Morgunblaðið - 14.07.1995, Síða 2
2 C FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
UIMDANÚRSLIT BIKARKEPPNINNAR í KNATTSPYRNU
Fimm sinnum
saman í bikar-
pottinum
KEFLAVÍK, Fram og KR voru I fimmta
skipti saman í pottinum í gær, ásamt
fjórða liði, þegar dregið hefur yerið til
undanúrslita í Bikarkeppni KSÍ — og
í fyrsta skipti drógust Keflavík og KR
sarnan. Áður höfðu KR og Fram lent
tvisvar saman, 1961 og 1962 og Fram
og Keflavík tvisvar, 1970 og 1989.
í annað sinn
á Laugar-
dalsvöllinn
GRINDVlKINGAR leika gegn Fram á
Laugardalsvellinum, en þeir hafa að-
eins einu sinni áður leikið þar — bikar-
úrslitaleikinn gegn KR í fyrra, þar sem
þeir töpuðu, 0:2. Nokkrir leikmenn
Grindavíkurliðsins hafa þó leikið þar
oftar — bikarúrslitaieiki. Grétar Ein-
arsson hefur leikið úrslitaleiki á vellin-
um með Víði og Keflavík, Haukur
Bragason, markvörður — fyrrum leik-
maður Fram, hefur leikið þar með KA
og Lúkas Kostic, þjáifari, með í A.
Fram og Grindavík hafa ekki áður
leikið bikarleik, en liðin hafa aðeins
einu sinni áður leikið saman — 1. deild-
arleik í Grindavík fyrr í sumar, sem
endaði með jafntefli 2:2.
KR-ingar hafa
haft betur en
Keflvíkingar
KR-ingar og Keflvíkingar hafa átta
sinnum lent saman i bikarkeppninni og
hafa KR-ingar haft betur, unnið fimm
leiki, en Keflvíkingar þrjá. Liðin hafa
leikið fimm undanúrslitaleiki og hefur
KR unnið þrjá, en Keflavík tvo. Þegar
Keflvík varð bikarmeistari fyrir tutt-
ugu árum, 1975, lögðu Keflvíkingar
KR-inga að velli i Keflavík, 2:1, í undan-
úrslitum. 1982 vann Keflavík með sömu
markatöiu og skoraði Ragnar Mar-
geirsson þá bæði mörk Keflvíkinga, en
Magnús Jónsson, núyerandi þjálfari
Fram, skoraði mark KR.
Keflvíkingar
fögnuðu í her-
búðum KR
SÍÐ AST A viðureign Keflavíkur og KR
í bikarkeppninnni var í undanúrslitum
1990. Þá voru fjórir Keflvíkingar í
herbúðum KR-inga, sem fögnuðu sigri
íKeflavík 2:4 — Ragnar Margeirsson,
Ólafur Gottskálksson, sem nú leika
báðir með Keflavík, Gunnar Oddsson
og Sigurður Björgvinsson. Pétur Pét-
ursson skoraði tvö mörk fyrir KR í
leiknum og Gunnar Skúlason og Atli
Eðvaldsson sitt hvort markið en mörk
heimamanna skoruðu Marko Tanasic
og ÓIi Þór Magnússon.
Skora í öllum
umferðum
TVEIR Keflvíkingar hafa skorað mörk
í öllum þremur umferðum bikarkeppn-
innar í ár — Ragnar Margeirsson, sem
hefur skorað sex mörk og Kjartan Ein-
arsson, sem hefur skorað fjögur mörk.
Ragnar Margeirsson skoraði sitt 25.
bikarmark gegn Fylki í fyrrakvöld;
hann hefur skorað 17 bikarmörk fyrir
Keflavík á ferlinum, sex fyrir Fram og
tvö fyrir KR.
