Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 31.05.1995, Blaðsíða 3
2 D MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ ÚRSLIT Ísland-San Marínó 90:62 Smáþjóðaleikamir í Lúxemborg, 30. maí 1995. Gangnr leiksins: 2:6, 2:10, 12:17, 18:19, 23:21, 23:28, 25:32, 33:34, 35:36, 41:39, 60:41, 75:59, 82:55, 86:60, 90:62. Stig íslands: Guðmundur Bragason 26, Falur Harðarson 14, Valur Ingimundarson 12, Hinrik Gunnarsson 9, Guðjón Skúlason 8, Herbert Amarson 7, Marel Guðlaugsson 5, Hermann Hauksson 4, Jón Amar Ing- varsson 3, Teitur Örlygsson 2. Villur: 16. Stig San Marínó: Rossini 13, Terenzi 13, Terenzi 12, Molinari 10, Bonini 8, Lettoli 4, Terenzi 2. Villur: 18. Áhorefndur: 350. B-ríðill: Malta-Kýpur......................87:73 Skotfimi Loftskammbyssa 1. Jean-Paul Schroeder, Lúxemb..659,4 2. David Chiarazzi, San Marínó....654,6 3. Jea-Paul Hurt, Lúxemb..........653,6 4. Hannes Tómasson................653,1 5. Vidal Isidoro Sanchez, Andorra.649,7 6. Ólafur Jakobsson..............648,9 7. Irena Panteli, Kýpur.........645,6 8. Nadia Marchi, San Marínó.....644,9 Opna franska mótiö í tennis: Karlar, 1. umferð: Fernando Meligeni (Brasilíu)sigraði Petr Korda(Tékklandi)6-4, 6-4, 6-4. Marcelo Rios (Chile) sigraði Vincent Spadea (Bandaríkjunum)6-4, 6-4, 6-7,(8-10)6-3. Todd Woodbridge (Ástraliu) sigraði Marcelo Filippini (Úrúgvæ)6-3,4-6,6-4,l-6,6-4. Mikael Tillstrom (Svfþjóð) sigraði 4-Goran Ivanisevic (Krótatíu)7-5,6-3,6-4. 6- Michael Chang (Bandaríkjunum) sigraði Diego Nargiso (Italíu) 6-3, 6-4, 6-1. Jacco Eltingh (Hollandi) sigraði Carl-Uwe Steeb (Þýskalandi) 6-4, 6-2, 6-0. 16-Marc Rosset (Sviss) sigraði Richard Fromberg (Ástralíu) 7-5, 5-7, 7-5, 7-6, 7- Sergi Braguera (Spáni) sigraði Patrick Rafter (Ástralíu) 6-3, 6-1, 7-6, (7-3). Adrian Voinea (Rúmeníu) sigraði Karol Kucera (Slóvakíu) 6-2, 6-2, 6-3. 3-Boris Becker (Þýskalandi) sigraði Javier Frana (Argentínu) 7-6, (8-6), 6-4, 6-3. Byron Black (Zimbabve) sigraði Jan Apell (Svíþjóð) 6-3, 3-6, 7-6, (7-5). 4-6, 10-8. - Johan Van Herck (Belgfu) sigraði Olivier Delaitre (Frakklandi) 6-1, 6-4, 7-6, (7-4). Jared Palmer (Bandaríkjunum) sigraði Jak- ob Hlasek (Sviss) 4-6, 3-6, 7-6, 6-4, 8-6. Brett Steven (Nýja Sjálandi) sigraði Carsten Arriens (Þýskalandi) 6-7, (6-8), 6-2, Arriens hætti vegna meiðsla. Marc Goellner (Þýskalandi) sigraði Andrea Gaudenzi (Ítalíu) 6-3, 6-7, (4-7), 7-6, 6-4. Emilio Alvarez (Spáni) sigraði Jean-Philippe Fleurian (Frakklandi) 7-6, (7-4), 6-2, 7-6, Amaud Boetsch (Frakklandi) sigraði Thom- as Enqvist (Svíþjóð) 6-4, 6-3, 6-2. Konur 1. umferð: 16-Naoko Sawamatsu (Japan) sigraði Nathalie Herreman (Frakk- landi) 6-4, 6-1. Lea Ghirardi (Frakklandi) sigraði Mercedes Paz (Argentfnu) 7-5, 6-1. Conchita Martinez (Spáni) sigraði Sabine Hack (Þýskalandi) 6-0, 6-0. 6-Magdalena Maleeva (Búlgariu) sigraði Nicole Arendt (Bandaríkjunum) 6-3, 6-4. Katarzyna Nowak (Póllandi) sigraði Kim- berly Po (Bandaríkjunum) 6-2, 6-4 Paola Suarez (Argentínu) sigraði 13-Mary Joe Fernandez (Bandaríkjunum) 6-4, 6-3. Sabine Appelmans (Belgíu) sigraði Sandra Cecchini (ltalíu) 6-3, 6-4. Meike Babel (Þýskalandi) sigraði Stephanie Rottier (Hollandi) 6-3, 6-4. Catherine Mothes (Frakklandi) sigraði Mari Werdel Witmeyer (Bandaríkjunum) 6-4. 