Morgunblaðið - 20.07.1995, Blaðsíða 2
2 D FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. JULI1995
D 3
ÚRSLIT
Hestamót Sleipnis
og Smára
Haldið á Murneyri 15. - 16. júlí
Einkunnir eru úr forkeppninni:
Sleipnir- A-flokkur
1. Vikivaki frá Selfossi, f: Djákni, Kirkjubæ,
m: Leira 4519, Þingdal, eigandi og knapi
Svanhvít Kristjánsdóttir, 8,42.
2. Þór frá Selfossi, f: Fönix 903, Vík, m:
Blesa, Reyni, eigandi Elín Árnadóttir, knapi
Brynjar Jón Stefánsson, 8,36.
3. Áki frá Laugarvatni, f: Sörli 653, m:
Sjöfn, Laugarvatni, eigendur Ingimar Bald-
vinsson og Þórey Ingimundardóttjr, knapi
Einar Öder, 8,38.
4. Sálmur, f: Feykir 962, m: Þokkabót 5142,
eigandi og knapi Steinn Æ. Skúlason, 8,20.
Sleipnir B-flokkur
1. Flaumur frá Syðri-Gróf, f: Kjarval, m:
Grimma, eigandi og knapi Einar Óder, 8,77.
2. Emir, f: Óður 937, m: Lipurtá, eigandi
og knapi Skúli Steinsson, 8,37.
3. Biskup frá Skálholti, f: Mímir, Selfossi,
m: Skjóna, Skálholti, eigandi og knapi Svan-
hvít Kristjánsdóttir, 8,50.
4. Verðandi frá Hjálmholti, f: Máni, Ketils-
stöðum, m: Elding, Hjálmholti, eigandi og
knapi Sigurður Óli Kristinsson, 8,50.
Sleipnir - unglingaflokkur
1. Brynhildur Magnúsdóttir á Tígli frá Odd-
geirshólum, 8,02.
2. Elín Magnúsdóttir á Riddara frá Odd-
geirshólum, 7,91.
3. Haukur Hauksson á Hildi frá Heiðar-
brún, 7,67.
Sleipnir - barnaflokkur
1. Olöf Haraldsdóttir á Kapítólu frá Hall-
ormsstað, 8,13.
2. Hrund Albertsdóttir á Tappa, 7.82.
3. Sandra Hróbjartsdóttir á Asa frá Lang-
holtsparti, 7,62.
Smári A-flokkur
1. Flugar frá Nautaflötum, f: Dagur, Kjam-
holtum, m: Lísa, Hvammi, eigandi Gunnar
Egilsson, knapi Leifur Helgason, 8,16.
2. Funi frá Hvítárholti, f: Örvar Neðra
Ási, m: Lyfting 6006, eigandi og knapi
Halla Sigurðardóttir, 8,03.
3. Skuggi frá V-Geldingaholti, f: Kjarval
1025, m: Hrafnhetta 5557, eigandi og knapi
Sigfús Guðmundsson, 8,01.
4. Gjafar frá Hamratungu, f: Gáski 920,
m: Gauta, eigandi og knapi Harpa S. Magn-
úsdóttir, 7,68.
Smári B-fíokkur
1. Gyðja frá Fossnesi, f: Hrafn 802, m:
Sara, Hrepphólum, eigandi og knapi Leifur
Stefánsson, 8,36.
2. Laufi frá Gilsá, f: Garpur, m: Æsa, eig-
endur Jóhanna og Rúnar, Haga, knapi Leif-
ur Helgason, 8,36.
3. Ómagi frá Kálfholti, f: Sómi, Selfossi,
m: Fjöður, Kálfholti, eigendur Ásrún Dav-
íðsson og Halldór Halldórsson, knapi Hall-
dór Halldórsson, 8,31.
4. Sesar frá Sólvöílum, f: f.Uxahrygg, m:
f. Lyngási, eigandi og knapi Gunnar Örn,
Steinsholti, 8,24. (
Smári - unglingaflokkur
1. Sigfús B. Sigfússon á Smára frá V-Geld-
ingaholti, f: Þór, m: Spóla 4520, 8,12.
2. Áslaug Harðardóttir á Rán frá Laxárd-
al, f.Vinur, Kotlaugum, m: Silfra, 7,93.
Smári - bamaflokkur
1. Bjami Másson á Gusti frá Enni, f: Her-
var 963, m: Svala, Enni, 7,67.
2. Ragnheiður Másdóttir á Garpi frá Há-
holti, f: Borgfjörð 909, m: Gjósta, 7,57.