Heppnin með Valsstelpum
Ánægður að fá KR
Þorsteinn Bjarnason, þjálfari
Keflvíkinga var ánægður með
dráttinn. „Það er ekki annað hægt
en vera ánægður með þennan
drátta, og það er númer eitt að fá
heimaleik. Ég er sérstaklega
ánægður með að vera laus við að
spila við Grindavík og það skipti
ekki máli hvort af hinum liðunum
við hefðum fengið. Þetta verður
hörkuleikur, bæði liðin geta spilað
knattspymu og þetta verður jám í
járn og þá er ég ekki að tala um
að þetta verði neitt fallegur leikur,
það þarf ekkert að vera, heldur
bara harður og grimmur. Þeir sem
eru betur stemmdir þann daginn
vinna leikinn. Það munar um að fá
heimaleikinn en við verðum að at-
huga það að KR-ingarnir hafa ver-
ið miklu stressaðri og raunverulega
hefði ekkert verið verra að fá þá í
Reykjavík því þeim virðist hafa
ÞAÐ má segja að Heppnin hafi
verið með ósigruðu liði Vals er
dregið var í undanúrslitum bikar-
keppni kvenna í gær. Valur heldur
til Akureyrar og leikur við ÍBA
sem ekki hefur unnið leik í 1.
deild kvenna á meðan Blikar fá
KR í Kópavoginn. Þau lið hafa
tvívegis leikið.í sumar, fyrst í
meistarakeppninni í vor þar sem
KR lagði Breiðablik 2:0 en síðan
í 1. deild kvenna þar sem Breiða-
blik hefndi grimmilega með 5:0
sigri.
„Þær töpuðu illa fyrir okkur
og ætla örugglega ekki að láta
það koma fyrir aftur en úrslita-
leikur þessara liða í fyrra var jafn
og spennandi svo að þetta verður
örugglega erfitt. Þetta er ekki
versti kosturinn í stöðunni og ég
er mjög sátt við þetta,“ sagði Sig-
fríður Sophusdóttir, markvörður
Breiðabliks eftir að Ijóst var að
íslands- og bikarmeistararnir
mæta KR.
Helena Ólafsdóttir, leikmaður
KR, sagði: „Þettaverður rosalega
erfitt og ég hefði frekar viljað fá
heimaleik og helst eitthvað annað
en Breiðablik. En það vill líklega
enginn annar fá þetta lið svo við
verðum bara að vinna þær. Við
steinlágum 5:0 fyrir þeim í deild-
inni í Kópavogi og komum alveg
brjálaðar til þessa leiks, en ef við
hefðum ekki mætt þeim þarna
þá hefði það bara seinna og við
þurfum að vinna þær til að kom-
ast í úrslitaleik og ætlum okkur
það.
Bikarleikir er öðruvísi og við
lentum í erfiðum leik gegn
Stjörnunni í 8 liða úrslitum; höfð-
um það samt að vinna þó við
værum einum færri mestan hluta
leiksins, þannig að það er karakt-
er f liðinu þegar það vill það. Við
unnum þær aftur á móti í meist-
arakeppninni og hittum þá á góð-
an dag en þar töldu þær sig eiga
dapran dag. Það er svo sem ág-
ætt að fá einn alvöruleik áður en
kemur að úrslitum," sagði Helena.
Slagur Suðurnesja-
og Reykjavíku ri iða
DREGIÐ var í undanúrslitum
bikarkeppni KSÍ í gær og dró
Gunnar Guðmannsson fyrsta
liðið uppúr brúsanum. Hjá körl-
unum verður um að ræða slag
milli Suðurnesja og Reykjavík-
ur þar sem Fram fær Grindavík
á Laugardalsvöllinn á meðan
KR-ingar sækja Keflvíkinga
heim og þvf möguleiki á að
sömu lið og áttust við úrslitum
ífyrra, KR og Grindavík, mætt-
ist í ný á Laugardalsveili. Und-
anúrslitaleikirnir verða 31. júlí.
Hjá kvenfólkinu leika Breiða-
blik og KR 28. júlí og ÍBA og
Valur mætast 21. júlf.
■Ceflvíkingar hafa verið mikið á
ferðinni að undanförnu og
leikið stíft, í 1. deildinni og Toto-
keppninni auk bikarkeppninnar.
Það virðist ekki hafa háð þeim mik-
ið, frekar frískað uppá liðið en
spurninga um hvort það gangi til
lengdar. Miðað við síðustu leiki liðs-
ins virðist þó sem liðið sé á góðri
siglingu.