6-1. 3-Mary Pierce (Frakklandi) sigraði Nicole Bradtke (Ástralíu) 6-1, 6-3. Julie Halard (Frakklandi) sigraði Alexandra Fusai (Frakklandi) 2-6, 6-4, 6-3. Miriam Oremans (Hollandi) sigraði Caroline Dhenin (Frakklandi) 7-6, (7-2), 7-6, (7-4). Catalina Cristea (Rúmeníu) sigraði 10-Nat- asha Zvereva (Hvíta-Rússl.) 1-6, 7-5, 6-3. Veronika Martinek (Þýskalandi) sigraði Angelica Gavaldon (Mexíkó) 6-4, 6-4. Nathalie Tauziat (Frakklandi) sigraði Yone Kamio (Japan) 6-1, 6-2. Joannette Krager (Suður Afríku) sigraði Karin Kschwendt (Þýskalandi) 6-3, 6-4. 14-Amy Frazier (Bandaríkjunum) sigraði Natalia Medvedeva (Úkraínu) 6-1, 6-0. Knattspyrna Spánn Fyrri úrslitaleikur bikarkeppninnar: Sporting Gijon - Deportivo Corana..0:2 - Javier Manjarin (20.), Julio Salinas (54.). Tré varð að trú í grein undirritaðs, RÖKRÉTT, í blaðinu í gær var prentvilla. Þar stóð, að af íslensku leikmönnunum á HM í handknattleik, hefði aðeins Geir Sveinsson, fyrirliði, haft í fullu trú við andstæðingana. Þó Geir hafí augljóslega haft mikla trú á því sem hann var að gera í keppn- inni, átti að standa i greininni: ...hafði í fullu tré við andstæðing- ana. Beðist er velvirðingar á þess- um klaufalegu mistökum. Skapti Hallgrímsson. 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. MAÍ 1995 D 3 IÞROTTIR IÞROTTIR SMAÞJOÐALEIKARNIR I LUXEMBORG Hrafnhildur Hannesdóttir braut blað í sögu tennis á íslandi á fyrsta degi í Lúxemborg Fyrsti sigur íslands á Smáþjóðaleikum Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Lúxemborg HRAFNHILDUR Hannesdóttir braut í gær blað i sögu tennis- íþróttarinnar á íslandi er hún varð fyrst til að sigra i tennis á Smáþjóðaleikunum. Hrafn- hildur sigraði stúlku frá Kýpur í þremur settum og mætir sig- urvegaranum frá síðustu leik- um í dag.Hinir þrír keppend- urnir frá íslandi töpuðu sínum leikjum. Hrafnhildur tapaði fyrsta settinu 6:7 og var 4:5 undir í því næsta og staðan 0:30 í síðasta leiknum og útlitið því allt annað en bjart því mótherjinn þurfti aðeins að vinna tvo bolta til að hafa sigur. Þá hrökk allt í gang og Hrafnhildur var kominn á hrað- brautina. Hún sigraði 7:5 í settinu og 6:1 í því næsta. En hvað gerð- ist? „Ég veit það ekki. Mér fannst ég leika vel allan leikinn, ég var ekkert stressuð og lék af öryggi, sótti mikið fram að netinu og það gekk vel. Svo fékk ég mér banana, kanski hann hafí gert útslagið!", sagði Hrafnhildur alsæl eftir sigur- inn. í dag mætir hún stúlku frá Món- akó, þeirri sömu og sigraði í tennis á siðqstu leikum. „Ég hlakka mikið til að leika við hana og ætla að gera mitt besta,“ sagði Hrafnhildur. íslandsmeistarinn Einar Sigur- geirsson átti fyrsta leik fyrir íslands hönd. Hann mætti Vicini frá San Marínó og tapaði í tveimur settum, 6:1 og 7:6. Einar var að vonum dálítið vonsvikinn, sérstaklega með frammistöðuna í fyrsta settinu. „Ég komst aldrei inn í leikinn. Ég