3. Tinna Jónsdóttir á Fnmanni frá Skeiðhá-
holti, f: Hrafn, m: Fjöður, 7,63.
Skeið 150 metrar
1. Snarfari frá Kjalarlandi, eigandi og knapi
Sigurbjörn Bárðarson, 14,7.
2. Áki frá Laugravatni, eigendur Ingimar
Baldvinsson og Þórey Ingimundardóttir,
knapi Einar Öder Magnússon, 15,7.
3. Oliver, eigandi Hafsteinn Jónsson, knapi
Jón K. Hafsteinsson, 16,3.
Skeið -250 metrar
1. Ósk frá Litladal, eigandi og knapi Sigur-
björn Bárðarson, 22,9.
2. Lýsingur, eigandi og knapi Skúli Steins-
son, 23,5.
3. Ugla frá Gýgjarhóli, eigendur Hulda
Gústafsdóttir og Hinrik Bragason, knapi
Hulda Gústafsdóttir, 24,7.
IÞROTTIR
HESTAR
fjöldi hesta á móti Sleipnis og Smára á Murneyri
Toppamir héldu sínu
VERÐLAUNAHAFAR
í B-flokki hjá Smára
ríða í góðri breið-
fylkingu fram völlinn
eftir verðaunaaf-
hendingu.
GÆÐINGARNIR í efstu sætum
héldu sínu í úrslitum á sunnu-
dag á sameiginlegu hestamóti
Sleipnis og Smára á Murneyri
um helgina. Þráttfyrir mikinn
fjölda hrossa í gæðingakeppn-
inni tókst að Ijúka mótinu á
tveimur dögum en keppt var á
tveimur völlum samtímis i' for-
keppninni. Þótt mótið sé sam-
eiginlegt er gæðingakeppni fé-
laganna aðskilin og því um tvö-
falda úrslitakeppni að ræða.
H
Valdimar
Krístinsson
skrífar
æstu einkunn mótsins 8,77
náði stóðhesturinn Flaumur
frá Syðri-Gróf sem er í eigu Einars
Öders Magnússonar
sem keppti í B-flokki
hjá Sleipni. Að und-
anskildum einkunn-
um efstu B-flokks-
hesta hjá Sleipni voru einkunnir
heldur í lægri kantinum. Hrossin
eru sýnd á grasvöllum og kann það
að vera skýring að hluta fyrir lágum
einkunnum. Ernir frá Eyrarbakka
sem Skúli Steinsson sýndi í B-flokki
hjá Sleipni vann sig upp úr fimmta
sæti í ánnað sæti en þessi hestur,
sem er aðeins sex vetra gamall,
hefur vakið eftirtekt þar sem hann
hefur komið fram og verður fróðlegt
að fylgjast með honum í framtíð-
inni. Eiginkona Einars Öders, Svan-
hvít Kristjánsdóttir, var með efsta
hestinn Vikivaka frá Selfossi í A-
flokki hjá Sleipni og geta þau hjón
verið ánægð með útkomuna á mót-
inu eins og svo oft áður.
Nú á nýjan leik var boðið upp á
ræktunarhópssýningu þar sem
sýndur var afrakstur einstakra búa
af félagssvæði Smára og Sleipnis
en slíkar sýningar hafa notið vax-
andi vinsælda á Ijórðungs- og lands-
mótum síðustu árin. Aðsókn að
Murneyrarmótum hefur ávallt verið
góð og svo var einnig nú. Að vísu
hefur þátttaka í keppninni, og þá
sérstaklega kappreiðum, oft verið
meiri á þessum mótum en talsverður
fjöldi gesta mætti til að fylgjast
með keppninni og kom stór hluti
þeirra ríðandi sem setur skemmti-
legan svip á samkomuna.
Þótt dagskrá gengi vel fyrir sig
á laugardegi var hægagangurinn
allsráðandi á sunnudeginum eins og
oft hefur gerst á gæðingamótum.
Vantar alltof oft meiri drift í fram-
kvæmd á úrslitum gæðinga og verð-
launaafhendinga. Með örlítilli skipu-
lagningu mætti gera þar úrbót á
og má þar nefna að meðan verið
er að reikna út niðurstöðu í síðustu
keppni og afhenda verðlaun mættu
næstu keppendur raða sér inn á
hringvöllinn þannig að hægt sé að
halda dagskrá viðstöðulaust áfram.