Grindvíkingar eru í neðri hluta
1. deildarinnar en hefur gengið vel
í undanförnum leikjum á meðan
Fram baslar enn neðar í töflunni
en hefur þó sér það til frægðar
unnið í sumar að slá út úr bikar-
keppninni Skagamenn, sem eru lan-
gefstir í 1. deild.
Erfið heimsók til Keflavíkur
Guðjón Þórðarson, þjálfari KR,
sagðist heldur hafa viljað eitthvert
annað lið, alla vega heimaleik.
„Þetta er eitt það erfiðasta lið sem
við gátum fengið, Keflvíkingar eru
erfiðir heim að sækja og sterkir.
Þeir virðast búnir að ná tökum á
að spila agað og fá á sig fá mörk
svo að ljóst er að heimsóknin til
Keflavíkur verður erfíð. Það er
strembið prógram hjá þeim í gangi,
eins og reyndar hjá öllum, en þeir
hafa nýtt þetta mjög skynsamlega
og það þarf ekkert að vera erfiðara
að spila mikið en æfa stíft, það eina
sem er að það er oft og tíðum
skemmtilegra. Það hefur verið
draugagangur hjá okkur upp við
mark andstæðingana en vonandi
hrekkur allt í gang í Keflavík og
helst fyrr. Þetta verður barátta upp
á líf og dauða og sama verður með
leik Fram og Grindavík. Bikarleikir
eru einkennilegir, til dæmis í átta
liða úrslitunum var mikið af færum
en lítið um mörk þannig að ákveðin
taugaveiklun er í gangi. Þar er líka
allt önnur stemmning en ég hef trú
að liðin fari varlega og eitt mark
getur ráðið úrslitum þannig að
menn hljóta að fara varlega,“ sagði
Guðjón.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Hafa skorað í hverri umferð
KEFLVÍKINGAR fagna markl Kjartans Einarssonar (10), sem er fyrlr aftan Ragnar Margeirsson
(9) í leiknum gegn Fylki í fyrrakvöld. Ragnar og Kjartan hafa báðir skorað í öllum þremur lelkj-
um Keflavíkurliðsins í bikarkeppninni í sumar, samtals tíu mörk.
gengið betur á útivelli en á heima-
velli. Þar eru þeir með alla sína
KR-inga á bakinu sem pressar á
þá,“ sagði Þorsteinn.
Erfitt verkefni
Ólafur Helgi Árnason,formaður
knattspyrnudeildar Fram, sagðist
búat við erfiðum leik gegn Grind-
víkingum. „Þetta verður gífurlega
erfiður leikur því Grindvíkingar
hafa sýnt mikinn styrk í sumar,
sérstaklega í bikarkeppninni og
þeir fóru jú alla leið í úrslit í fyrra.
Verkefnið er því ekki létt, en það
er skemmtilegra að spila á Laugar-
dalsvellinum og það hefur Iíka með
umgjörðina að gera. Við erum ekki
komnir á ferðina ennþá, erum við
botninn í 1. deild með fimm stig
og verðum að hysja upp um okkur
buxurnar í deildinni, það er aðalat-
riðið en bikarinn er bara bónus þó
að það væri gaman að komast í
úrslit. Þessir leikir verða báðir erfið-
ir, Reykjavík gegn Suðurnesjum,
og leikur KR við Keflavík verður
ekki síður erfiður. En verðum við
ekki að segja að við vinnum þennan
leik, það er markmiðið, og komast
í úrslit."
Gaman á Laugardalsvelli
„Ég er mjög ánægður, Fram er
stór klúbbur og það er gaman að
spila á Laugardalsvelli. Persónulega
vil ég fá KR aftur í úrslitaleik, aðal-.
lega af því að ég og Guðjón þjálf-
ari KR eru góðir vinir og gaman
væri að fá annan úrslitaleik okkar
liða. Auðvitað munu samt Fram og
Keflvíki betjast fyrir sínu. Við erum
á uppleið en gengi Fram hefur verið
upp og niður og þetta verður hörku-
barátt en ég treysti mínum strákum.
