Morgunblaðið - 29.07.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LAMDSMANNA
Jlfawgtntlifftfeife
C
1995
LAUGARDAGUR 29. JÚLÍ
BLAD
FRJALSIÞROTTIR
Vala á heims-
metið í ungl-
ingaflokki
ÁRANGUR Völu Flosadóttur, hinnar ungu og
bráðefnilegu frjálsíþróttastúlku úr ÍR, í stang-
arstökki innanhúss, mun vera heimsmet.ungl-
inga í greininni, skv. upplýsingum frá alþjóða
fijálsíþróttasambandinu. Vala, sem verður 17
ára á þessu ári, og er búsett í Svíþjóð, stökk
hæst 3,76 metra á innanhússmóti ytra fyrr á
þessu ári. Vitað var að árangur Völu væri Norð-
urlandamet í kvennaflokki, en nú er sem sagt
komið í ljós að það er heimsmet unglinga. Heims-
metið í fullorðinsflokki mun nú vera 4,14 metrar.
Martha:
9.19,06 í
3.000 m
MARTHA Ernstdóttir úr ÍR
hyóp 3.000 metra á 9.19,06
mln. á móti í Lahti í Finn-
landi í gær og er það besti
tíma hennar í greininni I ár.
Martha hefur verið í lægð
að undanförnu, en virðist
nú vera á uppleið á ný —
og gæti því orðið á réttu
róli á heimsmeistaramótinu,
sem hefst í Gautaborg um
næstu helgi. Þar hyggst hún
keppa í 10 kílómetra hlaupi.
Besti tími Mörthu í 3.000
m hlaupi eru um 9,15 mín.
þannig að hún var um 4 sek-
úndum frá sínu besta í gær-
kvöldi.
Auðunn
fékk silfur
HEIMSMEISTARAMÓTI
unglinga í kraflyftingum er
nú lokið en keppnin fór fram
I Nýju Dehli í Indlandi. Þrír
keppendur mættu frá ís-
landi og bestum árangri náði
Auðunn Jónsson, sem lyfti
samtals 885 kílóum 1125
kflóa flokki og hlaut silfur
fyrir vikið. Hann á sjálfur
íslandsmetið í þessum
flokki, 902,5 kíló, svo að
hann var nálægt sínu besta.
Jóhannes Eiríksson varð í
6. sæti í 60 kilóa flokki og
Völundur Þorbjörnsson í því
sjötta í 110 kílóa flokki.
Einar fer
ekki á HM
EINARI Vilhjálmssyni,
spjótkastara, tókst ekki að
ná lágmarkinu í spjótkasti
fyrir heimsmeistaramótið í
frjálsíþróttum, sem fram fer
í Gautaborg í Svíþjóð í næsta
mánuði. Síðasti möguleiki
Einars var að kasta 80 metra
á kastmóti ÍR, sem haldið
var í Laugardalnum í vik-
unni, en þar sem hann náði
aðeins að komast yfir 75
metra, mun hann sitja
heima.
KNATTSPYRNA
Akurnesingar leigja Arnar og Bjarka frá Feyenoord
Tvíburamir geta tekið
þátt í Evrópuieikjum ÍA
ARNAR og Bjarki Gunnlaugssynir geta leikið með íslandsmeistur-
um Akurnesinga í Evrópukeppninni, auk íslandsmótsins, skv.
samningi sem IA gekk í gær frá við hollenska félagið Feyeno-
ord. Um leigusamning er að ræða, og þeir bræður verða frjálsir
ferða sinna um leið og þeir vilja. Staðfesting á félagaskiptum
bræðranna barst í gær frá hollenska knattspyrnusambandinu
og KSÍ gaf síðdegis út leikheimiid.
Arnar og Bjarki tilkynntu félaga-
skipti frá Feyenoord til Is-
landsmeistaranna áður en frestur til
þess rann út, fimmtánda þessa mán-
aðar, en Feyenoord gaf ekki strax
eftir varðandi leikheimild í Evrópu-
keppni. Þar stóð hnífurinn í kúnni
þar til í gær. Þeir töldu verra bræð-
urnir lékju með ÍA í Evrópukeppn-
inni því þar með hefðu þeir fyrirgert
rétti sínum til þátttöku í keppninni
með öðru liði í vetur — og þar með
yrði hugsanlega erfiðra en ella að
selja þá.
