Morgunblaðið - 24.06.1995, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
FRJALSIÞROTTIR / MEISTARAMOT ISLANDS
1995
LAUGARDAGUR 24. JUNI
BLAD
Morgianblaðið/Sverrir
Hlaupadrottingar í sviðsljósinu
GEIRLAUG Geirlaugsdóttlr og Guðrún Arnardóttir verða í svlðsljósinu á Mefstaramótl íslands, sem hefst á
Laugardalsvellinum í dag — þær keppa í 100 og 200 m hlaupl. Gelrlaug var 0,02 sek. frá metinu í 100 m á
Smáþjóðalelkunum í Lúxemborg á dögunum. Guðrún á metlð í 200 m hlaupl.
■ Elnvígi í spretthlaupum / D4
Bergkamp-æði á
Highbury
GEYSILEGT Denn-
is Bergkamp-æði
hefur blossað upp í
herbúðum Arsenal á
Highbury. Stuðn-
ingsmenn félagsins
hafa fagnað kaup-
um Arsenal á hol-
lenska landsliðs-
manninum og er nú
þegar byijað að
selja Arsenal-peys-
ur með nafni kapp-
ans á. Eftir aðeins
tvo daga var búið að selja 500 peysur, en hver
peysa kostar kr. 5.050. Vonast Arsenal-menn að
met Tottenham verði slegið, en Tottenham seldi
15.000 JUrgen Klinsmanns-peysur á einum mán-
uði í fyrra, eftir að Klinsmann gekk til liðs við
félagið. Sjónvarpsstöðin Sky hefur óskað eftir
þvi að sýna leik Arsenal og Middlesbrough beint
20. ágúst, þegar 1. deildarkeppnin hefst. Berg-
kamp mun leika sinn fyrsta leik á Highbury 10.
ágúst gegn Inter Milanó. „Við getum fyllt völlinn
tvisvar af áhorfendum — síminn hringir iátlaust
hjá okkur,“ er haft eftir manni úr aðalbækistöðv-
um Arsenal á Highbury, völlurinn tekur um 37
þús. áhorfendur í sæti.
Það er jjóst að mannabreytingar verða hjá
Arsenal. Daninn John Jensen hefur óskað eftir
sölu og hefur hann áhuga að leika áfram i Eng-
landi. Þá hefur West Ham áhuga á að kaupa
hinn 32 ára sóknarleikmann, Alan Smith, á 500
þús. pund.
j
i
i
NewJerseyeygir
Stanleybikarinn
LEIKMENN New Jersey halda áfram sigur-
göngu sinni í einvíginu við Detroit Red Wing í
úrslitakeppni NHL deildarinnar um Stanleybik-
arinn. í fyrrakvöld sigruðu þeir í þriðja leiknum
i röð og þurfa nú aðeins einn vinning til þess
að hampa titlinum. Leikurinn fór fram á heima-
velli New Jersey og endaði 5:2 og nú leggja
heimamenn allt í sölurnar til að hamapa titlinum
heima að loknum fjórða leiknum, en þetta yrði
þá í fyrsta skipti sem þeir vinna Stanleybikar-
inn. Detroit liðið, sem fyrirfram var talið sigur-
stranglegra, hefur enn ekki unnið leik í keppn-
inni. Aðeins einu sinni í sögu Stanleybikarsins
hefur lið sem er 3:0 undir tekist að snúa blaðinu
við og sigra, en það gerðu leikmenn Maple Leaf
árið 1942.
„Leikmenn mínir léku vel. Þeir voru ákveðn-
ir, vel einbeittir og héldu frumkvæði allan leik-
tímann,“ sagði glaðbeittur þjálfari þeirra Jersey-
drengja, Jacques Lemaire, að leikslokum. Það
eru svo sannarlega orð að sönnu þvi leikmenn
New Jersey skoruðu fimm fyrstu mörkin og það
var ekki fyrr en undir lokin að Sergei Federov
og Steve Yaerman náðu að klóra í bakkann fyr-
ir Detroit.
