Morgunblaðið - 20.01.1995, Blaðsíða 1
HM’95
TENNIS / OPNA ASTRALSKA
JílflrgttttMafoífo
1995
FOSTUDAGUR 20. JANUAR
BLAD
ÍTR gef-
ið gólf-
efniá
Laug-
ardals-
höll
Iþrótta- og tómstundaráð Reykja-
víkur, ÍTR, og Harðviðarval hf
fyrir hönd Tarkett European Floor-
ing Division í Svíþjóð hafa gert
samning um að TEFD afhendi ITR
án endurgjalds gólfefni sem verður
notað í heimsmeistarakeppninni í
handknattleik í Laugardalshöll en
að lokinni keppni hefur ÍTR ótak-
markaðan rétt á gólfinu sem verður
sennilega sett í nýja viðbyggingu
Laugardalshallar. ITR mun í sam-
vinnu við Framkvæmdanefnd HM
95 sjá um kynningu á gólfefni fyrir
íþróttahús frá Tarkett meðan HM
stendur yfir.
Gunnar Þór Jóhannesson, mark-
aðsstjóri Harðviðarvals, sagði að
áætlaður kostnaður vegna efnisins
o g lagningar þess væri um 4,8 miHj-
ónir króna en auk þess þyrftu
Svíamir að greiða um tvær milljón-
ir í ferða- og uppihaldskostnað
starfsmannanna, sem kæmu til að
ganga frá verkinu. Gólfið verður
lagt í apríl en um er að ræða 6,5
millimetra þykkan dók sem verður
settur ofan á gólfið sem er í Höll-
inni. Hann verður eingöngu með
merkingum sem eiga við handknatt-
leik.
Gunnar Þór sagði að Svíar legðu
mikla áherslu á að framleiða full-
komið íþróttagólf og þeir litu á
móttöku gjafarinnar sem bestu
mögulegu kynningu efnisins næsta
áratug. Málið hefði samt komið
óvænt upp. Á fundi í fyrra hefðu
Svíamir verið að hæla landsliði sínu
í handknattleik og svarað athuga-
semdum þess efnis að íslenska liðið
væri líka ágætt með því að segja
að íslendingar hefðu ekki unnið
Svía í nokkur ár. „„Við höfum ekki
spilað við Svía á almennilegu gólf-
efni lengi,“ sagði ég þá og síðan
fóru hjólin að snúast. Hins vegar
er erfitt að þiggja svona gjöf, en
samstarfið við Omar Einarsson hjá
ÍTR og HM-nefndina hefur verið
mjög gott og við eram ánægðir með
samninginn."
Eitt íslenskt
dómarapar
dæmirá HM
DÓMARANEFND Alþjóða handknattleikssam-
bandsins (IHF) hefur ákveðið hvaða 16 dómara-
pör dæma á HM hér á landi í maí. Eitt íslenskt
par var valið, þeir Rögnvald Erlingsson og Stef-
án Arnaldsson, og fyrsta varapar eru þeir Há-
kon Sigurjónsson og Guðjón L. Sigurðsson.
Tvö dómarapör koma frá Þýskalandi, Svíþjóð
og Noregi en eitt par frá eftirtöldum löndum:
Islandi, Rúmeníu, Frakklandi, Spáni, Sviss, Pól-
landi, Danmörku, Ítalíu, Hollandi og Argentínu.
Miðað við þau dómarapör sem verið hafa að
dæma á stórmótum hingað til vekur athygli að
aðeins eitt par kemur frá landi utan Evrópu og
ekkert par frá Rússlandi eða fyrrum Sovétríkj-
unum. Einnig er það athyglisvert að þýsku dóm-
arapörin eru þau pör sem eru í öðru og fjórða
sæti á styrkleikalista Þjóðverja, en fróðir menn
segja að þetta séu engu að síður bestu pör
þýskra.
Sameinast í bæn
FYRIR leik Vals og Hauka í undanúrslitum bikar-
keppninnar í handknattleik að Hlíðarenda í fyrra-
kvöld minntist séra Vigfús Þór Árnason, sóknar-
prestur í Grafarvogi, þeirra sem létust í snjóflóðinu
í Súðavík. Hann bað leikmenn og áhorfendur að
minnast þeirra látnu og þeirra sem eiga um sárt
að binda með því að sameinast í bæn. Síðan var
mínútu þögn og leikmenn beggja liða léku með
sorgarbönd.
Leikmenn Þórs og Grindavíkur léku með sorgar-
bönd á Akureyri í gærkvöldi — þar var einnig
mínútu þögn fyrir leikinn.
Afmælisterla beið sigurvegarans
STEFAN Edberg hélt upp á 29 ára af mælið sitt í Ástralíu í gær.
Júlíus Jónasson skoraðf fjögur mörk.
Júlíus náði
fram hefndum
JÚLÍUS Jónasson náði fram hefndum, þegar
hann glímdi við Héðinn Gilsson og félaga í
Dusseldorf, sem komu í heimsókn til Gum-
mersbach í gærkvöldi. Héðinn hafði betur í
bikarkeppninni á dögunum, en Júlíus fagnaði
sigru, 25:21, í gærkvöldi í úrvalsdeildinni. „Ég
er allur að koma til, er þó ekki kominn í nægi-
lega góða leikæfingu enn,“ sagði Júlíus, sem
skoraði fjögur mörk. „Þetta var baráttuleikur,
en við vorum þó alltaf með undirtökin." Júlíus
sagði að Héðinn væri að koma til, en væri þó
ekki byrjaður að leika á krafti í sóknarleiknum
— leikur mest í vörn enn sem komið er.
Edberg hélt upp daginn
Svíinn Stefan Edberg, sem hélt
upp á 29 ára afmælið sitt í
gær, fékk sigur í afmælisgjöf á
Opna ástralska meistaramótinu í
tennis. Hann sigraði Adrian Voinea
frá Rúmeníu 6-3 7-6 6-4 í 2. um-
ferð mótsins og gat því með góðri
samvisku fengið sér væna sneið
af afmælistertu sem beið hans eft-
ir leikinn. „Þetta var erfiður leikur
enda er Voinea góður tennismað-
ur. Það var gott að ná að vinna
hann í þremur settum,“ sagði Ed-
berg sem mætir Hendrik Dreek-
mann, 19 ára Þjóðveija, í þriðju
umferð.
Mjög heitt var í Melbourne í gær
og var hitinn um 35 stig er leikur
Edbergs og Voinea fór fram. Ed-
berg var spurður að því hvers
vegna hann notaði ekki derhúfu
þegar svo mikill hiti væri frá sól-
inni. „Ég get bara ekki notað húfu
þegar ég er að spila, svo einfalt
er það. Þú getur ekki kennt göml-
um hundi að sitja, er það?“
Hinn nýklippti Andre Agassi
sigraði Frakkann Jerome Golmard
nokkuð örugglega 6-2 6-3 6-1 og
er kominn í þriðju umferð keppn-
innar. Agassi hefur ekki tapað
setti tvær fyrstu umferðirnar og
virðist til alls líklegur. Ef hann
kemst í undánúrslit mun hann
mæta Stefan Edberg, en nú eru
32 keppendur eftir í einliðaleik
karla.
Úrslit í kvennaflokki voru eftir
bókinni. Arantxa Sanchez Vicario
frá Spáni, sem er efst á styrkleika-
listanum, vann Tammi Whitlinger
Jones frá Bandaríkjunum örugg-
lega á aðeins 63 mínútum.
HAIMDKNATTLEIKUR: KA-MENIM OG STJORNUSTULKURIBIKARURSLIT / C3
r