Morgunblaðið - 09.02.1995, Side 4

Morgunblaðið - 09.02.1995, Side 4
KORFUKNATTLEIKUR „Magic" Johnson og Abdul-Jabbar gagnrýna leikmenn NBA Stjömur samtímans standa ekki undir nafni Eárvin „Magic“ Johnson og Kareem Abdul-Jabbar, tveir af bestu körfuknattleiksmönnum allra tíma, eru óánægðir með leik- menn NBA-deildarinnar í körfu- knattleik, segja þá sjálfumglaða og hrokafulla og stjörnurnar standi ekki undir nafni. „Þegar ég var að spila fengu áhorfendur nóg fyrir snúð sinn því þá voru svo margir stjömuleik- menn,“ sagði Johnson, sem hætti að leika í NBA-deildinni 1991 þegar hann greindist með HIV- veiruna. „Við lékum eins og best verður á kosið og hvert lið var með tvær eða þijár stjömur en nú er yfírleitt ekki nema einn yfír- burðarmaður í hveiju liði. „Drau- malið“ 1 og „draumalið" 2 em ekki sambærileg því ef þau mætt- ust 10 sinnum sigraði „draumalið" 1 í öll skiptin. Nýju leikmennimir vita ekki enn hvað það er að sigra,“ sagði Johnson sem er 35 ára og ferðast um heiminn með sýningarlið sitt. Draumaliðin svo- kölluðu eru annars vegar landslið Bandaríkjanna sem varð Ólympíu- meistari í Barcelona 1992 og hins vegar landsliðið sem varð heims- meistari í Kanada í fyrra. „Magic“ lék sjálfur með því fyrmefnda, ásamt mönnum eins og Larry Bird, Miehael Jordan, Charles Barkley og Patrick Ewing svo einhveijir séu nefíidir. Takmarkaðlr hæfileikar í vikunni var greint frá því að Kareem Abdul-Jabbar yrði form- lega settur á stall með þeim bestu — skráður í Hall of Fame — á sérstakri hátíð 16. maí. Hann notaði tækifærið og gagnrýndi hátt launaða leikmenn, sem væru mikið í sviðsljósinu, fyrir óheflaða framkomu og takmarkaða hæfi- leika. „íþróttamennimir fá æ hærri Óánægðir með þróunina KAREEM Abdul-Jabbar, tll vlnstrl, og „Magic“ Johnson, tveir bastu körfuknattleiksmenn sem uppl hafa veriö, eru ekki ánægðlr meö þróun mála I NBA-delldlnni. laun og álagið hefur aukist en þeir standa ekki vel undir þessu,“ sagði Abdul-Jabbar, sem var mik- il fyrirmynd á 20 ára ferli sínum og var m.a. sex sinnum kjörinn besti leikmaður deildarinnar sem er met. Abdul-Jabbar tók nokkra leik- menn sérstaklega fyrir. „Það verður að segjast eins og er að Derrick Coleman og Chris Webber hafa sýnt mikinn vanþroska og Dennis Rodman virðist vera mjög óstöðugur," sagði Abdul-Jabbar sem er 47 ára og var 19 sinnum valinn í stjömuliðið og átti stóran þátt í sex meistaratitlum Mil- waukee Bucks og Los Angeles Lakers. Coleman, sem leikur með New Jersey Nets, hefur átt í deilum við þjálfara sinn vegna framkom- unnar og þess að hann fer ekki eftir settum reglum. Útbreiddasta íþróttablaðið í Bandaríkjunum, Sports Illustrated, sagði leik- manninn dæmigerða væluskjóðu og skapilla prímadonnu. Webber lenti upp á kant við þjálfara Gold- en State Warriors og var látinn fara. Rodman er almennt talinn einn besti vamarmaður deildar- innar en San Antonio Spurs hefur oft neyðst til að setja hann í bann. „Framgangur greinarinnar bygg- ist á persónuleika leikmannanna. Ef þeir eru stöðugir tilfínninga- lega eða nógu þroskaðir kemur það í ljós og það er það sem er að gerast." Shaquille O’Neal hefur oft verið nefndur sem eftirmaður Abduls- Jabbars. „Ég sá myndband með honum þar sem hann sagðist ekki þurfa á sveifluskotum að halda svo ég ætla ekki að ráðleggja honum,“ sagði kappinn sem var frægur fyrir sveifluskot sín. „Það er slæmt að hann hefur ekki um neitt að velja þegar hann ér einn á móti tveimur." Breytingar Abdul-Jabbar sagði að leikur- inn hefði breyst en ekki endilega til hins betra. „Þegar brot úr Ieikj- um eru sýnd viil fólk frekar sjá Michael Jordan troða en sveiflu- skot — tíðarandinn er þannig.