Fjórði leikurinn fer fram í kvöld.
KNATTSPYRNA
Keflvíkingar gegn Metz
Þeir leika í Evrópukeppni félagsliða, Intertoto, næstu fjórar helgar
Kefivíkingar leika fyrsta leik sinn í Evrópukepppni félagsliða á
sunnudaginn á Keflavíkurvelii þegar þeirtaka á móti franska lið
inu Metz, sem hafnaði í áttunda sæti ifrönsku 1. deildarkeppn-
inni sem er nýlokið. Þess má geta að liðið seldi einn kunnasta
leikmann sinn, landsliðsmanninn Philippe Vercruysee, til sviss-
neska liðsins Sion í vikunni.
Tvö jafntefli
í Kanada
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
handknattieik er nú statt í Kanada
þar sem það tekur þátt í boðs-
móti. Liðið hefur leikið tvo leiki
og gert jafntefli í þeim báðum,
24:24, gegn Bandaríkjunum og
22:22 gegn Kanada.
Mörkin gegn Bandaríkjunum skor-
uðu Heiða Erlingsdóttir 6, Halla
María Helgadóttir 4, Herdís Sigur-
bergsdóttir 4, Andrea Atladóttir 3,
Guðný Gunnsteinsdóttir 3, Laufey
Sigurðardóttir 2/2 og Svava Sigurð-
ardóttir 2. Gegn Kanada skoruðu
Heiða Erlingsdóttir 6 mörk, Halla
María Helgadóttir og Andrea Atla-
dóttir skoruðu 4 mörk hvor, Herdís
Sigurbergsdóttir og Svava Sigurðar-
dóttir 3 mörk hvor, og þær Guðný
Gunnsteinsdóttir og Laufey Sig-
valdadóttir 1 mark hvor.
að verður að segjast eins og
er að við vitum sáralítið um
þetta franska lið sem við erum að
fara að leika gegn. Það hefur verið
erfítt að fá upplýsingar um þá. Við
munum fara hægt af stað og sjá
til hvernig leikurinn þróast,“ sagði
Þórir Sigfússon, þjálfari Keflavíkur,
aðspurður um andstæðingana.
„Með liðinu leika nokkrir Afr-
íkubúar og tveir leikmenn sem hafa
verið við landsliðsdyr Frakka, en
styrleiki þeirra er nokkuð óljós. En
við þekkjum lítillega franska knatt-
spyrnu og hvemig hún er, þó ekk-
ert sé algilt," bætti hann við.
Lið Keflavíkur leikur í Evrópu-
keppninni næstu fjórar helgar auk
þess að leika í deildarkeppninni og
bikarkeppninni hér heima og ljóst
að þetta eykur enn álagið á leik-
menn liðsins. „Já það mun gera
það,“ sagði Þórir, „við erum að fara
inn í mjög erfíðan tíma á næstu
vikum þar sem ekkert má bera útaf
í meiðslum og þess háttar. En verði
þetta rétt notað getur þessi leikja-
fjöldi komið sér vel við að koma
leikmönnum í gott leikform. En
þrátt fyrir þetta verður aðaláhersla
okkar á deildarkeppnina."
Þessi keppni sem Keflvíkingar
eru nú að hefja þáttöku í er ný á
vegum UEFA og kallast Intertoto.
Þar taka þátt félög sem ekki ná inn
í eina af stóru keppnunum þremur
og leikið verður í riðlum. Auk Metz
eru andstæðingar Keflavíkur
Partick Thistle frá Skotlandi, FC
Zagreb frá Króatíu og Linzer ASK
frá Austurríki. Keflvíkingar leika
heima gegn Metz og FC Zagreb,
en að heiman gegn hinum tveimur
liðunum.
Leikurinn í Keflavík hefst klukk-
an 15.
SNÓKER: TVEIR ÍSLENDINGAR Á EVRÓPUMÓT ÁHUGAMANNA í BELFAST / D3