Morgunblaðið - 07.01.1995, Síða 3

Morgunblaðið - 07.01.1995, Síða 3
2 C LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ HÚN heitir Elina Löw- ensohn, er 28 ára leik- kona af rúmenskum gyðingaættum, og hef- ur þegar náð eyrum og athygli þekktustu leikstjóra í Evrópu. Vestur í Bandaríkjunum hefur hún í samvinnu við leikstjórana Hal Hart- ley, Steven Spielberg, Michael Alme- reyda o.fl. fengið stærri tækifæri á hvíta tjaldinu en flestir ungir leikarar geta látið sig dreyma um. í vetur er verið að taka til sýninga í Evrópu og Bandaríkjunum nýjustu mynd leikstjórans Hal Hartleys, The Amateur, þar sem Elina leikur eitt aðalhlutverkið; klámdrottninguna Sofíu. Aður hefur hún farið með hlut- verk í nokkrum mynda Hartleys, þ.á m. Simple Men, sem sýnd hefur verið hér á kvikmyndahátíð. Þessi upprennandi leikkona_ hefur dvalið um hátíðarnar hér á íslandi hjá sambýlismanni sínum, franska listmálaranum Philippe Richard. Hann kom til íslands sem skiptinemi fyrir rúmum áratug, og æ síðan hef- ur hann viðhaldið tengslum sínum við land og þjóð. Philippe er um þess- ar mundir búsettur í nágrenni höfuð- borgarinnar, þar sem hann vinnur að listsköpun sinni fjarri glaumi heimsborganna. Hjónaleysin eru þó bæði á faraldsfæti, hann á leið til Þýskalands að setja upp myndlistar- sýningu - hún til New York að tak- ast á við nýtt hlutverk. Eftir það mun fundum þeirra ekki bera saman á ný fyrr en í París í vor, þar sem framtíðarheimilið bíður þeirra. Hún er þó staðráðin í að koma með honum aftur til íslands, til fundar við að- standendur og vini. „Draumurinn er að eignast hér lítið hús með vinnuað- stöðu“ segir hún - „svolítið athvarf til að eiga stundir milli stríða.“ Við tökum tal saman í vinnustofu Philippes daginn fyrir gamlársdag. Elina - smágerð, lágvaxin og lífleg í fasi - er dúðum vafín frá hvirfli til ilja. „Hitinn fór af húsinu um leið og rafmagnið fór í fyrradag," segir hún, en virðist ekki hafa af því mikl- ar áhyggjur. „Rafmagnið kom aftur, en ekki hitinn," útskýrir hún. Það er því ískalt í vinnustofunni, eini ylur- inn sem berst um salinn er varminn frá Ijóskösturunum sem þó mega sín lítils. Æska í skugga Ceausescus Talið berst að æsku hennar og uppvexti sem vart getur talist dæmi- gerður fyrir bandaríska leikkonu. Hún er fædd í Búkarest og þar upp alin til fjórtán ára aldurs. Faðir henn- ar, Jacoues Löwensohn, var tuttugu árum eldri en móðirin og gyðingur að uppruna. Hann hafði lent með fyrri konu sinni og bömum í útrým- ingabúðum nasista og verið sá eini úr fjölskyldunni sem lifði af. Eftir þær hremmingar gerðist hann að stríðinu loknu meðlimur í Rúmenska kommúnistaflokknum, og varð mjög háttsettur embættismaður í stjóm Ceausescus. Örfáum ámm fyrir dauða sinn - þegar Elina var sjö ára - féll hann þó úr náðinni og var lækkaður í tign, sökum gyðinglegs upprana. Það urðu hans lífsvonbrigði. „Þegar ég lít til baka, geri ég mér ljóst að bernska mín hefur verið all frábragðin uppvaxtarskilyrðum bandarískra ungmenna," segir Elina. „Rúmenía á þeim árum var þrúguð af ógnarstjórn Ceausescus - og jafn- vel sem barn fann ég fyrir þeim þrýst- ingi sem stjórnarhættir hans höfðu á almenning í Rúmeníu. Maður vissi að það mátti ekki tala um