Mörgum þykir hestamót taka alltof
langan tíma og er því áríðandi að
reynt sé að stytta þau með betri
skipulagningu. Þótt hér sé drepið á
þetta er ekki svo að skilja að fram-
kvæmd mótsins hafi verið eitthvað
lakari en gerist og gengur.
Góðhestareiðin
mæltist vel fyrir
Oðru hveiju leggja hestamenn
höfuðið í bleyti og gefa hug-
myndafluginu lausan tauminn. Það
gerðu hjónin Svanhvít Kristjáns-
dóttir og Einar Öder Magnússon
og gat að líta afrakstur af hugar-
smíð þeirra á Murneyrarmótinu.
Reyndist það vera ný keppnisgrein
sem kynnt var undir heitinu Góð-
hestareið.
Um er að ræða kappreið á 800
metra vegalengd þar sem höfðað
er til rýmis hrossanna og reglurnar
hafðar nokkuð einfaldar að sögn
Einars og við það miðaðar að þátt-
taka sé á færi sem flestra. Fyrstu
50 metrarnir eru fijálsir hvað
gangtegund varðar en þegar þeim
mörkum sleppir verða hrossin að
vera á tölti, brokki eða skeiði. Fari
hrossin upp á stökk eru þau ekki
úr leik heldur verða þau að snúa
við og fara aftur fyrir og hleypa
síðasta keppanda fram fyrir sig.
Þá er hægt að gefa í á nýjan leik
og freista þess að vinna upp tapað
forskot. Framkvæmd þessarar hug-
Við spilum þá upp
úr skónum!
myndar tókst með ágætum svona
í fyrsta skiptið og féll í góðan jarð-
veg hjá keppendum sem og móts-
gestum.
Fyrsti sigurvegarinn í þessari
grein var Bjarni Bjarnason sem
keppti á hestinum Nara frá Laugar-
vatni en hann mun albróðir hins
kunna gæðings Hara frá sama
stað. Tími þeirra var 1.43,7 mín.
og vildi stjórnandi keppninnar Ein-
ar Öder meina að þarna væri að
sjálfsögðu um íslandsmet að ræða.
Bjarni sem er aðeins ellefu ára er
sonarsonur Þorkels Bjarnasonar
hrossaræktarráðunautar. Að því er
best varð séð fór Nari sprettinn á
brokki en helstu keppinautarnir
voru á skeiði. Næstir komu Leifur
Bragason á Pöddu á 1.49,6 mín.
og Ólafur Ólafsson á Væng á
1.54,5 mín.
En fyrst farið er að tala um
góðar hugmyndir má geta einnar
hugmyndar sem nokkrum sinnum
hefur borið á góma en það er tví-
keppni þar sem keppt er á sama
TORFÆRA
Morgunblaðið/V aldimar
Fyrsti sigurvegarinn 11 ára
BJARNI Bjarnason fyrsti sigurvegarinn í Góðhestareið á
svifabrokki eftir verðlaunaafhendingu.
hestinum á brokki og skeiði, til
dæmis í 300 metra brokki og 150
metra skeiði og samanlagður tími
látinn ráða úrslitum. Það hefur
lengi verið vitað að margir fljótustu
brokkararnir eru alhliða hestar og
því ekki ólíklegt að keppni sem
þessi gæti náð vinsældum.
IÞROTTIR
BORÐTENNIS
Evrópukeppnin á næsta leiti
Guðmundur Stephensen keppir með besta unglingi Svía í tvíliðaleik á EM 14 ára og yngri
Evrópukeppni unglinga í borðtennis
hefst í Haag í Hollandi í næstu viku,
25. júlí og stendur til 3. ágúst. Fyrir ís-
lands hönd keppa Guðmundur E. Stephen-
sen og Markús Árnason í piltaflokki 14
ára og yngri. Eva Jósteinsdóttir og Lilja
Rós Jóhannesdóttir keppa í.flokki stúlkna
15-17 ára og Adam Harðarson, Ólafur
Stephensen og Björn Jónsson keppa í
flokki drengja 15-17 ára.
„Við vonumst til að geta staðið okkur
enn betur en í fyrra, en þá náðum við
besta árangri sem íslendingar hafa náð
frá upphafi í keppninni," segir Kjartan
Briem, þjálfari liðsins ásamt Peter Nils-
son. Hann segist samt halda að íslending-
ar eigi lítinn sem engan möguleika á sigri
í liðakeppninni.