„Þetta er það sem málið snérist
um — að við fengjum að vera með
í Evrópukeppninni. Það er ekki hægt
að selja vöru ef ekki er hægt að
sýna hana,“ sagði Bjarki Gunnlaugs-
son við Morgunblaðið í gær. Hann
sagði þá b'ræður hafa verið með til-
boð frá svissneska félaginu Yverdon,
en ákveðið að neita því þegar ljóst
var að áðurnefndur samningur við
Feyenord, sem fæli í gær leikheimild
í Evrópukeppni, yrði að veruleika.
„Tilboðið frá Sviss var ágætt pen-
ingalega, en liðið er ekki merkilegt,
þannig að við völdum frekar að leika
með Skagamönnum," sagði Bjarki.
Logi Olafsson, þjálfari ÍA, var
ánægður í gær þegar málið var í
höfn. „Auðvitað styrkir þetta okkur,
það er ekki vafí á því. En hinu má
ekki gleyma, sem er kannski vanda-
mál, að þeir hafa ekki leikið með lið-
inu og aðeins einn leikur er í deild-
inni fram að Evrópuleik. En þeir
hafa æft með okkur síðan þeir komu
heim og þekkja auðvitað leikmenn
hér og allar aðstæður.“ Vert er að
geta að bræðumir leika í dag með
IA á Bolungarvík, vígsluleik nýs vall-
ar.
Arnar Gunnlaugsson Bjarkl Gunnlaugsson
Kári og Theodór utan
TVEIR leikmanna Akranessliðsins í knattspyrnu, Kári Steinn
Reynisson og Theodór Hervarsson, fara báðir úr landi í ágúst
til náms og leika því ekki síðasta liluta keppnistimabilsins með
Skagaliðinu.
Fögnudu í fyrra
KR-INGAR uröu blkarmeistarar ■ fyrra og fagna hér langþráA-
um slgri. Fremstlr í flokki eru Tryggvl Guðmundsson, t.v.,
sem í sumar lelkur ð ný mefl ÍBV, og Hilmar Björnsson.
Barist um sæti
í bikarúrslitum
ÞAÐ kemur í ljós á mánudagskvöld-
ið hveijir mætast í úrslitaleik bikar-
keppni karla í sumar. Þá mætast
annars vegar lið Keflavíkur og KR
kl. 19 í Keflavík og hins vegar eig-
ast við Fram og Grindavík á Laugar-
dalsvelli og hefst sá leikur kl. 20.
Þannig dróst í undanúrslitunum
að mögulegt er að tvö Suðurnesjalið
mætist í úrslitum, einnig að tvö
Reykjavíkurlið komi til með að kljást
á Laugardalsvelli sunnudaginn 27.
ágúst og þá er sá möguleiki einnig
fyrir hendi að sömu lið berjist um
bikarinn og í fyrra. Þá fögnuðu
KR-ingar langþráðum sigri eftir að
hafa lagt Grindvíkinga að velli, 2:0.
Grindvíkingar léku þá í 2. deild, en
eru nú í 1. deild með sterkara lið
en á síðastliðnu sumri.
Grindvíkingar og Framarar hafa
mæst einu sinni í sumar; í 5. umferð
1. deildarinnar, 22. júní, í Grindavík.
Þeim leik lauk með jafntefli, 2:2.
Heimamenn voru 2:0 yfir í leikhléi,
með mörkum Grétars Einarssonar
og Tómasar Inga Tómassonar en
Framarar skiptu um gír eftir hlé;
Þorbjörn Atli Sveinsson minnkaði
muninn og Ríkharður Daðason jafn-
aði úr vítaspyrnu.
Keflvíkingar og KR-ingar hafa
einnig mæst einu sinni í sumar. Það
var fyrir fáeinum dögum, í 9. um-
ferð, á Keflavíkurvelli. Þá fóru KR-
ingar með þrjú stig með sér í burtu,
eftir að Mihajlo Bibercic hafði gert
eina markið.
KNATTSPYRNA: UNGAR, BRÁÐEFNILEGAR OG ÓSIGRAÐAR / C4