ákveðna hluti. Á þeim tíma stálust allir til þess að hlusta á evrópskar útvarps- stöðvar, mínir foreldrar líkt og aðrir. En um það mátti aldrei tala. Um hálsinn báram við krakkarnir lítil flögg sem við þorðum varla að snerta, hvað þá að leika okkur með. Slík var virðingin fyrir þjóðfánanum. Kennar- anir voru harðstjórar - nokkurskonar lögregla. Það var ekki fyrr en ég kom til Bandaríkjanna sem mér varð ljóst að vinsamleg samskipti milli kennara og nemenda gátu átt sér stað í veru- leikanum. Það var mikil nýlunda fyr- ir mér.“ Móðir Elinu, Gabriela Ionito, hafði verið ballettdansari um árabil í Rúm- eníu. Nokkrum árum eftir missi eiginmannsins bauðst henni tíma- bundið starf sem danskennari í Equ- ador. Það var stór ákvörðun fyrir hana að taka starfinu, og skilja börn- EUNA Löwensohn er risqndl kvikmyndq- stjqrnq ef*ir leik i myndom Hql Hqrt- leys. Hún tqlqr wm leiklistmq, æskuárin undir ognqrstjórn Cequsescusy qstinq og frqmtiéqrqformin in - Elinu og yngri bróðuríhennar - eftir í umsjá ömmu sinnar. Þar með var stigið fyrsta skrefíð í flótta íjöl- skyldunnar frá Rúmeníu. Eftir árs dvöl í Equador fluttist móðirin til New York, og hófst handa við að reyna að fá börnin til Bandaríkjanna. Það gat orðið þrautin þyngri, því margir sem flúðu Rúmem'u urðu að bíða áram saman eftir að fá fjölskyld- umar til sín. Sumir sáu aldrei ástvini sína aftur eftir að þeir höfðu yfírgef- ið landið. „Móðir mín vissi, þegar henni bauðst þetta starf, að hún ætti ekki afturkvæmt til Rúmeníu. En hún gerði þetta fyrir okkur, börnin sín. Hún taldi að það væri okkur fyrir bestu að yfírgefa landið og afla okk- ur menntunar og þekkingar annars staðar, fremur en festast í því kom- múníska kerfí sem þar ríkti. Ef fólk vildi eiga möguleika á sómasamlegri lífsafkomu í Rúmeníu, varð það að ganga í Kommúnistaflokkinn. Al- menningur bjó við andlegt og menn- ingarlegt ófrelsi. Móðir mín vildi brjóta okkur leið út úr því ófrelsi." Ætlunarverk hennar tókst, og þótt ótrúlegt megi virðast tók það ekki nema tvö ár. Árið 1980 sameinaðist fjölskyldan á nýjan leik, þegar börnin komu til Bandaríkjanna og settust að hjá móður sinni í New York. Elina var þá orðin fjórtán ára gömul. „Bandaríkin höfðu fram að því verið draumalandið, í augum okkar, tveggja rúmenskra barna. Land tæki- færa og allsnægta - við sáum fyrir okkur óþrjótandi tyggigúmmí og gallabuxur,“ segir hún og hlær. „En við komumst fljótt að raun um að veraleikinn var annar. i Bandaríkjun- um fær maður ekkert fyrirhafnar- laust fremur en annars staðar. Fjöl- skylduaðstæður okkar voru einfald- lega þær að móðir mín var orðin ein- stæð með tvö börn og aldraða móður á framfæri. Lífið var enginn dans á rósum. En það var jafn auðséð að við voram komin langt frá heima- landinu. í Rúmeníu hugsuðu ungar stúlkur ekki um andlitsfarða, hár- greiðslu og stefnumót við kærastann, heldur um skólagöngu sína og lífsaf- komu sinna nánustu. Möguleikarnir vora allt aðrir og meiri í nýja land- inu. Þó átti ástandið í Rúmeníu eftir að versna all mikið eftir 1980. Meðan við bjuggum þar var þó enn hægt að fá helstu lífsnauðsynjar, jafnvel þótt það kostaði nokkurra stundar- fjórðunga bið framan við búðirnar. Seinna urðu lífsnauðsynjar að