„Helstu vonir okkar um að ná langt í
keppninni eru bundnar við Guðmund
Stephensen. Hann hefur sýnt það og sann-
að að hann getur staðið bestu unglingum
Evrópu á sporði og ef hann nær sér vel
á strik er aldrei að vita hversu langt hann
nær,“ segir Kjartan. Þá muni Guðmundur
keppa með besta unglingi Svía, Hasse
Petterson, í tvíliðaleik 14 ára og yngri,
GOLF
Morgunblaðið/Sverrir
LANDSLIÐ íslands í borðtennis: Frá vinstri: LÍNEY Árnadóttir,
Lilja Rós Jóhannesdóttir, Ingólfur Ingólfsson, Eva Jósteinsdótt-
ir, þjálfararnfr Peter Nllsson og Kjartan Briem, Guðmundur E.
Stephensen og Markús Árnason.
og megi búast við að þeir eigi ágætis
möguleika.
„Ekki má gleyma því að stúlkunum
hefur farið mikið fram á þessu keppnis-
tímabili ogg við vonumst til að þær bæti
sig enn frekar þegar að mótinu kemur,“
segir Kjartan.
Islenska landsliðið dvaldi nýlega í viku
í æfingabúðum í Danmörku, til þess að
búa sig undir Evrópukeppnina. Þá keppti
unglingalandsliðið á alþjóðlegu móti í Öl-
stykke í Danmörku dagana 2.-5. júlí.
Keppendur komu frá Svíþjóð, Danmörku,
íslandi og írlandi.
Á mótinu stóðu íslendingar sig með
sóma. Guðmundur E. Stephensen sigraði
í A-flokki drengja 15 ára og yngri og varð
í öðru sæti í A-flokki drengja 15-17 ára.
Eva Jósteinsdóttir sigraði Lilju Rós Jó-
hannesdóttur í úrslitum í 1. og 2. flokki
kvenna. Ingólfur Ingólfsson bar sigur úr
býtum í 2. flokki karla. Þá sigruðu Ingi-
mar Jensson og Þorvaldur Pálsson í tví-
liðaleik í B-flokki dregnja 15-17 ára og í
tvíliðaleik í 3. flokki karla sigruðu Ólafur
Rafnsson og landsliðsþjálfarinn Peter
Nilsson.
KNATTSPYRNA
Stúlkna-
liðið á NM
Arna Steinsen landsliðsþjálf-
ari hefur valið knatt-
spyrnulandslið stúlkna 16 ára
og yngri til þátttöku á Norður-
landamótinu hefst í Svíþjóð í
kvöld en þá ieikur íslenska liðið
við Noreg. Mótið, sem er eina
verkefni liðsms, stendur yfir í 5
daga. Auk íslands og Noregs
keppa Holland, Finnland, Svi-
þjóð og Danmörk.
Eftirtaldar stúlkur skipa liðið:
Þóra Helgadóttir, Breiðabliki,
Iris Andrésdóttir, Val,
Laufey Ólafsdóttir, Val,_
Signður Friðriksdóttir, ÍBV,
Lovísa Sigurjónsdóttir, Stjörnunni,
Sandra Karlsdóttir, Breiðabliki,
Edda Garðarsdóttir, KR,
Ólöf Indriðadóttir, KR,
Jóhanna Indriðadóttir, KR,
Hanna Stefánsdóttir, Haukum,
Ásdís Oddsdóttir, Haukum,
Silja Ágústsdóttir, UMFA,
Anna Smáradóttir, ÍA, _
Helga Björgvinsdóttir, ÍA,
Karen Ólafsdóttir, ÍA,
Margrét Jónsdóttir, Svíþjóð.
Sá gamli erfiður
Opna breska meistaramótið i golfí hefst
í dag á gamla vellinum á St Andrews
í Skotlandi og er þetta í 25. sinn sem
mótið fer þar fram. Ákveðið hefur verið
að gera 17. holuna, Götuholuna, erfiðari
en venjulega og finnst flestum kylfmgum
samt nóg um. Venjulega hefur brekkan á
bak við flötina verið þannig að boltinn
hefur rúllað aðeins niður en nú á að vera
þar nokkuð hátt gras þannig að menn
mega helst ekki yfirslá flötina. Miklar
vangaveltur eru um hveijir muni vera í
baráttunni og sitt sýnist hveijum.
Ástralinn Greg Norman, sem er í efsta
sæti á heimslistanum, ætlar að vera með,
ef hann mögulega getur, en þessi fertugi
kylfingur hefur verið meiddur í baki að
undanförnu. Hann tók sér sex vikna frí
frá golfí í apríl og maí en hefur verið í
fínu formi síðan, varð meðal annars í öðru
sæti á U.S. Open.