er ekki vanur að leika á svona velli og hann nýtti sér það, lék hratt þannig að ég átti ekki möguleika í fyrsta settinu. í síðara gekk mér mun betur og er ánægður með að ég skildi ná að koma til baka og ég var nærri því að vinna. Ég var 1:3 undir en komst í 5:4 og 6:5 og var með settbolta. Ég setti ekki nógu mikla pressu á hann þannig að hann náði að svara öllu sem ég gerði og því miður ö ■ ekki að sigra,“ sagði Einar. Einar var kominn á mikið skrið í síðara settinu og það hefði allt getað gerst í oddasettinu hefði kom- ið til þess. „Það hefði verið gaman að fá þriðja sett því það var sterkt hjá mér að koma sterkur í annað settið eftir stórtapið í því fyrsta, en því miður...“ Atli Þorbjörnsson tapaði einnig i einliðaleiknum í gær og er úr leik, en fyrirkomulagið er með þeim furðulega hætti að sá sem tapar leik er úr leik þannig að okkar menn fengu aðeins einn leik, en keppa reyndar einnig í tvíliðaleik. Atli tapað fyrir Schembri frá Möltu 2:6 og átti aldrei möguleika enda er kappinn talinn annar besti í þessu móti. „Þetta sýnir okkur að við verðum að fá fleiri tækifæri til að keppa erlendis. Ég er búinn að æfa mjög vel, en það dugar ekki að koma á mót erlendist annað hvert ár því leikreynslan skiptir svo miklu máli í svona mótum,“ sagði Atli. Stefanía Stefánsdóttir náði sér ekki á strik frekar en strákarnir og tapaði 1:6 og 2:6 fyrir stúlku Guðmundur í aðalhlutverki Island sigraði San Marínó með 28 stigum ISLENSKA karlaliðið i körfu- knattleik sigraði slakt lið San Marínó með 28 stiga mun, 90:62, í fyrsta leik sínum á Smáþjóðaleikunum í Lúxem- borg í gær. Það tók íslenska lið- ið allan fyrri hálfleik að finna rétta taktinn, var einu stigi und- ir í hálfleik, 35:36. Guðmundur Bragason var langbesti leik- maður íslenska liðsins, gerði 26 stig í þær 20 mfnútur sem hann var inn á vellinum. Fyrri hálfleikur var afspymu slak- ur að hálfu íslenska liðsins. Leikmenn hittu illa og náðu ekki saman sem liðsheild ValurB. °R 'jést um van' Jónatansson mat var að ræða. skrifar frá Það var aðeins einn Lúxemborg leikmaður sem héit haus, Guðmundur Bragason. Þegar tíu mínútur voru liðnar var staðan 18:19 og hafði Guðmundur þá gert 16 stig. Hann fór síðan útaf og þá kom enn meiri losarabragur á leik liðsins og San Marínó náði 7 stiga forskoti þegar fjórar mínútur voru tii leikhlés, 25:32. Guðmundur kom aftur inn á og ísland náði að minnka muninn niður í eitt stig fyrir hlé, 35:36, með því að spila pressuvöm. í síðari hálfleik sýndi íslenska liðið sitt rétta andlit, lék stífa pressuvöm og hreinlega keyrði yfir andstæðing- inn. Eftir fjórar mínútur var munur- inn orðinn 10 stig, 49:39 og aldrei spurning eftir það hvoru meginn sig- urinn lenti. Þegar upp var staðið var munurinn orðinn 28 stig, 90:62. Eins og áður segir var Guðmundur Bragason besti leikmaður íslands. Auk þess að skora 26 stig tók hann 8 fráköst og stal boltanum tvisvar. Falur Harðarson var heitur í seinni hálfleik og' gerði þá fjórar þriggja stiga körfur úr jafn mörgum tilraun- um. A eðlilegum degi á íslenska liðið að vinna San