hreinni munaðarvöra og jafnvel ófáanlegar." Fyrstu sporin á leiklistarbrautinni Fjórum árum eftir komuna til New York innritaðist Elina í New York háskóla þar sem hún nam leiklist í þijú ár. Ein af skólasystrum hennar í Ieiklistardeildinni var María Ellings- en. Leiðir þeirra lágu ekki mikið sam- an, utan eitt skipti sem þær tóku báðar þátt í uppfærslu á Hamlet. „María var látin fara með sinn texta á íslensku og það var í fyrsta skipti sem ég heyrði það mál talað,“ segir hún og hlær þegar þetta rifjast upp fýrir henni. „María var mjög falleg, enda allir strákarnir á eftir henni.“ Eftir þrjú ár sagði Elina skilið við leiklistarnámið, án þess að ljúka burt- fararprófí. „Mér leiddist námið, og vildi fara að vinna fyrir mér ... spreyta mig í leiklistinni. Ég hafði einkennilegt hugboð um að margt af því fólki sem ég kynntist í leiklist- ardeildinni ætti eftir að verða sam- starfsmenn mínir síðar. Það hugboð reyndist rétt. Fólk hefur spurt mig hvernig ég hafi þorað að gera þetta, eins og samkeppnin er nú hörð í New York, ekki síst meðal ungra leikara - og ég með erlendan hreim í þokka- bóti En ég hugsaði aldrei út í það á þeim tíma. Ég var svo viss um að mér myndi farnast vel - það var eins og ég ætti ekkert val. Leiklistin var það eina sem kom til greina í lífí mínu, og mér fannst allt velta á því að mér tækist að reyna mig á því sviði. Skólinn stóð mér fyrir þrifum." Það var lán hennar að í leiklistar- deildinni hafði hún kynnst Travis Preston, kennara sínum og síðar leik- stjóra. Þau hófu samstarf sem lykt- aði með því að hún lék í fjölmörgum sviðsleikritum undir hans stjórn við ýmis virt leikhús í Bandaríkjunum. Meðal hlutverka má nefna Ofelíu í Hamlet, Donnu Elvira í Don Juan, og Ólivíu í Tólf nóttum. Samstarf við Hal Hartley „Svo vildi til að Hal Hartley var líka gamall nemandi Prestons, og mikill aðdáandi hans. Hann mætti á allar uppfærslur Prestons og komst því ekki hjá að sjá mig leika. Svo fór að lokum að hann bauð mér sam- starf, sem ég að sjálfsögðu þáði. Afraksturinn af því var stutt kvik- mynd sem nefndist The Theory of Achievement. Þar lék ég Elinu, rúm- enska stúlku - sjálfa mig. Næsta mynd var Simple Men, þar sem ég fór með eitt af burðarhlutverkunum; og enn var það hlutverk Elinu, rúm- enskrar stúlku. Hartley skrifar sjálf- ur handritin að þeim myndum sem hann gerir - og samstarf okkar hef- ur verið mjög náið og gott. Svo gott að ég held það sé leitun að jafngóðu sambandi milli leikara og leikstjóra. Sama er að segja um samband mitt við Preston. Ég er þeim báðum mjög þakklát fyrir þau tækifæri sem þeir hafa veitt mér - ekki síst Hartley, sem opnaði mér fyrstu dyrnar inn í kvikmyndaheiminn. Hal er sjálfum sér samkvæmur og afar trúr listinni. Peningar skipta hann engu máli - hann hefur mjög sterkan listrænan metnað og skrifar góð handrit. Sög- urnar hans eru óheflaðar og gríp- andi. Hann viðhefur skjót og skipu- lögð vinnubrögð sem einkennast af einbeitingu og aga. Mér fellur mjög vel að vinna undir hans stjórn. I „Viðvaningnum" (The Amateur) seg- ir hann sögu manns sem hefur misst minnið, en á dökka fortíð að baki. Minnisleysi hans hefur þurrkað út verstu eiginleika í fari hans, en um- hverfíð hefur hinsvegar engu gleymt. Spurningin sem varpað er upp er þessi: Losnar maður nokkurntíma við fortíð sína? Þessi mynd, eins og margar af hans fyrri myndum, er þegar farin að vekja viðbrögð og umræðu enda er Hartley að verða einn sterkasti kvikmyndaleikstjóri í Evrópu. Hæfileikar hans á því sviði eru óumdeildir - þó myndirnar hans séu það ekki.