Ég þori ekki að segja neitt fyrir um
leikinn, það er leyndarmál okkar
þjálfara liðanna sem hver geymir
fyrir sig. En við erum líka í hörku-
baráttu í deildinni og fram að bikar-
leiknum kemst ekkert annað að en
deildin, öll okkar einbeiting og at-
hygli fer þangað. Við viljum auðvit-
að bikarinn en munum taka á því
máli þegar þar að kemur. Við erum
reynslunni ríkari eftir úrslitaleikinn
frá því í fyrra og hópurinn er betri
svo að við vitum betur hvað við erum
að fara út í,“ sagði Lúkas Kostic,
þjálfari Grindvíkinga.
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1995 C 3
ÍÞRÓTTIR
HJOLREIÐAR
Neskaupstaður
'---' Reyðarf jörður
[ 96] FáskrúðsfjÖrður
Borgarf jörður
Seyðisf j -L
Skráning í síma 423 7802
TEYMI
1. verðlaun: Ameríkuferð
2. verðlaun: Evrópuferð
3. verðlaun: Innanlandsferð
Sæstjaman sigursæl
riðja stórkeppni sumarsins hjá
siglingamönnum verður nú
um helgina og hefst við Reykjavík-
urhöfn í kvöld. Sæstjarnan hefur
verið mjög sigursæl í sumar, bæði
í þriðjudagsmótunum og eins í hin-
um tveimur stóru mótum sem fram
hafa farið. Skipstjóri á Sæstjörn-
unni er Viðar Olsen og hefur hann
og áhöfn hans verið svo gott sem
ósigrandi í sumar. Sjómannadags-
mótið unnu þeir með nokkrum yfir-
burðum en þar varð Urta í öðru
sæti og Eva II í því þriðja. Títan-
mótið fór á sömu leið, Sæstjarnan
sigraði en nokkur heppnisstimpill
var yfir sigri hennar í fyrri umferð-
inni enda var fleytan síðust allra
fyrir síðasta legg keppninnar en
tókst að sigra engu að síður. Þetta
var óvenju jöfn keppni því þegar
tekið hafði verið tillit til forgjafar
munaði 92 sekúndum á fyrsta og
sjöunda báti. Síðari hluta keppninn-
ar sigraði hún einnig og þá með
meiri mun. Eva II varð í öðru sæti
samanlagt og Sigurborg í því þriðja.
í dag verður keppt um Lands-
bankabikarinn og hefst keppnin
klukkan 16. Siglt verður til Kefla-
víkur með krók inn í Skeijafjörð.
Auðvelt verður að fyljast með
keppninni við Reykjavíkurhöfn,
Gróttu; í Skerjafirðinum, Kópavogi
og á Álftanesi. Gera má ráð fyrir
að skúturnar verði á ferðinni í
Skeijafirði frá kl. 17.30 til 18.30.
Keppninni lýkur svo í Keflavíkur-
höfn. Eva II frá Keflavík hefur
unnið Landsbankabikarinn síðustu
tvö árin og á hún því möguleika á
að vinna hann til eignar. Sæstjarn-
an hefur hins vegar sigrar síðustu
tvö árin í Gran Keflavík keppninni
og sá bikar er því einnig í hættu
en keppnin í Keflavík hefst á laug-
araginn kl. 10 og verður siglt á
ólympískri braut. Þetta hefur reynst
vera ein skemmtilegasta keppni
hvers sumars og hápunkturinn hjá
siglingamönnum fyrir íslandsmótið
sem er í lok ágúst. Nokkrir nýir
bátar hafa bæst við flotann frá því
í fyrra og er Ari Bergmann til
dæmis kominn á fulla ferð á Gígju
ásamt öðrum mjög reyndum áhafn-
armeðlimum. Þeir hafa verið að ná
tökum á nýja secret26 keppnisbátn-
um sínum og eru til alls vísir nú
eftir því sem reynslan af bátnum
eykst aðrar fínstillingar. Urta hefur
einnig bætt sig frá í fyrra og keppn-
in öll að verða jafnari.