Marínó með fímmtíu stiga mun og það má ekki við þvf að vanmeta andstæðing sinn. „Ég held að ferðaþreytan hafi setið í okkur í fyrri hálfleik. Við komum í gær úr níu tíma rútuferð frá Lugano," sagði Guðmundur Bragason. „Fyrri hálfleikur var mjög slakur en við sýndum það í síðari hálfleik að það er „karakter" í lið- inu. Ég fann mig ágætlega í þessum leik, enda er San Marínó ekki með hávaxið lið og ég nýtti mér það undir körfunni." Torfi Magnússon, þjálfari, sagði að strákamir hafi vanmetið San Marínó í fyrri hálfleik. „En við kom- um einbeittari til leiks í síðari hálf- leik og þá var þetta aldrei spurning. Það má kannski segja að við vorum heppnir að fá svona léttan andstæð- ing í fyrsta leik til að ná úr okkur ferðaþreytunni.“ frá Möltu. Keppt verður í tvíliðaleik í dag og sagði Einar að hann teldi sig og Atla eiga góða möguleika á að ná lengra þar. „Atli er örvhenntur og það setur dálitla pressu á mót- heijana, sem ég veit reyndar ekki enn hverjir veða. Við höfum náð ágætlega saman að undanförnu og ætlum okkur að standa okkur vel,“ sagði Einar. Stelpurnar eru einnig bjartsýnar á að þeim takist að kom- ast áfram enda er sjáifstraustið nú komið í lag. FOLK ■ TENNISKEPPNIN fer fram á glæsilegum völlum rétt utan við Lúxemborg. Þar eru fimm leirvellir úti og inni eru einnig fimm vellir með gerviefni á. Atli Þorbjörnsson beið eftir því í gær að það færi að rigna því hann vildi miklu frekar leika á gerfiefninu en á grúsinni, sagðist miklu sterkari og vanari gerfiefninu. ■ TENNISFÓLKIÐ fór til Þýska- lands 20. maí og æfði þar og keppti einnig á móti hér í Lúxemborg og þar náði Atli í aðra umferð. ■ EINAR Sigurgeirsson starfar sem þjálfari í Malsch í Þýskalandi og var landsliðið þar við æfíngar fyrir Smáþjóðaleikana. ■ KÖRFUBOLTALIÐ karla kom til Lúxemborgar rétt fyrir kvöldmat á mánudaginn eftir langa og stranga rútuferð frá Lúganó í Sviss. Fjaðra- búnaður rútunnar bilað á Ieiðinni þannig að bíllinn hallaði og var þá gripið til þess ráðs að láta alla sitja vinstra megin í bílnum. í þokkabót varð bílstjórinn að aka varlega og því tók ferðalagið níu klukkustundir og bíllinn var mjög óþægilegur. Menn voru því þreyttir við komuna og slepptu setningarathöfninni. ■ BLAKARAR lentu í fyrsta æv- intýrinu, því við komuna til Lúxem- borgar lentu menn í miklum vand- ræðum með að koma þjálfurum lið- anna inn í landið. Tollverðir töldu uppáskrift frá fulltrúum Búlgaríu og Kína á Islandi fölsuð og vildu ekki hleypa þeim Shao Zhanwen og Zdravko V. Demirev inn í land- ið. Eftir eina og hálfa klukkustund fengu þeir þó að fara inn og landslið- in verða því með þjálfara á bekknum. ■ JÓN Arnar Ingvarsson, körfu- boltamaður meiddist á fingri í leikn- um gegn San Marínó í gær. Hann fór á sjúkrahús strax eftir fyrri hálf- leikinn og kom þar í ljós að það hafði sprungið bein í vísifíngri. Hann keppir ekki meira á mótinu og er væntalegur til Islands í dag. ■ KOLBEINN Pálsson, aðalfar- arstjóri íslenska hópsins, afhenti verðlaun í júdókeppninni í gær. Það var vel við hæfi að hafa íslending í því hlutverki vegna