“ Undanfarin tvö ár hefur Elina helgað sig kvikmyndaleik nær ein- vörðungu, og ekki stigið á sviðsfjalir. „Hollywood og Broadway geta veitt ungum, óþekktum leikurum mikil- væg tækifæri, en dæmigerðar Holly- wood-myndir og Broadway-söngleik- ir uppfylla ekki minn listræna metn- að. Eg stefni ekki inn á þær slóðir," segir hún. Hún játar því þó að fyrir unga leikara geti skipt sköpum að komast að í kvikmyndum mikilsme- tinna Hollywood-leikstjóra, jafnvel þó hlutverkið sé smátt. „Þannig er bara þessi kvikmyndabransi“ segir hún. „Það lítur vel út „á blaðinu" að nefna samstarf við leikstjóra á borð við Steven Spielberg, en sannleikur- inn er sá að hlutverkið sem ég lék í „Lista Schindlers" var sáralítið. Það tók ekki nema þijár mínútur í sýn- ingu. Ég veit ég gerði þetta vel, en það reyndi lítið á mig sem ieikara,“ segir hún með hógværð. Blaðamanni er þetta „sáralitla hlutverk" Elinu þó mjög minnisstætt. Hún leikur þar ungan verkfræðing sem er verkstjóri yfír byggingarframkvæmdum í út- rýmingarbúðum nasista. Verkfræð- ingur þessi er skotinn í höfuðið fyrir það eitt að vara við yfirvofandi hönn- unarmistökum sem fyrirsjáanlega munu hafa hörmulegar afleiðingar. Stutt en áhrifamikil innkoma. List og lífsreynsla Elina hefur ástæðu til að vera upplitsdjörf þessa dagana, enda með mörg járn í eldinum. Nú er nýlokið upptökum á sjónvarpsmyndinni My Antonia þar sem hún fer með titil- hlutverkið, Antoníu. Því er spáð að þessi mynd, sem leikstýrt er af Joe Sargeant, muni afla henni frægðar og frama, enda verður myndin sýnd um gervöll Bandaríkin og víðar. Fljót- lega eftir áramótin heldur hún til New York til að takast á við aðalhlut- verkið í nýrri kvikmynd sem nefninst Nadja í leikstjórn Michael Alme- reyda. Þar leikur hún vampíruna Nödju, og segir að það sé harla ólíkt þeim viðfangsefnum sem hún hefur fengist við til þessa. Þegar hún er spurð hvort hún telji uppruna sinn og uppeldisaðstæður hafa mótað sig sem listamann, játar hún því eftir svolitla umhugsun. „Ég held það hafí orðið til þess að styrkja sjálfsmynd mína. Sennilega nýtur listamaðurinn í mér góðs af því að hafa um sína daga kynnst fleiru en amerísku neyslusamfélagi. Ég tel sömuleiðis að það hafí eflt með mér þor til að takast á við misjafnar að- stæður, og um leið aukið mér bjart- sýni. Ég er svo lánsöm, þrátt fyrir allt, að hafa ekki þurft að þjást, eins og foreldrar mínir gerðu. En á vissan hátt hef ég lært af þeirra reynslu, án þess að ganga í gegnum hana sjálf. Til allrar hamingju fékk ég aldr- ei nema reykinn af þeim réttum og fyrir það er ég þakklát," segir hún. Eftir svolitla umhugsun skiptir hún um umræðuefni: „Maður lærir af öllu því sem fyrir mann ber í lífinu. Ég hef ferðast mikið og um leið lært heilmargt af því sem ég hef séð og kynnst - ekki síst hér á íslandi.