“ Hann lék með og gegn mörgum af þekktustu leikmönnunum í sögu deildarinnar, mönnum eins og Oscar Robertson, „Magic“ Johnson og Larry Bird, og sagði að leikmenn samtímans hefðu ekki yfír sömu fjölhæfni að ráða. „Það eru margir möguleikar í stöðunni en leikmennimir núna virðast ekki gera sér grein fyrir því.“ FRJALSIÞROTTIR Gudrún á mettíma Guðrún Amardóttir úr Ármanni hljóp 200 metra innanúss, á háskólamóti í Gainesveille í Flórída ^■■■■B um síðustu helgi, á Stefán Þór betri tíma en gild- Stefánsson an(jj íslandsmet tanöJníjunum Svanhildar Krist- jansdóttur, UMSK, sem er 24,97 sek. Guðrún hljóp á 24,47 sek. og varð í þriðja sæti í hlaupinu. Arangur Guðrúnar fékkst ekki staðfestur sem íslands- met þar sem keppt var á 300 metra hringbraut en innanhússmet eru aðeins staðfest á 200 metra hring- braut. Framundan hjá Guðrúnu em tvö almenn háskólamót, svæðismeist- aramót og svo háskólameistara- mótið innanhúss. Síðan tekur utan- hússtímabilið við og verður fróð- legt að fylgjast með framgangi Guðrúnar þar sem hún keppir fyr- ir háskólann í Athens í Georgíu. Skólasystur Guðrúnar, Gunnhild- ur Hinriksdóttir úr HSÞ, keppti einnig í Gainesville og setti persónu- legt met í langstökki, stökk 5,48 metra sem færði henni 7. sæti. Hún átti áður best 5,44 metra utanhúss. Snjólaug Vilhelmsdóttir, UMSK, hljóp 55 metra grindahlaupi á 8,70 sekúndum sem er nokkuð frá henn- ar besta en hún hljóp aftur á móti vel í 4x400 metra boðhlaupi ásamt Guðrúnu Amardóttur. HANDBOLTI Rögnvald og Stefán í undan- úrslit EM Rögnvald Erlingsson og Stefán Amaldsson munu dæma und- anúrslitaleik þýska liðsins Hameln og spánska liðsins Granollers í EHF keppninni. Atli Hilmarsson, fyrrum landsliðsmaður í handknattleik og núverandi starfsmaður HSÍ og þjálfari Fram, lék með báðum þess- um liðum á sínum tíma. Hann lék með Hameln 1980 til 1982 og síðan með Granollers 1989 til 1991 og sagðist hann örugglega vera sá eini í heiminum, eða í það minnsta einn fárra sem leikið hefðu með báðum félögunum. „Ég bíð bara eftir skeyti um að mér sé boðið að vera heiðurs- gestur!“ sagði Atli í gær. Barkley í vondu skapi Charles Barkley, leikmaður Pho- enix Suns, var rekinn af velli á síðustu mínútunum í leik gegn Dallas í fyrrinótt, sem Suns unnu naumlega 114:113. Barkley var ósáttur við dómarana og jós úr skál- um reiði sinnar yfír þá — en fékk ekkert annað en brottvísun að laun- um. Hann gæti átt yfír höfði sér leikbann og sekt. New York, sem hefur leikið mjög vel að undanfömu, tapaði á heima- velli gegn Milwaukee. Patrick Ewing og John Starks skomðu 23 stig hvor fyrir New York en Vin Baker gerði 22 stig fyrir gestina auk þess sem hann tók 13 fráköst. ■ Úrslit / D2 SKIÐI Thomas Fogdö slas- aðist mjög alvariega Búinn að vera? THOMAS Fogdö. Óttast er aö hann lamlst Jafnvel. SÆNSKI svigmaðurinn Thom- as Fogdö meiddist alvarlega á hrygg er hann var við æfingar í Are á þriðjudag. Hann var fluttur í skyndi með þyrlu á sjúkrahúsið i Umeá. Læknar sjúkrahúsins vildu lítið láta hafa eftir sér um meðsli skíða- kappans, en sögðu meiðslin al- varleg. Ottast er að hann geti jafnvel lamast. Thomas Fogdö, sem er 24 ára, hefur verið einn fremsti skíðamaður Svía undanfarin ár og hefur svig verið hans sér- grein. Hann hefur sigrað í fimm heimsbikarmótum í svig frá því 1991 og hefur tvívegis komast á verðlaunapall i vetur. Óhappið á þriðjudaginn átti sér stað er Fogdö var að renna sér í gegnum skóg frá lyftu að brekku þar sem sænska lands- liðið var með æfingabraut. Hann datt og lenti illa á bakinu og var fluttur með þyrlu til Ostersund, en þar sem hann var talinn svo alvarlega slasaður var farið með hann áfram í þyrlu til Umeá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.