þess að ís- lensku júdómennirnir unnu fimm af átta gullverðlaunum sem í boði voru. ■ ÍSLENDINGAR hafa unnið flest gullverðlaun eftir fyrsta keppnisdag- inn á Smáþjóðaleikunum, eða fimm talsins. Lúxemborg, Kýpur, Lic- htenstein og Andorra hafa unnið ein gullverðlaun hver þjóð. ■ HALLDÓR Hafsteinsson vann fyrstu guilverðlaunin sem voru af- hent á leikunum er hann sigraði í -86 kg flokki. Islenski þjóðsöngurinn var fluttur fimm sinnum í júdóhöll- inni en í styttri útgáfu en við eigum að venjast. HRAFNHILDUR Hannesdóttir er fyrsti íslendingurlnn sem sigrar í tennisleik á Smáþjóðaleikunum. Hún sigraðl stúlku frá Kýpur og mætir sigurvegaranum frá síðustu lelkum í dag. Fimm gull, eitt silf- ur og eitt brons jr Islendingar í sviðsljósinu á júdókeppni leikanna Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Lúxemborg ISLENDINGAR voru svo sann- arlega í sviðsljósinu í júdó- keppni Smáþjóðaleikanna í gær. Þegar síðasta viðureignin var búin var Ijóst að ísland hafði hlotið fimm gullverðlaun, ein silfur og ein brons, en keppt var f átta flokkum. Strákarnir kom- ust allir í úrslit og unnu allar viðureignirnar nema eina og Gígja Gunnarsdóttir hlaut bronsverðlaun. Halldór Hafsteinsson reið á vaðið í gær er hann vann heima- manninn Frana Rudi á stigum í -86 kílóa flokki. Halldór skoraði vel á hann og hafði betur þegar tíminn rann út, sigr- aði sem sagt á stig- um. Árangur hans er góður því hann meiddist fyrr í vetur og þetta var „fyrsta æfingin í fimm vikur og ég er því ekki í nokkru formi,“ eins og Halldór orðaði það. „Það var gott að vinna hann því þetta er eini heimamaðurinn sem var í úrslitum og dómararnir voru svona heldur hliðhollir honum, en það kom ekki að sök núna,“ sagði Hafsteinn, sem var að vinna sín þriðju gullverðlaun á Smáþjóðaleikum, en hann hefur einnig fengið ein brosverðlaun og ein silfurverðlaun. Gígja Gunnarsdóttir var næst í röðinni, en hún hafði tapað tveimur glímum gegn stúlkunum sem kepptu um gullverðlaunin. Húm glímdi því um bronsið gegn stúlku frá Möltu og hafði yfirhöndina allan tímann og lagði hana að lokum á ippon. „Ég hefði viljað gera betur í glímunni Vernharð Þorlelfsson gegn stelpunni frá Lichtenstein því þá var ég yfir en tapaði svo á ipp- on, en þetta er í lagi, ég fékk brons núna eins og á Möltu,“ sagði Gígja. Freyr Gauti Sigmundsson skoraði grimmt á keppinaut sinn frá San Marínó í -78 kílóa flokki og eftir tæpar þijár mínútur hafði hann fullnaðarsigur. „Þegar ég fór í gang var þetta tiltölulega auðvelt,“ sagði Freyr Gauti sem sagði gaman og nauðsynlegt að taka þátt í svona mótum þó svo sigurinn hefði verið auðveldur. Vernharð Þorleifsson kom gríð- arlega ákveðinn í úrslitaglímuna og hafði fullnaðarsigur eftir aðeins 28 sekúndur. „Það er gaman að taka þátt í þessu móti þó það sé ef til vill léttara en A-mótin sem maður verður að keppa á. Það er gaman að vinna og það lyftir manni dálítið upp,“ sagði Vernharð sem bókstaf- lega réðist að mótheija sínum og náði strax á honum fastataki sem hann losnaði ekki úr. Eiríkur Kristinsson sigraði í -71 kílóa