“ íslenskt hömluleysi og helgihald Þessi síðasta athugasemd er svo sannfærandi, að íslendingurinn í bijósti blaðamanns tekur að bólgna út, og spyr upp með sér hvað hún eigi við. „Mér hefur lærst það á ferðum mínum um heiminn að „sinn er siður í landi hveiju", og að þjóðirnar eru eins mismunandi og þær era marg- ar. íslendingar eru mjög sérstæð þjóð. Það er ekki bara menningarar- fleifðin og þessi dásamlega náttúra sem heilla mig, heldur líka þjóðarþel- ið sjálft, þó það hafí komið mér und- ariega fyrir sjónir í fýrstu. Mér virð- ist sem Islensk þjóðarsál beri sams- konar öígar og náttúra landsins. Þar er bæði eldur og ís, fegurð og hijóst- ur.“ Máli sínu til stuðnings tekur hún dæmi af hömlulausu skemmtanalífí íslendinga. „Á skemmtistöðum hér löðrar allt í öli og kynþokka og fólk sleppir alveg fram af sér beislinu. Ég hef hvergi kynnst öðru eins ... og var því óviðbúin að verða síðan vitni að andstæðu alls þessa á jólun- um. En þá upplifði ég hátíðleikann, fjölskyldusamheldnina og hefðir sem ég hef ekki séð áður. Og þá varð mér hugsað til þess að íslendingarn- ir sem ég hafði hitt á öldurhúsum nokkrum dögum áður voru á sama tíma að setjast prúðbúnir til borðs með fjölskyldum sínum, gefa gjafir og hitta vini og kunningja. Sama fólkið og daðraði og drakk ... þetta var einkennileg uppgötvun. Annars staðar í veröldinni felast öfgar í því að maður er „annaðhvort eða“ en aldrei „hvort tveggja" í senn, eins og íslendingar. í New York upplifir maður heldur ekki þá samheldni og einingu sem einkennir íslenskt jóla- hald. Þér er óhætt að trúa því - þar setjast menn ekki allir sem einn, að sameiginlegu borðhald um leið og jólahelgin gengur í garð. Ó, nei. Það færist engin kyrrð yfir New York borg klukkan sex á aðfangadag." Hún hlakkar til að koma aftur til íslands og kveðst þess fullviss að heimsóknirnar eigi eftir að verða margar. „Hér á Islandi finnst mér ég vera hluti af fjölskyldu. Vinir Philippes og aðstandendur hafa tekið mér vel. Þeir virðast ekki líta á mig sem ameríska leikkonu - heldur sem manneskjuna Elinu. Fyrir það er ég afar þakklát. í raun taka þeir mér á sama hátt og Pilippe sjálfur gerði þegar við kynntumst í samkvæmi fyrir tæpum tveimur árum,“ segir hún. Þar með hefur talið borist að stóru ástinni í lífi hennar, sem hún segist ætla að helga tíma sinn og tilfinningar í framtíðinni. Ástin og framtíðin „Stærsti kosturinn við Philippe var sá að hann var sjálfur ekki leikari - og raunar fremur áhugalítill um leik- list. Hann hafði aldrei séð mig leika, og hafði þessvegna engar fyrirfram- hugmyndir um persónu mína. Sú mynd sem hann fékk af mér mótað- ist af okkar fyrstu kynnum. Með honum get ég leyft mér að vera sú viðkvæma Elina sem ég er - grát- gjörn eða galsafengin eftir atvikum - og þarf ekki að sýnast neitt.“ Með vorinu hyggjast þau stofna nýtt heimili í París. Þó er ljóst að ferðirnar verða tíðar á milli New York og Parísar, a.m.k. framan af, því Elina hefur hug á að halda áfram að starfa við kvikmyndir. Hún viður- kennir að ýmsir erfiðleikar muni verða þessu samfara. Aðspurð hvort hún óttist ekki að taka þessa áhættu, frama síns vegna - jánkar hún með semingi. „Mér er ljóst að New York er suðupottur tækifæranna, og auð- vitað hefur maður mesta möguleika með því að vera þar sem hlutirnir