Oddskarðið verður erfitl
- segir Bjarni Svavarsson, íslandsmeistari í götuhjólreiðum
ÍSLANDSMÓT ífjallahjólreið-
um og bikarmót í götuhjólreið-
um verður í nágrenni Egils-
staða um helgina. Meðal
keppenda í götuhjólreiðum
verður íslandsmeistarinn
Bjarni Svavarsson, sem
tryggði sér titilinn.fyrir
skömmu. í keppni fjajlahjóla-
manna mætir einnig íslands-
meistari, Einar Jóhannsson,
sem einnig hyggst keppa f
götuhjólreiðamótinu.
Keppni hjólreiðamanna á götu-
hjólum verður geysilega erf-
ið, því lagt verður af stað frá
Egilsstöðum klukkan níu á
sunndagsmorgun og hjólað sem
leið liggur til Reyðarfjarðar, Eski-
fjarðar og Neskaupsstaðar, sam-
tals 83 km leið. Líklega munu
bestu kapparnir verða rúma þijá
og hálfan klukkutíma að hjóla
leiðina. „Erfiðasti hlutinn varður
vafalaust leiðin upp snarbratt
Oddskarðið, þar sem reynir mikið
á þol keppenda og styrk“, sagði
Bjarni í samtali við Morgunblaðið,
en hann vann Islandsmeistaratit-
ilinn fyrir hálfum mánuði í hjól-
reiðakeppni milli Reykjavíkur og
Hvolsvallar. Leiðin var 115 km
löng og Bjarni setti nýtt hjólamet
á leiðinni, hjólaði á 2,38 klukku-
stundum. „Það var mjög naumur
sigur sem ég vamm á Sölva Berg-
sveinssyni, það munaði bara fjór-
um sekúndum á okkur. Við vorum
í samfloti alla leið, þangað til
hann reyndi að stinga af á loka-
sprettinum, en það varð honum
að falli. Hann sprakk og ég náði
að síga framúr“, sagði Svavar.
Þessa dagana fylgist hann með
Frakklandskeppninni í hjólreiðum
af miklum áhuga. „Þessir kappar
sem keppa þar eru náttúrulega
miklu betri en við. Þar sem við
hjólum kannski á 30-35 km hraða,
gætu þeir bestu úti verið á 45.
Tony Rominger er í miklu uppá-
haldi hjá mér, en hann er manna
elstur í keppninni, 34 ára gamall.
Hann er á síðasta sjéns í þessari
keppni, en hann er efstur á heims-
lista í hjólreiðum, hefur unnið
flest mót ársins. Indurain sem
leiðir keppnina, leggur hinsvegar
mesta áherslu að vinna þessa
keppni og örfá önnur mót“, sagði
Bjarni.
Fjallahjólamótið hefst við Hús-
stjórnarskólann á Hallormstað á
laugardaginn kl 10. Meistara-
flokkur mun hjóla fjóra hringi um
fimm kílómetra leið um brekkur
og skógarstíga. Mikið verður um
klifur og hindranir í formi, tijá-
bola og árfarvega á leiðinni.
„Svæðið hérna hentar vel til
fjallahjólakeppni, en þessi íþrótt
á eftir að vaxa mikið á næstu
árum. Það eru seld 15.000 fjalla- ■
hjól á ári, þannig að markaðurinn
er fyrir hendi.
Jafnvel er í burðarliðnum að
skipuleggja mót, sem komið yrði
á framfæri erlendis. Erlendis er
keppni á fjallahjólum íþrótt at-
vinnumanna og er keppt í bruni,
þrautum og víðavangi. Þá nota
atvinnumenn á gönguskíðum
hlaupi og kappakstri fjallahjól
mikið til að halda sér í formi. Það
þarf bara að koma þessu inn sem
almenningsíþrótt hérlendis",
sagði Kristófer Ragnarsson, sem
skipuleggur íslandsmótið í Hall-
ormstaðarskógi.
Opna Bláalónsmót
Gólfklúbbs Sandgerðis
verður haldið á Vallarhúsavelli sunnudagin 16. júlí
kl. 8.00. í boði eru glæsilegrir ferðavinningar.
