Morgunblaðið - 06.07.1995, Side 1
KÖRFUKNATTLEIKUR: TORFIMAGNÚSSON ÞJÁLFARIVALS / 04
____________________________________________________________L
Roberto Baggio í*
raðir AC Milan
ÍTALSKA knattspyrnusfjarnan Roberto Baggio
hefur undirritað samning við AC Milan um að
leika með þeim á næsta keppnistimabili. Þetta
staðfesti kappinn í gær og sagði jafnframt að
þrátt fyrir að eigendur Juventus hefðu gert allt
sem í þeirra valdi stóð að til halda í hann þá
hefði það ekki verið nóg. „Ég verð að hugsa um
hvað mér er fyrir bestu sem
knattspyrnumaður. Ég hef
undirritað samning við AC
Milan sem ég er fullkomlega
ánægður með,“ sagði
Baggio í gær. Ekki hefur
verið upplýst hversu háa
fjárupphæð Milanómenn
þurfa að reiða af hendi fyr-
ir Baggio, en þegar hann
gekk til liðs við Juventus frá
Fiorcntina fyrir fimm árum
var kappinn dýrasti knatt-
spyrnumaður heimsins.
Þessi yfirlýsing Baggios
bindur enda á vangaveltur
um framtíð hans, en allt frá
því að samningur hans við
Juventus rann út í vor hefur hann verið orðaður
við ýmis lið víðsvegar um heim. Forráðmenn ít-
ölsku meistaranna voru ekki tilbúnir til að end-
urnýja samninginn nema að því tilskyldu að
stjarnan sætti sig við launalækkun, en sú hug-
mynd féll í grýttan jarðveg hjá leikmanninum.
Baggio sagði þegar hann var inntur eftir fjár-
hagshlið samnings hans við Mílanó að ekki hefði
verið endanlega gengið frá þeim hlutum en því
lyki fyrir helgi.
í yfirlýsingu sem Juventus lét frá sér fara í
gær sagði að Baggio hefði upplýst þá um að
hann hefði náð samningum við AC Milan um að
leika með liðnu næsta keppnistimabil og forráða-
menn félagsins óskuðu honum góðs gengis með
nýju félagi.
Fall Dynamo
Dresden er hátt
DYNAMO Dresden, sem varð átta sinnum meist-
ari í fyrrum A-Þýskalandi og sjö sinnum bikar-
meistari, er ekki lengur atvinnumannafélag. Lið-
ið, sem féll úr 1. deildinni á nýliðnu keppnistfma-
bili, hefur verið gert að áhugamannaliði og mun
leika framvegis í einum af áhugamannadeildun-
um í Þýskalandi. Ástæðan fyrir hinu mikla falli
Dresden er, að forráðamenn félagsins hafa átt í
miklum erfiðleikum með að fjánnagna reksturinn
og er liðið skuldum vafið. Fjármálaerfiðleikar
Dresden hafa verið staðreynd lengi, en fyrir
tveimur árum voru sex stig dregin af Dresden í
1. deildinni, vegna fjármálanna. Þá náðu forráða-
mennirnir að bjarga liðinu með því að selja mið-
hetjann Olaf Marschall rétt áður en þýska knatt-
spyrnusambandið tók mál liðsins fyrir — í gær
var ljóst að Dresden átti ekki eftir neitt útspil
til að bjarga sér.
Hansa Rostock, sem varð sigurvegari í 2. deild-
arkeppninni sl. keppnistimabil, er eina liðið frá
austurhluta Þýskalands, sem leikur í 1. deildinni
næsta keppnistímabil.
1995
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ
BLAD
Sampras
hefur tekið
stefnuna á
þrennu
PETE Sampras stefnir að því að
vinna Wimbledon-skjöldinn þriðja
árið í röð, en hann mætir Króatan-
um Goran Ivanisevic í undanúr-
slitum. Sampras tapaði fyrstu lot-
imni gegn Japananum Shuzo
Matsuoka í gær, 6-7, en vann síð-
an þijá lotur örugglega 6-3 6-4
6-2. „Ef ég tapa tveimur fyrstu
lotunum á föstudaginn, mun ég
ekki gefast upp,“ sagði Sampras,
sem getur orðið fyrstur til að
vinna þijú ár í röð síðan Björn
Borg vann það afrek.