eru að gerast. Hinsvegar langar mig líka til þess að reyna fyrir mér í Evrópu, jafnvel í samvinnu við Tra- vis Preston sem ég veit að er sama sinnis. Það víkkar óneitanlega sjón- deildarhringinn að fara út fyrir Bandaríkin, og ég vil ógjaman missa af þeirri reynslu," segir hún. Ein- hvernveginn Iiggur þó í loftinu að það er ástin sem ræður mestu um þessa ákvörðun. „Philippe hefur sína starfsaðstöðu í Frakklandi þar sem tækifærin bíða hans. Við eram stað- ráðin í að reyna þetta fyrirkomulag og vonum að það gangi upp,“ segir hún og brosir sínu bjartsýna brosi, „en barneignir verða að bíða.“ Degi er tekið að halla - enda stutt- ur á þessum tíma árs - þegar við slítum tali. Á dyrahellunni tekur hún andköf yfír einkennilegri ljósbirtunni sem leikur um himininn. Sólin hefur brotist fram úr skýjaþykkni við sjón- deildarhring og kastað logum sínum á fjallatindana umhverfis. Broshýr og rauðneíjuð af kulda veifar hún mér úr dyrum hússins, umvafin kyn- legu sólarljósi. Á þeirri stundu minnir hún einna helst á elskulegan dverg í jólaleikriti: íklædd svartri lopapeysu sem brúsar utan yfír margar peysur og röndóttan, hnésíðan samfesting, en niðurundan honum svartar, hnaus- þykkar sokkabuxur, ullarsokkar og klossar. „Ekki mjög lík klámdrottn- ingu,“ hugsa ég með sjálfri mér og get ekki varist brosi um leið og ég stíg upp í bílinn og veifa henni í kveðjuskyni. Ólína Þorvarðardóttir LAUGARDAGUR 7. JANÚAR 1995 C 3 Gleói er i höll Gömul löo og Ijöð í söng og dansi Sigríður Þ. _ Jón Jón Valgeirsdóttir Ásgeirsson Stefánsson SVO SKAL dans- inn duna nefnist sýning Þjóðdansafé- lags Reykjavíkur í Þjóðleikhúsinu. Stjómandi sýningar- innar er Sigríður Þ. Valgeirsdóttir og er hún jafnframt dans- höfundur. Tónlist er útsett og eftir Jón Ásgeirsson. Stjóm- andi kórs og hljóm- sveitar er Jón Stefánsson. Dansarar eru félagar úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur. Um þjálfun þeirra sá Kolfínna Sigurvinsdóttir. Kammer- sveit kórs Langholtskirkju syngur og félagar úr Sinfóníuhljómsveit Islands leika. Sýningin var ákveðin sem framlag Þjóðdansafélags Reykjavíkur á lýð- veldisafmælinu, en hefur af ýmsum ástæðum dregist. Hún skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn nefnist Hjá Goð- mundi á Glæsivöllum og er þar nýtt efni úr sögu Herrauðar og Bósa sem hermir frá dansleik í höll Goðmund- ar. Mörg laganna í þeim hluta eru tekin úr handritinu Melodíu frá því um 1650. í síðari hluta, Gleði í Vík, er vitnað til gleði í Reykjavík um miðja 18. öld. í sýningunni má sjá söngdansa, þar með talda sagnadansa og hring- brot. Einnig verða sýndir vikivaka- leikir, t.d. dýraleikir, hestaleikur, hjartarleikur og finngálkn. Af öðrum leikjum má nefna Háu-Þóru, hoffíns- dans, tröllkonuleik og frísadans. Tveir þeir síðastnefndu eru eins kon- ar vísar að óperu. Þá má nefna slag- ina faldafeyki og tröllaslag. Einn megintilgangur sýningarinn- ar er að koma á framfæri gömlum lögum og ljóðum sem lengi hafa leg- ið í handraðanum og eru þess virði að blása í lífi og skynja fegurð þeirra í söng og dansi. Sigríður Valgeirsdóttir var spurð að því hvort hún byggist við að gaml- ir dansar yrðu teknir upp að nýju. Hún sagðist ekki vita það, en það væri stórkostlegt