flokki. í úrslitum mætti hann manni frá Möltu og var glíman löng og ströng. Eiríkur náði að skora kuko tvívegis en mótheijinn aðeins einu sinni. Undir lokin sótti hann nokkuð en Eiríkur varðist og hafði sigur. „Það var mikill pressa á manni að standa sig af því að hinir höfðu staðið sig svo vel og maður varð að fá gull,“ sagði Eiríkur sem vonast til að krækja sér í fjórða gullið á næstu Smáþjóðaleikum, á íslandi. Vignir Stefánsson keppti til úr- slita í 65 kg flokki en varð að játa sig sigraðan þegar mótheijinn, sem var frá Kýpur, skellti honum í gólfíð eftir að Vignir hafði reynt fjórða sinni að taka sama takið án árang- urs. Kýpurbúar fögnuðu ógurlega enda bjuggust þeir við sigri Vignis, en hann féll harkalega á höfuðið í glímu fyrr um daginn og var með mikinn höfuðverk þegar í úrslitin var komið. Höskuldur Einarsson steig næstur á stokk og keppti til úrslita vð Kýp- veija í 60 kílóa flokki. Höskuldur hafði sigur á ippon eftir þijár mínút- ur. „Hann byijaði vel og skoraði fljótlega á mig, en eftir að ég fann veiku hliðina á honum og náði taki þá var þetta í höfn,“ sagði Höskuld- Hannes 0,5 stigum frá bronsverðlaunum Valur B. Jónatansson skrifar frá Lúxemborg Hannes Tómasson hafnaði í 4. sæti í keppni með loftskamm- byssu á Smáþjóðaleikunum í Lúx- emborg í gær og var aðeins 0,5 stigum frá verðlaunsæti. Hann var í sjötta sæti inn í úrslit þar sem hann náði besta skori allra átta keppend- anna sem voru í úrshtum og hækkaði sig upp í 4. sæti. íslandsmethafinn, Ólafur Jakobsson, náði sér ekki á strik og hafnaði í sjötta sæti. Þeir hafa báðir lokið keppni á leikunum. „Ég er ekki nógu ánægður með árangurinn. Þessi árangur er meira en tíu stigum lægri en ég hef verið að ná á mótum heima. Ég er ánægð- ur með frammistöðuna í úrslitunum en það var bara aðeins of seint, en það munaði ekki miklu að ég næði á pall en að því stefndi ég,“ sagði Hann- es Tómasson. „Ég byijaði að æfa skotfinii fyrir þremur árum og þess vegna get ég vel við unað. Eg hef æft nánast daglega frá því í nóvem- ber. Nú er bara að æfa meira og koma enn sterkari til leiks næst,“ sagði Hannes. Ólafur var ekki ánægður enda langt frá sínu besta. „Þetta var lélegur árangur og einn af þessum dögum þar sem ekkert gengur upp. Þetta er mun lægra en ég hef náð á mótum undanf- arið. Það er bara að bíta á jaxlinn og gera betur næst,“ sagði Ólafur. Skotkeppnin fer þannig fram að fyrst eru sex umferðir þar sem hver keppandi fær 10 skot í hverri umferð þar sem mest er hægt að fá 100 stig. Átta bestu eftir undankeppnina halda áfram í úrslit þar sem hver keppandi fær tíu skot og er þá mest hægt að fá 10,9 stig fýrir hvert skot. Eftir undankeppnina var Hannes í 6. sæti með 556 stig, en besti árangur hans er 569 stig. I úrslitunum náði hann 96,1 stigi og samtals 652,1 stigi. Hann var með besta skorið í úrslitun- um ásamt Davide Chiaruzzi frá San Marínó, en hann varð í 2. sæti. Ólaf- ur var með 553 stig eftir undankeppn- ina, en til samanburðar er íslandsmet hans 576 stig. Hann var áttundi inn í úrslit og fékk þar 95,9 stig og hopp- aði upp