að
ásaka milljónir sundmanna. Donike
og aðrir sérfræðingar ættu að vita
að rannsóknarstöð okkar fram-
kvæmdi meira en 1.000 lyfjapróf á
síðasta ári, þar af meira en 300 utan
keppni, og 24 jákvæð sýni fundust.
Viðkomandi voru samstundis settir
í bann, en þetta undirstrikar að lyfja-
eftirlit okkar er skipulagt."
Kanadamaðurinn Dick Pound,
sem er í framkvæmdanefnd IOC, var
ósammála He. „Þetta getur verið
eitt af þessum málum þar sem fólk-
ið í helstu ábyrgðarstöðum veit ekki
hvað er að gerast í búningsklefun-
um. En þeir sem stjórna ferðinni fá
skellinn á alþjóða vettvangi. Ég held
að þeim sé mjög brugðið og geri
eitthvað á kínverskan hátt til að
reyna að leysa vandann. Hins vegar
kasta margir steinum úr glerhúsi
og segja hvað þetta sé hræðilegt en
hinir sömu þögðu þunnu hljóði fyrir
nokkrum árum þegar menn þurftu
að vera blindir til að sjá ekki hvað
var að gerast í lyfjamálum í Evrópu
og Norður-Ameríku.”
EM í KIMATTSPYRNU: SVISSLENDINGAR SIGRUÐU í TYRKLANDI / D2