kæmust lögin í umferð aftur og vonir stæðu til að dansinn lifði. Fróðleiksfýsn Sigríður líkti því við fróðleiksfýsn að vita hvað dansað var á sínum tíma. Hún sagðist hafa sett upp álíka sýningu 1967. Nú væri hún endur- vakin með dýraleikjum og nýr hluti væri lög sem hún hefði einkum tínt saman í vetur og hún og Jón valið í sameiningu. Sumt væri fyrir tíma Melodíu, frá tólftu öld til hinnar fimmtándu, gæti verið enn eldra. „Þessi lög sem eru mest dönsuð hafa sérstakt mynstur,“ sagði hún, „og virðast hafa verið búin til við dansa en af þeim era ýmis afbrigði í lög- um, fjölmörg lög. Hægt er að greina dansa og dansmynstur út frá lögun- um og danskvæðum. í íslenskum heimildum er getið um viss sérkenni dansins. Arngrímur lærði segir frá að minnsta kosti þremur flokkum dansa.“ Reynt var að bera saman lögin, kvæðin og danshefð fyrr á öldum, hér og í Evrópu. Sigríður nefndi Ásudans, mjög gamalt kvæði og vikivakalag, hring- dans. „Þá sér maður sérkennin á báða vegu,“ sagði Sigríður, „það er vandalaust, en stundum er þetta elt- ingarleikur og mikið spáð í eyður,“ bætti hún við. Frá því að Sigríður kom frá námi í Barkeleyháskóla í Kaliforníu 1947 Morgunblaðið/Sverrir „SVO skal dansinn duna.“ Frá sýningu Þjóðdansafélags Reykjavíkur. hefur tómstundastarf hennar beinst að þessari „endurvinnslu“ hins gamla. Hvað varðar lög og texta búa Islendingar vel að hennar mati. Hefur búið til íslenska þjóðdansa Jón Ásgeirsson tónskáld sem hef- ur starfað mikið með Sigríði Val- geirsdóttur sagði að hún hefði í raun og veru búið til íslenska þjóðdansa. „Með því að leita í heimildum sem eru nákvæmar danslýsingar hefur hún útfært og búið til dansa,“ sagði Jón. Bókmenntamenn og tónlistar- menn héldu því fram að ekki væru til íslenskir þjóðdansar eftir því sem Jón Ásgeirsson segir. Hann sér um tónlistina á sýningunni sem fýrr seg- ir, hefur útsett þjóðlög sem til vora og samið lög við þau kvæði sejn ekki vora til lög við. Jón sagði að menn væru að átta sig á brautryðj- andastarfí Sigríðar sem hefði kennt þjóðdansa í 50 ár. Jón minntist á Háu-Þóru-leikinn. Hann hefði til dæmis tíðkast í Evr- ópu og hann vær enn til á karnivöl- um, en dansinn er gleymdur. Aftur á móti væri þessi leikur og aðrir útskýrðir í íslenskum handritum og þangað hefði Sigríður m.a. sótt fróð- leik sinn. Kvæðin eru mörg heiðin og í þeim tótemískur galdur (dýrkun hluta og dýra), þau eru að því er virðist lítt snortin af kristni öndvert við hin evrópsku telur Jón og hefur yfir lín- urnar: „Tuggið járn og troðið skal til öngla. Fóarn nýtt og flyðrugörn og mús á.“ Þar er vísdómurinn sá að fiskir þú ekki þrátt fýrir þessi góðu ráð sértu feigur. „Ég hef verið að leita að lagi, Sigríður hefur fundið dansa,“ sagði Jón Ásgeirsson. Sigríður hefur kom- ist að því að bassóló sem Bjarni Þorsteinsson getur um passar full- komlega við basdansinn norður-evr- ópska. Menningarverðmætum bjargað Jón Stefánsson kórstjóri sagði að það væri alveg einstaklega spenn- andi að taka þátt í sýningunni. Sig- ríður Valgeirsdóttir væri svo sannar- lega að bjarga menningarverðmæt- um með starfi sínu. Hann sagði að gaman væri að fylgjast með því hvernig gamlir leikir fléttuðust inn í dansinn, ýmislegt sem maður