Þjóðverjinn Boris Becker, sem
hefur fagnað sigri þrisvar í
Wimbledon-keppninni, tekur nú
þátt í tólfta sinn, lenti í kröppum
dansi í gær, sem stóð yfir í fjórar
klukkustundir og ellefu mín.
Hann tapaði fyrstu tveimur lot-
unurn, 6-3 6-1, gegn Frakkanum
Cedric Pioline (nr. 58 á styrk-
leikalistanum), en snér leiknum
síðan sér í haf eftir mikla baráttu
6-7 6-7 9-7.
Eins og hjá konunum, sem leika
undanúrslitaleiki sína í dag, eru
fjórir efstu mennirnir á alþjóða
styrkleikalistanum í undanúrslit-
um. Becker mætir Andre Agassi,
sem er efstur á listanum, í undan-
úrslitum — Agassi vann Hollend-
inginn Jacco Eltingh í gær.
■ Úrslit / D2
Hugsar um framhaldið
PETE Sampras, Wimbledon-melstarinn tvö sl. ár, sat hugsi eftlr aö hafa tap-
aö fyrstu lotunni gegn Japanum Shuzo Matsuoka. Það var elns og hann vlldl
horfa fram á veg með svipuAu augnaráðl og Japanar.
HANDKNATTLEIKUR
Guðmundur Albertsson með bandaríska landsliðinu á ÓLTAtlanta?
Hrein ævintýraþrá ef aff verður
Guðmundi Albertssyni hand-
knattleiksmanni úr KR hefur
verið boðið að æfa með bandaríska
landsliðinu í handknattleik. Guð-
mundur á bandarískan föður og
íslenska móður og því ríkisborgara-
rétt í báðum þjóðlöndum. Boðið
barst Guðmundi nýlega en hug-
myndin að því kveiknaði á meðan
bandaríska landsliðið dvaldi hér á
HM í handknattleik.
„Ég var umsjónarmaður með
bandaríska landsliðinu á meðan
það dvaldi hér á HM og æfði stund-
um með þeim og þeir vissu af að-
stæðum mínum,“ sagði Guðmund-
ur í viðtali við Morgunblaðið í
gær. „I framhaldinu óskuðu þeir
eftir við mig að ég sendi handknatt-
leikssambandi þeirra upplýsingar
um mig og feril minn sem hand-
knattleiksmanns. í síðustu viku
fékk ég síðan bréf frá þeim þar sem
þeir bjóða mig velkominn á
reynsluæfingar seinni hluta ágúst-
mánaðar, en ég hef ekki tekið
ákvörðun ennþá hvort ég tek þessu
boði.“
Guðmundur sagði að ef hann
tæki þessu boði þyrfti hann að
flytja til Bandaríkjana og æfa og
leika þar fram yfir Ólympíuleikana
í Atlanta á næsta ári. Handknatt-
leiksforystan í Bandaríkjunum vill
að leikmenn landsliðsins séu þar í
landi og leikmenn sem leika utan
landsins fá ekki að leika með lands-
liðinu. „Það er enginn deildar-
keppni í Bandaríkjunum og lands-
liðið æfir mikið en leikur fá lands-
leiki.
„Þeir eru mótfallnir því að ég
leiki áfram ineð KR komist ég í
liðið hjá þeim. Þetta er stefna sem
ég er ekki hrifin af og sem dæmi
má nefna að besti handknattleiks-
maður Bandaríkjana lék ekki með
landsliðinu á HM vegna þess að
hann leikur í Austurríki. Ef svo
færi að ég léti slag standa þá væri
það af hreinni ævintýraþrá,“ sagði
Guðmundur Albertsson, að lokum
og sagði jafnframt að hann myndi
taka ákvörðum af eða á á næstu
dögum.
TENNIS/WIMBLEDON