um tvö sæti í það sjötta með samtals 648,9 stig. Smáþjóðleikarnir á Islandi 1997 Siglingar og fimleikar Smáþjóðaleikar Evrópu verða næst á íslandi, eftir tvö ár. Nú þegar er undirbúningur að leik- unum hafinn og hefur sérstök nefnd verið skipuð til að undirbúa leikana. Sex manna sendinefnd frá Reykja- víkurborg er hér í Lúxemborg til að fylgjast með framkvæmd og skipu- lagningu leikanna. Þeir eru: Steinunn V. Óskarsdóttir, formaður ÍTR, Ómar Einarsson, framkvæmdastjóri ÍTR, Jóhannes Óli Garðarsson, vall- arstjóri Laugardalsvallar, Jón Magn- STEPANÍA Stefánsdóttir, ís- landsmeistari í tennis, er meðal keppenda á Smájþjóðaleikunum í Lúxemborg. Hún kemur úr mikilli íþróttafjölskyldu. Hún er dóttir Stefáns Eggertssonar, formanns Tennissambandsins og fyrrum knattspymumanns úr Fram. Systkini hennar þijú eru einnig í landsliðum íslands en ekkert þeirra í sömu íþrótta- g'ein eða sama íþróttafélag-i. Stefanía er í Þrótti, Ólafur bróðir hennar (22 ára) er landsliðsmaður í handknattleik og leikur með Val, Eggert (16 ára) er í Fram og er í unglinga- landsliðinu í knattspymu og Jón (12 ára) er í KR í körfu- knattieik og hefur verið valinn i sérstakan úrvalshóp unglinga „Það er mikill íþróttaáhugi í fjölskyldunni og það er fátt annað sem kemst að og íþróttir eru aðal umræðuefnið á heimil- inu. Foreldrar okkar, Stefán og Ingigerður Jónsdóttir, hafa mikinn áhuga á íþróttum og hafa þvi hvatt okkur til að æfa íþróttir,“ sagði Stefanía. „Ég veit ekki hvers vegna við fórum öll í sitt hvora íþróttagreinina, það bara æxlaðist svona. Ég hefði alveg eins getað hugsað mér að fara í handbolta eða fótbolta, en tennis er spennandi grein og ég sé ekki eftir að hafa vaíið hana,“ sagði Stefan- ía. ússon, starfsmaður Laugardalsvall- ar, Pétur Kristjánsson, tæknistjóri ÍTR og Stefán Konráðsson, skrif- stofustjóri ÍSÍ. Venjan er að mótshaldarar fá að velja tvær greinar á Smáþjóðaleikum og hefur nú þegar verið ákveðið að á íslandi verði keppt í í siglingum og fimleikum og koma þær greinar í staðinn fyrir hjólreiðar og skotfími. Lichtenstein, sem heldur leikana 1999, er búið að ákveða að þar verði keppt í skvassi í stað körfuboltans. Tap gegn San Marínó Kvennalandsliðið í blaki tapaði naumlega, 2:3, fyrir San Marínó í fyrsta leiknum í gær. íslensku stúlk- umar unnu fyrstu hrinuna 16:14, töp- uðu þeirri næstu 3:15 en höfðu 15:13 sigur í þeirri þriðju. San Marínó vann fjórðu hrinuna 7:15 og oddahrinuna 12:15. íslenska karlaliðið tapaði illa fyrir Kýpur í fyrsta leik sínum í gær. Kýp- ur vann 3:0 og tók leikurinn aðeins 57 mínútur. Fyrsta hrinan endaði 1:15, sú næsta 10:15 og síðasta 4:15 og áttu íslensku strákamir varla nokkra möguleika gegn Kýpur. Kvennalandsliðið í knattspyrnu gegn Svíum í kvöld KRISTINN Björnsson landsliðsþjálfarí hefur valið lið til að leika vináttuleik gegn Svíum, sem fram fer á Kópavog- svelli klukkan 20 í kvöld. Það voru Sviar sem fóru fram á að fá leik gegn islenska liðinu og buðust'til að borga fyrir sig allan kostnað. KSÍ tók því boði með þökkum enda góður undir- búningur fyrir 20 ára