Ferðirnar eru algerlega að frjálsu vali
á áfangastaði Flugleiða.
Gildistími er 1 ár.
Sömu verðlaun með og án forgjafar.
Fern holuverðlaun.
Kylfingar athugið!
Þetta er annað mótið af þremur í Blálónsmótaröð
golfklúbbanna á Suðurnesjum. Veitt verða stig fyrir
20 efstu sætin með og án forgjafar. Titillinn Bláalóns-
meistarinn 1995 hlýtur sá sem fær flest stig samanlagt
úr öllum þremur mótunum.
HITAVEITA
SUÐURNESJA
jf^BIÁA LÓNIÐ
-ævintýri likast
ORALE HUGBUNAÐUR A ISLANDI
BIAA LONIÐ
-ævintýrí líkast
Útivistarparadís fjölskyldunnar.
Opið alla daga frá kl. 10-22.
sími 426 8800.
Italinn Marco Pantani sigraði í
fyrradag í tíunda og erfiðasta
áfanganun í Frakklandskeppninni,
en þá þurfa keppendur að hjóla 159
kílómetra leið í Ölpunum, að mikl-
um hluta til uppí móti, frá Aime-la
Plagne til L’Alphe d’Huez. Pantani
er jafnan kallaður „litli fíilinn"
meðal Itala vegna þess hversu stór
eyru hann hefur og svo er hann
krúnurakaður í þokkabót. En Pant-
ani er gríðarlega sterkur í fótunum
og þaðan er gælunafnið einnig
dregið.
Hann hjólar hratt og hann talar
einnig hratt og hafa blaðamenn
gaman af að tala við hann því hann
er óragur við að segja það sem
honum liggur á hjarta. Eftir sigur-
inn í gær hélt hann uppteknum
hætti. „Það var gaman að sigra í
þessum áfanga því það gera aðeins
frábærir hjólreiðamenn, og ég sigr-
aði án þess að fá hjálp frá nokkrum
manni.“
Með sigrinum skaust hann upp
í 7. sætið i keppninni en vonast til
að komast hærra á listanum áður
MARCO Pantani fangar sigri
í10. áfanganganum.
en keppninni lýkur þann 23. júlí.
Hann tapaði í fyrra fyrir Rússanum
með ljósu lokkana, Yevgeny Berzin,
í Ítalíukeppninni í fyrra og um hann
hafði hann ekki mikið að segja:
„Það eina sem ég öfunda hann af
er hárið!“
Hann hefur átti í útistöðum við
félaga sína í Carrera liðinu og þá
sérstaklega Claudio Chiappucci.
„Tveir hanar geta ekki verð saman
í hænsnabúi, ég hélt að það væri
hægt en svo er ekki. Claudio fór
alveg með það þegar hann fór að
gaspra dum að hann væri leiðtoginn
í liðinu, hann talar alltaf áður en
hann hugsar því hinir í liðinu vilja
mig sem leiðtoga.“
Pantani er mikill íþróttamaður
og fylgist velmeð knattspymunni
og missti ekki af einum einasta leik
í HM í fyrra þrátt fyrir að hann
væri að keppa í Frakklandskeppn-
inni, en þar varð hann í þriðja sæti.
„Ég varð að vaka ansi lengi flestar
næturnar, en ég sá alla leikina,“
sagði þessi miklu stuðningsmaður
AC Milan, sem er með húðflúr í lit-
um félagsins á handleggnum.
En íþróttirnar taka mikinn tíma
og það er aðalástæðan fyrir því að
hann á enga kærustu. „Það er erfið-
ara að sigra í Frakklandskeppninn
en að finna sér konu. Það verður
nægur tími til þess síðar.“
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldson
KEPPT verður í tveimur greinum hjólreíða í nágrenni Egils-
staða um helgina og þeir Bjarnf Svavarsson og Kristófer
Ragnarsson verða báðir í eldlínunni, Bjarni sem keppandi
og Kristófer sem skipuleggjandf.
„Litli ffllinn" kjaftfor
SIGLINGAR