„Ég er slæmur í bakinu, en ætla að
reyna að spila, en ég ætla ekki að leika
æfingahringina í dag,“ sagði Normann í
gærmorgun. „Ég held ég sé búinn að leika
of mikið síðustu sjö vikurnar,“ sagði meist-
arinn frá því 1986 og 1993 við.
Hann hefur fullan hug á að laga árang-
ur sinn á gamla vellinum, alla vega frá
því árið 1990, en þá var hann í fyrsta
sæti eftir tvo daga ásamt Nick Faldo, sem
síðan sigraði. Þriðja daginn lék Faldo á 9
höggum færra en Norman og Ástralinn
var allt annað en ánægður eftir þriðja
daginn. „Ég var alvarlega að hugsa um
að hætta í golfi og gerast kúabóndi,“ sagði
hann í gær þegar hann rifjaði þetta upp.
Fleiri snillingar eiga sárar minningar
frá viðureign sinni á gamla vellinum. Einn
þeirra er Þjóðverjinn Berhard Langer sem
rifjar upp keppnina þar árið 1984, en þá
sigraði Severino Ballesteros, fékk fugl á
síðustu holunni og skaust fram fyrir Lan-
ger og Tom Watson. „Ég sló miklu betur
en Seve, en hann púttaði dásamlega og
það dugði honum. Mig langar mikið til
að bæta mig á þessum velli, en til að það
sé hægt verða menn að vera í mjög góðri
æfingu og hafa heppnina með sér,“ sagði
Langer.
Nick Faldo virðist vera að koma til,
eins og Langer, en hann lék mjög vel síð-
asta daginn á Opna skoska mótinu um
síðustu helgi og hann vill ólmur sigra aft-
ur á gamla vellinum, en hann sigraði þeg-
ar mótið var háldið þar síðast.
Fleiri kylfingar koma sterklegá til
greina og má þar nefna Corey Pavin,
nýkrýndan meistara í Opna bandaríska,
en Tom Watson varð síðastur til að sigra
á báðum Opnu mótunum, því breska og
bandaríska, árið 1982. „Það væri gaman
að leika það eftir og þess vegna er ég
OPNA MEISTARAMOTIÐ /
Gamli völlurinn á St Andrews i Skotlandi
þar sem 124. opna breska meistaramótiö
fer fram. Þetta er í 25. sinn sem
mótiö er haldið á þessum
fornfræga velli.
17. HOLA: GÖTUHOLAN
Hörð braut, stórar og djúpar
glompur auk hávaxíns karga
gerir þessa holu eina þá
^ erfiðustu i stórmótum.
Hola
Metrar Par
1 Burn 339 4
2 Dyke 376 4
3 Cartgate 339 4
4 Ginger Beer 424 4
5 Hole o'Cross. Oul 516 5
6 Heathery, Out 381 4
7 High Hole, Out 340 4
8 Short Hole 163 3
9 EndHole 326 4
OUT 3203 36
10 BobbyJones 313 4
11 High Hole, Home 157 3
12 Heathery, Home 289 4
13 Hole o'Cross, Home 389 4
14 LongHole 519 5
15 Cartgate, Home 378 4
16 Comer o'the Dyke 350 4
17 RoadHole 422 4
18 TomMorris 324 4
IN 3140 36
TOTAL
5798 72
Púttin hjá Colin Montgomeri eru
höfuðverkur og leikur Ian Woosnams
hefur verið upp og niður.
Á FÆTUR KRINGLUNNI. U1ILÍF GLÆSIBÆ, TOPPMENN & SPORT AKURLYRI
hér,“ segir Pavin. Ben Crenshaw virðist ekki alveg á bolt- anum þessa dagana en Bandaríkjamenn- imir Lee Janzen og Peter Jacobsen virð- ast í góðu formi og eru til alls líklegir. Knattspyma 1. deild karla: Keflavík: Keflavík-KR 20
Vestmannaeyjar: ÍBV-ÍA 20 20
Evrópskir kylfingar sem venjulega koma nokkuð við sögu, og hafa ekki ver- Kópavogur: Breiðablik-Grindavík...20
ið nefndir hér, eru til dæmis Spánveijarn- ir Seve Ballesteros og Jose Maria Olazab- 4. deild: 20
al, en þeir hafa báðir leikið illa að undan- förnu og ekki er búist við miklu af þeim. Hörgárdal: SM-Magni 20
Rccbok
I ÞINUM SPORUM
Sigurður Þ. Jónsson hefur forystu í götujeppaflokki og ætlar að sigra á Akranesi
Med forystu á Lukkutröllinu
AZTREK
Sérlega stöðugir alhliða
hlaupaskór, henta jafnt I
götuhlaup og hlaup utan vega.