hefur lesið um í þjóðsögum. Hann kvaðst vera með tíu manna kammerkór sem syngju í kór og eins í hlutverkum á sviðinu. Jón sagði dagskrána viða- mikla og forvitnilega, hún væri í fullri tímalengd. Frumflutningur Á sýningu Þjóðdansafélags Reykjavíkur verða flutt mörg lög sem ekki hafa verið flutt áður og þar gefst innsýn í þjóðlega danslist af ýmsu tagi. Sýningarnar verða í Þjóðleikhúsunu 10. og 11. janúar kl. 20. J.H. Nýárstonleikar Morgunblaðið/Rúnar Þór NÝ ÁRSTÓNLEIKAR Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands verða í Akureyrarkirkju á morgun, sunnu- dag, klukkan 17. Leikin verða verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Maurice Ravel og Manuel de Falla. Guðmundur Óli Gunnarsson stjórn- ar hljómsveitinni og einleikari í fjórða hornkonsert Mozarts verður Emil Friðfinnsson. Tónlistarfólk fagnar líka nýju ári í Reykjavík á nýárstónleikum Listasafns Islands. Þeir verða einnig á morgun og hefj- ast klukkan 20.30. Hópur þekktra tónlistarmanna flytur verk eftir Bach, Mozart, Schubert, Johann Strauss yngri, Lovreglio, Jón Ás- geirsson og Berio. Skjálist MYNDLISTA- og handíðaskóli ís- lands og Menningarstofnun Banda- ríkjanna efna til sýninga á skjálist (video art) sjö eftirmiðdaga í janúar. Sýnd verða valin verk eftir listamenn- ina Vito Acconci, John Baldessari, William Wegman, Bill Viola, Martha Rosler, og tíu aðra skjálistamenn sem hlotið hafa viðurkenningu síðustu tuttugu árin. Flest þessara verka hafa ekki verið sýnd áður á íslandi. I kynningu segir: „Verkin spanna vítt svið hvað varðar viðfangsefni, tækni og hugmyndafræði. Þótt ómögulegt sé að gefa neina heildar- mynd af þessum miðli eru myndbönd- in valin með það fyrir augum að veita innsýn í mismunandi notkun mynd- bandsins sem þróttmikils og mikil- vægs listmiðils.11 Verkin eru fengin frá Electronic Arts Intermix safninu í New York. Myndböndin verða sýnd 5., 10., 12., 17., 19., 24. og25.janúaríMenn- ingarstofnun Bandaríkjanna, Lauga- vegi 26, og hefjast sýningar alla dag- ana klukkan 16. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Hver sýning tekur 1-1 l/z tíma og verður stutt hlé á milli myndbanda. Dagskrá með dagsetningum, nöfn- um listamanna og titlum myndband- anna verður fáanleg á aðalskrifstofu MHI og í Menningarstofnun Banda- ríkjanna. Frekari upplýsingar er hægt að fá hjá John Hopkins í síma 553-4591 (á kvöldin milli kl. 18 og 21) eða í MHÍ í síma 551-9821. SVONA er sýningarsölum Ný- listasafnsins skipt niður í 115 hólf fyrir félagsmennina. 17 ár FÉLAGAR í Nýlistasafninu opna þar sameiginlega sýningu í dag. Tilefni hennar er 17 ára afmæli safnsins, félag þess var stofnað 1978 og telur nú 115 innlenda ogerlenda listamenn. Sýningarsvæðin að þessu sinni eru jafnmörg félagsmönnum og verkum þeirra raðað eftir stafrófsröð. í frétt Nýlistasafnsins segir að ekk- ert fagurfræðilegt mat hnýti sýning- una saman og útkoman ráðist af fram- lagi þeirra sem mótað hafí starfsemi safnsins gegnum árin. Heildarsýn sé látin lönd og leið og tilviljuninni gefið færi. Nýlistasafnið er til húsa við Vatns- stíg 3b i Reykjavík. Sýningin verður opin daglega frá klukkan 14 til 18 fram á 22. janúar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.