og yngri landslið- ið sem fer á Norðurlandamótið í knatt- spyrnu í Finnlandi I ágúst. Eftirtaldir leikmenn hafa verið valdir: Markverðir: Sigríður F. Pálsdóttir, KR, Lovísa Hilmarsdóttir, Grindavík, Aðrir leikmenn: Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki, Helga Ósk Hannesdóttir, Breiðabiiki, Ásthildur Helgadóttir, Breiðabliki, Erla Hendriksdóttir, Breiðabliki, Ásgerður H. Ingibergs- dóttir, Val, Hjördís Símonardóttir, Val, Kristbjörg Ingadóttir, Val, Gréta Guðnadóttir, Stjörnunni, Katrin Jóns- dóttir, Sljörnunni, Guðlaug Jónsdóttir, KR, Anna Lovísa Þórsdóttir, KR, Erla Dögg Sigurðardóttir, Maridal Svíþjóð, Ingibjörg H. Ólafsdóttir, ÍA, Áslaug Ákadóttir, í A. Breytingar eru á hópn- um þar sem nokkrir leikmenn eru að keppa með körfuboltalandsliöinu á Smáþjóðaleikunum í Luxemborg, til dæmis Olga Færseth og Inga Dóra Magnúsdóttir úr KR. Erla Dögg er ný í hópnum en að sögn Kristins hefur enginn frá KSÍ séð hana þar sem hún hefur spilað í Sví- þjóð og ekki vitað til þess að hún hafi leikið hér á landi. Það var hinsvegar aðstoðarþjálfarí sænska landsliðsins sem sá hana spila og mælti með henni en sjálfsagt þótti að athuga þetta efni. Ivanisevic úr leik á Opna franska KRÓATINN Coran Ivanisevic sem er fjórði á heimslista tennismanna féll úr leik í fyrstu umferð fyrir óþekktum Svía, Mikael Tillstrom, 7-5,6-3 og 6-4. „Ef ég ætti þess kost að hætta tennisiðk- un þá myndi ég gera það núna,“ sagði Ivanisevic og bætti við: „Þetta er versta tap mitt á ferlinum.“ Tillström var fyr- ir mótið í 131. sæti heimslistans. Annar þekktur kappi, Peter Sampras, lenti í kröppum dansi í viðureign sinni við minm spámann í íþróttinni Cilbert Schaller frá Ástralíu, en bjargaði sér fyrir horn á mistökum Shallers í lokin. NBA beint á Stöð 2 BEINAR einar útsendingar frá úrslita- keppni NBA deildarinnar í körfuknatt- leik hefjast á Stöð 2 í nútt kl.01:00 með leik San Antonio Spurs og Houston Rockets og sólarhring síðar með leik Orlando Magic og Indiana Pacers. Er þar um að ræða sjöttu viðureignir I báðum tilfellum. En dagskráin er sem hér segir: Vesturdeild: 6. leikur fímmtudaginn l.júní kl.01:00 7. leikur laugardaginn 3.júni óvisstími Austurdeild: 6. leikur föstudaginn 2. júní kl.01:00 7. leikur sunnudaginn 4.júní kl. 23:00 Úrslitaleikir: l.leikur miðvikudaginn 7.júní kl.01:00 2.1eikur föstudaginn 9.júní kl.01:00 3. leikur sunnudaginn ll.júní kl.ll:30 4. leikur miðvikudaginn 14.júní kl.01:00 5. leikur föstudaginn 16.júní kl.01:00 6. leikur sunnudaginn 18.júní kl.ll:30 7. leikur miðvikudaginn 21. júní kl.01:00 Úrslitaleikirnir geta hugsanlega aðeins orðið íjórir, en mest sjö eins og getið er um að ofan því það lið sigrar sem fyrr vinnur ijóra leiki. Péturkeppirekki á Smáþjóðaleikunum PÉTUR Guðmundsson, íslandsmeistari i kúiuvarpi, keppir ekki á Smáþjóða- leikunum i Lúxemborg eins ogtil stóð en keppni í fijálsíþróttum á leikunum hefst í dag. Pétur, sem hefur æft í Bandaríkjunum að undanförnu, er meiddur á fingri og verður frá í óá- kveðinn tíina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.