EVA millisóli og Ultra HEXALITE
dempun undir hæl, sem getur
frábæra mýkt. Mest seldi
Reebok skórinn á íslandi.
Stærðir: UK 3-8/6,5-12
Viðm. verð: 7.490,-
Gunnlaugur
Rögnvaldsson
skrífar
ísland - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst
SIGURÐUR Þ. Jónsson kann best við slg í illkleifum börðum,
eða „stálum" eins og torfærumenn kalla þrautir.
Kópavogsbúinn Sigurður Þ. Jónsson
hefur forystu í keppninni um ís-
landsmeistaratitlinn í flokki götujeppa,
en næsta keppni er á
Akranesi á laugardag-
inn. Sigurður mætir í
keppnina með fimm
stiga forskot á Gunnar
Guðmundsson, sem verður vafalaust
grimmur eftir sigur í bikarmeistara-
móti á Egilsstöðum fyrir skömmu. „Ég
ætla að hanga á forystunni, en fæ
vonandi aukna samkeppni, sem hefur
skort í flokk götujeppa. Á tímabili var
ég að spá í að fara í sérútbúna IVkk-
inn og keppi örugglega í honum á
næsta ári. Gæti hugsanlega prófað það
í bikarmótinu í Grindavík í ágúst,“
sagði Sigurður í samtali við Morgun-
blaðið. Hann er með 35 stig, Gunnar
er með 30, Kristján Hauksson 25 og
Rafn Guðjónsson 14. „Ég vona að
Kjartan Guðvarðarson mæti á Akra-
nes, sem býður upp á skemmtilegar
þrautir. Þá verður Kristján Hauksson
skæður, en hann keppir á jeppa fyrrum
íslandsmeistara“.
Sigurður hóf ferilinn árið 1992 og
besta árið hans var í fyrra, þar sem
hann var yfirleitt í öðru eða þriðja
sæti, en Ragnar Skúlason varð meist-
ari. „Eg hef ekið á sama jeppa frá
byijun, en hef þróað hann mikið, hann
er löngu kominn yfir markið, sem
ætti að vera eðlilegt í þessum flokki.
Eini munurinn á honum og sérútbún-
um jeppa er sá að hann er ekki á
skófludekkjum. Ég er með tjakkstýri,
400 hestafla vél og nítróbúnað, sem
reyndar hefur ekki virkað sem skyldi
til þessa. Þá er loftpúðafjöðrun að
framan, sem ég held að sé framtíðin
í torfærunni, hún kemur vel út og það
er auðvelt að stilla mýkt fjöðninarinn-
ar.
Jeppinn sem Sigurður ekur kallast
Lukkutröllið, en þá nafngift hlaut jepp-
inn eftir að Sigurði voru gefin tvö
lukkutröll í keppni í Svíþjóð, sem
standa á vélarhlíf jeppans. Nú er búið
að gefa honum tvö til viðbótar, sem
dugðu þó ekki í síðustu keppni á Egils-
stöðum. „Mér hefur aldrei gengið vel
á Egilsstöðum, líst betur á Akranes
og Hellu. Ég hef trú á lukkutröllunum,
er hjátrúafullur. Til gamans kíkti ég
á stjörnuspánna mína eftir síðustu
keppni, þar sagði að mér myndi ganga
illa, en ég ætti ekki að vera vondur
útaf því. Það gengi betur næst, von-
andi reynist það rétt. Ég hræðist ekki
að velta og er mest spenntur að klifra
upp illkleif börð. Eftir að hafa velt í
fyrsta skipti fór hræðslan og veltur
eru ekkert tiltökumál, það þarf að
taka áhættu til að vinna. Mér líður
aldrei betur en eftir veltu, leiðist það
hreint ekki“, sagði Sigurður.
PYRO
Léttir alhliöa hlaupaskór.
Formsteyptur EVA
millisóli með HEXALITE
dempurum í hæl
gefur góða mýkt.
Grófmunstraður
gúmmlsóli gefur
gott grip.
Stærðir UK. 3-8/6,5-12
Viðm. verð: 5.490,-
IOI, SPORTBÚÐ ÓSKARS KEFLAVÍK. SKOSTOFAN OSSUR REYKJAVIK, SPARTj